DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Sweet Buttercup Blanket

Sett með hekluðu teppi fyrir börn með breiðum kanti í sólfjaðramynstri og heklaðri húfu með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino. Þema: Barnateppi.

DROPS Baby 19-6
DROPS design: Mynstur nr BM-009-by-BM-011-by
Garnflokkur A
---------------------------------------------------------
TEPPI:
Mál: ca 66 x 80 cm.
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
300 g nr 02, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 5½ stuðlahópar verði 10 cm á breidd.

HÚFA:
Höfuðmál:
40/42 - 44/46 - 46/48 (48/52) cm
Efni:
DROPS BABY MERINO frá Garnstudio
50 g í allar stærðir nr 02, natur

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 1 sólfjöður mælist 3 cm á breidd.
---------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

TEPPI:
Teppið er heklað fyrst í stuðlahópum. Að lokum er heklaður breiður kantur með sólfjaðramynstri í kringum allt teppið.

TEPPI:
Heklið 119 LAUSAR loftlykkjur (meðtaldar 3 loftlykkjur til að snúa við með) með heklunál 3,5 með Baby Merino.
UMFERÐ 1: Heklið 4 stuðla í 6. loftlykkju frá heklunálinni, * hoppið yfir 4 loftlykkjur, 4 stuðlar í næstu loftlykkju *, endurtakið frá *-* alls 22 sinnum, hoppið yfir 2 loftlykkjur og endið með 1 stuðul í síðustu loftlykkju = 23 stuðlahópar í umferð, snúið við.
UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, heklið síðan 4 stuðla á milli 2 miðju stuðlum í hverjum stuðlahóp út umferðina, endið með 1 stuðli í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð, snúið stykkinu.
Endurtakið umferð 2 upp úr þar til teppið mælist ca 56 cm á lengd.

KANTUR MEÐ SÓLFJÖÐRUM:
UMFERÐ 1: Heklið 1 umferð með loftlykkjubogum í kringum allt teppið þannig – byrjið í einu horninu: 1 keðjulykkja í horni, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju (nú eru 3 loftlykkjubogar í horni), * 2 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1-1½ cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* að næsta horni, í hornið er heklað: 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í horni, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í sömu lykkju, haldið áfram meðfram næstu hlið – ATH: Það eiga að vera ca 29 loftlykkjubogar meðfram báðum skammhliðum, ca 37 loftlykkjubogar meðfram báðum langhliðum og 3 loftlykkjubogar í hverja horni, þ.e.a.s. fjöldi loftlykkjuboga á milli hverra horna verður að vera deilanlegur með 2 + 1 (= ójafn fjöldi loftlykkjuboga). Endið umferð með 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju í byrjun á umferð.

UMFERÐ 2: 1 keðjulykkja um fyrsta loftlykkjuboga í horni, 3 loftlykkjur, 1 stuðull um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga í horni *, endurtakið frá *-* einu sinni til viðbótar (= 3 sólfjaðrir í horni), * 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* þar til 1 loftlykkjubogi er eftir innan við 3 boga í horni, 1 stuðull um þennan boga, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga í horni, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga í horni, 1 stuðull í næstu fastalykkju, 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar í síðasta loftlykkjuboga í horni (nú eru 3 sólfjaðrir í horni), 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, haldið áfram alveg eins þar til heklað hefur verið hringinn utan um allt teppið og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.

UMFERÐ 3-4: Heklið keðjulykkjur að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 4 stuðla), 3 loftlykkjur, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð, 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið emð 1 stuðul í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð.

UMFERÐ 5-6: Heklið keðjulykkju að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 6 stuðla), 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 4 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð, 4 stuðlar + 1 loftlykkja + 4 stuðlar í næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 stuðli í síðasta stuðul og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð.

UMFERÐ 7: Heklið eins og umferð 6 nema heklið 2 loftlykkjur í stað 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa.

UMFERÐ 8-10: Heklið keðjulykkju að byrjun á fyrsta loftlykkjuboga (= loftlykkjubogi á milli 8 stuðla), 4 loftlykkjur, 3 tvíbrugðnir stuðlar í sama loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 4 tvíbrugðnir stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul/tvíbrugðinn stuðull frá fyrri umferð, 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 tvíbrugðnum stuðli í síðasta stuðul/tvíbrugðinn stuðul og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju frá byrjun á umferð.
Klippið frá og festið enda eftir 10. umferð, kantur mælist ca 12 cm.
---------------------------------------------------------
HÚFA:

HEKLLEIÐBEININGAR:
Í byrjun á umferð með fastalykkjum er 1. fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og hver umferð endar með 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð.
---------------------------------------------------------

HÚFA:
Húfan er hekluð ofan frá og niður.
Heklið 4 loftlykkjur með heklunál 3,5 með Baby Merino og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í 1. loftlykkju.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fastalykkjur um hringinn - SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR.
UMFERÐ 2-4: 1 fastalykkja í hverja fastalykkju = 6 fastalykkjur.
UMFERÐ 5: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 12 fastalykkjur.
UMFERÐ 6: 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju = 24 fastalykkjur.
UMFERÐ 7: * 1 fastalykkja í fyrstu fastalykkju, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 36 fastalykkjur.
UMFERÐ 8: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 2 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 48 fastalykkjur.
UMFERÐ 9: * 1 fastalykkja í hverja og eina af 3 fyrstu fastalykkjum, 2 fastalykkjur í næstu fastalykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn = 60 fastalykkjur.
UMFERÐ 10: 3 loftlykkjur, * hoppið yfir 2 fastalykkjur (með jöfnu millibili er hoppað yfir 1 fastalykkju alls 6-12-18 (24) sinnum), 1 fastalykkja í næstu lykkju, 2 loftlykkjur *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn þannig að það verða 22-24-26 (28) loftlykkjubogar, endið með 1 keðjulykkju í 1. loftlykku í byrjun á umferð.
UMFERÐ 11: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 2 stuðlar + 1 loftlykkja + 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 2 stuðlum + 1 loftlykkju + 2 stuðla um síðasta loftlykkjuboga og 1 keðjulykkju í loftlykkju í byrjun á umferð = 11-12-13 (14) sólfjaðrir.
UMFERÐ 12-15: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 1 loftlykkja + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjur efst í sólfjaðrakanti), 1 stuðull í fastalykkju/stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 1 loftlykkju + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 16: 3 loftlykkjur, * 3 stuðlar + 2 loftlykkjur + 3 stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 stuðla + 2 loftlykkjur + 3 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju í byrjun á umferð.
UMFERÐ 17: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt næsta stuðlahóp, 1 stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 stuðla + 2 loftlykkjur + 4 stuðla mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkja í 3. loftlykkju frá byrjun á fyrri umferð.
Endurtakið umferð 17 þar til húfan mælist ca 10-11-12 (13) cm frá miðju á höfði.
NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ ÞANNIG: 4 loftlykkjur, * 4 tvíbrugðnir stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnir stuðlar mitt í næsta stuðlahóp, 1 tvíbrugðinn stuðull í stuðul frá fyrri umferð *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 4 tvíbrugðnum stuðlum + 2 loftlykkjur + 4 tvíbrugðnum stuðlum mitt í síðasta stuðlahóp og 1 keðjulykkju í 4. loftlykkju í byrjun á umferð.
Endurtakið þessa umferð þar til húfan mælist ca 14-15-16 (18) cm frá miðju á höfði og niður. Klippið frá og festið enda.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-6

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (48)

June wrote:

I would like to make this blanket and it to measure about 30" x 48". Is there a set repeat so I have the correct number of stitches for the border

08.04.2018 - 07:29

DROPS Design answered:

Dear June, we are unfortunately not able to adjust every pattern to each individual request, you are welcome to contact your DROPS store for any further personnal assistance. Happy crocheting!

09.04.2018 - 10:14

Moira wrote:

Hi, Are there multiples for the 19-6 Baby Blanket? Many thanks

28.01.2018 - 11:07

country flag Therese wrote:

Hei, på hekleinfo for luen står det "erstatt 1.fm med 1 lm" betyr det at jeg skal hoppe over den første fm? Altså lage en lm og sette i fm nr 2? Hvordan fungerer det på første runde der det står man skal lage 6 fm? Og når man skal øke, med 2 i hver fm, blir det kun 1 i første da? Skjønner ikke helt dette... lurer også på om man kan starte med en magisk ring istedenfor lm som settes til en ring? Synes det er både finere og lettere å jobbe med

06.11.2017 - 21:21

DROPS Design answered:

Hei Therese. Ja, du kan neste si det slik. Når du erstatter 1.fastmaske med en luftmaske hopper du over 1.fastmaske. I denne oppskriften hekler du 1 luftmaske og 5 fastmasker om ringen. Når du starter med økningene hekler du 1 luftmaske og 1 fastmaske i 1.fastmaske (da hopper du ikke over 1.fastmaske), deretter 2 fastmasker i hver av de neste fastmaskene. Du kan fint starte med en magisk ring, så lenge du hekler det antallet som det står i oppskriften fra 1. omgang. God Fornøyelse!

27.11.2017 - 08:19

country flag Tilly Tilmans wrote:

Hallo ik heb dit dekentje gehaakt maar moet nog afwerken rondom, kan niet goed, dit zou voor mij veel gemakkelijker zijn uit aan de uitleg van het waaierpatroon kan dit ook worden doorgeven met eventueel gehaakte tekens. Bij voorbaat hiervoor mijn dank.

10.11.2016 - 17:49

DROPS Design answered:

Hoi Tilly. Ik kan helaas niet helpen met een telpatroon. Ik zal wel een wens maken voor een video. Ik weet niet hoelang het zal duren voordat die klaar zal zijn.

11.11.2016 - 15:21

country flag Helene Thomassen wrote:

Jeg tror, jeg har fundet ud af det. I en lm-bue skal der være 3st, 1lm og 3st. I næste lm- skal der være 1st og så 3st,1 lm og 3 st igen i den næste lm-bue.

23.10.2016 - 12:56

DROPS Design answered:

Hej Helene. Det var godt at höre - god fornöjelse videre med det.

24.10.2016 - 10:55

country flag Helene Thomassen wrote:

Det er i 2. OMG. af viftekanten, hvor der står: 1 st om næste lm-bue, 3 st + 1 lm + 3 st om næste lm-bue. Skal det forstås, at der er 4 st (1st +3 st), 1 lm og så 3 st i næste lm bue? Dvs. skiftevis 4 og 3 st i lm-buerne. Eller skal de første 3 st laves i fm fra forrige OMG.?

21.10.2016 - 17:58

country flag Helene Thomassen wrote:

Hej I anden omgang af kanten med viftemønsteret er jeg lidt i tvivl om hvordan det skal forstås. Som jeg forstår det vil der på langsiden være skiftevis 3 og 4 stangmasker i luftmaske-buerne. Er dette korrekt? Altså 3st, 4st i næste bue, 1 lm, 3 st i næste bue, 4st i næste bue, 1 lm osv. Pft.

21.10.2016 - 01:03

DROPS Design answered:

Hej Helene. Hvilken omg henviser du til?

21.10.2016 - 15:11

country flag Rachele wrote:

In quanto tempo si realizza la coperta?

12.10.2016 - 22:26

DROPS Design answered:

Buonasera Rachele, non possiamo rispondere alla sua domanda, i tempi di realizzazione dipendono dall'abilità e dalla velocità personale. Buon lavoro!

12.10.2016 - 22:30

country flag Elisabetta wrote:

Sto facendo il cappellino ma dopo i primi 9 giri mi rendo conto che qualcosa non torna: è tutto sollevato come se avessi fatto troppi aumenti. Eppure ho seguito le spiegazioni alla lettera..Mi può aiutare?

10.05.2016 - 06:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Elisabetta. Verifichi di avere la corretta tensione del lavoro. Dal giro 10 la lavorazione cambia: provi a lavorare qualche giro successivo ed eventualmente a lavare il lavoro per verificare che assuma la forma corretta. Buon lavoro

10.05.2016 - 08:06

country flag Elisabetta wrote:

Sto facendo il cappellino ma dopo i primi 9 giri mi rendo conto che qualcosa non torna: è tutto sollevato come se avessi fatto troppi aumenti. Eppure ho seguito le spiegazioni alla lettera..Mi può aiutare?

09.05.2016 - 23:56

DROPS Design answered:

Buongiorno Elisabetta. Verifichi di avere la corretta tensione del lavoro. Dal giro 10 la lavorazione cambia: provi a lavorare qualche giro successivo ed eventualmente a lavare il lavoro per verificare che assuma la forma corretta. Buon lavoro!

10.05.2016 - 06:32