Sweet Buttercup Socks |
|
|
|
Heklaðar tátiljur fyrir börn með sólfjaðramynstri úr DROPS BabyMerino
DROPS Baby 19-9 |
|
TÁTILJUR: HEKLLEIÐBEININGAR: Í byrjun á hverri umferð sem er hekluð fram og til baka með fastalykkjum er fyrsta fastalykkjan skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 fastalykkju í loftlykkju í byrjun á fyrri umferð. Í byrjun á hverri umferð sem er hekluð í hring með fastalykkju er fyrstu fastalykkju skipt út fyrir 1 loftlykkju og umferðin endar með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju í byrjun á umferð. Í byrjun á hverri umferð með stuðli er fyrsta stuðli skipt út fyrir 3 loftlykkjur og í lok umferðar er hekluð 1 keðjulykkja í þriðju loftlykkju frá byrjun á umferð. Heklið í hverja lykkju (ekki á milli). ÚRTAKA: Fækkið um 1 fastalykkju/stuðul með því að hekla 2 fastalykkjur/stuðla þannig: Heklið 1 fastalykkju/stuðul, en bíðið með að draga bandið í gegn í lokin (= 2 lykkjur á heklunálinni), heklið síðan næstu fastalykkju/stuðul, en þegar draga á bandið í gegn í lokin er það dregið í gegnum allar 3 lykkjurnar á heklunálinni – nú hefur fækkað um 1 fastalykkju/stuðul. HEKLLEIÐBEININGAR: Í umferð eftir að stuðull á tátilju hafa verið heklaðir saman 2 og 2 verður að hekla aðeins fast framan á tátiljunni, þ.e.a.s. að herða aðeins á þræðinum á milli hverra stuðla sem eru heklaðir. Þetta er gert svona til að miðju stykkið framan á tátiljunni verði ekki of laust. -------------------------------------------------------- TÁTILJA: SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR og byrjið með sóla. Heklið 14-16-19 (25-28) loftlykkjur (meðtalin 1 loftlykkja til að snúa við með) með heklunál 3 með BabyMerino. Fyrsta umferðin er hekluð þannig: 1 fastalykkja í aðra loftlykkju frá heklunálinni, 1 fastalykkja í hverja og eina af næstu 12-14-17 (23-26) loftlykkjum = 13-15-18 (24-27) fastalykkja, snúið stykkinu. Heklið síðan 1 fastalykkju í hverja fastalykkju frá fyrri umferð JAFNFRAMT er aukið út um 2 fastalykkjur í byrjun og í lokin á fyrstu umferð með því að hekla 3 fastalykkjur í fyrstu og síðustu fastalykkju í umferð = 17-19-22 (28-31) fastalykkjur. Heklið fastalykkjur fram og til baka þar til 1 umferð er eftir áður en stykkið mælist 3-4-4 (4½-5) cm. Fækkið síðan um 2 fastalykkjur í hvorri hlið – sjá ÚRTAKA = 13-15-18 (24-27) fastalykkjur í umferð. ATH! Í lok umferðar þegar eftir eru 4 fastalykkjur þá eru síðustu fastalykkjurnar heklaðar saman 2 og 2. Stykkið mælist ca 3-4-4 (4½-5) cm. Klippið frá og festið enda. Heklið síðan sóla þannig: UMFERÐ 1: Byrjið við miðju að aftan (= mitt á annarri skammhliðinni), heklið 1 fastalykkju í fyrstu lykkju, 3 loftlykkjur (= 1 stuðull), heklið 1-2-2 (3-3) stuðul fram að horni, 2 stuðlar í hornið, 1 stuðull í hverja og eina af 13-15-18 (24-27) fastalykkjurm meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið 4-6-6 (8-8) stuðlar meðfram skammhlið (= tá), 2 stuðlar í hornið, 13-15-18 (24-27) stuðlar meðfram hlið, 2 stuðlar í hornið og 2-3-3 (4-4) stuðlar meðfram skammhlið að miðju að aftan, endið með 1 keðjulykkju í þriðju loftlykkju í byrjun á umferð = 42-50-56 (72-78) stuðlar. NÆSTA UMFERÐ Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): Heklið 1 umferð með 1 stuðli í hvern stuðul. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í ÖLLUM STÆRÐUM: Heklið 1 stuðul í hvern stuðul, en fækkið um 1 stuðul í hvoru 2 hornunum framan á tá – sjá ÚRTAKA = 40-48-54 (70-76) stuðlar. HEKLIÐ SÍÐAN SVONA FRÁ MIÐJU AÐ AFTAN (heklið 1 loftlykkju í hverja lykkju frá fyrri umferð): UMFERÐ 1: 14-17-20 (27-30) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman – sjá ÚRTAKA, 6-8-8 (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 14-17-20 (27-30) fastalykkjur = 38-46-52 (68-74) lykkjur. UMFERÐ 2: 13-16-19 (26-29) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8 (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 13-16-19 (26-29) fastalykkjur = 36-44-50 (66-72) lykkjur. UMFERÐ 3: 12-15-18 (25-28) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 6-8-8 (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 12-15-18 (25-28) fastalykkjur = 34-42-48 (64-70) lykkjur. UMFERÐ 4 Í STÆRÐ 2 ÁRA + 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): (24-27) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, (10-10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og (24-27) fastalykkjur = (62-68) lykkjur. UMFERÐ 5 Í STÆRÐ 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): (26) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, (10) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og (26) fastalykkjur = (66) fastalykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í ÖLLUM STÆRÐUM: 11-14-17 (23-25) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 10-12-12 (14-14) næstu stuðla saman 2 og 2, 1 hálfur stuðull og 11-14-17 (23-25) fastalykkjur = 29-36-42 (55-59) lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í ÖLLUM STÆRÐUM! SJÁ HEKLLEIÐBEININGAR! 9-12-15 (21-23) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið 2 stuðla saman, 5-6-6 (7-7) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og 9-12-15 (21-23) fastalykkjur = 27-34-40 (53-57) lykkjur. NÆSTA UMFERÐ ER HEKLUÐ SVONA Í STÆRÐ 2 ÁRA + + 3/4 ÁRA (þessi umferð er ekki hekluð í hinum stærðunum): (20-22) fastalykkjur, 1 hálfur stuðull, heklið stuðla saman, (7-7) stuðlar, heklið 2 stuðla saman, 1 hálfur stuðull og (20-22) fastalykkjur = (51-55) lykkjur. ALLAR STÆRÐIR: = 27-34-40 (51-55) lykkjur. Heklið 2-2-3 (3-4) umferðir með 1 stuðul í hvern stuðul JAFNFRAMT sem í umferð 1 er fækkað um 1-0-0 (7-3) stuðla jafnt yfir – SJÁ ÚRTAKA = 26-34-40 (44-52) stuðlar. SÓLFJAÐRAMYNSTUR: Heklið kant með sólfjaðramynstri efst á stroffi þannig: UMFERÐ 1: 1 keðjulykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir ca 1 til 3 lykkjur, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 3 loftlykkjur og 1 keðjulykkju í keðjulykkju í byrjun á umferð þannig að það verða 10-10-10 (12-12) loftlykkjubogar. UMFERÐ 2: Heklið keðjulykkju að miðju á fyrsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 stuðull um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð = 5-5-5 (6-6) sólfjaðrir. UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, * 4 stuðlar + 2 loftlykkjur + 4 stuðlar mitt í stuðlahóp (þ.e.a.s. um loftlykkjuboga efst á sólfjöður), 1 stuðull í næsta stuðul frá fyrri umferð (þ.e.a.s. í stuðul á milli sólfjaðra) *, endurtakið frá *-* umferðina hringinn og endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju í byrjun á umferð, klippið frá og festið enda. Heklið aðra tátilju alveg eins. |
|
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (13)
Tina Stormfeldt wrote:
Do I have to do the; CROCHET INFO: At the first row as well? If so, how do I do that.
09.02.2014 - 12:49DROPS Design answered:
Dear Mrs Stormfeldt, on 1st row, you crochet in the 2nd ch from hook, and 1 st in each ch to get the correct number of st. Happy crocheting!
10.02.2014 - 09:58Austrel wrote:
Bonjour, je fais le petit chausson pour ma grande fille. Je fais la taille 3/4 ans. Le dernier rang avant les 4 tours de brides contient un erreur. Il devrait avoir 22 ms au lieu de 23 ms avant et après les brides du dessus du pied et 55 m au final. Merci
14.11.2013 - 15:38DROPS Design answered:
Bonjour Mme Austrel et merci, la correction a été faite. Bon crochet!
26.11.2013 - 08:51Ulrike wrote:
Hallo liebe DROPS- Design, ich versuche verzweifelt die Fächerkante für die Schuhe nachzuhäkeln und werde aus der Anleitung leider überhaupt nicht schlau. Ich sehe, dass Sie schon etwas hinzugefügt haben, aber auch bei der Suche nach ähnlichen Anleitungen kann ich es nicht nachvollziehen. Der Rest gelingt sehr gut und sieht sehr schön aus. Vielleicht können Sie den Abschluss noch ausführlicher beschreiben? Mit freundlichen Grüßen, Ulrike
05.10.2012 - 23:20DROPS Design answered:
Liebe Ulrike, ich habe die Anleitung nochmals durchgelesen und denke, dass sie komplett beschrieben ist. Vielleicht lassen Sie sich die Muschelkante nochmals genau von dem Laden erklären, in dem Sie die Wolle gekauft haben? Gutes Gelingen!
08.10.2012 - 08:44