Teddy |
|
|
|
Heklaður bangsi úr DROPS Muskat
DROPS Baby 21-43 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GALDRAHRINGUR: Byrjið með þessari aðferð til að koma í veg fyrir að það myndist gat í miðju (í staðinn fyrir loftlykkjuhring): Haldið í endann á þræðinum og snúið þræðinum einu sinni í hring utan um vinstri vísifingur til þess að úr verði hringur. Haldið í hringinn með vinstri þumli og löngutöng, þráðurinn liggur yfir vinstri vísifingur. Heklunálinni er stungið inn í hringinn, þræðinum er brugðið um heklunálina og þráðurinn dreginn upp úr hringnum, heklið 1 loftlykkju, heklið nú fastalykkju utan um galdrahringinn. Þegar sá fjöldi fastalykkja er kominn sem óskað er eftir, dragið í endann á þræðinum og herðið að. Festið enda á bakhlið. Haldið áfram að hekla í hring. HEKLAÐ Í HRING: Eftir síðustu fastalykkju í umferð, haldið áfram að næstu umferð með 1 fastalykkju í næstu fastalykkju (= fyrsta fastalykkja frá fyrri umferð). ATH: Merkið byrjun umferðar með prjónamerki á milli síðustu fastalykkju í umferð og fyrstu fastalykkju í næstu umferð, látið prjónamerkið fylgja með í stykkinu. 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN: * Stingið heklunálinni í næstu lykkju, sækið þráðinn *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni. LITASKIPTI: Til að fá falleg litaskipti er síðasta fastalykkjan í umferð hekluð þannig: Stingið heklunálinni í síðustu fastalykkju, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina með nýja litnum og dragið í gegnum allar lykkjur á heklunálinni. Haldið áfram að næstu umferð með nýja litnum. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- BANGSI: HÖFUÐ: Byrjið efst á höfði með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið með heklunál 3 með litnum bleikfjólublár. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. Lesið HEKLAÐ Í HRING. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 4: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 5: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 6: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 7: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í næstu 5 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 42 fastalykkjur. UMFERÐ 9-13: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 42 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 14: * 1 fastalykkja í næstu 5 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman * - sjá 2 FASTALYKKJUR HEKLAÐAR SAMAN – að ofan, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 15: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur. UMFERÐ 16: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 17: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 18: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 20: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. Klippið frá og fyllið höfuðið með vatti. BÚKUR: Byrjið neðst á búk með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið með litnum bleikfjólublár. UMFERÐ 1-6: Heklið eins og höfuð (umferð 6 = 36 fastalykkjur í umferð). UMFERÐ 7-12: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 36 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 13: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 14: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 30 fastalykkjur. UMFERÐ 15: 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 16: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur. UMFERÐ 17: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 18: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 18 fastalykkjur. UMFERÐ 19: * 1 fastalykkja í næstu fastalykkju, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 12 fastalykkjur. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið búkinn með vatti. FÓTUR: Byrjið yst á fæti með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið með litnum bleikur. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3-4: * Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur í umferð. Skiptið yfir í litinn bleikfjólublár í síðustu fastalykkju í umferð 4 – sjá LITASKIPTI. UMFERÐ 5-6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í næstu 4 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 9-10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Heklið hinn fótinn á sama hátt og fyllið fæturna með vatti. HÖND: Byrjið yst á hönd með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið með litnum bleikur. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur í umferð. Skiptið yfir í bleikfjólublár í síðustu fastalykkju í umferð 4. UMFERÐ 5-6: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur í umferð. UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, heklið síðan 2 næstu fastalykkjur saman *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 8-10: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Heklið hina höndina á sama hátt og fyllið hendurnar með vatti. NEF: Byrjið yst á nefi með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið með litnum bleikur. UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 16 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 16 fastalykkjur. Klippið frá en haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Fyllið nefið með vatti. EYRA: Byrjið efst á eyra með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið með litnum bleikur. UMFERÐ 1: Heklið 4 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 8 fastalykkjur. UMFERÐ 3: * 1 fastalykkja í næstu 3 fastalykkjur, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. Klippið frá en haldið eftir 20 cm fyrir frágang. Fyllið ekki með vatti. Heklið hitt eyrað á sama hátt. RÓFA: Byrjið yst á rófu með því að gera GALDRAHRINGUR – sjá útskýringu að ofan. Heklið með litnum bleikur. UMFERÐ 1: Heklið 5 fastalykkjur um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur. UMFERÐ 3-4: Heklið 1 fastalykkju í hverja fastalykkju = 10 fastalykkjur í umferð. Klippið frá en haldið eftir 30 cm fyrir frágang. Fyllið rófuna með vatti. FRÁGANGUR: Saumið eyru og nef á höfuð. Saumið út nokkur spor yst á nefi, saumið augu með litnum fjólublár. Saumið höfuð fast á búk með smáu spori. Saumið fætur og hendur á búk, saumið rófu á bakhlið á búk. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (22)
Assia wrote:
S'il vous plai comment commencer cet ouvrage merci pour tous vos modeles
28.12.2011 - 19:09Andrea M. wrote:
Hallo habe einen Fehler beim Häkelbären gefunden. Schnauze: 6! Maschen um den Ring, anstatt die angegeben 5 Maschen. lg andrea M.
28.12.2011 - 17:29