DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Baby 20-2
DROPS Design: Mynstur nr DE-007-by
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Höfuðmál í cm:
40/42-42/44-44/46 (48/50-50/52)

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) g litur nr 04, ljós blár

Eða notið:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) g litur nr 06, bleikur

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 52 umferðir með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (á við um húfu):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið er út 1 lykkju á undan og 1 lykkju á eftir prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).

ÚRTAKA (á við um húfu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki. Setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, takið 1 lykkju óprjónaða (= l með prjónamerki), prjónið næstu lykkju og lykkjur á hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka – prjónað er slétt í öllum umferðum (= garðaprjón).

HÚFA:
Fitjið upp 119-127-135 (139-145) lykkjur á prjóna nr 2,5 með Delight. Prjónið 6 umf garðaprjón (umferð 1 = rétta).

Setjið nú 7 prjónamerki í stykkið (frá réttu) þannig:
1. prjónamerki í 1. lykkju á prjóni.
2. prjónamerki í lykkju nr 22-24-26 (28-31).
3. prjónamerki í lykkju nr 43-47-51 (55-61).
4. prjónamerki í lykkju nr 60-64-68 (70-73).
5. prjónamerki í lykkju nr 77-81-85 (85-85).
6. prjónamerki í lykkju nr 98-104-110 (112-115).
7. prjónamerki í síðustu lykkju á prjóni.
Prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 byrjar útaukning og úrtaka – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA að ofan!
Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 1. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 3. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 3. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 5. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 5. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 6. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 7. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Þegar stykkið mælist 13-15-16 (18-19) cm (mælt neðst við odd við 2. eða 6. prjónamerki) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: * 1 lykkjur slétt, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* JAFNFRAMT sem fellt er af.

FRÁGANGUR:
Bakstykki á húfu = affellingarkantur, þ.e.a.s. 2 heil horn og 2 hálf horn.
Miðjan á 3 heilu hornunum í gagnstæðri hlið á stykki (= uppfitjunarkantur) nær niður á ennið að framan.
Saumið húfuna saman kant í kant með 1 spori í hverja l meðfram affellingarkanti þannig:
Saumið fyrsta hálfa hornið saman við helminginn á fyrsta heila horninu. Saumið síðan hinn helminginn af fyrsta hálfa horninu saman við fyrri helming af öðru heila horninu.
Saumið síðan annan helminginn af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið.
Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan – passið að sauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

SNÚRA:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjóna nr 2,5 með Delight.
Prjónið þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, færið þráðinn að framhlið á stykki (að þér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, færið þráðinn aftur að bakhlið (frá þér) *, endurtakið frá *-* umferðina út og í öllum umferðum. Núna myndast hringlaga snúra.
Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm.
Prjónið aðra snúru á sama hátt.
Saumið snúrurnar neðst í tveimur hornunum í hliðum.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Teesa wrote:

Ho confezionato il cardigan Matheo con vostra merino extra fine ed è venuto splendido. Ho acquistato 2 gomitoli in più ed ora vorrei confezionare questo cappellino. Ovviamente la lana è piu grossa. Posso farlo ugualmente, magari di una taglia inferiore?

01.11.2020 - 09:10

DROPS Design answered:

Buongiorno Teresa, provi a lavorare un campione e vedere se corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!

02.11.2020 - 10:39

country flag Hanna wrote:

Minusta olisi hyvä että selkeämmin kirjoitettaisiin tuo myssyn päättely. Neulotaan 1 s o, ja 2 seuraavaa silmukkaa oikein yhteen SAMALLA kun päätät s:t... miten samalla?! Jatkamalla kavennuksia samalla tavalla ja siten päättyy työ vai pitääkö loput silmukat mitä ensimmäisestä kavennuksesta jää jäljelle päätellä; 1. s neulomatta, 2. silmukka neulotaan ja neulomatta jätetty silmukka vedetään neulotun yli. Selkeyttä!

07.11.2016 - 19:18

country flag Peter Hoffmann wrote:

Kurze Frage.....verstehe ich das richtig das ich einen Rapport von 4 Reihen habe, also eigentlich 2x die 2te Reihe? Bin mir nicht sicher, ob ich die Zu-und Abnahme der 2ten Reihen auch in den 4ten Reihen machen muss....Danke für Hilfe.....stecke schon am Anfang fest 😢

27.07.2016 - 08:49

DROPS Design answered:

Lieber Peter, ja die Aufnahmen, die jede 2. R gemacht werden, stricken Sie auch in der 4. R.

28.07.2016 - 15:34

country flag Bossard wrote:

Bonjour les marqueurs se mettent que sur les rgs endroits

30.12.2015 - 15:45

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bossard, les 7 marqueurs se placent sur un rang sur l'endroit - les augmentations/diminutions se font ensuite uniquement sur l'endroit - tous les 2 rangs = tous les rangs sur l'endroit ou tous les 4 rangs = tous les 2 rangs sur l'endroit. Bon tricot!

02.01.2016 - 15:39

country flag Schmidt wrote:

Hallo, ich komme irgendwie nicht mit der Anleitung klar. Es steht mit der 1.R mit den Zu-und Abnehmen beginnen und andererseits steht in jeder 2.Reihe.????? Wenn ich die M zunehme, stricke ich diese dann in der Rückreihe zusammen, dies wäre aber eigentlich die 2. Reihe. Hat jemand die Mütze von 20-2 schon gestrickt und könnte mir eine genauere Anleitung zur Verfügung stellen? Vielen Dank F. Schmidt

14.09.2015 - 16:35

DROPS Design answered:

Sie stricken die ganze Mütze kraus rechts, also jede R rechts. Sie beginnen mit den Abnahmen/Zunahmen in der 1. R (das ist eine Hin-R), danach nehmen Sie dann in jeder 2. R zu, d.h. immer in Hin-R. In den Rück-R stricken Sie die zugenommenen M verschränkt ab, sie werden in der Rück-R nicht zusammengestrickt.

15.09.2015 - 21:17

country flag Dorit Hejslet wrote:

Hej jeg forstår ikke helt, hvordan man skal tage ud og ind. Der står, at det altid skal ske fra retsiden og på 2. og 4. pind. Vil det sige, at jeg strikker 1. pind uden at gøre noget, 2. pind tager jeg ind og ud som der står i opskriften ved de mærker hvor 2. Pind er angivet. 3. Pind gør jeg intet. 4. Pind tager jeg ind og ud som der står i opskriften under de mærker hvor 4. Pind er angivet?

30.08.2015 - 16:23

country flag Barbara Hickmott wrote:

This pattern has confused me a lot. The increase and decrease Tips say " All in crease and decrease done on RS". However, there are instructions to increase and decrease every 4th row. The 4th cannot be the RS. It is inevitably the return row. There are other confusing instructions too, and I am just having to use common sense. I have a feeling this hat may be a very strange shape!

15.08.2014 - 11:08

DROPS Design answered:

Dear mrs Hickmott, when you inc every 4th row you work as follows: work 1 row from RS with inc, work then 3 rows (1 from WS, 1 from RS, 1 from WS) and inc on next row, ie from RS. You can see in the video below how to assembly this hat. Happy knitting!

15.08.2014 - 12:00

country flag Marianne wrote:

Jullie hebben het over meerderen en minderen om de naald en iedere 4E naald. In de eerste naald beginnen. Dan wordt het toch de derde naald? Alles moet toch aan de goede kant van het werk gebeuren? Hoor graag van u, mvrgr Marianne

09.02.2014 - 17:19

DROPS Design answered:

Hoi Marianne. In elke 4e nld is op de goede kant. Je moet het als volgt tellen: 1 nld met minderingen/meerderingen (= goede kant), dan brei je de 1e nld verkeerde kant, 2e nld goede kant, 3e nld op de verkeerde kant en dan de 4e nld op de goede kant = hier meerder/minder je nog een keer.

12.02.2014 - 13:41

country flag Cristina wrote:

Salve, ho provato a fare il vostro cappellino, ma dopo il terzo tentativo ho mollato!!mi vengono troppo lunghe le orecchie, troppo largo e sopratutto troppo basso, inoltre se guardo il video di come si chiude, ho la conferma che non vada bene quello che faccio perchè mi rimangono troppe poche maglie sul ferro..insomma un disastro!! dove sbaglio?? grazie mille

31.07.2013 - 14:24

DROPS Design answered:

Buongiorno Cristina, è sicura che il suo campione corrisponda perfettamente a quello indicato? Se corrisponde, le misure dovrebbero essere corrette! Riguardo alla chiusura, potrebbe dirci che taglia sta lavorando e qual è il passaggio che le crea problemi? Saremo felici di aiutarla! Buon lavoro!

02.08.2013 - 15:14

country flag Edith wrote:

Beste. Heb ik het juist als dit patroon met enkele draad moet gebreid worden? In de omschrijving van de muts staat: "om de naald".Moet ik dit zien als 1 naald rechts breien en rekening houden MET de aangeduide steken en de teruggaande rechtse naald gewoon breien zoals de steken zich voordoen?Om de naald komt dan overeen met "ELKE 2de naald? Alvast bedankt voor je feedback! Groetjes Edith

14.06.2013 - 12:15

DROPS Design answered:

Hoi Edith. Ja, deze muts wordt met 1 draad gebreid. Je meerdert en mindert dan om de nld (= in elke 2e nld), elke 4e nld en elke 6e nld

19.06.2013 - 13:41