DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS SS24
DROPS Baby 19-32
DROPS Design: Mynstur nr BM-026-by-BM-027-by-BM-028-by-BM-029-by
--------------------------------------------------------
PEYSA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-150-150 (150-200) g nr 02, natur
50 g í allar stærðir nr 11, ísblár
50 g í allar stærðir nr 12, ljósblár

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 eða 80 cm) NR 2 fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA nr 503: 6-6-7 (7-7) st.

BUXUR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56 - 62/68 - 74/80 (86/92 - 98/104)
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) g nr 02, natur
50 g í allar stærðir nr 11, ísblár

DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 2 fyrir stroff.

HÚFA:
Höfuðmál:
40/42 - 44/46 - 46/48 (48/50 - 50/52) cm
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) g nr 11, ísblár
50-50-50 (50-50) g nr 02, natur
50-50-50 (50-50) g nr 12, ljós blár

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 40 cm) NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 og 40 cm) NR 2 fyrir stroff.

SOKKAR:
Fótlengd: 10-11-12 (14-16) cm
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 02, natur
50 g í allar stærðir nr 11, ísblár
50 g í allar stærðir nr 12, ljós blár

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2 – fyrir stroff.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1-M.5 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
--------------------------------------------------------

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 153-177-201 (223-245) l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2 með ísblár. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br með 1 kantlykkju í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – og 1 l í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). Skiptið yfir í natur og haldið áfram með stroff. Eftir 4-4-4 (5-5) cm skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 1 umf slétt frá réttu JAFNFRAMT er fækkað um 24-30-36 (40-44) l jafnt yfir = 129-147-165 (183-201) l. Setjið eitt prjónamerki 33-37-42 (46-51) l inn frá hvorri hlið = 63-73-81 (91-99) l á milli prjónamerkja á bakstykki. Prjónið M.1 með 1 kantlykkju í garðaprjóni við miðju að framan. ATH! Næst síðasta l á prjóni er prjónuð eins og fyrsta l í M.1 þannig að mynstrið byrjar og endar alveg eins í hvorri hlið við miðju að framan. Eftir M.1 er síðan prjónað M.2 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 15-17-20 (23-26) cm – passið uppá að prjóna minnst 2 umf á eftir umf með ”doppu” í mynstri – prjónið M.3 (munið eftir að næst síðasta l á prjóni sé prjónuð eins og fyrsta l í M.3 þannig að mynstrið byrji og endi eins í hvorri hlið við miðju að framan). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm skiptist stykkið við handveg við bæði prjónamerki og hvor hluti er prjónaður til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 63-73-81 (91-99) l. Fitjið upp 1 nýja l í hvorri hlið (= kantlykkja fyrir saum) = 65-75-83 (93-101) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Á eftir M.3 er prjónað M.4 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. ATH! Ör í M.4 merkir miðju-l að aftan, teljið síðan út l til hliðar frá þeirri l. Á eftir M.4 er prjónað með ísblár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-41) cm fellið af miðju 23-25-27 (27-29) l fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 2 l í næstu umf frá hálsi = 19-23-26 (31-34) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-42) cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
= 33-37-42 (46-51) l. Fitjið upp 1 nýja l við handveg (= kantur fyrir saum) = 34-38-43 (47-52) l. Haldið áfram með M.3 með 1 kantlykkju i garðaprjóni á hvorri hlið. Á eftir M.3 er prjónað M.4 með 1 kantlykkju með garðaprjóni í hvorri hlið. ATH! Passið að mynstrið verði fallegt við miðju að framan, það á að vera 1 l ljós blár við miðju að framan á eftir kantlykkju og á undan einni rúðu með natur eða krossi. Prjónið M.4 með ísblár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 24-26-29 (33-36) cm setjið síðustu 9-9-10 (11-12) l við miðju að framan á þráð fyrir hálsmál. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umf frá hálsi: 2 l 2-2-2 (1-1) sinnum og 1 l 2-2-3 (3-4) sinnum = 19-23-26 (31-34) l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-42) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og hægra nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 48-50-56 (58-64) l á sokkaprjóna nr 2 með ísblár. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br, skiptið yfir í natur og haldið áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 11-13-13 (15-15) l jafnt yfir = 37-37-43 (43-49) l.
LESIÐ ALLAN KAFLANN FYRIR ERMI ÁÐUR EN PRJÓNAÐ ER ÁFRAM!
Prjónið M.1 – stillið af við miðju, sjá ör í mynstri. Á eftir M.1 er haldið áfram með M.2 (stillið af miðju eftir ör) þar til stykkið mælist ca 16-16-18 (23-26) cm – passið uppá að prjóna minnst 2 umf á eftir umf með ”doppu” í mynstri. Prjónið síðan M.5 (stillið af mynstur eftir ör) – á eftir M.5 er prjónuð ein umf með ísblár til loka. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 5-6-6 (7-7) cm aukið út um 2 l mitt undir ermi. Endurtakið útaukningu alls 11-13-13 (15-15) sinnum. Fyrir stærð 1/3 MÁN + 12/18 MÁN + 2 ÁRA: í 4. hverri umf, fyrir stærð 6/9 MÁN: í 3. hverri umf fyrir stærð STRL 3/4 ÁRA: Í 5. hverri umf = 59-63-69 (73-79) l – útauknu l eru prjónaðar inn í mynstur. Fellið laust af þegar stykkið mælist ca 19-19-21 (26-29) cm (M.5 á nú að vera lokið og nokkrar umf með ísblár).

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

VINSTRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 75-83-93 (105-115) l (deilanlegt með 2 + 1) meðfram vinstra framstykki á prjóna nr 2 og natur. Prjónið stroff = 1 l sl/1 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l slétt á hvorri hlið (séð frá réttu). Þegar kantur að framan mælist 2 cm er fellt af með sl yfir sl og br yfir br.

HÆGRI KANTUR AÐ FRAMAN:
Prjónið eins og vinstri en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir – það neðsta á að vera ca 1½ cm frá neðri kanti og það efsta ca 4 cm frá efri kanti (að auki á að gera eitt hnappagat í kant í hálsi). 1 HNAPPAGAT = fellið af 2 l og fitjið upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af í næstu umf.

HÁLSMÁL:
Takið upp frá réttu í kringum háls: ca 87 til 117 l – meðtaldar l af bandi að framan jafnt yfir kant að framan (fjöldi l á að vera deilanlegur með 2 + 1) á hringprjóna nr 2 með natur. Prjónið stroff = 1 l sl/1 l br með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl í hvorri hlið við miðju að framan (séð frá réttu). JAFNFRAMT eftir 1 cm er fellt af fyrir 1 hnappagati yfir hin á hægri kant að framan. Þegar kantur í hálsi mælist 2 cm, skiptið yfir í ísblár. Prjónið 1 umf stroff og fellið síðan af með sl yfir sl og br yfir br. Saumið ermar í innan við 1 kantlykkju. Saumið tölur í.
--------------------------------------------------------
BUXUR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1-M.2 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

ÚRTAKA:
Byrjið 2 l á undan prjónameri og prjónið þannig: 2 l slétt saman, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
--------------------------------------------------------

BUXUR:
Stykkið er prjónað í hring frá mitti og niður.
Fitjið upp 142-150-160 (166-172) l á hringprjóna nr 2 með ísblár – umf byrjar við miðju að aftan. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br, skiptið yfir í natur og haldið áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 16-18-22 (22-22) l jafnt yfir = 126-132-138 (144-150) l.
UPPHÆKKUN AÐ AFTAN: Prjónið M.2 jafnframt er prjónuð upphækkun að aftan þannig: Prjónið 10-11-11 (12-12) l frá byrjun umf, snúið við (til að sleppa við göt er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð og hert á bandi). Prjónið 20-22-22 (24-24) l og snúið við. Prjónið 30-33-33 (36-36) l og snúið við. Prjónið 40-44-44 (48-48) l og snúið við. Haldið svona áfram að prjóna 10-11-11 (12-12) l fleiri í hvert skipti sem snúið er við 8 sinnum til viðbótar (= 12 stuttar umf). Haldið síðan áfram að prjóna í hring með M.2 yfir allar l.
ÚTAUKNING: Þegar stykkið mælist 13-16-17 (18-19) cm frá mitti (mælt fyrir miðju að framan) setjið eitt prjónamerki í byrjun umf og eitt prjónamerki á eftir 63-66-69 (72-75) l (merkir framan og aftan á buxum). Aukið síðan út um 1 l hvoru megin við þessi prjónamerki (= 4 l fleiri í umf) í 3. hverri umf alls 6 sinnum = 150-156-162 (168-174) l. Á eftir síðustu útaukningu mælist stykkið ca 18-21-22 (23-24) cm frá mitti (mælt frá miðju að framan).

SKÁLM:
Prjónið 75-78-81 (84-87) l – byrjið fyrir miðju að aftan og setjið þær l sem eftir eru á þráð. Prjónið í hring á sokkaprjóna (M.2 heldur áfram eins og áður) – setjið eitt prjónamerki að innanverðu á skálm = byrjun umf. Fækkið síðan um 1 l hvoru megin við prjónamerki – LESIÐ ÚRTAKA – alls 14-13-12 (11-10) sinnum. Fyrir stærð 1/3 MÁN: til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umf, fyrir stærð 6/9 MÁN: til skiptis í 3. og 4. hverri umf, fyrir stærð 12/18 MÁN: til skiptis í 4. og 5. hverri umf, fyrir stærð 2 ÁRA: til skiptis í 6. og 7. hverri umf og fyrir stærð 3/4 ÁRA: til skiptis í 9. og 10. hverri umf = 47-52-57 (62-67) l. Þegar stykkið mælist ca 27-33-36 (42-49) cm frá mitti – passið að prjónaðar hafa verið 2 umf á eftir umf með ”doppu”- prjónið M.1. Byrjið efst í mynstri og sjá ör sem merkir miðju á umf (= innanverðu á skálm). Á eftir M.1 er skipt yfir í natur og sokkaprjóna nr 2. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út um 11-12-13 (16-17) l jafnt yfir = 58-64-70 (78-84) l. Prjónið síðan stroff = 1 l sl, 1 l br þar til buxurnar mælast 36-42-46 (52-59) cm frá mitti (stroffið mælist þá ca 5-5-6 (6-6) cm), skiptið yfir í ísblár og prjónið 1 umf stroff áður en fellt er laust af með stroffi.
Prjónið hina skálmina alveg eins.
--------------------------------------------------------
HÚFA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.7 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
--------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp þar sem sjálf húfan byrjar, prjónið síðan húfuna áfram fram og til baka.
Byrjun umf = miðja að aftan!

Fitjið laust upp 220-244-256 (280-288) l á hringprjóna nr 2 með natur og prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br. Skiptið yfir í ísblár og haldið áfram með stroff. Þegar stroffið mælist 3-3-3 (4-4) cm skiptið yfir á hringprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf í sléttprjóni með ísblár JAFNFRAMT er fækkað um 52-52-64 (64-72) l jafnt yfir = 168-192-192 (216-216) l. Prjónið nú M.7. Eftir M.7 eru 154-176-176 (198-198) l á prjóni og haldið áfram með ísblár og sléttprjóni. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT í umf 3 á eftir M.7 er fækkað um 14-16-16 (18-18) l jafnt yfir – þ.e.a.s. prjónið slétt saman 10. og 11. l EN passið uppá að úrtakan komi yfir úrtöku frá síðustu umf í M.7. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4 sinnum – ATH: Í hverri umf sem l er fækkað í er prjónuð 1 l sléttprjón færri á milli allra skipta þar sem 2 l eru prjónaðar saman) = 98-112-112 (126-126) l á prjóni og stykkið mælist ca 10-10-10 (11-11) cm. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan 1 umf með sléttprjóni JAFNFRAMT er fækkað um 8-18-16 (26-22) l jafnt yfir = 90-94-96 (100-104) l. Skiptið yfir á hringprjóna nr 2 og prjónið stroff (= 1 l sl/ 1 l br) þar til stroffið mælist 2½-2½-2½ (3-3) cm.
NÆSTA UMFERÐ ER PRJÓNUÐ FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN: Prjónið stroff eins og áður yfir fyrstu 35-36-37 (38-39) l, setjið næstu 21-23-23 (25-27) l á band (án þess að prjóna þær) = miðja að framan. Skiptið aftur yfir á hringprjóna nr 2,5, snúið við og prjónið 1 umf br frá röngu JAFNFRAMT er aukið út um 26-32-34 (44-50) l jafnt yfir = 95-103-107 (119-127) l á prjóni.
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
NÆSTA UMF ER PRJÓNUÐ FRÁ RÉTTU ÞANNIG: 1 kantlykkja í garðaprjóni, * 1 l sl, 3 l br *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir á prjóni og endið á 1 l sl og 1 kantlykkju í garðaprjóni. Haldið áfram með stroff fram og til baka. Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm setjið miðju 31-31-35 (39-39) l á prjóni á þráð fyrir miðjustykki á húfu.
Prjónið 1 umf slétt frá réttu, 1 umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu yfir síðustu 32-36-36 (40-44) á annarri hlið á stykki, fellið síðan af með sléttu frá röngu.
Endurtakið í hinni hlið á stykki.
Setjið 31-31-35 (39-39) l af þræði til baka á prjóninn og haldið áfram með stroff með 1 kantlykkju í garðaprjóni og 1 l sl á hvorri hlið (séð frá réttu) þar til miðjustykkið mælist 11-12-12 (14-15) cm frá þar sem l voru settar á band. Prjónið 2 umf í garðaprjóni og fellið síðan fallega af.

FRÁGANGUR:
Saumið niður miðjustykki að hvorri hlið með smáu fallegu spori innan við 1 kantlykkju í hvorri hlið.

STROFF KANTUR Í KRINGUM OP Á HÚFU:
Prjónið upp ca 120 til 160 l (deilanlegt með 2) í kringum op á húfu (meðtaldar l af þræði að framan) á hringprjóna nr 2 með ísblár. Prjónið stroff (= 1 l sl/1 l br) í hring þar til stroffið mælist 4 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Brjótið stroff kantinn saman tvöfaldan að innan verðu á húfu og saumið niður með smáu fallegu spori.
--------------------------------------------------------

SOKKAR:

ÚRTAKA (á við um miðju að aftan á stroffi):
Fækkið um 1 l hvoru megin við 3 miðju l að aftan á sokknum (= 1 l sl + 1 l br + 1 l sl) með því að prjóna 2 l br saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.6 – allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.
--------------------------------------------------------

SOKKUR:
Fitjið upp 58-66-72 (78-82) l á sokkaprjóna nr 2 með natur. Prjónið 1 umf stroff = 1 l sl/1 l br, skiptið yfir í ísblár og haldið áfram með stroff. Þegar stykkið mælist 2-3-4 (5-6) cm fækkið um 2 l fyrir miðju að aftan – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með tveggja cm millibili alls 5 sinnum = 48-56-62 (68-72) l. Þegar stykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm skiptið yfir á sokkaprjóna nr 2,5. Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 6-10-16 (16-20) l jafnt yfir = 42-46-46 (52-52) l. Prjónið 1 umf sléttprjón án úrtöku. Setjið síðan 16-17-17 (19-19) fyrstu og 16-17-17 (19-19) lykkjur á þráð og síðustu l í umf á þráð = 10-12-12 (14-14) l eftir á prjóni fyrir miðjustykki. Prjónið 4-5-5½ (7-8) cm sléttprjón yfir þessar l. Setjið síðan til baka l af þráðum á prjóninn JAFNFRAMT eru teknar upp 11-13-15 (18-22) l beggja vegna við miðjustykki = 64-72-76 (88-96) l. Klippið frá og byrjið umf við miðju að aftan. Prjónið 1-2-4 (5-7) umf sléttprjón hringinn yfir allar l með ísblár. Prjónið síðan M.6. ATH! Í stærð 12/18 mán verða 2 alveg eins mynstureiningar af M.6 við miðju aftan á sokknum. Á eftir M.6 er prjónuð 1 umf sléttprjón með ísblár. Prjónið síðan 1 umf br áður en allar l eru felldar af fyrir utan þær 10-12-12 (14-14) l frá miðju stykki. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka yfir miðjustykki að sóla. Fellið af þegar sólinn mælist 10-11-12 (14-16) cm. Saumið sólann við sokkinn með smáu spori.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

symbols = natur
symbols = ísblár
symbols = ljós blár
symbols = 2 lykkjur slétt saman með ísbláum
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-32

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (29)

country flag DROPS Deutsch wrote:

Man beginnt mit der ersten Masche in M3. Die letzte M. wird wie die erste M. in M3 gestrickt.

30.12.2011 - 18:32

country flag Mareike wrote:

Jacke (12/18 Monate): Wie wird M 3 gestrickt? Es gibt hier keinen Pfeil für die mittlere Masche! Soll das Muster jeweils separat auf dem Rücken- und den beiden Vorderteilen angepasst werden?

30.12.2011 - 15:57

country flag DROPS Deutsch wrote:

Über 2 cm. Auf der linken Seite mit ca 1 cm langen Stichen annähen.

21.11.2011 - 11:10

country flag Mareike wrote:

Mütze: Wird das Bündchen (um die Öffnung)über die gesamten 4 cm umgeschlagen oder nur über 2 cm? Mit welchem Stich wird es angenäht?

21.11.2011 - 09:59

country flag Mareike wrote:

Mütze (Kopfteil): Was bedeutet "1 Randm in Krausrippe" bzw. "1 re. und 1 Randm in Krausrippe stricken"? (1 Krausrippe sind doch gemäß Anleitung eigentlich 2 Reihen rechts?)

16.11.2011 - 11:09

country flag DROPS Deutsch wrote:

Da fehlt ein ganzer Satz. Das muss wie folgt heissen: Zu eisblau wechseln und das Bündchsten weiterstricken bis die Arbeit 3-3-3 (4-4) cm misst. Ich habe das gleich angepasst. Vielen Dank für den Tipp.

09.11.2011 - 08:50

country flag Mareike wrote:

Mütze: Zu Beginn soll man „1 R. Bündchen stricken. Nach 3-3-3...cm zu Rundnadel 2,5 wechseln…“ Bedeutet das, dass alles im Bündchenmuster bis zu 3-3-...cm gestrickt wird?

08.11.2011 - 10:09

country flag DROPS Design wrote:

Gosia, you work the 37 sts, then stop and put the next 23 on a holder, TURN WORK and work back a purl row on ALL sts (the 37+36 sts) and while working this row you inc over these 73 sts to a total amount of 107 sts (as written in the pattern).

08.09.2011 - 17:31

country flag Gosia wrote:

I don't understand something... After 2.5 cm rib over M.7 I have 96 sts. I work first 37 sts in rib (for 12mths size), slip 23 sts on stich holder, and I don't know what to do with other 36 sts... Then is writed to increase 34 sts to 37 but what to do with 36 sts and where it should be?

08.09.2011 - 16:46