DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 133-1
DROPS Design: Mynstur nr DE-058
Garnflokkur A
---------------------------------------------------------

Stærð: Sjalið á myndinni mælist ca 70 cm á lengd frá miðju að aftan.

Efni:
DROPS Delight frá Garnstudio
50 gr litur nr 04, ljós blár
50 gr litur nr 09, turkos/fjólublár
50 gr litur nr 14, fjólublár/grænn
50 gr litur nr 05, beige/grár/bleikur
50 gr litur nr 07, beige/blár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 27 umferðir með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

RENDUR:
Prjónað eru úr 50 gr ljós blár, 50 gr turkos/fjólublár, 50 fr fjólublár/grænn, 50 gr beige/grár/bleikur og 50 gr beige/blár.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SJAL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna til þess að fá pláss fyrir allar lykkjur.

SJAL:
Fitjið upp 17 lykkjur á hringprjóna 4 með Delight. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu JAFNFRAMT eru prjónaðar RENDUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram eftir mynsturteikningu M.1 þannig:

UMFERÐ 1 (rétta): * Prjónið 1 lykkju slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, setjið prjónamerki *, endurtakið frá *-* endið umferð á 1 lykkju í sléttprjóni. Nú er sett prjónamerki á milli hverra mynstureininga af M.1 þ.e.a.s. 8 prjónamerki.
UMFERÐ 2 og allar jafnar umferðir: Prjónið allar lykkjur og uppslátt brugðið.
UMFERÐ 3: * Prjónið 1 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* endið umferð á 1 lykkju slétt (kantlykkja í sléttprjóni).
UMFERÐ 5: * Prjónið 2 lykkjur slétt í 1 lykkju, takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt í 1 lykkju *, endurtakið frá *-* endið umferð á 1 lykkju slétt.
UMFERÐ 7: * Prjónið 2 lykkjur slétt í 1 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, takið 1 lykkju eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 2 lykkjur slétt í 1 lykkju *, endurtakið frá *-* endið umferð á 1 lykkju slétt. Haldið áfram eftir mynstri með 8 mynstureiningar á M.1 í umferð og 1 l sléttprjón í lok umferðar.
Haldið áfram þar til M.1 hefur verið prjónað 1 sinni á hæðina = 129 lykkjur.
Haldið nú áfram með því að endurtaka M.1B á hæðina. Haldið svona áfram að óskaðri lengd, endið eftir umferð 2 í M.1B (þ.e.a.s. þar sem gatamynstur er). Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Fellið af með sléttu frá réttu. Þræðið einn þráð í gegnum 17 lykkjur í uppfitjunarkant, herðið að og festið vel.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = prjónið 2 lykkjur í 1 lykkju
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 133-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (271)

country flag Claudia wrote:

Buongiorno, ho fatto lo scialle ed è magnifico, ma non capisco come Per cortesia, è possibile avere un video? Grazie e cordiali saluti.

10.09.2023 - 08:57

DROPS Design answered:

Buonasera Claudia, ci può spiegare meglio il suo problema? Buon lavoro!

10.09.2023 - 22:02

country flag DUBOIS wrote:

Bonjour Avez vous une vidéo pour montrer comment on fait ? Merci

24.08.2023 - 17:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dubois, nous n'avons effectivement pas de vidéo pour cette technique: passez simplement le fil de montage dans les mailles du montage pour les resserrer et ainsi fermer ce "trou" au niveau du milieu de l'envergure pour que cette longueur soit bien droite. Bon tricot!

25.08.2023 - 08:11

country flag DUBOIS wrote:

Bonjour Utilise t on le fil du montage ou un nouveau fil ? Le fil reste dans les mailles une fois resserrer ou on l enlève une fois resserrer ? Merci

21.08.2023 - 11:04

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dubois, si vous avez prévu suffisamment de fil avant le montage, vous pouvez volontiers l'utiliser, serrez ensuite bien, sécurisez et rentrez le fil (comme n'importe quel fil). Bon tricot!

21.08.2023 - 15:03

country flag DUBOIS wrote:

Bonjour Comment fait on pour : passer un fil dans les mailles du rang de montage, serrer et arrêter ? Avez vous une vidéo ? Est ce obligatoire ? A quel moment le fait on ? Pouvez vous m indiquer le nombre de mailles que fait le chale sur la photo ? Merci

20.08.2023 - 11:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Dubois, le rang de montage fait 17 mailles, pour que le bord du châle terminé soit bien droit, on va passer un fil dans ces 17 mailles puis resserrer pour refermer ces 17mailles en rond, ainsi, les 2 côtés du châle (de chaque côté de ces 17 m) seront bien droits, sans la "cassure" du rang de montage. Le nombre de mailles du châle n'est pas important, tout va dépendre de votre propre tension en hauteur. Tricotez simplement en suivant les diagrammes (et les couleurs) jusqu'à la hauteur indiquée ou souhaitée. Bon tricot!

21.08.2023 - 08:57

country flag Lillemor wrote:

Dere skriver "repeter M1.B i høyden". MEN dere glemmer påskrive at M1.B skal økes i bredden ved å øke antall vanlige masker mellom kastene og fellingene. Dette bør rettes. Andre strikker har kommentert tilsvarende andre sjal i samme type oppskrift.

11.08.2023 - 23:10

country flag Ellen wrote:

De onderrand van mijn butterfly dream krult erg om. Ik heb afgekant volgens de aanwijzingen in het patroon. Wat kan ik daar aan doen?

22.07.2023 - 19:00

DROPS Design answered:

Dag Ellen,

Waarschijnlijk komt dit doordat je ietsje te strak hebt afgekant. Wat je zou kunnen doen is afkanten met een dikkere naald.

22.07.2023 - 19:58

country flag Ulrike Fehlow wrote:

Ich verstehe einen Teil der Musterfolge nicht. Bei den Kreisen muss ich aus einer rechten Masche 2 herausstricken. In der Musterfolge steht am Anfang so eine Masche und am Ende. Muss ich dann im Mittelteil eine zweite 2aus1 Masche stricken oder gehe ich gleich zu den überzogenen Maschen über?

14.04.2023 - 20:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Fehlow, die Diagramme sollen so wiederholt, dh es sind dann 2 "Kreisen" nebeneinander, der eine an der Ende vom Diagram und der nächste am Anfang nächter Rapport. In diesem Video zeigen wir, wie man das Diagram strickt und kann Ihnen sicher helfen. Viel Spaß beim stricken!

17.04.2023 - 08:44

country flag Tone Sandvik wrote:

Hei, jeg skrev feil i innsendt spørsmål. Mente pinne 5, og ikke pinne 7. Så riktig spørsmål blir: jeg får ikke beskrivelse av pinne 75og visualiseringen av pinne 4 i M1 til å henge sammen. Pinne 5 i M1 ser ut til å bare være rettstrikk mens beskrivelsen av pinne 5 i teksten over er noe helt annet. Er det jeg som leser så feil?

12.03.2023 - 19:32

DROPS Design answered:

Hei Tone. Ikke helt sikker på om jeg skjønner spørsmålet ditt. Pinne 2 er beskrevet i oppskriften, men alle andre pinner fra vrangen (pinne 4-6-8-10 osv er ikke beskrevet i oppskriften, men bare skrevet under pinne 2 at hver pinne fra vrangen skal alle maskene og kastene strikkes vrang). Slik at da er det bare pinne 3-5-7-11 (alle pinner fra retten og der det "skjer" noe) osv beskrevet i selve oppskriften. Slik disse pinnene er beskrevet, stemmer med forklaringene som står til diagramikonene. mvh DROPS Design

13.03.2023 - 13:45

country flag Tone Sandvik wrote:

Hei, jeg får ikke beskrivelse av pinne 7 og visualiseringen av pinne 7 i M1 til å henge sammen. Pinne 7 i M1 ser ut til å bare være rettstrikk mens beskrivelsen av pinne 7 i teksten over er noe helt annet. Er det jeg som leser så feil?

12.03.2023 - 19:28

DROPS Design answered:

Hei Tone. Se vårt forrige svar til deg. Men send gjerne et nytt spørsmål om vi ikke har forstått ditt spørsmål skikkelig. mvh DROPS Design

13.03.2023 - 13:46

country flag Renate wrote:

Hallo Drops Team Wie sind bitte die fertigen maße für das Tuch?Find leider keine Angaben.Danke im vorraus

14.03.2022 - 14:45

DROPS Design answered:

Liebe Renate, wir haben leider nur noch die Höhe/Länge in der Mitte, und das Tuch haben wir nicht mehr, aber es sollte genauso lang wie auf dem Foto sein. Viel Spaß beim stricken!

14.03.2022 - 16:49