Sweet Greta |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
|
|||||||||||||||||||||||||||||||||
Prjónað vesti á börn með hringlaga berustykki og köðlum og prjónaðir sokkar úr DROPS Alpaca
DROPS Baby 19-18 |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
VESTI: GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka á hringprjón): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. HNAPPAGAT. Fellt er af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. kantlykkju að framan. Í næstu umf eru fitjaðar upp 2 nýjar l yfir þær l sem felldar voru af. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 9, 14, 19 og 24 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 8, 14, 20 og 26 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 8, 14, 19, 25 og 30 cm. STÆRÐ 2 ára: 10, 16, 22, 28 og 34 cm. STÆRÐ 3/4 ára 10, 17, 24, 31 og 38 cm. -------------------------------------------------------- VESTI: FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 139-151-170 (183-192) l á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 4 umferðir slétt, JAFNFRAMT í 4. umferð er aukið út um 17-19-14 (15-20) l jafnt yfir = 156-170-184 (198-212) l. Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 lykkjur GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan (= kantur að framan), 2 lykkjur brugðið, M.1, * 6 lykkjur brugðið, M.3 *, endurtakið frá *-* yfir næstu 112-126-140 (154-168) lykkjurnar, endið á 6 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur GARÐAPRJÓN (= kantur að framan). Haldið svona áfram með mynstur þar til stykkið mælist 7-7-7 (8-8) cm. ATH! Munið eftir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Í næstu umferð frá réttu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er fækkað um 9-13-8 (9-14) lykkjur jafnt yfir = 147-157-176 (189-198) lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt. Prjónið nú (frá réttu) þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið, sléttprjón yfir næstu 105-115-134 (147-156) lykkjur, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. Haldið áfram alveg eins þar til stykkið mælist 16-17-20 (23-26) cm. Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: Prjónið 21 lykkju eins og áður og 14-18-24 (26-29) lykkjur sléttprjón (= hægra framstykki), garðaprjón yfir næstu 8 lykkjur, 61-63-70 (79-82) lykkjur sléttprjón (= bakstykki), garðaprjón yfir næstu 8 lykkjur, 14-18-24 (26-29) lykkjur sléttprjón og 21 lykkja eins og áður (= vinstra framstykki). Haldið nú áfram alveg eins þar til stykkið mælist 17-18-21 (24-27) cm. Í næstu umferð eru felldar af 8 lykkjur frá réttu í garðaprjóni í hvorri hlið fyrir handveg. Í næstu umferð frá röngu eru fitjaðar upp 40-44-50 (54-60) nýjar lykkjur yfir 8 lykkjur brugðiið í hvorri hlið = 211-229-260 (281-302) lykkjur. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja inn í hvorri hlið eins og áður, hinar eru prjónaðar slétt JAFNFRAMT er aukið út um 22-27-30 (33-36) lykkjur jafnt yfir = 233-256-290 (314-338) lykkjur. Í næstu umferð frá röngu er prjónuð 21 lykkja í hvorri hlið eins og áður, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt. Prjónið síðan frá (réttu) þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 2 lykkjur brugðið, * M.1, 11-11-12 (12-12) lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* alls 9-10-11 (12-13) sinnum og endið á M.1, 2 lykkjur brugðið og 5 lykkjur garðaprjón. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað frá réttu til skiptis frá hægri og vinstri hlið í hverri brugðinni mynstureiningu (ATH! Ekki fækka lykkjum í 2 lykkjur brugðið yst í hvorri hlið), fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðiði saman, með eins cm millibili alls 6-7-8 (9-9) sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 1-1-2 (3-4) cm er M.2 prjónað yfir allar lykkjur í M.1 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Þegar M.2 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er haldið áfram með M.3. Eftir alla úrtöku eru 139-142-154 (154-165) lykkjur á prjóni. Haldið áfram þar til stykkið mælist ca 7-8-9 (10-11) cm, stillið af eftir lokinni mynstureiningu á hæðina. Prjónið síðan M.4 yfir allt M.3 (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður) = 99-98-106 (102-109) lykkjur. Þegar M.4 hefur verið prjónað einu sinni á hæðina er prjónuð 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 13-10-14 (6-9) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 86-88-92 (96-100) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, 1 umferð slétt frá réttu og 1 umferð slétt frá röngu áður en fellt er laust af. FRÁGANGUR: Saumið tölur í. -------------------------------------------------------- SOKKAR: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.5. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu. PERLUPRJÓN: UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*. UMFERÐ 2: slétt yfir brugðið og brugðið yfir slétt. Endurtakið umferð 2. -------------------------------------------------------- SOKKUR: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður. Fitjið upp 50-50-54 (58-62) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Prjónið nú þannig: STÆRÐ 1/3 mánaða - 6/9 mánaða - 2 ára: Prjónið 1 lykkja slétt, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, M.5 (= 12 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt, *, endurtakið frá *-* yfir næstu 16-16-20 lykkjur, 2 lykkjur brugðið, 1 lykkja slétt. STÆRÐ 12/18 mánaða - 3/4 ára: Prjónið 1 lykkja brugðin, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 lykkjur, M.5 (= 12 lykkjur), * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* yfir næstu 20-24 lykkjur, 1 lykkja brugðið. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 6-7-7 (8-8)cm. Prjónið 1 umferð JAFNFRAMT er fækkað um 4 lykkjur jafnt yfir í umferð, ekki fækka lykkjum yfir 16 lykkjur ofan á fæti (= M.5 + 2 lykkjur brugðið í hvorri hlið) = 46-46-50 (54-58) lykkjur. Haldið eftir 16 lykkjur ofan á fæti á prjóni, þær 30-30-34 (38-42) lykkjur eru settar á þráð. Haldið áfram með M.5 með 2 lykkjur brugðið í hvorri hlið fram og til baka í 3-3½-4 (5-6) cm. Í næstu umferð frá réttu er fækkað um 4 lykkjur yfir M.5 = 12 lykkjur ofan á fæti. Prjónið nú upp 6-8-8 (10-14) lykkjur til hliðar ofan á fæti, setjið til baka lykkjur af þræði á prjóninn og prjónið upp 6-8-8 (10-14) lykkjur á hinni hliðinni ofan á fæti = 54-58-62 (70-82) lykkjur. Prjónið nú PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – hringinn yfir allar lykkjur í 1½-2-2½ (3-3½) cm og prjónið nú 1 umferð brugðið. Fellið af allar lykkjur nema 12 lykkjur við miðju að framan. Prjónið 9-10-11 (13-14) cm í perluprjóni fram og til baka og til þess að gera sóla. Fellið af og saumið sólann á sokkinn, saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Prjónið annan sokk alveg eins. |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
||||||||||||||||||||||||||||||||||
|
||||||||||||||||||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (59)
DROPS Design wrote:
Bei der einen R. am Anfang der li.-Partie abn. und das nächste mal am Schluss der der li.-Partie abn.
07.10.2010 - 09:04Uliana Plescia wrote:
Ich verstehe nicht wie man Maschen abnehemen soll in den linksteilen anm Schulter-/Halsteil. "GLEICHZEITIG auf beiden Setien in jeder li.-Partie abwechselnd auf der linken und auf der rechten Seite 1 M. abn. (indem man 2 M. li. zusammenstrickt, nicht in den 2 li. auf der Seite abn.). Bei jedem cm total 6-7-8 (9-9) Mal wiederholen." ??????
06.10.2010 - 09:14DROPS Design DE wrote:
Die Rückreihen vonM1 und M3 werden links gestrickt und die Maschen zwischen den Zöpfen werden von der Vorderseite links und von der Rückseite rechts gestrickt, das ist richtig.
08.08.2010 - 15:12Lismeitli wrote:
Mir ist leider nicht ganz klar wie ich nach der 4. Reihe fortfahren soll. Die ersten 5 M. rechts Krausrippe für die Blende sind klar. Fahre ich nun fort "wie gesehen"; also 2re, 12li (Rückseite M1), 6re, 8li (Rücksseite M3) usw. ? Oder stricke ich nach der Blende alles links? Und dann die nächste von der Vorderseite nach der Blende alles rechts oder neben dem Zopfmuster trotzdem links?
07.08.2010 - 11:13Manena wrote:
I have another question. In the first 7 cm knitting, there not inc st.??
27.07.2010 - 19:40DROPS Design wrote:
You knit the first 4 rows, i.e knit every stitch on every row.
21.07.2010 - 20:21Manena wrote:
Hi, in which stich are made the first 4 row?
20.07.2010 - 16:08Drops Design wrote:
Laura, after the 4 rows in garter we explain how to establish first row in pattern seen from RS of work, this is what you then will continue following the charts below. I.e 5 garter each side, P2 and M1 each side and P6 and M.3 on the rest of the sts. The P2 and P6 Will be K2 and K6 on WS rows.
20.05.2010 - 19:13Laura wrote:
Hi, I am a little confused in the direction for the vest. After the first 4 rows of garter stitch and the next row with the beginnings of the cable pattern, the directions state 'continue in pattern'. Does that mean I should repeat the four rows of garter stitch then one row of pattern, or have I missed something? Thanks!
20.05.2010 - 03:18