DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 123-9
DROPS design: Mynstur nr NE-004
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS NEPAL frá Garnstudio
600-650-700-800-850-950 g litur nr 3112, púðurbleikur.

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur x 22 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 4 – fyrir garðaprjón.
DROPS PERLUTALA NR 522: 5 st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Nepal
DROPS Nepal
65% Ull, 35% Alpakka
frá 704.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8448.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1, M.2 og M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu (umferð 1 = ranga).

ÚRTAKA (á við um hálsmál):
Fækkið lykkjum frá réttu innan við 5 lykkjur garðaprjón.
Fækkið lykkjum á EFTIR 5 lykkjum þannig: takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. Fækkið lykkjum á UNDAN 5 lykkjum þannig: 2 lykkjur slétt saman.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan þannig:
1 hnappagat = prjónið þriðju og fjórðu lykkju frá miðju að framan slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ S: 3, 10, 16, 22 og 28 cm.
STÆRÐ M: 3, 10, 16, 23 og 29 cm.
STÆRÐ L: 3, 10, 17, 23 og 30 cm.
STÆRÐ XL: 4, 11, 18, 24 og 31 cm.
STÆRÐ XXL: 4, 11, 18, 25 og 32 cm.
STÆRÐ XXXL: 4, 11, 19, 26 og 33 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 76-84-92-100-108-116 lykkjur (meðtaldin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón nr 4 með Nepal. Prjónið 3 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 14-17-20-23-26-29 lykkjur slétt, * prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt *, 36-38-40-42-44-46 lykkjur slétt, endurtakið frá *-*, 14-17-20-23-26-29 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 84-92-100-108-116-124 lykkjur. Skiptið yfir á prjón nr 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 5-8-11-14-17-20 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1 (= 21 lykkjur), 3 lykkjur slétt, 18-20-22-24-26-28 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1 (= 21 lykkjur), 3 lykkjur slétt, 5-8-11-14-17-20 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með M.1 tvisvar sinnum á hæðina. Aðrar lykkjur halda áfram með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Eftir 2 sinnum af M.1 er prjónað M.2 með úrtöku og útaukningu samkvæmt mynsturteikningu (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar lykkjur eru fæstar á prjóni eru 68-76-84-92-100-108 lykkjur á prjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar M.2 hefur verið prjónað til loka eru 84-92-100-108-116-124 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með M.3 yfir M.2 til loka (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 4-5-6-7-8-9 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 1-2-2-3-3-4 sinnum og 1 lykkju 2-2-4-4-6-6 sinnum = 68-70-72-74-76-78 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með mynstur eins og áður með 1 kantlykkju í hvorri hlið við handveg. Þegar stykkið mælist 55-57-59-61-63-65 cm prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir miðju 24-26-28-30-32-34 lykkjur, fellið síðan af miðju 14-16-18-20-22-24 lykkjur fyrir hálsmáli. Hvor öxl (= 27 lykkjur) eru prjónaðar til loka fyrir sig. Haldið áfram með 5 lykkjur að hálsmáli. Þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir M.3 = 23 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð eru felldar af þær lykkjur sem eftir eru með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp 43-47-51-55-59-63 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á prjón 4 með Nepal. Prjónið 3 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu með byrjun frá hlið): 1 kantlykkja í garðaprjóni, 14-17-20-23-26-29 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 18-19-20-21-22-23 lykkjur slétt og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 47-51-55-59-63-67 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 5. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 9-10-11-12-13-14 lykkjru brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1 (= 21 lykkjur), 3 lykkjur slétt, 5-8-11-14-17-20 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með M.1 tvisvar sinnum á hæðina. Aðrar lykkjur halda áfram með slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Prjónið síðan M.2 yfir M.1 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar lykkjufjöldinn er sem minnstur eru 39-43-47-51-55-59 lykkjur á prjóni. Þegar M.2 er lokið eru 47-51-55-59-63-67 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með M.3 yfir M.2 til loka (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 30-31-32-33-34-35 cm prjónið 2 umferðir fram og til baka einungis yfir 5 lykkjur garðaprjón á kanti að framan (þetta er gert til að hálsmálið falli betur að). Haldið síðan áfram að prjóna yfir allar lykkjur eins og áður – JAFNFRAMT í næstu umferð frá réttu er fækkað um 1 lykkju við hálsmál – SJÁ ÚRTAKA. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð 7-8-9-10-11-12 sinnum og síðan í 4. Hverri umferð 5 sinnum í öllum stærðum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 39-40-41-42-43-44 cm fellið af fyrir handveg í hlið á sama hátt og á bakstykki. Þegar öll úrtaka og affelling hefur verið gerð til loka fyrir handveg og hálsmáli eru 27 lykkjur á prjóni. Haldið áfram að prjóna samkvæmt mynstri. Þegar stykkið mælist ca 58-60-62-64-66-68 cm fækkið um 4 lykkjur jafnt yfir M.3 = 23 lykkjur eftir á prjóni. Í næstu umferð er fellt af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum meðfram kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 49-51-53-55-57-59 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í báðum hliðum) á prjón 4 með Nepal. Prjónið 3 umferðir garðaprjón. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 21-22-23-24-25-26 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 1 lykkja slétt, prjónið 2 lykkjur í hvora af næstu 2 lykkjum og prjónið þessar 4 lykkjur slétt, 21-22-23-24-25-26 lykkjur slétt og 1 kantlykkja í garðaprjóni = 53-55-57-59-61-63 lykkjur. Skiptið yfir á prjón 5, næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, 12-13-14-15-16-17 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt, M.1, 3 lykkjur slétt, 12-13-14-15-16-17 lykkjur brugðið og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Haldið áfram með M.1 einu sinni á hæðina, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt yfir slétt og brugðið yfir brugðið. Eftir M.1 er prjónað M.2 og síðan M.3 til loka (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin innan við kantlykkju. Endurtakið útaukningu með 6-6-5-4-3½-3 cm millibili alls 6-6-7-8-9-10 sinnum = 65-67-71-75-79-83 lykkjur (útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni). Þegar stykkið mælist 50-49-48-47-46-45 cm (styttra mál í stærri stærðum vegna lengri ermakúpu og breiðari axla) fellið af fyrir ermakúpu í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 4 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 3 sinnum og 1 lykkja 1-2-3-4-5-6 sinnum, síðan eru felldar af 2 lykkjur í hvorri hlið þar til ermin mælist 57 cm, að lokum eru felldar af 3 lykkjur 1 sinni í hvorri hlið, fellið af þær lykkjur sem eftir eru. Stykkið mælist ca 58 cm í öllum stærðum.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Saumið ermar í og saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjóðn aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur af kaðlaprjóni slétt saman
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, prjónið 2 lykkjur slétt í lykkju af kaðlaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 2 lykkjur slétt í næstu lykkju, prjónið 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 123-9

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (32)

country flag Della Pietra Teresa wrote:

Secondo me nella taglia oltre la L sarebbe meglio ripetere 3 volte M1 all' inizio del lavoro visto che tutto deve comunque essere più lungo. Cosa ne pensate?

15.12.2021 - 16:12

DROPS Design answered:

Buonasera Teresa, le istruzioni del modello sono corrette, può procedere come indicato. Buon lavoro!

15.12.2021 - 22:04

country flag Della Pietra Teresa wrote:

Ho fatto questo modello con la con la lana consigliata cioè Nepal (bellissimo) ..ora vorrei farlo con la Alpaca che ho già acquistato e che è molto più sottile quindi la metterei a due fili come consigliato dal convertitore . Quello che non so è la misura dei ferri da usare

07.12.2021 - 20:28

DROPS Design answered:

Buonasera Teresa, deve lavorare con il numero di ferri che le permette di ottenere il campione indicato. Buon lavoro!

07.12.2021 - 21:42

country flag Salaun Florence wrote:

Bonjour, Je souhaite réaliser ce modèle mais je ne comprends pas à quelle moment commencer les diminutions pour cintrer le modèle. vous dites dans les explications,après M1 tricoter M2 en tenant compte des diminutions et augmentations....mais rien ne nous signale le nombre de mailles à diminuer et à augmenter. Pouvez-vous une explication du schéma s\\\'il vous plait ?\\r\\nAu plaissir de vous lire \\r\\nMme SALAÜN Florence

04.09.2018 - 17:25

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Salaun, les diminutions et augmentations du bas du gilet sont incluses dans A.2: on va diminuer les mailles des torsades puis les augmenter pour donner la forme cintrée du gilet. Bon tricot!

05.09.2018 - 07:57

country flag Paola wrote:

Sto facendo questo maglioncino e mi sto rendendo conto che le asole non sono centrate forse è meglio fare prima la gettata poi le due maglie insieme. Forse lo sfascerò. Comunque è molto bello. Paola

09.09.2015 - 19:13

DROPS Design answered:

Buongiorno Paola. Lavorando le asole come indicato nel modello il bordo esterno risulta leggermente più sostenuto. Prima di disfare, può provare ad appoggiare sull'asola il bottone. Queste piccole asimmetrie possono essere meno evidenti con un bottone di misura adeguata. Buon lavoro!

10.09.2015 - 13:18

country flag Paola wrote:

Sto facendo questo maglioncino e mi sto rendendo conto che le asole non sono centrate forse è meglio fare prima la gettata poi le due maglie insieme. Forse lo sfascerò. Comunque è molto bello. Paola

09.09.2015 - 09:36

country flag Laura Read wrote:

Where the pattern says to "Work 2 vertical repeats of M.1," will I be working M.1 a total of 3 times or only 2? Thank you.

18.01.2014 - 20:05

DROPS Design answered:

Dear Mrs Read, you will work M.1 a total of 2 times. Happy knitting!

20.01.2014 - 08:49

country flag Sabine wrote:

Eine Frage zu den Ärmeln: beim Abketten für die Armkugel steht dort "danach auf beiden Seiten 2 M.abk bis die Arbeit 57 cm misst". Heißt das in jeder Reihe je 2M. abketten bis zu 57 cm? Oder die beiden Maschen abketten, und dann weiterstricken, bis die 57 cm erreicht sind??

26.09.2013 - 14:45

DROPS Design answered:

Liebe Sabine, für die Form der Armkugel werden so lange je 2 M abgekettet, bis die Arb 57 cm misst.

27.09.2013 - 08:33

country flag Sofia wrote:

På ärmen står det inte att man ska byta till sticka 5, som man gjort på de övriga delarna. Stämmer det att hela ärmen ska stickas på st 4?

26.04.2013 - 13:28

DROPS Design answered:

Det er en fejl. Vi har rettet i mönstret. Tack!

14.05.2013 - 10:58

country flag Sofia wrote:

Glöm det, jag tänkte fel. Det stämmer såklart :)

15.04.2013 - 01:25

country flag Sofia wrote:

Precis när man ska börja med M.2 på bakstycket, har man st ett avigt v, men M.2 verkar börja med ett avigt v eftersom alla flätor ska st från rätsidan. Är det fel i diagrammet?

15.04.2013 - 01:11