DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 134-43
DROPS Design: Mynstur nr V-061
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS Puddel frá Garnstudio
650-700-750-850-900-1000 gr litur nr 06, ljós grár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) nr 7 – eða þá stærð sem þarf til að 10 l og 14 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 540 (34 mm): 2 stk í allar stærðir.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Puddel
DROPS Puddel
94% Mohair, 6% Polyester
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan) til að koma í veg fyrir göt.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir 2 hnappagötum í hægra framstykki.
1 hnappagat = fellið af 4. og 5. l frá kanti. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem fellt var af.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
Stærð S: 31 og 41 cm.
Stærð M: 32 og 42 cm.
Stærð L: 33 og 43 cm.
Stærð XL: 34 og 44 cm.
Stærð XXL: 35 og 45 cm.
Stærð XXXL: 36 og 46 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 62-66-70-75-81-87 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 7 með Puddel. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið nú sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20 cm er fækkað um 1 l í hvorri hlið, endurtakið úrtöku með 4½-4½-5-5-5-5 cm millibili alls 8 sinnum = 46-50-54-59-65-71 l.
Þegar stykkið mælist 62-62-62-62-62-62 cm l fitjið upp nýjar l fyrir ermi í hvorri hlið í annarri hverri umf þannig: 10 l 2 sinnum, 11-10-9-8-6-4 l 1 sinni = 108-110-112-115-117-119 l. Haldið áfram yfir allar l þar til stykkið mælist 80-81-82-83-84-85 cm. Fellið nú af miðju 12-12-12-13-13-15 l fyrir hálsmáli og hvor hlið er nú prjónuð til loka fyrir sig = 48-49-50-51-52-52 l eftir fyrir ermi og öxl. Haldið áfram þar til stykkið mælist 82-83-84-85-86-87 cm. Felllið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Fitjið upp 37-39-41-44-47-50 l (meðtaldar eru 6 kantlykkjur að framan og 1 kantlykkja) á hringprjóna nr 7. Prjónið 6 umf garðaprjón. Síðan er prjónað sléttprjón með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hlið, en þær 6 l á við miðju að framan (kantur að framan) halda áfram í garðaprjóni. Þegar stykkið mælist 20 cm byrjar úrtaka í hlið eins og á bakstykki. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan.
Jafnframt þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm er aukið út um 1 l frá réttu innan við kantlykkjur að framan þannig: Prjónið 6 l garðaprjón, aukið út um 1 l – sjá ÚTAUKNING að ofan, prjónið út umf. ATH. Útauknar lykkjur eru prjónaðar í garðaprjóni. Endurtakið útaukningu innan við l í garðaprjóni í kanti að framan með 4½ cm millibili alls 9 sinnum.
Þegar stykkið mælist 62-62-62-62-62-62 cm fitjið upp nýjar l fyrir ermi í hliðum í annarri hverri umf þannig: 10 l 2 sinnum, 11-10-9-8-6-4 l 1 sinni = 69-70-71-73-74-75 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 82-83-84-85-86-87 cm.
Í næstu umf frá röngu er fellt laust af þar til eftir eru 21-21-21-22-22-23 l fyrir kraga, prjónið út umf. Prjónið nú kragann (umf 1 = rétta) þannig: * Prjónið slétt fram og til baka yfir síðustu 12-12-13-14-14-15 l, prjónið slétt fram og til baka yfir allar l *. Endurtakið frá *-* þar til kraginn mælist 9-9-9-10-10-11 cm mælið þar sem stykkið er styst frá þeim stað þar sem fellt var af fyrir ölx. Fellið laust af allar l.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og hægra framstykki, nema spegilmynd og án hnappagata.

FRÁGANGUR:
Saumið saman axlir innan við 1 kantlykkju. Saumið kragann saman við miðju að aftan og saumið við hálsmálið á bakstykki. Saumið tölur í vinstri kant að framan.

KANTUR Í KRINGUM ERMAR:
Kanturinn er prjónaður fram og til baka á hringprjóna. Prjónið upp frá réttu 44-44-50-50-56-56 l innan við 1 kantlykkju neðst á ermi. Prjónið garðaprjón í ca 10 cm. Stykkið mælist nú ca 63-64-65-67-68-69 cm frá miðju að aftan. Fellið laust af allar l. Endurtakið þetta á hinni erminni.

FRÁGANGUR:
Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (108)

country flag Lynn Van Buren wrote:

I usually wear a size small in tops. My top is 36" but a size small is 34 5/8". Not sure which size to make? Thank you Autumn Elegance

10.03.2024 - 23:15

DROPS Design answered:

Dear Lynn, the measurements in the schematic/materials are the measurements of the garment. The size naming can vary between countries so it's better to choose based on the measurements indicated . When in doubt, it's always better to choose the larger size. Happy knitting!

10.03.2024 - 23:59

country flag Annet Louters wrote:

Ik heb een patroon gezien die erg lijkt op deze autumn elegance, maar met langere sjaalkraag. Kunt u mij helpen welk patroon dat kan zijn? het is ook een drops patroon. ik wilde hem uitprinten maar toen kreeg ik per ongeluk alleen de tekening met aantal cm maar niet de beschrijving en de naam. dus kan ik het niet terugvinden.... Graag hulp

06.11.2023 - 13:28

DROPS Design answered:

Dag Annet,

Je zou eens een zoekopdracht uit kunnen voeren op lange vesten met sjaalkraag. Zit hij hier misschien bij?

15.11.2023 - 14:21

country flag Annabelle Garcia wrote:

À 20 cm de hauteur totale, diminuer 1 m de chaque côté, répéter ces diminutions tous les 8 fois au total 4½-4½-5-5-5-5 cm = 46-50-54-59-65-71 m Bonjour, Pour le dos ,je ne comprends pas ce que vous voulez dire par 8 fois -5cm? Cela veut-il dire qu'il faut diminuer 1 maille en début et fin de chaque rang endroit, soit 8x2mailles?Et ne pas faire de diminution sur les rang envers. merci pour votre aide Annabelle

07.11.2022 - 17:30

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Garcia, les mots s'étaient un peu mélangés effectivement, on doit diminuer un total de 8 fois 2 m (1 de chaque côté) tous les 5 cm - tout est de nouveau en ordre, merci pour votre retour, bonne continuation!

08.11.2022 - 09:23

country flag Béatrice Touchemoulin wrote:

Bonjour. Puis-je remplacer le fils Puddle par le Melody? Je viens juste d'en racheter chez Luce Laines France. Merci beaucoup pour votre réponse. Cordialement.

20.08.2022 - 03:46

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Touchemoulin, Melody appartient au groupe D de nos fils et n'est pas vraiment, seule, une alternative à Puddel - retrouvez les alternatives possibles à l'aide de notre convertisseur; ou bien découvrez ce modèle analogue que vous pouvez tricoter en Melody. Bon tricot!

22.08.2022 - 09:25

country flag DAVID wrote:

Pou0rriez vous m'indiquer combien il faut de pelotes puddel et le prix pour réaliser cette veste en taille M (40) merci de votre réponse

08.01.2021 - 15:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme David, DROPS Puddel ne fait plus partie de notre gamme vous pouvez la remplacer par 2 fils DROPS Alpaca Bouclé ou bien par 1 fil DROPS Alpaca Bouclé + 1 fil DROPS Brushed Alpaca Silk - .vous trouverez ici plus d'infos sur les alternatives. Bon tricot!

08.01.2021 - 16:21

country flag Patricia M wrote:

Bonjour. Sachant que Puddel n'est plus disponible, j'ai acheté brushed alpaca silk. Pour l'échantillon, avec 2 fils et des aig no7, avec 10m je n'arrive pas à obtenir 10cm. Comment réadapter les explications ? Merci de votre réponse. Je suis très ennuyée. Cordialement

05.03.2020 - 09:21

DROPS Design answered:

Bonjour Patricia, pour obtenir les mesures du schéma pour votre taille, il vous faudra obtenir l'échantillon (plus d'infos ici). N'hésitez pas à essayer avec des aiguilles plus grosses le cas échéant. Votre magasin DROPS saura également vous aider et vous assister si besoin, même par mail ou téléphone. Bon tricot!

05.03.2020 - 10:35

country flag Iris wrote:

Ich habe das rechte Vorderteil bis auf den Kragen fertig. Leider komme ich da nicht weiter. Nach den 12 Maschen weiß ich nicht mehr weiter .Vielleicht können sie mir weiterhelfen?

28.01.2020 - 20:57

DROPS Design answered:

Liebe Iris, Sie sollen jetzt verkürzten Reihen stricken, damit der Kragen längen am ausseren Rand wird. Beginnen Sie bei einer Hinreihe und stricken Sie jetzt: 2 Reihen über die ersten 12 Maschen, 2 Reihen über alle Maschen und diese 4 Reihen wiederholen bis der Kragen 9 cm vom Schulter mist. Viel Spaß beim stricken!

29.01.2020 - 08:37

country flag Sonia Barton wrote:

How many balls of wool do you need for this pattern

26.06.2019 - 20:59

DROPS Design answered:

Dear Sonia, you will need 13 balls for size S, 14 balls for size M, 15 balls for size L, 17 balls for size XL, 18 balls for size XXL, 20 balls for size XXXL of DROPS Puddel or similar bouclé yarn. Happy knitting!

26.06.2019 - 23:19

country flag Marimar wrote:

Bonjour pour les manches du dos les augmentations se font sur 5 rangs ? Rg 0 j'augmente à droite 10 m je tourne mon travail Rg 1 10 aug à gauche Rg 2 10 aug à droite Rg 3 10 aug à gauche Rg 4 11 aug à droite Rg 5 11 aug à gauche Est ce bien cela ? Encore merci pour votre aide

09.08.2018 - 11:41

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marimar, pas exactement: vous montez 10 m à la fin des rangs 1 à 4 (= 2 x 10 m de chaque côté), puis en taille S: 11 m à la fin des 2 rangs suivants (= rangs 5 et 6). Bon tricot!

09.08.2018 - 13:27

country flag Marimar wrote:

Bonjour,\r\nje souhaite commander la laine pour faire le modèle AUTUMN elegance.\r\nLA QUALITE PUDDEL N\'existant plus j\'ai utilise votre convertisseur qui pour la taille L requière 750g de puddel et seulement 268g d\'alpaca bouclé à tricoter en fil double.\r\ny a t\'il une erreur ?\r\nMerci pour votre réponse

08.08.2018 - 20:11

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marimar, pour remplacer Puddel par 2 fils Alpaca Bouclé, le convertisseur donne 750g Puddel = 536 g Alpaca Bouclé (soit 11 pelotes) et 268 g Brushed Alpaca Silk (= soit 11 pelotes). Vous pouvez également utiliser 1 fil Alpaca Bouclé + 1 fil Brushed Alpaca Silk ou bien 2 fils Alpaca Bouclé. Bon tricot!

09.08.2018 - 08:41