DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 122-8
DROPS Design: Mynstur nr NE-024
Garnflokkur C
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
750-850-950-1050-1150-1250 g litur nr 2920, appelsínugulur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (40 + 80 cm) NR 4,5 – fyrir stroff.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 10560.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MÆLING:
Vegna þyngdar á stykkinu verður öll lengdarmæling að gerast þegar stykkinu er haldið uppi annars verður það of langt.

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).

ÚRTAKA (á við um fram- og bakstykki):
Fækkið lykkjum 2 lykkjum á undan prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 fyrir rétta stærð. Mynstrið er prjónað í hring á hringprjóna.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 208-232-248-272-296-320 lykkjur á hringprjón 4,5 með Nepal.
Prjónið 1 umferð slétt og prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkju brugðið. Þegar stykkið mælist 10 cm skiptið yfir á hringprjón 5 og haldið áfram í sléttprjóni JAFNFRAMT í 1 umferð er fækkað um 50-60-60-66-74-80 lykkjur jafnt yfir = 158-172-188-206-222-240 lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið með 79-86-94-103-111-120 lykkjur á milli merkja. Látið prjónamerkin fylgja með í stykkinu.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 12 cm – LESIÐ MÆLING – er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚRTAKA (= 4 lykkjur færri). Endurtakið úrtöku í hvorri hlið með 4-4½-4-4½-4½-4½ cm millibili alls 6-6-7-7-7-7 sinnum = 134-148-160-178-194-212 lykkjur. Þegar stykkið mælist 38-40-41-43-43-44 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin – LESIÐ ÚTAUKNING (= 4 lykkjur fleiri). Endurtakið útaukningu með 3½-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 4-4-4-4-5-5 sinnum = 150-164-176-194-214-232 l. Þegar stykkið mælist 52 cm í öllum stærðum eru felldar af 10 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. fellið af 5 lykkjur hvoru megin við bæði prjónamerkin) = 65-72-78-87-97-106 l eftir á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 65-70-70-70-75-75 lykkjur á sokkaprjón 4,5 með Nepal.
Prjónið 1 umferð slétt og prjónið síðan stroff 2 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið. Þegar stroffið mælist 4 cm er lykkjum fækkað í öllum einingum með 3 lykkjur brugðið til 2 lykkjur brugðið = 52-56-56-56-60-60 l. Haldið áfram með stroff með 2 lykkjur slétt og 2 lykkjur brugðið þar til stykkið mælist 10 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 5 og prjónið síðan sléttprjón JAFNFRAMT í umferð 1 er fækkað um 12-16-14-14-16-16 lykkjur jafnt yfir = 40-40-42-42-44-44 lykkjur. Þegar stykkið mælist 12-11-11-12-14-12 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu með 3-3-2½-2-1½-1½ cm millibili alls 10-11-12-13-15-16 sinnum = 60-62-66-68-74-76 lykkjur. Þegar stykkið mælist 43-42-41-40-39-38 cm fellið af 10 lykkjur mitt undir ermi = 50-52-56-58-64-66 lykkjur eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið hina ermina á sama stað.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 230-248-268-290-322-344 lykkjur. Nú er byrjun umferðar við miðju að aftan (Í stærð S + XL + XXL byrjar umferðin í miðju lykkjunni að aftan. Í öðrum stærðum byrjar umferðin á milli 2 miðju lykkja að aftan). Prjónið 2-0-2-3-1-2 cm sléttprjón JAFNFRAMT í síðustu umferð er fækkað um 10-8-8-10-2-4 lykkjur jafnt yfir = 220-240-260-280-320-340 lykkjur. Prjónið síðan og fækkið lykkjum samkvæmt M.1 – veljið mynstur fyrir rétta stærð. Eftir M.1 eru 99-108-117-126-144-153 lykkjur á prjóni. Prjónið síðan 1 umferð með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað í öllum einingum með 3 lykkjum brugðnar í 2 lykkjur brugðnar = 88-96-104-112-128-136 lykkjur. Nú eru 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið hringinn.

UPPHÆKKUN AÐ AFTAN Í HNAKKA:
Byrjið frá réttu við miðju að aftan og prjónið stroff eins og áður fram og til baka þannig: Prjónið 29 lykkjur, snúið stykkinu, takið 1. lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 57 lykkjur. Snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 47 lykkjur, snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 37 lykkjur. Snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 27 lykkjur, snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið 17 lykkjur. Snúið stykkinu, takið 1. lykkju óprjónaða, herðið á þræði og prjónið að miðju að aftan.

KRAGI:
Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan. Skiptið yfir á stutta hringprjóna 4,5 og haldið áfram með stroff hringinn yfir allar lykkjur þar til kraginn mælist 18 cm frá prjónamerki að framan. Aukið síðan út í öllum einingum með 2 lykkjur slétt til 3 lykkjur slétt. Þegar kraginn mælist 28 cm er aukið út í öllum einingum með 3 lykkjur slétt til 4 lykkjur slétt. Fellið síðan laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þegar kraginn mælist ca 30 cm (eða að óskaðri lengd). Brjótið kragann út að réttu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
symbols = prjónið 2 lykkjur í sömu lykkju
symbols = engin lykkja, hoppið yfir þessa rúðu
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = 2 lykkjur snúnar brugðið saman (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann)
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 122-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Helene Samson wrote:

Bonjour les manches sont elles tricoté en rond ou en aller- retour? Si c est en aller-retour est ce que la couture est sur le dessus ou en dessous ? Merci

28.12.2022 - 17:09

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Samson, les manches se tricotent en rond sur aiguilles doubles pointes, en commençant au milieu sous la manche (le début/la fin des tours doit se trouver au niveau du dessous de la manche/du bras). Bon tricot!

02.01.2023 - 11:26

country flag Elvira Gustke wrote:

Der Pullover sitzt wunderschön, nur der Schallkragen ist etwas zu eng. Was kann man machen das er wie auf dem Foto aussieht?

26.09.2022 - 09:43

DROPS Design answered:

Liebe Frau Gustke, wenn Sie den Rollkragen breiter möchten, können Sie vielleicht mehr Maschen auffassen oder früher/mehr zunehmen. Viel Spaß beim stricken!

26.09.2022 - 11:43

country flag Meredith wrote:

Is there a video tutorial on this sweater? I'm done with the body and sleeves - but can't for the life of me figure out what to do for the yoke. This is my first sweater and I'm so confused haha.

16.09.2022 - 02:58

DROPS Design answered:

Dear Meredith, this video shows how to put sleeve stitches on the same neele as front and back piece and how to continue yoke - remember to follow instructions from your pattern, ie work diagram as explained, you won't decrease for raglan as in the video but you will decrease for the round yoke in the diagrams. Happy knitting!

16.09.2022 - 09:58

country flag Jacoba wrote:

Meet je het lijf vanaf de boordsteek of na de boordsteek

05.12.2021 - 23:33

DROPS Design answered:

Dag Jacoba,

Deze meet je altijd vanaf het begin, dus vanaf de opzet, tenzij anders aangegeven. Bij dit patroon dus ook vanaf de opzet.

07.12.2021 - 17:13

country flag Anne Marie wrote:

Hvorfor skal armen være kortere jo større størrelse? Sitat fra slutten av ermet: "Når arb måler 43-42-41-40-39-38 cm felles det 10 m midt under ermet". Jeg får ikke dette til å stemme. Kan dere sjekke om det er rett?

19.02.2020 - 19:48

DROPS Design answered:

Hei Anne Marie, Det er kortere mål i større størrelser pga lengre bærestykke og videre skulder mål i større størrelser. God fornøyelse!

20.02.2020 - 07:22

country flag Cecilia wrote:

Después de unir las piezas, mangas y el cuerpo, se sigue el tejido en redondo?

07.07.2019 - 03:41

DROPS Design answered:

Buenos dias! Si, tiene razon, despues de aqui se sigue el tejido en redondo. Buen trabajo!

09.07.2019 - 09:14

country flag Mazz wrote:

In het patroon staat voor het lijf: Kant bij een hoogte van 52 cm voor alle maten 10 st af aan iedere kant voor de armsgaten. Maar op de tekening van model staat dat de lengte van het lijf voor alle maten tot de armsgaten verschillend is en zeker meer dan 52 cm, voor de mouwen komt dat verschil in lengte wel terug in de beschrijving. Ik moet iets verkeerd doen want er zijn al zoveel mensen voor mij geweest die deze mooie trui hebben gemaakt.

08.05.2018 - 08:27

DROPS Design answered:

Dag Mazz, De 52 cm vanaf de onderkant tot de armsgaten geldt inderdaad voor alle maten. Het verschil in lengte wordt gecreëerd door de hoogte van het armsgat.

10.05.2018 - 11:08

country flag Brunetek wrote:

Wzór godny polecenia właśnie kończe jest super, ładny i fajnie sie prezentuje

05.04.2018 - 16:33

country flag Jardé wrote:

Bonjour, Est-il possible de raccourcir ce pull et si oui comment procéder ? Merci Stéphanie

15.03.2018 - 11:37

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Jardé, vous pouvez tout à fait modifier les modèles à votre goût, nous ne sommes toutefois pas en mesure de pouvoir recalculer en fonction de chaque demande. Inspirez-vous d'un modèle similaire de la bonne longueur ou demandez conseil à votre magasin. Bon tricot!

15.03.2018 - 13:11

country flag Lucia wrote:

Posso fare questa maglia con i ferri diritti, anche le maniche, e poi unirli con lo sprone? Mi aiutate? Grazie

02.01.2018 - 22:37

DROPS Design answered:

Buongiorno Lucia, questo modello è stato progettato per essere lavorato in tondo con i ferri circolari: se preferisce può lavorarlo con i ferri dritti, apportando le opportune modifiche, tenendo però presente che probabilmente non avrà la stessa struttura del capo nella foto. Buon lavoro!

03.01.2018 - 08:35