DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Moorland

Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga hálsmáli úr DROPS Fabel og DROPS Delight. Stærð S - XXXL

DROPS 135-9
DROPS Design: Mynstur nr DE-074
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS Fabel frá Garnstudio
300-300-300-350-350-350 gr litur nr 905, svartur/natur:
Og einnig:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
350-350-350-400-400-400 gr litur nr nr 01, grár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 17 l og 22 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm með 1 þræði af hvorri tegund.
DROPS HORNATALA NR 537 (20 mm): 6 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fabel
DROPS Fabel
75% Ull, 25% Polyamide
frá 638.00 kr /50g
DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 6 hnappagötum í vinstra framstykki.
1 Hnappagat = fellið af 5. og 6. l frá kanti og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær sem felldar voru af í næstu umf.
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist ca:
STÆRÐ S: 3, 12, 21, 30, 39, 47 cm.
STÆRÐ M: 3, 13, 22, 31, 40, 49 cm.
STÆRÐ L: 3, 13, 23, 33, 42, 51 cm.
STÆRÐ XL: 3, 13, 23, 33, 43, 52 cm.
STÆRÐ XXL: 3, 14, 24, 34, 44, 54 cm.
STÆRÐ XXXL: 3, 14, 25, 36, 46, 56 cm.
Það er ca 1 cm eftir síðasta hnappagat við hálsmál.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að gera slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn, þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan, til að koma í veg fyrir gat.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-188-204-220-236-256 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur að framan í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5 með 1 þræði af hvorri tegund. Prjónið GARÐAPRJÓN - Sjá útskýringu að ofan - í 2 cm, prjónið nú sléttprjón með 6 kantlykkjum að framan í garðaprjóni í hvorri hlið á stykkinu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 3 cm í öllum stærðum er fellt af fyrir 1. hnappagati í vinstra framstykki – lesið HNAPPAGAT að ofan. Haldið áfram í sléttprjóni og kantlykkju að framan í hvorri hlið á stykkinu. Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm eru sett tvö prjónamerki í stykkið, 47-50-54-58-62-67 l (= framstykki) inn frá hvorum kanti. Nú er stykkinu skipt við prjónamerkin og hvort stykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 82-88-96-104-112-122 l. Í næstu umf frá réttu er prjónað þannig: Fitjið upp 1 kantlykkju (lykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka), * 1 l sl, 1 l br *, endurtakið frá*-* alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, 1 l sl (= 7-7-7-7-9-9 l stroff), prjónið sléttprjón þar til eftir eru 7-7-7-7-9-9 l, endurtakið frá *-* alls 3-3-3-3-4-4 sinnum, 1 l sl (= 7-7-7-7-9-9 l stroff), fitjið upp 1 kantlykkju (lykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka) = 84-90-98-106-114-124 l. Í næstu umf frá réttu er aukið út fyrir ermi þannig: Aukið út um 1 l innan við stroff í hvorri hlið – lesið ÚTAUKNING að ofan = 2 nýjar l. Endurtakið útaukningu á sama hátt í 3.- 4.- 5.- 7.- 9.- 12. hverri umf alls 10-9-7-6-5-4 sinnum = 104-108-112-118-124-132 l. Prjónið sléttprjón og stroff í hvorri hlið þar til stykkið mælist 58-60-62-64-66-68 cm, fellið af miðju 28-30-32-34-36-36 l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð fyrir sig. Fellið af 2 l í næstu umf frá hálsmáli = 36-37-38-40-42-46 l eftir á hvorri öxl. Fellið laust af þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 47-50-54-58-62-67 l. Prjónið stroff yfir síðustu 7-7-7-7-9-9 l og fitjið upp 1 kantlykkju (lykkjan er prjónuð í garðaprjóni til loka) í hlið fyrir ermi eins og á bakstykki. Haldið áfram með stroff í hliðum jafnframt er aukið út á sama hátt og á bakstykki. Þegar stykkið mælist 48-50-52-53-55-57 cm er fellt af fyrir hálsmáli þannig: Í næstu umf frá röngu er prjónað þar til 6 l eru eftir (= kantlykkjur að framan), setjið 6 l á þráð, snúið við. Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá réttu þannig: Fellið af 3 lykkjur alls 2-2-3-3-3-3 sinnum, 2 lykkjur alls 3 sinnum, og 1 lykkju alls 4-5-3-4-5-5 sinnum = 36-37-38-40-42-46 l eftir á öxl. Fellið laust af allar l þegar stykkið mælist 60-62-64-66-68-70 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna. Fitjið upp 40-42-44-46-46-48 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 5. Prjónið garðaprjón í 2 cm, haldið áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið á stykkinu. Þegar stykkið mælist 8-8-8-7-6-6 cm er aukið út um 1 l frá réttu innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu með 4½-4-4-3½-3-2½ cm millibili alls 10-11-11-12-14-16 sinnum = 60-64-66-70-74-80 l. Prjónið þar til stykkið mælist 53-53-53-52-51-50 cm (styttri mæling í stærri stærðum vegna breiðari axla). Fellið laust af allar l.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í og saumið ermasauma innan við 1 kantlykkju.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Kantur í hálsmáli er prjónaður frá réttu á hringprjóna nr 5 þannig: Byrjið á hægra framstykki, setjið l af þræði aftur á prjóninn og prjónið þessar l, prjónið upp ca 70 – 90 l meðfram hálsmáli innan við 1 kantlykkju, setjið l af vinstra framstykki af þræði til baka á prjóninn og prjónið þessar l. Í næstu umf er lykkjufjöldinn stilltur af við hálsmálið (aukið/fækkið ekki yfir kantlykkjur að framan) að 72-76-80-84-88-88 l = 84-88-92-96-100-100 l á prjóni. Prjónið garðaprjón í 2 cm, fellið nú laust af allar l.
Saumið tölur í hægra framstykki.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (20)

country flag Ann wrote:

In der Anleitung sollte der Teil für die Vorderseiten angepasst werden. Es ist nicht klar (auch den Kommentaren und Fragen zu entnehmen), dass und wie hier Zunahmen stattfinden sollen. Wäre für dir nächsten Stricker*innen sicherlich hilfreich :) Viele Grüße Ann

17.02.2023 - 21:25

country flag Adam wrote:

Hi. In respect of the increase on the back, the first increases are on the RS inside of the rib stiches. The pattern says to repeat like this every 3-4-5-7-9-12 rows. If you are increasing every 3 rows, does this mean the next incease is on the WS, with two rows between the increase rows? Or the RS with 3 rows between?

05.10.2022 - 09:27

DROPS Design answered:

Dear Adam, correct the increases will be worked alternately from RS and from WS, there should be always 2 rows without increase between the row with increases. Happy knitting!

06.10.2022 - 07:43

country flag Jeanette Brooks wrote:

Hej, Jeg er gået igang med denne opskrift, og vil strikke den i str. XL. Jeg skal da slå 220 masker op. I opskriften står der så: "(inkl 6 forkantm i retstrik i hver side) " Skal jeg så slå 232 masker op eller er de 2 x 6 masker talt med i de 220?? Mvh Jeanette

16.09.2022 - 10:07

DROPS Design answered:

Hej Jeanette, ja kantmaskerne er talt med i de 220 masker :)

16.09.2022 - 14:32

country flag Ingvild Trondsen wrote:

Hvilken str. har modellen på bildet på seg?

23.03.2020 - 01:09

DROPS Design answered:

Hei Ingvild. Han har str M, men husk å se på målskissen nederst på oppskriften for å se målene. God Fornøyelse!

23.03.2020 - 16:11

country flag Matt wrote:

Does the ribbing continue after the neck bindoffs for the back and front pieces or is it stockinette only after that?

05.01.2019 - 17:40

DROPS Design answered:

Dear Matt, you continue the ribbing on each side of front and back piece until you have bind off the sts for shoulders. Happy knitting!

07.01.2019 - 10:36

country flag Simone wrote:

Mir ist die Beschreibung zum Rückenteil unverständlich und das obwohl ich sehr viel stricke . Wer kann mir helfen meine Denkblockade zu lösen.?

01.10.2018 - 19:32

DROPS Design answered:

Liebe Simone, können Sie vielleicht uns teilen, welches Teil Sie nicht verstehen? Danke im voraus!

02.10.2018 - 09:30

country flag Doreen wrote:

Hallo, ich habe die gleiche Frage wie Elli am 16.12.2013. Auch bei mir haut die Maschenzahl nach den Abnahmen am Vorderteil nicht hin. Leider kann ich auch mit Ihrer Antwort nichts anfangen. Was meinen Sie mit "Aufnahme am Ärmel"? In der Anleitung steht "...1 Randmasche anschlagen und für den Ärmel aufnehmen." So wie ich das verstehe, wird nur eine 1 Masche aufgenommen, aber am Ende fehlen nach allen Abnahmen10 Maschen. Viele Grüße Doreen

31.03.2016 - 16:12

DROPS Design answered:

Liebe Doreen, es ist nicht der Ärmel selbst gemeint, sondern die Stelle am Armausschnitt. Dort werden wie beim Rückenteil Maschen aufgenommen, dammit sich diese Naht nach aussen (Richtung Ärmel) verschiebt - siehe Foto.

01.04.2016 - 09:16

country flag Luis Berrios wrote:

En todos los patrones se pueden aser en algodon o agrilico si o no ?

21.01.2016 - 17:48

DROPS Design answered:

Hola Luis, si se puede.

27.01.2016 - 09:10

country flag Luis Berrios wrote:

Este padron se puede a ser con hilo de lana o agrilico si o no

21.01.2016 - 17:42

country flag Truus Driessen wrote:

Mijn man heeft een vergroeiing boven aan zijn rug. Ik zou daarom na de splitsing het achterpand wat langer willen maken zonder dat dat invloed heeft op de grootte van de armsgaten. Heeft u hier tips of een patroon voor?

03.10.2015 - 20:57

DROPS Design answered:

Hoi Truus. Je zou eventueel wat verkorte naalden kunnen breien over de middelste st voor het achterpand? Dat betekent dat je meer naalden hebt gebreid over de middelste st (je maakt in feite dus een verhoging) maar de hoogte aan de zijkanten (bij de armsgaten) verandert niet.

06.10.2015 - 17:21