DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 21-36
DROPS Design: Mynstur nr BM-042-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-100-150 (150-150) gr litur nr 2, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 34 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚRTAKA:
Byrjið 2 lykkjum á undan prjónamerki og prjónið þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá mitti og niður.

BUXUR:
Fitjið upp 142-150-160 (166-172) lykkjur á hringprjóna 2 með Baby Merino – byrjun á umferð = miðja að aftan.
Prjónið stroff 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið.
Þegar stroffið mælist 4 cm, skiptið yfir á hringprjóna 2,5. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-18-22 (22-22) lykkjur jafnt yfir = 126-132-138 (144-150) lykkjur.
UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Prjónið nú sléttprjón jafnframt er prjónuð hækkun að aftan þannig: Prjónið 10-11-11 (12-12) lykkjur frá byrjun umferðar, snúið við (til þess að koma í veg fyrir göt takið 1. lykkju óprjónaða þegar prjónað er til baka og herðið aðeins á þræðinum). Prjónið 20-22-22 (24-24) lykkjur og snúið við. Prjónið 30-33-33 (36-36) lykkjur og snúið við. Prjónið 40-44-44 (48-48) lykkjur og snúið við. Haldið svona áfram með því að prjóna 10-11-11 (12-12) lykkjur fleiri í hvert sinn áður en snúið er við 8 sinnum til viðbótar (= 12 styttri umferðir) Haldið nú áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur.
ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 13-16-17 (18-19) cm frá mitti (mælt við miðju að framan) setjið eitt prjónamerki í byrjun umferð og eitt prjónamerki á eftir 63-66-69 (72-75) lykkjur (merkir framan og aftan á buxunum). Aukið nú út um 1 lykkju hvoru megin við þessi prjónamerki (= 4 lykkjur fleiri í hverri umferð) í 3. hverri umferð alls 6 sinnum = 150-156-162 (168-174) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24) cm frá mitti (mælt við miðju að framan).

SKÁLM:
Prjónið 75-78-81 (84-87) lykkjur – byrjið að prjóna við miðju að aftan og setjið þær lykkjur sem eftir eru á þráð. Prjónið í hring á sokkaprjóna – setjið prjónamerki að innanverðu á skálminni = byrjun á umferð.
Fækkið nú um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkið – LESIÐ ÚRTAKA - alls 14-13-12 (11-10) sinnum í STÆRÐ 1/3 MÁN: Til skiptis í annarri og 3. hverri umferð, STÆRÐ 6/9 MÁN: Til skiptis í 3. og 4. hverri umferð, STÆRÐ 12/18 MÁN: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð, STÆRÐ 2 ÁRA: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð og STÆRÐ 3/4 ÁRA: Til skiptis í 9. og 10. hverri umferð= 47-52-57 (62-67) lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 31-37-40 (46-53) cm frá mitti er skipt yfir á sokkaprjóna 2. Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT er aukið út um 11-12-13 (16-17) lykkjur jafnt yfir = 58-64-70 (78-84) lykkjur. Prjónið áfram stroff = 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið þar til buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm frá mitti (stroffið mælist þá ca 5-5-6 (6-6) cm). Fellið laust af í stroffi.
Prjónið hina skálmina á sama hátt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 18.10.2016
Nýtt efnismagn í stærð 12/18 mán:
Efni: DROPS BABY MERINO frá Garnstudio 100-100-150 (150-150) gr nr 02, natur.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Cozy and Cute

Anna, Sweden

Cozy and Cute

Maja, Poland

Cozy and Cute

Hanne, Denmark

Cozy and Cute

Hanne, Denmark

Cozy and Cute

Hanne, Denmark

Cozy and cute

Weronyk, Slovakia

b21-36 Cozy and Cute

Maja, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-36

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (82)

country flag Diane Brown wrote:

I am not understanding turn the piece have been knitting for years but somehow not getting this looks like there is a video above but does not see how it works first row for iinstance is knit 12 stiches turn and then knit 20 soe stichesf

27.02.2016 - 10:01

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brown, you are now knitting some short rows so that back piece will be higher than front piece, starting from beg of round, K12, then turn and work from WS: P24, turn and K36 sts, turn and P48 sts, turn and K 12 more sts, ie 48+12= K 60 sts, turn and P 12 more sts = P72 sts etc. see also video below. Happy knitting!

27.02.2016 - 16:27

country flag Eve Bardou wrote:

Bonjour, apres avoir tricote les 40 mailles du rang raccourci 4 et avoir tourné l'ouvrage, on doit tricoter 50 mailles ( 10 mailles de plus sur le rang 5) et tourner . On répète cela jusqu'au moment où on aura tricote 120 mailles on sera alors 12 rangs raccourcis. Est ce cela?

13.02.2016 - 03:20

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bardou, c'est exact, pour la 1ère taille. Bon tricot!

15.02.2016 - 17:53

Mareike wrote:

Hallo, wie ist das mit den Abnahmen an den Beinen gemeint? "Abwechslungsweise in jeder 3. und 4. Reihe" - heißt das, man muss a) zwei reihen ohne Abnahmen stricken, dann zwei Reihen mit Abnahmen ODER b) zwei Reihen ohne Abnahmen, eine mit, drei Reihen ohne Abnahmen und das dann immer abwechselnd??? Schon mal fanke für Ihre Hilfe :) VG

23.11.2015 - 16:20

DROPS Design answered:

b) ist richtig: Sie stricken 2 Rd ohne Abnahmen, 1 Rd mit Abnahmen, 3 Rd ohne Abnahmen, 1 Rd mit Abnahmen, 2 Rd ohne Abnahmen, 1 Rd mit Abnahmen, 3 Rd ohne usw. In der Anleitung steht R., gemeint sind aber Runden, das wird gleich korrigiert.

30.11.2015 - 12:33

country flag Nilsen wrote:

Heisann. når man skal forhøy hvordan fungerer det? hvor skal man starte i strikke sette med dette og skal man forhøyre like mye fra venstre som for høyre fra fekp hjelpetråd. Vanskelig dette.om dere kunne lagt ut video om forøyning hadde det vært til stor hjelp. mvh nilsen

17.10.2015 - 05:38

DROPS Design answered:

Hej Nilsen, Forhøjningen får du automatisk når du føljer opskriften hvor der står "... strikkes forhøyning bak slik: Strik ..... " God fornøjelse!

26.11.2015 - 14:48

country flag Diana Franken wrote:

Ik snap het stukje niet na de boord. De ronding. Je breidt 11 steken en dan je werk keren en averechts terug maar dan..... ga je dan de hele ronde averechts door tot beginpunt. Dan keren en de volgende 22 steken en keren en ronde averechts terug of na die 11 av steken terug keer je weer je werk en ga je de volgende 22 steken breien en keren?

16.10.2015 - 21:16

DROPS Design answered:

Hoi Diana. Het begin van de nld is middenachter. Je breit eerst 11 st, keer het werk en brei terug 22 st (dus je zit nu 11 st aan de andere kant van middenachter), Keer nogmaals en brei 33 st, dwz terug over middenachter en 11 st verder dan de eerste keer enzovoort.

23.10.2015 - 13:42

country flag Anna Maria wrote:

Buon giorno. Sto facendo le diminuzioni ma non ho capito bene,li lavoro cosi:prima del segno prendo 2 assieme e poi 1 m dritta sposto il marcatore lavoro 1 maglia a dir poi passo una maglia senz lav 1 m dir accav,la m passata va bene cosi grazie mille

20.06.2015 - 12:40

DROPS Design answered:

Buongiorno Anna Maria. Per diminuire deve lavorare finché non rimangono 2 m prima del marcatore, lavora queste 2 m insieme a dir, sposta il marcatore, passa la m successiva a dir senza lavorarla, 1 m dir, accavalla la m passata sulla m lavorata. Le diminuzioni sono subito prima e subito dopo il marcatore. Buon lavoro!

20.06.2015 - 13:43

country flag Manuela Franjou wrote:

Je ne sais pas comment adapter le schémas pour faire un 3-6mois. il y a t il une explication? merci

03.06.2015 - 12:02

country flag Manuela Franjou wrote:

Bonjour, Pour faire une taille 3-6 mois, que dois je faire? merci Manuela

29.05.2015 - 14:00

DROPS Design answered:

Bonjour Manuela, ce modèle est disponible en taille 1/3 mois ou 3/6 mois - vous pouvez adapter en fonction des mesures souhaitées à l'aide du schéma des mesures en bas du modèle. Bon tricot!

29.05.2015 - 17:51

country flag Annamaria wrote:

Buongiorno.Per quanto riguardano gli aumenti e le diminuzioni non c'è scritto che tipo di aumenti e diminuzioni grazie

21.05.2015 - 07:54

DROPS Design answered:

Buongiorno Annamaria. Abbiamo inserito nel testo il suggerimento per le diminuzioni. Per gli aumenti, può aumentare sollevando il filo della riga precedente, come indicato nel seguente video. Buon lavoro!

21.05.2015 - 08:36

country flag Annamaria wrote:

Buon pomeriggio.Non avendo mai lavorato i ferri accorciati,vorrei sapere quante volte devo lavorarli sto facendo la prima misura ho avviato 142 maglie.Quanto ho capito ho lavorato fino a 80 maglie accorciate non so se ho fatto bene grazie mille

20.05.2015 - 16:55

DROPS Design answered:

Buonasera Annamaria, deve lavorare i ferri accorciati 12 volte in tutto, partendo lavorando 10 m prima di girare il lavoro, passare la 1° m e lavorare 20 m e poi girare il lavoro, passare la 1 m e poi lavorare 30 m e poi girare il lavoro. Sull'ultimo ferro accorciato passerà la 1° m e lavorerà 120 m prima di girare il lavoro. Ci riscriva se non è chiaro. Buon lavoro!!

20.05.2015 - 19:45