DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Mist

Prjónuð peysa í sléttprjóni, köðlum og berustykki úr DROPS Andes eða DROPS Snow. Stærð S - XXXL

DROPS 134-17
DROPS design: Mynstur nr EE-367
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS ANDES frá Garnstudio
500-600-600-700-700-800 gr litur nr 8465, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNN (80 cm) NR 10 – eða þá stærð sem þarf til að 9 l og 12 umf með sléttprjóni með Andes verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA NR 542: 7 stk í öllum stærðum.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Andes
DROPS Andes
65% Ull, 35% Alpakka
frá 1408.00 kr /100g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚRTAKA-1:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið lykkjum á undan 4 l í hlið þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, prjónið næstu 2 l slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir 4 l í hlið þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.

ÚRTAKA-2:
Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 2 l eru eftir á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, (prjónamerki), prjónið næstu 2 l slétt saman.

ÚTAUKNING:
Útaukningin er gerð frá réttu. Aukið er út um 1 l með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn br (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) til þess að koma í veg fyrir göt.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 (mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 78-86-94-102-114-122 l (meðtaldar eru 3 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 10 með Andes.
Umferð 1 (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 3 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, prjónið M.1 (= 7 l), * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 10 l eru eftir á prjóni, prjónið M.1 og endið með 3 kantlykkjum í garðaprjóni. ATH: Kantlykkjur að framan eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. Prjónið svona í 4 umf, næsta umf (= rétta) er prjónuð þannig: Prjónið 3 kantlykkjur, prjónið M.1, prjónið sléttprjón þar til 10 l eru eftir á prjóni, prjónið M.1, endið með 3 kantlykkjum. Prjónað er sléttprjón með M.1 og 3 kantlykkjum í hvorri hlið. Setjið 4 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 19-21-23-25-28-30 l, 1 prjónamerki, prjónið 4 l, 1 prjónamerki, prjónið 32-36-40-44-50-54 l, 1 prjónamerki, prjónið 4 l, 1 prjónamerki, prjónið út umf (= 4 l á milli prjónamerkja í hvorri hlið). ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 10 cm frá uppfitjunarkanti er fækkað um 1 l hvoru megin við 4 l í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA-1 að ofan. Endurtakið úrtöku þegar stykkið mælist 20 cm = 70-78-86-94-106-114 l. Haldið áfram í sléttprjóni með M.1 og 3 kantlykkjum í hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 31-32-32-33-33-34 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við 4 l í hliðum – Lesið ÚTAUKNING að ofan = 74-82-90-98-110-118 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm. Prjónið nú næstu umf frá röngu þannig: Prjónið 18-20-22-24-27-29 l, fellið af næstu 4 l, prjónið 30-34-38-42-48-52 l, fellið af næstu 4 l og prjónið síðustu 18-20-22-24-27-29 l. Geymið stykkið = 66-74-82-90-102-110 l eftir á prjóni.

ERMI:
Ermin er prjónuð fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 22-22-22-26-26-26 l (meðtalin er 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 10. Prjónið umf 1 (= rétta) stroff þannig: Prjónið 1 kantlykkju í garðaprjóni, * 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram þar til stroffið mælist ca 4 cm. Prjónið nú áfram í sléttprjóni með 1 kantlykkju í hvorri hlið – Jafnframt í umf 1 frá réttu er lykkjufjöldinn jafnaður til 22-23-23-25-27-27 l. Þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið innan við 1 kantlykkju. Endurtakið útaukningu með 6-6-5-5-5-4 cm millibili alls 6-6-7-7-7-8 sinnum = 34-35-37-39-41-43 l. Þegar stykkið mælist ca 43-42-42-41-40-40 cm (ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna breiðari axla) fellið af 3 l í byrjun á næstu 2 umf = 28-29-31-33-35-37 l.
Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar saman innan við 1 kantlykkju.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 122-132-144-156-172-184 l. Setjið prjónamerki eftir 19-17-16-18-18-20 l, setjið síðan aukalega 7-7-7-8-8-8 prjónamerki með 12-14-16-15-17-18 l á milli hverra = 19-17-16-18-18-20 l eftir síðasta prjónamerki (= alls 8-8-8-9-9-9 prjónamerki). Stykkið er nú mælt héðan. Haldið áfram í sléttprjóni með M.1 og 3 kantlykkjum í hvorri hlið eins og áður. Þegar stykkið mælist 2 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við hvert prjónamerki (= 16-16-16-18-18-18 l færri) – Lesið ÚRTAKA-2. Endurtakið úrtöku með 4½-5-5-5½-4½-4½ cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 58-68-80-84-82-94 l.
Haldið áfram þar til stykkið mælist 18-19-20-21-22-23 cm. ATH: Passið uppá að síðasta umf sé 4. umf í M.1. Prjónið nú upphækkun við hnakka með stuttum umferðum þannig:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 3 kantlykkjur, prjónið umf 1 með M.1, prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 12-18-30-30-28-36 l jafnt yfir (fækkið ekki yfir M.1 og kantlykkjum að framan), prjónið umf 1 í M.1 og endið með 3 kantlykkjum = 46-50-50-54-54-58 l, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið 3 kantlykkjur, prjónið umf 2 í M.1, prjónið br – en snúið við þegar 10 l eru eftir á prjóni.
UMFERÐ 3: Herðið á þræði og prjónið slétt frá réttu þar til 10 l eru eftir í hinni hliðinni. Snúið við og herðið á þræði.
UMFERÐ 4: Prjónið 1 umf br frá röngu þar til 10 l eru eftir við miðju að framan, prjónið umf 2 í M.1 yfir næstu 7 l og endið með 3 kantlykkjum að framan.
Í næstu umf (= rétta) prjónið nú þannig: Prjónið 3 kantlykkjur, M.1, * 2 l sl, 2 l br *, 2 l sl, 2 l br *, endurtakið frá *-* þar til 10 l eru eftir, prjónið M.1 og endið með 3 kantlykkjum. Haldið áfram þar til stroffið mælist 3 cm, fellið síðan laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið 7 tölur jafnt yfir á vinstri kant að framan, götin á milli l í hægri kanti að framan eru notuð sem hnappagöt.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 02.05.2013
Efni: DROPS ANDES frá Garnstudio Nr 8465, milligrár: 500-600-600-700-700-800 gr

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn á milli 2 lykkja
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir prjónuðu lykkjurnar
symbols = lykkja er ekki með í þessari umferð
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Mist in Red

Claudia, Italy

Mist

Claudia, Italy

Mist

Theladin, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 134-17

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (79)

country flag Coline wrote:

After casting on for the body, the next row will be the WS so do I start with a row of purl as my first row?

10.02.2022 - 19:07

DROPS Design answered:

Hi Coline, You can work a row of purl to start with if you wish or start the rib straight away, in which case this first row will be the right side. Happy knitting!

11.02.2022 - 08:00

country flag Gitta wrote:

Very disappointed ☹️

12.01.2022 - 21:18

country flag Gitta wrote:

I just finished the Drops 134-17 in a Medium and I usually take a small . It is a way to small. I can’t even close it

12.01.2022 - 21:16

DROPS Design answered:

Dear Gitta, we feel so sorry, did you get and keep the correct tension all the way? You should have 9 sts x 12 rows in stocking stitch = 10 x 10 cm and with that tension, you should get the same measurements as shown in the chart. This lesson explains how to choose a size if it can help. Happy knitting!

13.01.2022 - 09:12

country flag Kirsten Sofie Sebulonsen wrote:

Hej, det ser ud til, I har glemt knaphullerne I opskriften.

11.12.2021 - 10:34

country flag Sando wrote:

Bonjour, je ne sais pas comment contacter le webmaster et si c'est un problème de site ou d'ordinateur personnel mais aucune image ne s'affiche sur beaucoup des modèles proposés. De ce fait, je n'ai pas non plus les diagrammes pour les points fantaisies. Que puis-je faire?

04.10.2021 - 16:35

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Sando, nous avons effectivement eu quelques soucis d'affichage des images ces derniers temps, mais tout devrait être revenu en ordre, merci pour votre compréhension. Bon tricot!

06.10.2021 - 07:02

country flag Ann wrote:

Ska ärmen sys ihop innan man sätter den på samma rundsticka som fram- och bakstycket?

06.05.2021 - 18:33

DROPS Design answered:

Hej Ann, det kan du godt, men gør det du synes er lettest :)

07.05.2021 - 08:48

country flag Britta wrote:

Funderar kring första minskningen, ska den göras på samma sätt på båda sidorna? Blir inte de minskade maskorna då att luta åt vänster på båda sidorna? Tänker att det borde luta åt olika håll för att få symmetri?

12.03.2021 - 21:18

DROPS Design answered:

Hei Britta. På denne modellen er "fletten" lik både på høyre og venstre side og da med samme felling. Om du ønsker at de skal vend hver sin vei, kan du fint gjøre det. mvh DROPS design

15.03.2021 - 14:36

country flag Paz Rodríguez Leiva wrote:

Que significa MP? "Insertar 4 MP en la pieza de la manera sig:" Gracias por su respuesta

30.01.2021 - 03:54

DROPS Design answered:

Hola Paz Rodríguez Leiva, MP = marcapunto. Buen trabajo!

30.01.2021 - 18:45

country flag Donna Binko wrote:

Which method do you use to join the sleeve sides?

16.12.2020 - 15:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Binko, not sure to understand your question properly, do you mean when adding the sleeves together on same circular needle for yoke? Then see this video - if you mean seam mid under sleeve, you can use this technique or then this one. Hope this helps, happy knitting!

16.12.2020 - 16:12

country flag Alena wrote:

Dobrý den, prosím o radu stran spodní šířky předního/zadního dílu - domnívám se, že při dané délce svetru je spodní šíře 40 cm pro velikost S málo. Porovnávala jsem i s jinými modely, kde je šíře kolem 45 cm... Děkuji za zprávu.

21.11.2020 - 18:42

DROPS Design answered:

Hi Alena, maybe you should choose another size. Please see the lesson DROPS HERE. Happy knitting!

23.11.2020 - 18:36