DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Neville

Prjónuð peysa fyrir herra með hringlaga berustykki og norrænu mynstri úr DROPS Karisma. Stærð S - XXXL

DROPS 135-4
DROPS Design: Mynstur nr U-640
Garnflokkur B
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
600-650-700-750-850-900 gr litur nr 53, koksgrár
150-150-150-200-200-200 gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (80 cm) nr 4 – eða þá prjónastærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Til að lengdin á berustykki verði rétt, er mikilvægt að prjónfestan passi á hæðina.
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 og 80 cm) nr 3 – fyrir stroff

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9856.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2 – mynstrið er prjónað í sléttprjóni og sýnir 1 mynstureiningu af mynstri.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 200-220-236-256-276-292 l á hringprjóna nr 3 með litnum koksgrár DROPS Karisma.
Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 8 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt jafnframt sem fækkað um 24-28-32-32-36-36 l jafnt yfir = 176-192-204-224-240-256 l. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og 1 eftir 88-96-102-112-120-128 l (prjónamerkin merkja hliðar). Haldið áfram í sléttprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við bæði prjónamerkin. Endurtakið útaukningu með 5 cm millibili alls 4-4-5-5-5-5 sinnum = 192-208-224-244-260-276 l.
Þegar stykkið mælist 41-42-44-45-46-48 cm eru felldar af 8 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 4 l hvoru megin við bæði prjónamerkin). Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Ermin er prjónuð í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 56-56-60-60-64-64 l á sokkaprjóna nr 3 með litnum koksgrár í DROPS Karisma.
Prjónið stroff = 2 l sl, 2 l br í 8 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4 og prjónið 1 umf slétt. Setjið 1 prjónamerki í miðju undir ermi. Prjónið M.1, haldið áfram að prjóna með litnum koksgrár til loka JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 13 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki undir ermi. Endurtakið útaukningu með 6-6-6-6-6-5 umf millibili alls 14-16-14-16-16-17 sinnum = 84-88-88-92-96-98 l. Þegar stykkið mælist 46-47-47-47-47-48 cm eru felldar af 8 l fyrir miðju undir ermi = 76-80-80-84-88-90 l eftir á prjóni. Geymið ermina og prjónið hina ermina á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 328-352-368-396-420-440 l. Setjið 1 prjónamerki að miðju að aftan – hér byrjar umf núna! Prjónið 1 umf slétt með koksgrár JAFNFRAMT er fækkað um 4-10-8-18-6-8 l jafnt yfir = 324-342-360-378-414-432 l. Prjónið 0-2-2-5-7-7 umf slétt með litnum koksgrár, haldið áfram með M.2 (= 18-19-20-21-23-24 mynstureiningar hringinn). Þegar M.2 hefur verið prjónað eru 126-133-140-147-161-168 l á prjóni og stykkið mælist ca 62-64-66-68-70-72 cm upp að öxl. Stykkið er prjónað til loka með litnum koksgrár og sléttprjóni. Prjónið 1 umf slétt jafnframt er fækkað um af 34-37-40-43-53-56 l jafnt yfir = 92-96-100-104-108-112 l. Prjónið nú upphækkun á bakstykki þannig: Prjónið 8 l sl framhjá prjónamerki, snúið við, herðið á þræði og prjónið 16 l br til baka, snúið við, herðið á þræði og prjónið 24 l sl, haldið áfram að prjóna 8 l slétt fleiri í hvert skipti áður en snúið er við þar til 80 l eru alls frá síðasta snúningi, snúið við og prjónið 1 umf slétt hringinn yfir allar l fram að miðju að aftan.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á hringprjóna nr 3. Prjónið 1 umf slétt jafnframt sem aukið er út um 20-20-16-16-12-12 l jafnt yfir 112-116-116-120-120-124 l. Haldið áfram með stroff = 2 l sl, 2 l br í 10 cm, fellið nú af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 24.09.2012
Nýtt mynstur M.2

Mynstur

symbols = litur natur
symbols = litur koksgrár
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Neville

Angelika, Germany

135-4 Neville

Stirlingknitter, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-4

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (70)

country flag Marie-Claude Roy wrote:

Je fais le modèle en taille L. Pour les manches, on monte 60 mailles, par contre le diagramme M1 comporte 8 mailles et 60 ne se divise pas par 8… On aboutit donc avec une moitié de M1 sous la manche? C’est normal? Merci

02.01.2022 - 00:33

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Roy, le diagramme M.1 est représenté sur8 mailles mais se répète sur 4 mailles, autrement dit, tricotez 7 fois au total les 8 mailles de M.1 et terminez par les 4 premières mailles. Bon tricot!

03.01.2022 - 12:07

country flag Connie Lykke øbro wrote:

Hej ☺ opskriften Drops 135-4 vil min mand gerne have men kun i sort og med det lille motiv på ærme er det muligt og bliver den pæn alligevel uden at strikke motiv og hvor meget skal jeg bruge af den sorte og en fin grå til det lille mønster den strikkes i xxl vh connie lykke

16.12.2021 - 12:55

DROPS Design answered:

Hej Connie, Ja det bliver helt sikkert superflot :) Du skal nok bruge samme antal nøgler i din størrelse som det står i opskriften, men 1 af nøglerne bytter du ud med den grå du vil bruge :)

21.12.2021 - 08:47

country flag Agneta Davidsson wrote:

Vilken storlek ska jag välja till en kille som har storlek 160-170?

12.12.2021 - 15:52

DROPS Design answered:

Hej Agneta. Storlek S borde fungera då, men det bästa är att mäta en tröja han redan har och jämföra med måtten i måttskissen för att se vad som passar. Mvh DROPS Design

13.12.2021 - 07:38

country flag Nela wrote:

Hi! I've knitted this in M and it came out really, really big. The sleeves are 20 cm too long and so is the torso - I think it may be caused by the yoke part? I followed the pattern exactly and never had this happen before with other patterns, I also tend to knit tighter rather than loser. Did this happen to anyone else? I wonder if the fact that the yoke is the same for all sizes could be behind this. I just took it apart and will knit S size with some adjustments to the yoke.

06.12.2021 - 19:54

country flag Anna G wrote:

Hej! För ärmarna ska man öka med 6 varvs mellanrum (storlek L). När jag hade 6 vanliga varv mellan ökningarna så blev ärmen mycket längre än 47 cm. När jag kollade på mönstret på tyska så stod det att man ska öka vart 6:e varv, vilket enligt mig är något annat än att öka med 6 varvs mellanrum. Vad stämmer? Hur anpassar jag bäst nu, när ärmen blev för lång och jag behöver repa upp och sticka färre varv mellan de sista ökningarna?

01.12.2021 - 16:46

DROPS Design answered:

Hej Anna. Jag tror att det är vart 6:e varv vi menar här egentligen. Det ska dock inte spela så stor roll för ökar man vart 6:e varv så ska ökningarna vara klara när arbetet är ca 41 cm och ökar man med 6 varv mellan ökningarna så är ökningarna klara ca 4,5 cm senare (dvs ca 45,5 cm). Har ärmen blivit för lång så beror det antagligen på att stickfastheten inte stämmer så kontrollera gärna det. Mvh DROPS Design

02.12.2021 - 11:27

country flag Claudio Bueno wrote:

Hi, I am knitting the arms in XL. 60 stitches aren't divisible by 8. Should I add 4 before M1? Thank you in advance.

08.05.2021 - 20:29

DROPS Design answered:

Dear Claudio, you do not have to add stitches at the beginning. As you progress with the sleeve,, you will have to increase some stitches at the middle line under the arm. Happy Knitting!

08.05.2021 - 22:04

country flag Tenna wrote:

Hvad skal jeg gøre i opskriften når mønsteret bliver forskudt

27.04.2021 - 12:46

DROPS Design answered:

Hej Tenna, hvis du følger diagrammet så bliver mønsteret ikke forskudt. Sæt et mærke imellem hver rapport det vil sige for hver gang du starter forfra ifølge diagrammet, så er det lettere at kontrollere at du har det rigtige antal masker i hver rapport for hver indtagning. God fornøjelse!

28.04.2021 - 13:30

country flag Marja wrote:

Miehen koko L. Hihassa 60 silmukkaa, kuviossa 8. 60 ei ole jaollinen kahdeksalla. Miten ratkaisen ongelman

21.02.2021 - 12:17

DROPS Design answered:

Piirroksen mallikerrassa toistetaan 4 silmukan kuviota 2 kertaa. Eli neuloessa kerroksen loppuun tehdään puolikas piirroksen mallikerta, joka on kuitenkin kokonainen kuvio.

09.03.2021 - 17:10

country flag Joan wrote:

Kan ikke finde ud af hvordan jeg skal tage ind

16.02.2021 - 10:43

DROPS Design answered:

Hej Joan, du tager ind ifølge diagrammet ved at strikke 2 ret sammen. Sæt et mærke imellem hver gang du gentager diagrammet, så er du sikker på at få alle indtagninger med. God fornøjelse!

16.02.2021 - 12:28

country flag Linda Brown wrote:

I want to buy everything I need all needles /yarn/pattern etc to knit this jumper in men’s s ize xxxl. Then I need it shipped to Australia. I’m happy to phone with a credit card if easier or you send me an invoice. Address for postage cost. 80 Couties rd .kangaroo ground .victoria . Australia 3097. Tel +61478333273 Can you pull

20.10.2020 - 02:09

DROPS Design answered:

Dear Mrs Brown, you will find amount of yarn required in each size in the header (= size XXXL = 900 g DROPS Karisma/50 g a ball = 18 balls colour 53 + 200 g/50 g = 4 balls colour 01) - you will find list of DROPS stores shipping worldwide here. Happy knitting!

20.10.2020 - 10:50