DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Blueberry

Sett fyrir börn með prjónuðum buxum, sokkum og peysu með berustykki og brómberjamynstri úr DROPS Alpaca

DROPS Baby 21-24
DROPS Design: Mynstur nr Z-088-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 ára)
Stærð í cm: 56/62 - 68/74 - 80/86 (92 - 98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
150-150-150 (150-200) g litur nr 6205, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm og 28 l með brómberjamynstri verði 10 cm á breidd.
DROPS KÓKOSTALA, NR 516 - 5 st.

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 ára)
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
100-150-150 (150-200) g litur nr 6205, ljós blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 48 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – fyrir stroff.

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4 ára)
Lengd fótar: 10-11-12 (14-16) cm

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) gr litur nr 6205, ljós blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 28 lykkjur með brómberjamynstri verði 10 cm á breidd.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Umferð 1 = rétta.

ÚRTAKA:
Fækkið l 3 l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman, 1 l sl.
Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: 1 l sl, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 hnappagat = fellið af 3. og 4. l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær sem felldar voru af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 5, 10, 14, 19 og 23 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 5, 10, 15, 20 og 25 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 6, 12, 17, 23 og 28 cm.
STÆRÐ 2 ára: 6, 12, 18, 24 og 30 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 6, 13, 20, 27 og 33 cm.
ATH: Fellið af fyrir síðasta hnappagatinu þegar 2 umf garðaprjón eru eftir í kanti að framan fyrir hálsmál.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-134-150 (164-178) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 3 með Alpaca.
Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= umf 1 = rétta). JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 18-20-24 (26-28) l jafnt yfir = 138-154-174 (190-206) l.
Prjónið síðan M.1 með 5 kantlykkjum í garðaprjóni í hvorri hlið. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 13-14-16 (17-19) cm – stillið af eftir 3. umf í M.1 – prjónið næstu umf frá röngu þannig: 33-37-42 (46-50) l (= vinstra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 56-64-74 (82-90) l (= bakstykki), fellið af 8 l fyrir handveg og prjónið 33-37-42 (46-50) l (= hægra framstykki).
Geymið stykkið og prjónið ermar!

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 38-38-40 (42-45) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 8 umf garðaprjón (umf 1 = rétta). JAFNFRAMT í síðustu umf er aukið út um 8-8-10 (8-9) l jafnt yfir = 46-46-50 (50-54) l. Prjónið síðan M.1 með 1 kantlykkju í hvorri hlið. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-5 (6-6) cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 3-2-1½-1½-2 cm millibili alls 4-6-8 (10-10) sinnum = 54-58-66 (70-74) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í M.1, þær l sem ekki ganga upp í mynstri eru prjónaðar í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 15-15-18 (22-26) cm – stillið af eftir 3. umf í M.1 – fellið af 5 l í hvorri hlið (fellið af í byrjun og í lok umf ) = 44-48-56 (60-64) l eftir á prjóni.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 210-234-270 (294-318) l. Prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 34-37-43 (46-49) l jafnt yfir (ekki er l fækkað yfir kant að framan) = 176-197-227 (248-269) l. Prjónið 1 umf slétt frá röngu. Prjónið síðan garðaprjón fram og til baka yfir allar l JAFNFRAMT í 1 umf er fækkað um 11-11-12 (12-13) l jafnt yfir (ekki er l fækkað yfir kant að framan). Endurtakið úrtöku í 6. hverri umf (frá réttu) alls 8-9-10 (11-11) sinnum = 88-98-107 (116-126) l eftir á prjóni. Þegar stykkið mælist ca 23-25-28 (30-33) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu – fækkið um 20-22-23 (24-34) l jafnt yfir = 68-76-84 (92-92) l eftir á prjóni.

HÁLSMÁL:
Prjónið frá réttu þannig: 5 l garðaprjón, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l sl og 5 l garðaprjón. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br þegar kantur í hálsmáli mælist 3-3-4 (4-4) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma innan við 1 kantlykkju. Saumið saman op undir höndum. Saumið tölur í.

-------------------------------------------------------

BUXUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmarnar settar á sama hringprjón og prjónað er í hring.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið LAUST upp 56-60-64 (68-72) l á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innanverð skálm. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff = 2 l sl, 2 l br. Þegar stykkið mælist 8-8-9 (9-10) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 8-8-10 (12-12) l jafnt yfir = 48-52-54 (56-60) l. Prjónið nú GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 9-9-10 (10-11) cm aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 4-6-7 (10-13) umf millibili alls 9 sinnum = 66-70-72 (74-78) l. Haldið áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist ca 16-19-22 (27-33) cm (passið uppá að síðasta útaukningin sé búin) skiptist stykkið við innanverða skálmina og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til þess að það sé auðveldara að setja skálmarnar á sama hringprjón síðar). Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið fyrir saum = 68-72-74 (76-80) l. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-35) cm fellið af 3 l á hvorri hlið = 62-66-68 (70-74) l.
Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt.

BUXUR:
Setjið skálmarnar á sama hringprjón nr 3 = 124-132-136 (140-148) l. Setjið prjónamerki við miðju að framan. Prjónið nú garðaprjón hringinn – JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki við miðju að framan – LESIÐ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 6-6-6 (4-4) sinnum = 112-120-124 (132-140) l. Þegar stykkið mælist 29-35-38 (43-50) cm prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 24-24-24 (28-28) l jafnt yfir = 136-144-148 (160-168) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið stroff = 2l sl, 2 l br í 7-7-8 (9-9) cm. Fellið LAUST af með sl yfir sl og br yfir br. Buxurnar mælast ca 36-42-46 (52-59) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á milli skálma.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

SOKKUR:
Fitjið upp 40-44-44 (48-48) l á sokkaprjóna nr 3 með Alpaca. Prjónið 1 umf slétt, prjónið nú stroff = 2 l sl, 2 l br í 6-7-7 (8-8) cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 4 l jafnt yfir = 36-40-40 (44-44) l. Haldið eftir miðju 12 l framan á sokknum (= ofan á fæti) á prjóni, aðrar 24-28-28 (32-32) l eru settar á þráð. Prjónið M.1 fram og til baka yfir 12 l ofan á fæti í ca 3-3½-4 (5-6) cm – stillið af eftir heila mynstureiningu af M.1 á hæðina. Klippið frá. Haldið eftir 12 l á prjóninum, takið upp 8-10-10 (12-16) l meðfram annarri hliðinni ofan á fæti, setjið til baka þær 24-28-28 (32-32) l af þræði á prjóninn og takið upp 8-10-10 (12-16) l meðfram hinni hliðinni ofan á fæti = 52-60-60 (68-76) l – ATH: þetta er gert án þess að prjóna lykkjurnar. Byrjið við miðju að aftan og prjónið M.2 yfir allar l í ca 1½-2-2½ (3-3½) cm – endið eftir 1. eða 3. umf í M.2. Prjónið 1 umf brugðið og fellið síðan af allar lykkjur nema 12 lykkjur ofan á fæti. Prjónið M.1 fram og til baka fyrir sóla/undir il yfir þessar lykkjur í ca 9-10-11 (13-15) cm – stillið af eftir heila mynstureiningu. Fellið af og saumið sólann við sokkinn – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt frá röngu
symbols = prjónið 3 lykkjur í 1 lykkju þannig: 1 lykkja brugðið, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja brugðið
symbols = prjónið 3 lykkjur brugðið, steypið fyrstu lykkju yfir 2 síðustu lykkjur, steypið síðan annarri lykkju yfir síðustu lykkju = 1 lykkja eftir
symbols = brugðið frá réttu
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Blueberry

Yarnophilics, New Zealand

Blueberry

Adila, New Zealand

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 21-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Gunnar wrote:

Ska användas till sockarna.

15.02.2015 - 18:27

country flag Susanne Lindgren wrote:

Hej! Frågan gäller mönstret i Blueberry modell nr Z-088-by. Var ska mönsterstickningens M. 2 användas? Det finns inte upptaget i beskrivningen. Jag har börjat på koftan, och jag känner att jag behöver fråga innan jag fortsätter, så att jag inte måste riva upp senare. Hälsningar Susanne

14.02.2015 - 17:43

DROPS Design answered:

Hej Susanne. M.2 strikkes i sokkerne.

19.02.2015 - 16:24

country flag Tarja Östman wrote:

Oket: minska 11 maskor jämnt fördelat(det minskas inte över framkanterna), upprepa totalt 8 gånger. Ska det inte minskas på framkanterna någon gång alls?

08.01.2015 - 15:37

DROPS Design answered:

Hej Tarja, Nej det stämmer, du minskar inte över framkanterna! Lycka till!

02.02.2015 - 15:14

Adela Beatriz Nassif wrote:

Quieo adaptar el diagrama 21-24 al Talle: L; que medidas debe tener el final (en el ancho) la manga?Cuantos P.hay que cerrar a ambos lados de la manga,los mismos que cerré en el cuerpo? Me animo a lograrlo ,pero dudo en el momento de ensamblar las mangas al cuerpo.Habrá patron adulto semejante para guiarme ?si es asì envia el nºy me guio por ahi.Gracias!!!

12.12.2014 - 13:08

DROPS Design answered:

Hola Adela Beatriz! Las medidas finales de la prenda aparecen en el diagrama debajo del patrón. En base a estas tendrías que hacer los cálculos necesarios para adaptarla a las nuevas medidas. También hay modelos con patrón de mora o pt garbanzo para adulto. Puedes verlos en la sección búsqueda: ex:113-28

13.12.2014 - 11:14

country flag Torill wrote:

Ser på diagrammet M1. Etter første omgang er diagrammet forskjøvet med en maske. Andre omgang betyr det ikke noe siden den er rettstrikk, men på tredje omgang, betyr det at man skal starte omgangen (og mønsteret) på den masken som egentlig er den siste, og ikke den første??

26.03.2014 - 13:05

DROPS Design answered:

Hej Torill. Du starter i pind 3 paa samme sted som i förste pind (efter de 5 stolpem) men her med at strikke de 3 förste m vr sammen som beskrevet og ikke med at öke 3 m i één m

27.03.2014 - 16:47

Maria wrote:

In diagram M.1 , is diagram shown RS? how to knitting the WS? are all rows in WS knit k or every st knit like its seen?

01.09.2013 - 22:13

DROPS Design answered:

Dear Maria, all rows in pattern are shown seen from RS, so that 1st row = RS, 2nd row = WS = K all sts from WS. Happy knitting!

02.09.2013 - 10:36

country flag Sirkka Mustonen wrote:

Jakun alaosan pituus on ohjeessa 13-14-16 cm, mutta ruutupiirroksen mukaan 23-25-28 cm, kumpi on oikein?

22.08.2013 - 17:45

DROPS Design answered:

Alaosan pituus on 13-14-16 cm. Ruutupiirroksen mitta on jakun koko pituus.

26.08.2013 - 15:54

country flag Sirkka Mustonen wrote:

Jakun alaosan pituus on ohjeessa 13-14-16 cm, mutta kaaviokuvassa 23-25-28 cm, kumpi lienee oikein?

22.08.2013 - 17:42

country flag Yajaira wrote:

Me gusta mucho todo lo que se enseña pero no entiendo los patrones en diagramas. por favor podria esplicar me como leer los dibujos con las numeraciones , soy novata ...!! GRACIAS!!

10.08.2013 - 02:23

DROPS Design answered:

Hola Yajaira! Puedes consultar en la Escuela de Manualidades (de momento está en inglés)

11.08.2013 - 22:26

country flag Roula wrote:

Ich stricke die Baby jacke und muss nun 8 Maschen für den Ärmel abketten. ich habe abgekettet, habe jetzt aber eine Masche zu viel??Wie Kette ich im Brombeermuster richtig ab?

08.08.2013 - 00:07

DROPS Design answered:

Liebe Ruola, ketten Sie so viele M im Brombeermuster ab, dass die Zahl der übrig gebliebenen Maschen stimmt. Das Brombeermuster ist dann fertig, es wird an der Passe dann im Rippenmuster (Krausrippe) weitergestrickt.

08.08.2013 - 12:37