Daisy wrote:
Hello, I am at the first leg, making the increases every 4cm. I was wondering, seeing as I will reach the measurement to divide the leg to work back and forth BEFORE I've finished doing the increases in the round, shall I keep knitting the piece in the round with increases until the 4 rounds is done, or split the leg and carry on with the increases? thanks!
06.11.2023 - 00:05DROPS Design answered:
Dear Daisy, in 2nd size increase the first time after 6 cm, the 2nd time after 10 cm (4 cm upwards), the 3rd time after 14 cm and the last time after 18 cm. Work until piece measures 20 cm and continue in rows, casting on 1 st on each side. Happy knitting!
06.11.2023 - 09:05Lisette wrote:
Bonjours! Je suis à la première jambe il faut augmenter 1 maille de chaque côté du marqueur alors j'augmente de chaque côté de la première maille de la première broche? Merci
03.09.2022 - 20:16DROPS Design answered:
Bonjour Lisette, augmentez 1 maille à la fin du tour (1 maille avant la dernière maille du tour par exemple) + 1 maille au début du tour (après la 1ère maille du tour par exemple), vous augmentez ainsi 2 mailles par tour (avec 2 mailles entre les augmentations). Bon tricot!
05.09.2022 - 09:19Paola wrote:
Scusate ancora una cosa, nelle spiegazioni relative al bordo, quando si parla di fare le asole, "* 2 m. rov., 1 gettato, 10 m. coste * ripetere da *-* " non si dice che le due maglie a rovescio vanno lavorate insieme. Chiedo conferma di questo, forse una dimenticanza? grazie mille
01.09.2022 - 15:37DROPS Design answered:
Buonasera Paola, grazie per la segnalazione, abbiamo corretto la spiegazione delle asole. Buon lavoro!
01.09.2022 - 21:25Paola wrote:
Salve, quando riprendo le maglie lungo l'apertura davanti per fare il bordo destro ed il bordo sinistro, devo riprendere mentre faccio questi bordi anche le maglie che ho chiuso per fare le diminuzioni per lo scollo? O fanno parte del cappuccio? grazie
31.08.2022 - 14:11DROPS Design answered:
Buongiorno Paola, deve arrivare fino al collo, le altre maglie verranno riprese per il cappuccio. Buon lavoro!
31.08.2022 - 14:37Marianne wrote:
Jaa työ lahkeen sisäreunasta ja jatka neulomista tasona (tällä tavoin lahkeet voidaan myöhemmin helpommin siirtää samalle pyöröpuikolle). Paljonko silmukoita tulee jakaa lahkeessa, puolet?
02.06.2022 - 21:51DROPS Design answered:
Hei, työ jaetaan lahkeen sisäreunan keskeltä. Tämän jälkeen jatketaan neulomista tasona lahkeen kaikilla silmukoilla.
22.08.2022 - 17:06Hillevi Keso wrote:
Haalarin hupun ohje:Poimi pääntien reunasta n. 60-100 s (älä poimi silmukoita etureunojen kohdalla) pyöröpuikolle nro 4,5. Neulo 1 krs oikein nurjalta puolelta ja säädä SAMALLA s-luku 44-48-52 (56-60) s:aan. Neulo 4 krs ainaoikea. Mitä tarkoittaa: Säädä samalla s-luku ? Tarkoittaako kaventamista?
30.04.2022 - 10:12DROPS Design answered:
Kyllä, työstä kavennetaan silmukoita siten, että työhön jää ohjeessa annettu silmukkaluku.
04.05.2022 - 17:34Viv Fellows wrote:
I am now at the assembly stage of the garment. The instruction states that the left front band is sewn to the bottome of body piece where 8 sts were bound off. That's fine - but what do I do with the right front band at the bottom? Does this stay disconnected or does it too need to be secured to the bottom of the body piece too? Seems there's a missing piece of information. If it stays loose surely this will be very untidy?? Help !
30.10.2021 - 17:04DROPS Design answered:
Dear Viv, of course, you can attach the bottom of the button band to the end of the other band with a few stitches. Happy Knitting!
30.10.2021 - 21:02Pauliina2 wrote:
Minulla on sama kysymys kuin edeltävällä Pauliinalla. Haalarin teko pysähtyi, kun en ymmärrä myös, miten silmukat jaetaan lahkeessa ja jatketaan tasona neulomista?
24.09.2021 - 08:27DROPS Design answered:
Hei, työ jaetaan lahkeen sisäreunasta, eli merkin kohdalta. Tämä tehdään siten, että lanka viedään työn nurjalle puolelle ja seuraava kerros neulotaan nurjalta puolelta. Eli viimeiseksi neulottu oikean puolen kerroksen silmukka on nyt ensimmäinen nurjan puolen kerroksen silmukka.
05.10.2021 - 16:58Pauliina wrote:
Mitä tarkoitetaan kun haalarin ohjeessa on että: jaa lahkeen sisäreunasta ja jatka neulomista tasona? Mitkä silmukat jaetaan ja minne?
13.09.2021 - 18:33DROPS Design answered:
Työ jaetaan lahkeen sisäreunasta, eli merkin kohdalta. Tämä tehdään siten, että lanka viedään työn nurjalle puolelle ja seuraava kerros neulotaan työn nurjalta puolelta.
05.10.2021 - 17:09
Little Blue Dream |
|
|
|
Prjónaður galli fyrir börn með hettu og heklaður bangsi úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 20-23 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkið l á undan prjónamerki þannig: 2 l slétt saman. Fækkið l á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. HEKLLEIÐBEININGAR: Fyrsta fl í byrjun á hverri umf er skipt út fyrir 1 ll og hver umf endar með 1 kl í fyrstu fl í byrjun umf. FL HEKLAÐAR SAMAN: 2 fl eru heklaðar saman í 1 fl þannig: Stingið heklunálinni í fyrstu l, sækið þráðinn, stingið heklunálinni í næstu l, sækið þráðinn, bregðið þræðinum um heklunálina og dragið þráðinn í gegnum allar 3 l á heklunálinni. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Fyrst eru skálmar prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan eru skálmar settar á sama hringprjón og fram- og bakstykkið er prjónað fram og til baka. SKÁLM: Fitjið upp 48-54-60 (66-72) l á sokkaprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = innan á skálm. Prjónið 1 umf slétt og prjónið síðan stroff 3 l sl/3 l br. Prjónið stroff í 4-4-4 (5-5) cm. Prjónið 1 umf slétt þar sem fækkað er um 6 l jafnt yfir = 42-48-54 (60-66) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Prjónið 1 umf br og haldið síðan áfram í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (7-7) cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 3-4-5 (5-7) cm millibili alls 4 sinnum = 50-56-62 (68-74) l. Þegar stykkið mælist 16-20-23 (25-32) cm skiptist stykkið upp að innanverðu á skálm og stykkið er prjónað til loka fram og til baka (þetta er gert til að síðar verði léttara að setja skálmarnar á sama hringprjón). Fitjið upp 1 kantlykkju í hvorri hlið = 52-58-64 (70-76) l. Þegar stykkið mælist 18-22-25 (29-34) cm fellið af 1 kantlykkju í hvorri hlið. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt. FRAM- OG BAKSTYKKI: Setjið inn skálmarnar á sama hringprjóna nr 4,5 = 100-112-124 (136-148) l. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan þannig (umferð 1 = rétta): fellið af 4 l, prjónið út sléttu umf, snúið stykkinu, fellið af 4 l og prjónið út brugðnu umf = 92-104-116 (128-140) l. Haldið síðan áfram í sléttprjón fram og til baka yfir allar l. Þegar stykkið mælist 37-45-53 (58-65) cm prjónið næstu umf þannig (frá réttu): 17-20-23 (26-29) l sléttprjón (= hægra framstykki), fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 42-48-54 (60-66) l sléttprjón (= bakstykki, fellið af 8 l fyrir handveg, prjónið 17-20-23 (26-29) l sléttprjón (= vinstra framstykki). Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 36-42-42 (48-48) l á sokkaprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff = 3 l sl/3 l br. Þegar stykkið mælist ca 3 cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-8 (12-10) l jafnt yfir = 30-32-34 (36-38) l. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 4,5 og prjónið 1 umf br. Setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = mitt undir ermi. Haldið síðan áfram að prjóna sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerkið mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu í 5.-5.-6. (6.-6.) hverri umf alls 6-6-7 (8-9) sinnum = 42-44-48 (52-56) l. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fellið af 8 l mitt undir ermi (4 l hvoru megin við prjónamerki)= 34-36-40 (44-48) l. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 144-160-180 (200-220) l. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir allar l. JAFNFRAMT í 3. umf er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin fyrir laskalínu – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf (= hverri umf frá réttu) alls 10-11-12 (13-15) sinnum. JAFNFRAMT þegar l hefur verið fækkað í laskalínu 7-6-6 (6-7) sinnum er fellt af fyrir hálsmáli í hverri umf í hvorri hlið þannig: 2 l 3-3-4 (5-5) sinnum og síðan 1 l 0-2-2 (2-3) sinnum. Eftir alla úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 52-56-64 (72-74) l eftir á prjóni og stykkið mælist ca 45-53-62 (68-77) cm upp að öxl. Fellið af allar l. KANTUR AÐ FRAMAN: Takið upp 63-75-91 (95-103) l meðfram hægra framstykki neðan frá og upp að hálsmáli með hringprjón nr 3,5 og Merino Extra Fine. Prjónið 2 umf garðaprjón. Prjónið síðan stroff þannig (frá röngu): 1 l garðaprjón, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* og endið með 2 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt af fyrir hnappagötum í næstu umf frá réttu þannig: Stroffprjón yfir fyrstu 10-10-2 (6-2) l, * 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 10 l stroffprjón * endurtakið frá *-* alls 4-5-7 (7-8) sinnum, endið með 2 l br saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l sl, 1 l garðaprjón. Haldið áfram með stroff þar til kantur að framan mælist 4 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Endurtakið í vinstri hlið en án hnappagata. HETTA: Takið upp ca 60 til 100 l (ekki taka upp l yfir kant að framan) hringinn í hálsmáli með hringprjón nr 4,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu JAFNFRAMT sem l-fjöldinn er jafnaður til 44-48-52 (56-60) l. Prjónið 4 umf garðaprjón. Prjónið síðan 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út um 24 l jafnt yfir = 68-72-76 (80-84) l. Eftir þetta er prjónað sléttprjón með 1 l garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm, fellið af. Brjótið hettuna saman tvöfalda og saumið saman að ofan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Takið upp 112-124-136 (144-152) l meðfram kanti á hettu með hringprjónum nr 3,5. Prjónið 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Prjónið síðan frá röngu þannig: 1 kantlykkja, * 2 l br, 2 l sl *, endurtakið frá *-* yfir næstu 108-120-132 (140-148) l og endið með 2 l br og 1 kantlykkju. Prjónið stroff í 8 cm, fellið af með sl yfir sl og br yfir br. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Saumið sauminn að innanverðu á skálmum saman, innan við 1 kantlykkju. Saumið niður vinstri kant að framan þar sem felldar voru af 8 l við miðju að framan. Saumið tölur í vinstri kant að framan. Saumið niður fyrstu 4 cm á hettunni að efri kanti á kanti að framan í hvorri hlið. Síðustu 4 cm eru brotnir yfir og festir með smáu spori. -------------------------------------------------------- BANGSI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Byrjað er á að hekla á höfði og síðan niður búkinn. Að lokum eru eyrun hekluð, hendur, fætur og hjörtu sem eru saumuð á búkinn í lokin. HÖFUÐ: LESIÐ HEKLLEIÐBEININGAR! Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: 2 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 4: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 5: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 6-11: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 12: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman – sjá FL HEKLAÐAR SAMAN – að ofan *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. UMFERÐ 13: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 14: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan 2 næstu fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 15: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. Fyllið höfuðið með vatti og heklið áfram búkinn í hring án þess að klippa frá. UMFERÐ 16-18: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. UMFERÐ 19: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 16 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 20: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 21: Heklið 1 fl í hverja fl = 20 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 22: * 1 fl í hverja af fyrstu 4 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár. UMFERÐ 23: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 24: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. Skiptið yfir í litinn natur. UMFERÐ 25: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. Skiptið yfir í litinn ljós gráblár og heklið afganginn af búk þannig: UMFERÐ 26-29: Heklið 1 fl í hverja fl = 30 fl. UMFERÐ 30: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 31-39: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 40: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 36 fl. UMFERÐ 41-46: Heklið 1 fl í hverja fl = 36 fl. UMFERÐ 47: * 1 fl í hverja af fyrstu 10 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 33 fl. UMFERÐ 48: Heklið 1 fl í hverja fl = 33 fl. UMFERÐ 49: * 1 fl í hverja af fyrstu 9 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 30 fl. UMFERÐ 50: * 1 fl í hverja af fyrstu 3 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn 24 fl. UMFERÐ 51: Heklið 1 fl í hverja fl = 24 fl. UMFERÐ 52: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 18 fl. UMFERÐ 53: Heklið 1 fl í hverja fl = 18 fl. UMFERÐ 54: * 1 fl í fyrstu fl, heklið síðan næstu 2 fl saman *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 55: Heklið saman allar fl 2 og 2 = 6 fl. Fyllið bangsann með vatti, þræðið þráð upp og niður í gegnum 6 fl, herðið að opinu og festið vel. FÓTUR: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 8 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 3: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið í innri lykkjubogann. UMFERÐ 4: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl – ATH: Heklið aftur í gegnum alla fl. UMFERÐ 5: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru fyrstu 2 og síðustu 2 fl í umf heklaðar saman = 10 fl. UMFERÐ 6: Heklið 1 fl í hverja fl jafnframt eru 5. og 6. fl heklaðar saman og 7. og 8. fl heklaðar saman = 8 fl. Heklið hinn fótinn á sama hátt. Fyllið fæturna með vatti og saumið neðan á búkinn. HÖND: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 4 fl um hringinn. UMFERÐ 2: Heklið 2 fl í hverja fl = 8 fl. UMFERÐ 3-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Skiptið yfir í litinn ljós grágrænn. UMFERÐ 7: Heklið 1 fl í hverja fl = 8 fl. Fyllið höndina með vatti, leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 4 fl. Klippið frá og saumið stykkið efst á búkinn – saumið í efstu röndina með litnum ljós grágrænn. Heklið hina höndina á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. EYRA: Heklið 4 ll með heklunál nr 4 með litnum ljós brúnn og tengið saman í hring með 1 kl í 1. ll. UMFERÐ 1: Heklið 6 fl um hringinn. UMFERÐ 2: * 1 fl í fyrstu fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 9 fl. UMFERÐ 3: * 1 fl í hvora af fyrstu 2 fl, 2 fl í næstu fl *, endurtakið frá *-* umf hringinn = 12 fl. UMFERÐ 4-6: Heklið 1 fl í hverja fl = 12 fl. Leggið stykkið flatt og heklið 1 fl í hverja fl í gegnum bæði lögin = 6 fl, snúið stykkinu og heklið 2 og 2 fl saman = 3 fl. Klippið frá og saumið eyrað á höfuðið. Heklið hitt eyrað á sama hátt og saumið í gagnstæða hlið. LÍTIÐ HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 fl í miðju fl, 3 ll, 1 st í 1. ll, festið með 1 kl í ll frá byrjun fyrri umf. Klippið frá og saumið hjartað framan á bangsann. STÓRT HJARTA: Heklið 2 ll með heklunál nr 3 með litnum guacamole (finnið gula einingu á þræðinum) og heklið 3 fl í 1. ll, snúið stykkinu. Heklið 1 ll, heklið síðan 1 fl í hverja l = 5 fl (meðtaldar ll í byrjun og lok umf), snúið stykkinu. Heklið 1 loftlykkju, heklið síðan 1 fastalykkju í hverja lykkju = 6 lykkjur (meðtaldar loftlykkjur í byrjun á umferð), snúið stykkinu. Heklið 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 fastalykkju mitt á hjarta, 4 loftlykkjur, 1 stuðull í 1. loftlykkju, festið með 1 keðjulykkju frá byrjun á fyrri umferð. Klippið þráðinn og saumið hjartað á bangsann. Heklið annað hjarta á sama hátt og festið á bangsann. Saumið augu og munn á bangsann með litnum svartur. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
JEANETTE DINSMORE wrote:
I love this for my new baby grandchild who is due end of October
20.09.2023 - 12:33