DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Baby 20-1
DROPS Design: Mynstur nr DE-004-by + DE-005-by + DE-007-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
150-150-200 (200-250) g litur nr 06, bleikur/fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNN NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 lykkjur og 48 umferðir með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir heklaðan kant
----------------------------------------------------------

Sokkar:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2) ára
Lengd á fæti: 10-11-12 (14) cm

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
50-50-50 (50) g litur nr 06, bleikur/fjólublár

Eða notið:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
50-50-50 (50) g litur nr 04, ljós blár

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 52 umferðir með garðaprjóni og 26 lykkjur og 34 umferðir sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 – 3/4) ára
Höfuðmál í cm:
40/42-42/44-44/46 (48/50-50/52)

Efni:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) g litur nr 04, ljós blár

Eða notið:
DROPS DELIGHT frá Garnstudio
50-50-50 (50-50) g litur nr 06, bleikur

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 52 umferðir með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Delight
DROPS Delight
75% Ull, 25% Polyamide
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING (á við um húfu):
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið er út 1 lykkju á undan og 1 lykkju á eftir prjónamerki með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).

ÚRTAKA (á við um húfu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig:
Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki. Setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, takið 1 lykkju óprjónaða (= l með prjónamerki), prjónið næstu lykkju og lykkjur á hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Byrjað er á öðru framstykkinu, lykkjur fitjaðar upp fyrir ermi og prjónað er upp að öxl. Hitt framstykkið er prjónað og síðan eru bæði framstykkin sett á sama hringprjón og prjónað er niður yfir bakstykkið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið laust upp 29-34-38 (41-44) lykkjur á hringprjón 3 með Delight. Prjónið slétt í hverri umferð – JAFNFRAMT í umferð 2 er fitjuð upp 1 ný lykkja við miðju að framan. Endurtakið útaukningu til skiptist í annarri hverri umferð og í 3. hverri umferð alls 18-20-24 (28-30) sinnum = 47-54-62 (69-74) lykkjur. Eftir síðustu útaukningu eru prjónaðar 10 umferðir slétt.
Stykkið mælist ca 11-12-15 (17-18) cm.
LESIÐ ALLAN KAFLANN ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Í næstu umferð er fækkað um 1 lykkju við miðju að framan með því að prjóna 2 síðustu umferðir slétt saman. Endurtakið úrtöku í hverri umferð (þ.e.a.s. bæði frá réttu og frá röngu): alls 0-0-7 (19-12) sinnum og síðan í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. frá réttu): alls 28-31-29 (21-32) sinnum (nú hefur fækkað um 28-31-36 (40-44) lykkjur).
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-20 (21-23) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok umferðar að hlið fyrir ermi: 6 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum, 8 lykkjur 1-1-1 (2-3) sinnum og 21-22-20 (23-24) lykkjur 1 sinni.
Eftir alla útaukningu og útröku eru 60-65-72 (86-96) lykkjur á prjóni fyrir öxl/ermi.
Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm setjið 1 prjónamerki = mitt á öxl – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp 2 nýjar lykkjur í lok umferðar við hálsmál, endurtakið útaukningu í næstu umferð við hálsmál = 64-69-76 (90-100) lykkjur. Setjið allar lykkjur á þráð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið á sama hátt og vinstra framstykki nema gagnstætt.

BAKSTYKKI:
Prjónið inn vinstra framstykki af þræði á hringprjóninn, fitjið upp 12-12-16 (16-20) nýjar lykkjur (= aftan við hnakka) og prjónið inn hægra framstykki af þræði á hringprjóninn = 140-150-168 (196-220) lykkjur.
MÆLIÐ NÚ STYKKI FRÁ PRJÓNAMERKI Á ÖXLUM.
Haldið áfram í garðaprjóni fram og til baka.
Þegar stykkið mælist 6½-7½-8 (8½-9) cm fækkið nú ermalykkjum þannig: Fækkið lykkjum í byrjun hverrar umferðar í hvorri hlið þannig: 21-22-20 (23-24) lykkjur 1 sinni, 8 lykkjur 1-1-1 (2-3) sinnum og 6 lykkjur 2-2-3 (3-3) sinnum = 58-66-76 (82-88) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram þar til stykkið mælist ca 26-28-31 (33-36) cm – brjótið stykkið saman tvöfalt við prjónamerki á öxlum og passið uppá að framstykkin og bakstykkið séu jafn löng – fellið síðan laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið hliðar- og ermasauma kant í kant yst í lykkjubogana.

HEKLAÐUR KANTUR.
Heklið með Delight og heklunál nr 2,5 í kringum allt opið á peysunni þannig: 1 fastalykkja, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur/4 umferðir garðaprjón, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*, þegar komið er að horni á framstykki er hekluð snúra þannig: 1 fastalykkja í horni, heklið síðan loftlykkjur í ca 25 cm, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka, heklið síðan 1 fastalykkju aftur í hornið á framstykki, haldið áfram að hekla kant í kringum peysuna fram að horni á hinu framstykkinu, heklið snúru eins og á fyrra framstykki, heklið síðan áfram hringinn á peysunni.
Heklið alveg á sama hátt neðst í kringum ermar.
Heklið síðan 1 snúru samsvarandi þeirri í hvort horn að innanverðu við saum í hægri hlið og að utan verðu við saum í vinstri hlið - passið uppá að snúrurnar verði í sömu hæð og í hornum á framstykki.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónaður fram og til baka frá miðju að aftan.

SOKKUR:
Fitjið upp 48-52-56 (56) l á prjóna nr 2,5 með 2 þráðum af Delight. Takið frá annan þráðinn og prjónið stroff (= 2 lykkjur slétt/ 2 lykkjur brugðið) i 5-6-6 (7) cm – passið uppá að næsta umferð sé prjónuð frá röngu. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu jafnframt er fækkað um 14-14-18 (14) lykkjur jafnt yfir = 34-38-38 (42) lykkjur.

MEÐ GATAUMFERÐUM: Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: Prjónið 1 lykkju slétt, *2 l slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* og endið á 1 lykkju slétt. Prjónið 1 umferð brugðið frá röngu.
ÁN GATAUMFERÐA: Prjónið 1 umferð slétt frá réttu og umferð brugðið frá röngu.

Setjið nú fyrstu og síðustu 12-13-13 (15) lykkjur í hvorri hlið á þráð. Prjónið 4 - 4½ - 5½ (6½) cm með sléttar lykkjur í hverri umferð yfir miðju 10-12-12 (12) lykkjur ofan á fæti. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið upp 10-11-13 (16) lykkju hvoru megin við miðjustykki = 54-60-64 (74) lykkjur á prjóni. Prjónið 3-4-5 (5) cm með slétt yfir hverja umferð yfir allar lykkjur JAFNFRAMT eftir 1½ - 2 - 2½ (3) cm byrjar úrtaka í annarri hverri umferð til loka þannig: Fækkið um 1 lykkju í byrjun og lok umferðar og prjónið saman 2 lykkjur slétt hvoru megin við 2 miðjulykkjur.
Fellið af og saumið sauminn undir fæti og upp við miðju að aftan. Saumið yst í lykkjubogann svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Þræðið silkiborða í gegnum gataumferðir.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka – prjónað er slétt í öllum umferðum (= garðaprjón).

HÚFA:
Fitjið upp 119-127-135 (139-145) lykkjur á prjóna nr 2,5 með Delight. Prjónið 6 umf garðaprjón (umferð 1 = rétta).

Setjið nú 7 prjónamerki í stykkið (frá réttu) þannig:
1. prjónamerki í 1. lykkju á prjóni.
2. prjónamerki í lykkju nr 22-24-26 (28-31).
3. prjónamerki í lykkju nr 43-47-51 (55-61).
4. prjónamerki í lykkju nr 60-64-68 (70-73).
5. prjónamerki í lykkju nr 77-81-85 (85-85).
6. prjónamerki í lykkju nr 98-104-110 (112-115).
7. prjónamerki í síðustu lykkju á prjóni.
Prjónið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT í umferð 1 byrjar útaukning og úrtaka – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA að ofan!
Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 1. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 3. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 3. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 5. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 5. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 6. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 7. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Þegar stykkið mælist 13-15-16 (18-19) cm (mælt neðst við odd við 2. eða 6. prjónamerki) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: * 1 lykkjur slétt, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* JAFNFRAMT sem fellt er af.

FRÁGANGUR:
Bakstykki á húfu = affellingarkantur, þ.e.a.s. 2 heil horn og 2 hálf horn.
Miðjan á 3 heilu hornunum í gagnstæðri hlið á stykki (= uppfitjunarkantur) nær niður á ennið að framan.
Saumið húfuna saman kant í kant með 1 spori í hverja l meðfram affellingarkanti þannig:
Saumið fyrsta hálfa hornið saman við helminginn á fyrsta heila horninu. Saumið síðan hinn helminginn af fyrsta hálfa horninu saman við fyrri helming af öðru heila horninu.
Saumið síðan annan helminginn af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið.
Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan – passið að sauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

SNÚRA:
Fitjið upp 4 lykkjur á prjóna nr 2,5 með Delight.
Prjónið þannig: * Prjónið 1 lykkju slétt, færið þráðinn að framhlið á stykki (að þér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi brugðið, færið þráðinn aftur að bakhlið (frá þér) *, endurtakið frá *-* umferðina út og í öllum umferðum. Núna myndast hringlaga snúra.
Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm.
Prjónið aðra snúru á sama hátt.
Saumið snúrurnar neðst í tveimur hornunum í hliðum.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 20-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (67)

country flag Carolien wrote:

Een vraag over het meerderen bij het vestje. Er staat afwisselend in de 2e en 3e naald meerderen. Dus volgens onderstaande telling? -x--x-x--x-x--x (x is meerderen in deze naald). Of elke 2e en 3e naald meerderen? -xx-xx-xx etc? En ik vind het meerderen zoals in de bijbehorende video te zien is een lelijk resultaat opleveren. Kun je ook gewoon van de eerste of laatste steek de voor- en achterlus breien?

04.12.2016 - 21:19

DROPS Design answered:

Hoi Carolien. Ja, de telling is correct. Je kan altijd meerderen op een andere manier als je die zelf mooier vindt

05.12.2016 - 14:23

Carol Craig wrote:

I have got to the stage where I am about to cast on stitches for sleeves. Can I just check that my understanding is correct. Cast on 6sts at the sleeve side and then turn the work and knit back. Knit the row (obviously paying attention to the decreases) and then cast on another six. Then after doing the same cast on eight and so forth according to the pattern. Thanks for your help. Carol

23.09.2016 - 22:14

DROPS Design answered:

Dear Mrs Craig, you're right, you've to continue paying attention to dec, and at the same time cast on sts at the end of the row at the sleeves side. For example, for size 1/3 months, you've to cast on 6 sts at the end of the row, work return row, cast on 6 sts at the end of the row, work return row, cast on 8 sts at the end of the row, work return row, cast on 21 sts at the end of the row. Happy knitting!

24.09.2016 - 10:39

country flag Vanessa wrote:

Je moet elke 2e en 3e naald een steek opzetten. zet je dan de ene naald een steek op aan het begin vd naald ( de 2e naald) en dan een steek op aan het einde van de naald (3e naald)? Ik heb het op een paar manieren geprobeerd maar ik kom er niet uit.

24.01.2016 - 22:02

DROPS Design answered:

Hoi Vanessa. Je moet dan afwisselend aan het begin of einde van de nld opzetten, (= wel middenvoor opzetten). Kijk hier hoe je st kan opzetten:

28.01.2016 - 13:10

country flag Karin wrote:

Ik weet niet hoe ik verder moet met de sokken: waar vandaan moet ik steken opnemen na de ribbelsteken over de middelste steken, na de gaatjesrand? En als ik de zijsteken weer op de naald zet, vouwt het middengedeelte toch dubbel?

03.11.2015 - 21:20

DROPS Design answered:

Beste Karin. Je hebt het stukje van de ribbelsteken. Je zet de st van de hulpdraad terug op de nld en tegelijkertijd neem je st op langs beide zijkanten van het stukje met ribbelsteken. Dan heb je een nld als volgt (voorbeeld maat 1/3 mnd): 12 st van de hulpdraad, neem 10 st op aan de ene zijkant van het ribbelsteekstukje, 10 st van het ribbelsteekstukje, neem 10 st op aan de andere zijkant van het ribbelsteekstukje en de laatste 12 st van de hulpdraad. Het middenstukje vouwt niet dubbel.

04.11.2015 - 12:17

country flag Capelle wrote:

Bonjour, J'ai tricoté toutes les augmentations et diminutions mais je n'arrive pas à 26cm de haut (taille 1/3ois)... que dois-je faire? Je continue à tricoter les 60 mailles jusqu'à atteindre cette hauteur? Merci, Caroline

30.10.2015 - 09:22

DROPS Design answered:

Bonjour Caroline, vous continuez au point mousse jusqu'à ce que l'ouvrage mesure 26 cm. Bon tricot!

30.10.2015 - 10:34

country flag Jutta wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zu den Bändern: je eins an beide Vorderteile mittig ist klar, aber innen an den Nähten doch nur an einer Seite und das andere außen an der Naht, oder?

05.09.2015 - 09:39

DROPS Design answered:

Sie haben je 1 Band außen an den Spitzen, dann eins an der einen Seite der Jacke an der Naht außen an der Jacke und eins an der anderen Seite der Jacke auch an der Naht, aber diesmal an der Innenseite, sodass Sie das Band der innen liegenden Spitze innen zubinden können.

13.09.2015 - 13:23

country flag Anne Turner wrote:

What does it mean when the pattern says 'cast on 1 new stitch TOWARDS MID FRONT' ?

06.07.2015 - 01:53

DROPS Design answered:

Dear Mrs Turner, this inc works for the slanted front edge, ie on left front piece you will inc either at the end of row from RS or at the beg of row from WS. Happy knitting!

06.07.2015 - 10:41

country flag Kaja wrote:

Hei. Jeg forstår ikke oppskriften og måtte nettopp rekke opp og begynne på nytt. Hvor på jakken vil de maskene man legger opp bli? Hvor på pinnen skal de første økningene skje (ytterst/midt på)? Hvor på jakken vil 10p med rett bli? Håper svarene på disse spørsmålene vil sette meg i stand til å gjøre den ferdig :-) Litt mer grundigere beskrivelser/bilder ville være en fordel for å gjøre oppskriften enklere å forstå. Mvh Kaja

14.11.2014 - 12:44

DROPS Design answered:

Hei Kaja. Du starter standard ved underkanten og strikker mod skulderen (hvis andet er tilfaeldet saa skrives det i mönstret). Maskerne du laegger op kommer midt for - dvs langs forkanten af forstykket: "SAMTIDIG på 2.p legges det opp 1 ny m mot midt foran. Efter sidste ökning strikker du 10 pinde ret = midt paa forstykket hvor den er breddest för du begynder at minske igen.

14.11.2014 - 16:23

country flag Helen Ford wrote:

In the first set or instructions for jacket it say to increase 1 stitch alternatively on every 2nd and 3rd row, this is very unclear. Does it mean that you increase one stitch every other row e.g row 2 (+1), row 3 (0) row 4 (+1) row 5 (0) etc or something different??? Or you are repeating 3 rows in sets of 3 and increasing on the 2nd and 3rd row

09.10.2014 - 17:15

DROPS Design answered:

Hello! Increase 1 stitch alternatively on every 2nd and 3rd row means, you knit 2 rows, inc, knit 3 rows, inc, knit 2 rows, inc, knit 3 rows, inc etc.

09.10.2014 - 22:43

country flag Lise Jensen wrote:

Hejsa. Kan ikke helt forstå hvorfor det skal være så vanskeligt at strikke efter jeres opskrifter.....

01.08.2014 - 18:32