-------------------------------------------------------
Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér
-------------------------------------------------------
Þetta mynstur hefur verið leiðrétt. Smelltu hér til að sjá leiðréttinguna/arnar.
Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.
Þessi skref - fyrir - skref kennslumyndbönd gætu aðstoðað þig:
Af hverju er prjón-/heklfesta svo mikilvæg?
Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.
Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.
Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.
Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu
Hvernig veit ég hversu margar dokkur ég þarf af garni?
Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.
Get ég notað annað garn en sem stendur í mynstri?
Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.
Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.
Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?
Hvað er garnflokkur?
Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.
Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki
Hvernig nota ég garnreiknivélina?
Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).
Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.
Af hverju gefið þið upp garn sem hætt er í framleiðslu í mynstrunum?
Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.
Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.
Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.
Hvaða stærð á ég að prjóna?
Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.
Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.
Af hverju fæ ég aðra prjónfestu með uppgefinni prjónastærð?
Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.
Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu
Af hverju er mynstrið unnið frá toppi og niður?
Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.
Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.
Hvernig á að prjóna samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.
Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.
Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Hvernig á að hekla samkvæmt mynsturteikningu?
Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..
Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.
Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.
Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.
Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Hvernig á að lesa nokkrar mynsturteikningar samtímis í sömu umferð/hring
Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.
Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu
Af hverju eru ermar styttri í stærri stærðum?
Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.
Hvar á flíkinni er lengdin mæld?
Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.
Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.
Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu
Hvað er endurtekning?
Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.
Af hverju byrjar stykkið á fleiri loftlykkjum en sem unnið er með?
Af hverju er aukið út á undan stroff kanti þegar stykkið er unnið ofan frá og niður?
Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.
Af hverju er slegið uppá prjóninn ásamt því að fella af?
Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.
Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti
Hvernig á að auka út/fella af í 3. og 4. hverri umferð?
Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.
Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð
Hvernig get ég gert peysu í hring í stað fram- og til baka?
Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.
Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg
Get ég prjónað peysu fram og til baka í stað þess að prjóna í hring?
Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.
Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?
Af hverju er mynstrið aðeins öðruvísi en sem ég sé á myndinni?
Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.
Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!
Hvernig breyti ég kvenmanns stærð á peysu yfir í karlmanns stærð?
Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.
Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.
Hvernig er hægt að koma í veg fyrir að trefjar losni frá loðnum flíkum?
Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.
Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:
1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.
2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.
3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.
4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.
Af hverju hnökrar flíkin mín?
Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.
Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.
Nathan Jacket |
|
|
|
Prjónuð peysa fyrir börn með laskalínu úr DROPS Delight. Stærð 1 mánaða til 7 ára.
DROPS Baby 20-16 |
|
------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. HNAPPAGAT: Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kant að framan. 1 hnappagat = prjónið 2. og 3. lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Stærð 1/3 mán: 2, 8, 15 og 22 cm Stærð 6/9 mán: 2, 9, 16 og 24 cm Stærð 12/18 mán: 2, 8, 14, 20 og 26 cm Stærð 2 ára: 2, 8, 15, 22 og 29 cm Stærð 3/4 ára: 2, 9, 16, 24 og 32 cm Stærð 5/6 ára: 2, 8, 15, 22, 29 og 36 cm ATH: Fellt er af fyrir síðasta hnappagatinu í kanti í hálsmáli. ÚRTAKA (á við um laskalínu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum í hverri skiptingu á milli erma og fram- og bakstykkis (byrjið 3 lykkjum á undan prjónamerki): 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa 2 lykkja), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjón frá miðju að framan. FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið upp 132-138-150 (162-168-192) lykkjur (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu, prjónið síðan næstu umferð frá réttu þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið svona áfram með stroff þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm, munið eftir hnappagötum í hægri kanti að framan – lesið útskýringu að ofan. Prjónið síðan sléttprjón en 5 kantlykkjur að framan í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka. JAFNFRAMT í umferð 1 eftir stroff er lykkjufjöldinn jafnaður út til 118-128-140 (146-158-168) lykkjur – ekki fækka lykkjum yfir lykkjur í kanti að framan. Setjið eitt prjónamerki 32-34-38 (39-42-44) lykkjur frá hvorri hlið = 54-60-64 (68-74-80) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki. Þegar stykkið mælist 5-5-6 (6-6-6) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin með 2.-2.-2. (3.-3.-4.) cm millibili alls 5 sinnum = 98-108-120 (126-138-148) lykkjur. Þegar stykkið mælist ca 15-16-17 (19-21-24) cm – stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá röngu – prjónið 3 umferðir slétt yfir allar lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3-4-4 (4-5-5) lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = 38-42-46 (50-54-60) lykkjur eftir á bakstykki og 24-25-29 (30-32-34) lykkjur eftir á hvoru framstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Ermin er prjónuð í hring. Fitjið upp 30-30-36 (36-36-36) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið síðan stroff með 2 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 3-3-3 (4-4-4) cm. Haldið áfram í sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 28-28-30 (30-32-32) lykkjur í 1. umferð eftir stroff. Þegar stykkið mælist 8-6-6 (6-6-7) cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi, endurtakið með 7-4-3 (3-3,5-3,5) cm millibili alls 2-4-5 (7-7-8) sinnum = 32-36-40 (44-46-48) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-20-21 (26-30-34) cm prjónið 1 umferð brugðið, 1 umferð slétt og 1 umferð brugðið, prjónið síðan 1 umferð slétt jafnframt því sem felldar eru af 6-8-8 (8-10-10) lykkjur mitt undir ermi = 26-28-32 (36-36-38) lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama hátt. BERUSTYKKI: Skiptið yfir á hringprjón 4 á fram- og bakstykki og setjið inn ermar á sama hringprjón þar sem fellt var af fyrir handvegi= 138-148-168 (182-190-204) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í allar skiptingar á milli erma og fram- og bakstykki (= 4 prjónamerki). LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM! Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir allar lykkjur og prjónið 1 umferð slétt frá röngu áður en laskalína byrjar. LASKALÍNA: Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við öll prjónamerki (= 8 úrtökur) – lesið úrtaka að ofan! Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð: 7-8-8 (9-10-11) sinnum og síðan í annarri hverri umferð: 0-0-2 (2-2-2) sinnum. HÁLSMÁL: JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 21-23-25 (28-31-35) cm setjið síðustu 8-8-10 (10-10-12) lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fellið síðan af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum. Eftir allar úrtöku fyrir laskalínu og affellingu fyrir hálsmáli eru 54-56-56 (62-62-64) lykkjur eftir á prjóni og stykkið mælist ca 26-28-30 (33-36-40) cm upp að öxl. FRÁGANGUR: Prjónið upp ca 80 til 105 lykkjur í kringum hálsmál (meðtaldar lykkjur af þræði) á hringprjón 4 með 2 þráðum Delight. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 54-60-60 (66-66-72) lykkjur. Prjónið síðan stroff þannig (umferð 1 = ranga): 5 kantlykkjur í garðaprjóni, * 2 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 2 lykkjur brugðið og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni (frá réttu verða þetta 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni og 2 lykkjur slétt í hvorri hlið við miðju að framan). Eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin í hægri hlið. Þegar stroffið mælist 2 cm er fellt laust af með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Með yfir 40 ára prjóna- og hekl hönnun, býður DROPS Design uppá eitt umfangsmesta vöruúrval af mynstrum án endurgjalds á netinu – þýdd á 17 tungumálum. Í dag þá erum við komin í 304 vörulista og 11422 mynstur - 6918 mynstur sem eru þýdd á íslensku.
Við vinnum hörðum höndum við að færa þér það besta sem prjón og hekl hefur uppá að bjóða, innblástur, ráðgjöf og auðvitað frábært gæða garn á ótrúlegu verði! Langar þig að nota mynstrin okkar fyrir annað en til einkanota? Þú getur lesið hér ákvæði hvað leyfilegt er að gera í textanum Copyright em> sem er neðst á öllum mynstrunum okkar.
Athugasemdir / Spurningar (68)
Dana wrote:
Ich meinte an welchen Markierungsfäden sind die Abnahmen zu machen?
13.08.2013 - 19:59DROPS Design answered:
..hatte ich schon gedacht :)
15.08.2013 - 08:05Dana wrote:
Hallo, leider hilft mir Ihre Antwort nicht weiter. Ich bin mit dem Armloch und den Ärmeln schon fertig und auch mit dem Raglan. Ich habe noch die vier Markierungsfäden. Wo sind die Maschen für den Hals auf die Hilfsnadeln zu legen und an welchen Hilfsgeldern sind die Abnahmen zu machen?
13.08.2013 - 19:57DROPS Design answered:
Liebe Dana, unter dem Abschnitt "Hals" finden Sie das beschrieben: die Maschen werden an der vorderen Mitte auf den Hilfsfaden gelegt (damit sie nachher direkt wieder für das Bündchen gestrickt werden können) Wenn Sie das irritiert, können Sie die Maschen auch abketten und nachher wieder daraus Maschen auffassen. Sie arbeiten nun nicht mehr mit den Hilfsfäden, die waren nur für den Raglan. Die Abn sind am Halsausschnitt.
15.08.2013 - 08:04Dana wrote:
Guten Tag, ich sticke die Jacke in der Größe 12/18 Monate und bin mit dem Raglan fertig. Jetzt sind die äußersten 10 M auf eine Hilfsnade zu legen, sind das recht und links jeweils 5 M? An welchen Stellen nehme ich die weiteren Abnahmen von 2 M 2 Mal und 1 M 2 Mal vor?
12.08.2013 - 14:22DROPS Design answered:
Liebe Dana, Sie ketten pro Armloch 10 M ab, das sind je 5 M VOR und NACH der seitlichen Markierung. Sie Abn von 2 x 2 M und 2 x 1 M sind am Halsausschnitt.
13.08.2013 - 09:37Charlotte wrote:
Hallo, versuche mich gerade in der Grösse 2 Jahre und habe jetzt die 162 Maschen aufgenommen. Das scheint ziemlich viel zu sein für die Grösse. ( Habe genau das Garn, welches die Abbildung hat) Vielen Dank
29.01.2013 - 23:44DROPS Design answered:
Liebe Charlotte, haben Sie gesehen, dass die Maschenzahl nach der Blende auf 146 Maschen angepasst wird? Wenn Sie lieber ein engeres Bündchen möchten, können Sie gleich mit weniger Maschen beginnen.
01.02.2013 - 20:52Brombach wrote:
Hab direkt noch ne Frage: wenn ich nach dem Stilllegen und der Abnahme nur noch 54 M. auf der Nadel habe, muss ich die dann abketten bevor ich neue Maschen rund am Hals aufnehme?
25.01.2013 - 21:20Brombach wrote:
Bin jetzt mit der Abnahme beim Raglan fertig und hab noch 82 M. auf der Nadel. Jetzt muss ich ja die äußersten 8 Maschen auf Hilfsfäden lagern. Heißt das vorne auf jeder Seite 4 M. stilllegen? Wenn ich dann 2mal 2 Maschen abkette und 2 mal 1 komme ich aber nicht auf 54 Maschen am Ende. Was heißt denn gegen den Hals abketten?
25.01.2013 - 11:20DROPS Design answered:
Liebe Frau Brombach, dürfen wir Sie bitten, für weitere Erklärungen der Anleitung in individuelle Strickhilfe den Laden zu kontaktieren, in dem Sie die Wolle gekauft haben.
26.01.2013 - 23:07Gudrun Sjöberg wrote:
Hej!Har nu stickat denna fina kofta i stl. 3/4 år och då var garnåtgången för liten. Behövde köpa till 0,5 hg. Har följt stickfasthet och mönstret.
22.01.2013 - 17:30Brombach wrote:
Habe jetzt 3 Wollknäul an dem Strickstück hängen (hab für Vorder-und Rückenteil und für jeweils einen Ärmel ein neues Knäul angefangen). Mit welchem Knäul strick ich denn jetzt weiter? Sorry für die vielen Fragen, aber wie gesagt, ist mein 1. Babyjäckchen. Vielen Dank schon mal.
22.01.2013 - 15:41DROPS Design answered:
Liebe Frau Brombach - stricken Sie einfach mit einem Knäuel weiter und schneiden Sie die anderen ab. Achten Sie darauf, dass beide Ärmel gleich viele Reihen haben und alle Rumpfteile ebenso.
23.01.2013 - 09:55Brombach wrote:
Hallo! Ich habe jetzt das Vorder-und Rückenteil und beide Ärmel gestrickt. Habe die Ärmel zwischen die Maschen von den Vorderteilen und dem Rückenteil eingesetzt, d.h. erst 24 M.Vorderteil, dann den 1. Ärmel, dann 54 M. Rückenteil, dann 2. Ärmel und dann die M.vom 2. Vorderteil. Wenn ich jetzt weiterstricke, muss ich dann einfach die Maschen von den Ärmeln mit abstricken, als wenn alles ein Strickstück wäre?
22.01.2013 - 15:40DROPS Design answered:
Hallo Frau Brombach, ja , das ist richtig.
23.01.2013 - 09:53Brombach wrote:
Versuche mich zum 1. Mal an einem Babyjäckchen und bin mir nicht ganz sicher. In der Anleitung steht, dass man nach dem Bündchen in der 1. Runde die Maschenanzahl auf 118 Maschen anpassen soll. Werden alle 14 überschüssigen Maschen in 1 Runde abgenommen oder über mehrere Runden? Verteile ich die Abnahme dann auf die gesamte Runde oder nehme ich alle Maschen direkt am Anfang ab? Vielen Dank.
09.01.2013 - 22:40DROPS Design answered:
Liebe Frau Brombach , es wird in einer Reihe gleichmäßig verteilt – aber nicht über den Blendenmaschen – abgenommen. Es ist nun deutlicher in er Anleitung vermerkt. Es stand in dieser Anleitung auch noch ein paar Mal „Abketten“ statt „Abnehmen“ – vielleicht hat Sie das auch irritiert, ich habe es nun ebenfalls korrigiert.
10.01.2013 - 13:55