DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

White Chocolate

Prjónuð peysa úr DROPS Snow eða DROPS Andes með hringlaga berustykki og norrænu mynstri. Stærð S - XXXL

DROPS 131-17
DROPS Design: Mynstur nr EE-361
Garnflokkur E
----------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
550-600-700-750-850-950 gr, nr 01 natur
150-200-200-200-250-250 gr, nr 47 ljós beige

Eða notið:
Efni:
DROPS Andes frá Garnstudio
600-700-800-800-900-1000 g, nr 01 natur
200-200-300-300-300-300 g, nr 0619 beige

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l x 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (80 og 40 cm) NR 7 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6050.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. M.1 til M.4.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 116-128-140-152-164-176 l á hringprjóna nr 7 með litnum ljós beige. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 7 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8 og prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 20 l jafnt yfir = 96-108-120-132-144-156 l. Haldið áfram í sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu l í umf og 1 prjónamerki í 49.-55.-61.-67.-73.-79. l (þau merkja hliðar).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 22-23-24-25-26-27 cm, prjónið M.2 – passið uppá að l merktri með ör verði fyrir miðju að framan. Þegar M.2 er lokið er prjónuð 1 umf með litnum natur jafnframt eru felldar af 7 l í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l hvoru megin við hana) = 82-94-106-118-130-142 l eftir á prjóni. Stykkið mælist nú ca 42-43-44-45-46-47 cm. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 28-28-32-32-36-36 l á sokkaprjóna nr 7 með litnum ljós beige. Skiptið yfir í litinn natur, prjónið 3 umf með stroffi 2 l sl, 2 l br. Prjónið síðan M.4, þetta mynstur er prjónað með stroffi, gagnstætt fyrri, þ.e.a.s. br l eru yfir sl og sl eru yfir br. Eftir M.4 er haldið áfram með litinn natur og stroffi eins og áður. Þegar stykkið mælist 7 cm, skiptið yfir á sokkaprjóna nr 8. Prjónið M.1, haldið síðan áfram með litinn natur og sléttprjóni. Setjið eitt prjónamerki í fyrstu l í byrjun umf (= miðja undir ermi). Þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við l með prjónamerki, endurtakið útaukningu með 8-8-6-6-5-5 cm millibili alls 4-4-5-5-6-6 sinnum = 36-36-42-42-48-48 l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 23 cm, prjónið M.2 – passið uppá mynstur þannig að l með ör verði fyrir miðju framan á ermi – útauknar lykkjur eru prjónaðar jafnóðum inn í mynstur.
Eftir M.2 er prjónuð 1 umf með litinn natur jafnframt eru felldar af 7 l mitt undir ermi (þ.e.a.s. l með prjónamerki + 3 l hvoru megin við hana) = 29-29-35-35-41-41 l eftir á prjóni. Stykkið mælist ca 43 cm í öllum stærðum.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón nr 8 eins og fram- og bakstykki = 140-152-176-188-212-224 l. Setjið eitt prjónamerki í l við miðju að aftan – HÉÐAN BYRJAR UMF! Prjónið 1 umf sléttprjón með litnum ljós beige þannig:
STÆRÐ S- M: Aukið út um 4 l jafnt yfir = 144-156 m.
STÆRÐ L-XL-XXL- XXXL: Fækkið um 8 l jafnt yfir = 168-180-204-216 l.
ALLAR STÆRÐIR: Prjónið síðan og fækkið l eftir M.3 – prjónið upp að ör í réttri stærð = 72-78-84-75-85-90 l. Haldið áfram með litinn natur, prjónið fyrst 1 umf þar sem fækkað er um 12-18-20-11-17-22 l jafnt yfir = 60-60-64-64-68-68 l. Prjónið síðan upphækkun að aftan þannig: Prjónið 8 l sl framhjá l með prjónamerki við miðju að aftan, snúið við og prjónið 17 l br, snúið við og prjónið 25 l sl, snúið við og prjónið 33 l br, snúið við og prjónið 41 l sl, snúið við og prjónið 49 l br. Snúið við og prjónið 1 umf aftur fram og til baka.

HÁLSMÁL:
Skiptið yfir á stutta hringprjóna nr 7 og prjónið stroff 2 l sl, 2 l br – JAFNFRAMT eftir 4 cm er prjónað M.4 (eins og neðst á ermum). Eftir M.4 er haldið áfram með litinn natur og stroffprjóni eins og áður þar til kantur í hálsmáli mælist 12 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = ljós beige - slétt lykkja
symbols = ljós beige - brugðin lykkja
symbols = natur - slétt lykkja
symbols = natur - brugðin lykkja
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 131-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Silva wrote:

Sorry, ich nochmal: das mit dem Faden mitführen im Muster und das Einweben ist mir schon klar. Hab ich schon fleißig geübt. Aber die Zwischenreihen, die nur eine Farbe haben, da macht es doch gar keinen Sinn die andere Farbe mit zuführen... oder verändert das das Strickbild?

07.02.2022 - 15:52

DROPS Design answered:

Liebe Silva, sorry, ja richtig, wenn 1 Runde mit nur 1 Farbe gestrickt wird, lassen Sie die andere Farbe und stricken wie beim Streifen - siehe dieses Video (je nach der Rundenanzahl wird der Faden geschnitten oder nicht, hier brauchen Sie nicht). Viel Spaß beim stricken!

07.02.2022 - 15:55

country flag Silva wrote:

Hallo, ich bin jacquardneuling und habe, vielleicht eine dumme, Frage: wird bei den einfarbigen Reihen die Kontrastfarbe mitgeführt und eingewebt? Oder bleibt sie am Rundenanfang liegen? Danke für die Mühe, freundliche Grüsse Silva

07.02.2022 - 06:03

DROPS Design answered:

Liebe Silva, am besten die ungestrickte Farbe mitführen, und je nach Muster nach jedem 3 bis 5. Masche beiden Fäden verdrehen (aber immer locker genug, um die Maschenprobe zu behalten) - sieh Video. Viel Spaß beim stricken!

07.02.2022 - 10:52

country flag Meral wrote:

Hallo, wird das Bündchen an den Ärmeln wirklich in Beige gestrickt und nicht in Natur? Auf den Bildern sieht es so aus, als wäre es Natur, aber in der Anleitung steht nach dem anschlagen in Beige nicht, dass man zu Natur wechseln soll. Vielen Dank!

28.10.2021 - 21:56

DROPS Design answered:

Sie haben das Bild völlig richtig interpretiert - das Ärmelbündchen wird in Natur gestrickt, nur der Anschlag erfolgt in Beige. Danke für Ihren Hinweis! Die Anleitung wurde korrigiert. Viel Spaß beim Stricken!

28.10.2021 - 23:57

country flag Nicole Bedard wrote:

Comment faire pour commander un patron de modèle white ch9colate drops 131-17 format papier

27.02.2020 - 14:42

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bedard, contactez votre magasin DROPS, il pourra fort probablement joindre un exemplaire papier des explications avec votre commande. Bon tricot!

27.02.2020 - 15:26

country flag Joanne wrote:

I’m binding off for the armholes my round starts at the middle of one armhole so I cast off 4 stitches there, thinking I would cast off the remaining 3wat the end of the round .... but how do I do that without being left with one stitch ?? Thank you.

15.01.2020 - 04:56

DROPS Design answered:

Hi Joanne, You can cut the strand and pull it through the remaining stitch. The next stage is the sleeves, so the body is now put to one side. Happy knitting!

15.01.2020 - 07:19

country flag Francesca wrote:

Salve, cerco di spiegarmi meglio. Sto lavorando il maglione nella taglia S. Nella spiegazione della manica c'è scritto: quando misura 14 cm fare 2 aumenti, uno per ogni lato del segno, e ripetere gli aumenti ogni 8cm per 4 volte. Quindi a 14 cm avró 30 maglie totali, a 22 cm 32 maglie, a 30cm 34 maglie e a 38cm 36maglie. Io sono arrivata al penultimo aumento, quindi ho 34 maglie, che non si adattano al diagramma M2 iniziato a 23 cm. Ho sbagliato qualcosa?

27.09.2019 - 18:49

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Sta lavorando correttamente. Quando ha 34 m, lavora il diagramma centrando la m con la freccia. Lavora la prima m del giro come indicato per la 2a m del diagramma. Ripete tutte e 12 le m del motivo sulle m del giro. L’ultima m del giro sarà la penultima m del diagramma . Prosegua incolonnando correttamente il motivo. Quando aumenta riuscirà a lavora la 1a m del giro come la 1a m del diag, e l’ultima m del giro come l’ultima m del diag. Buon lavoro!

28.09.2019 - 10:02

country flag Francesca wrote:

Sto lavorando questa bellissima maglia e sono arrivata a fare la prima manica, solo che con il penultimo aumento ho 34 maglie e quindi non mi trovo con il motivo M2. Cosa ho sbagliato? Grazie

27.09.2019 - 00:03

DROPS Design answered:

Buongiorno Francesca. Se capiamo correttamente la domanda, se sta lavorando una delle due taglie più piccole, raggiunge il numero corretto delle maglie dopo aver aumentato 4 volte. Verifichi il numero di aumenti fatti e nel caso può farne uno in più per arrivare al numero delle maglie corretto. Buon lavoro!

27.09.2019 - 10:20

country flag Susanna wrote:

Liebes Drops Team, das ist eine wunderschöne und einfache Anleitung. Ich habe den Pullover gestrickt. Allerdings mit Andes. Es hat sehr gut geklappt und mit ein paar individuellen Anpassungen sitzt der Pullover so, wie ich ihn haben wollte. ich habe die Ärmel etwas weiter gestrickt und das in der Passe wieder ausgeglichen. Danke für den tollen Pullover. Er wurde schon viel bewundert.

18.10.2018 - 17:57

country flag Angelique wrote:

Bonjour, Je souhaiterai savoir comment faire l’empiècement "Reprendre les manches sur la même aiguille circulaire 8 que le dos et le devant" Je n'ai pas trouvé la vidéo qui pourrait m'aider. Merci beaucoup

02.10.2018 - 14:53

DROPS Design answered:

Bonjour Angélique, cette vidéo montre comment reprendre les mailles des manches sur la même aiguille circulaire que le dos et le devant, au-dessus des mailles rabattues pour les emmanchures. Les premiers tours sont parfois un peu plus compliqués à tricoter, mais après quelques tours, c'est plus simple. Bon tricot!

02.10.2018 - 16:05

country flag Petra Sasse wrote:

Zur Anleitung von: DROPS / 131 / 17 White Chocolate Ist es richtig, dass nach dem Stricken des Bündchens abgenommen wird? Das erscheint mir sehr ungewöhnlich. Hat der Pulli eine A-Form? Viele Grüße

04.01.2018 - 13:17

DROPS Design answered:

Liebe Frau Sasse, es stimmt so, damit die untere Kante die richtige Breite ist, dann wird es nach den Bündchen abgenommen (diese Bündchen sollen auch nicht den Pulli fester ziehen). Viel Spaß beim stricken!

04.01.2018 - 14:57