DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Granny's Little Girl

Heklað teppi fyrir börn með ömmuferningum úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Þema: Barnateppi.

DROPS Baby 19-22
DROPS design: Mynstur nr Z-074-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------
Mál: ca 70 x 100 cm
Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
350 g nr 0100, natur
50 g nr 2110, ljós gulur
50 g nr 2923, sinnepsgulur
50 g nr 2915, appelsínugulur
50 g nr 2921, kirsuberjarauður
50 g nr 3140, ljós bleikur
50 g nr 0618, ljós beige
50 g nr 7300, lime
50 g nr 2917, ljós turkos
50 g nr 2918, turkos

DROPS HEKLUNÁL NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 1 ferningur mælist ca 12 x 12 cm.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 15840.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

LITIR Á FERNINGUM:
A (Heklið 3 st): Uppfitjun + umferð 1 = ljós bleikur, umferð 2 = sinnepsgulur, umferð 3 = ljós gulur, umferð 4 + 5 = natur.
B (Heklið 5 st): Uppfitjun + umferð 1 = ljós gulur, umferð 2 = turkos, umferð 3 = lime, umferð 4 + 5 = natur.
C (Heklið 5 st): Uppfitjun + umferð 1 = appelsínugulur, umferð 2 = ljós bleikur, umferð 3 =lime, umferð 4 + 5 = natur.
D (Heklið 3 st): Uppfitjun + umferð 1 = ljós turkos, umferð 2 = kirsuberjarauður, umferð 3 = ljós beige, umferð 4 + 5 = natur.
E (Heklið 4 st): Uppfitjun + umferð 1 = ljós gulur, umferð 2 = turkos, umferð 3 = ljós turkos, umferð 4 + 5 = natur.
F (Heklið 5 st): Uppfitjun + umferð 1 = appelsínugulur, umferð 2 = ljós turkos, umferð 3 = ljós bleikur, umferð 4 + 5 natur.
G (Heklið 3 st): Uppfitjun + umferð 1 = ljós gulur, umferð 2 = sinnepsgulur, umferð 3 = kirsuberjarauður, umferð 4 + 5 = natur.
H (Heklið 5 st): Uppfitjun + umferð 1 = sinnepsgulur, umferð 2 = ljós bleikur, umferð 3 = ljós beige, umferð 4 + 5 = natur.
I (Heklið 2 st): Uppfitjun + umferð 1 = ljós beige, umferð 2 = lime, umferð 3 = kirsuberjarauður, umferð 4 + 5 = natur.
= alls 35 ferningar.
--------------------------------------------------------

FERNINGUR:
Heklið 6 loftlykkjur með 2 þráðum með heklunál 5 og tengið saman í hring með 1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
UMFERÐ 1: 3 loftlykkjur, 15 stuðlar um hringinn, endið með 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 16 stuðlar, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: 3 loftlykkjur, 2 stuðlar í 1. stuðuð, * 2 loftlykkjur, hoppið yfir 1 stuðul, 3 stuðlar í næsta stuðul *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 2 loftlykkjum og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð = 8 stuðlahópar, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: 3 loftlykkjur, 1 stuðull um fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga, * 1 loftlykkja, 2 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 2 stuðlar um sama loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 7 sinnum og endið með 1 loftlykkju og 1 keðjulykkju í 3. loftlykkju frá byrjun á umferð, snúið stykkinu = 8 stuðlahópar.

UMFERÐ 4: 2 loftlykkjur, 2 hálfir stuðlar um fyrsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, * 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 hálfir stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 hálfir stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 3 loftlykkjur, 3 stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja, 3 hálfir stuðlar um næsta loftlykkjuboga, 1 loftlykkja og endið með 1 keðjulykkju í 2. loftlykkju frá byrjun á umferð, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5: Heklið keðjulykkju að miðju á loftlykkjuboga, * 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, um næsta loftlykkjuboga er heklað: 1 hálfur stuðull, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar og 1 hálfur stuðull (= í horni), 2 loftlykkjur), 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* alls 3 sinnum, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, um næsta loftlykkjuboga er heklað: 1 hálfur stuðull, 2 stuðlar, 3 loftlykkjur, 2 stuðlar og 1 hálfur stuðull (= í horni), 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga, 2 loftlykkjur, endið með 1 keðjulykkju í keðjulykkju í byrjun á umferð.

FRÁGANGUR:
Staðsetjið ferningana með 5 ferninga á breiddina og 7 ferninga á hæðina – sjá mynd með litasamsetningu. Heklið ferningana saman með 2 þráðum natur með heklunál 5 – ferningarnir eru fyrst heklaðir saman á breiddina þannig (leggið ferningana saman 2 og 2 með röngu á móti röngu og heklið þá saman í gegnum bæði lögin) – sjá teikningu 1:
1 fastalykkja í fyrsta loftlykkjuboga (= horn) á fyrsta ferningi, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í hornið á öðrum ferningi, * 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga á fyrsta ferningi, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í næsta loftlykkjuboga á seinni ferning *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í síðasta loftlykkjuboga (= hornið) á fyrsta ferningi, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í síðasta loftlykkjuboga (= hornið) á öðrum ferningi, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkja í hornið á þriðja ferningi, 2 loftlykkjur, 1 fastalykkja í hornið á fjórða ferningi o.s.frv. alveg þangað til heklaðar hafa verið 5 og 5 ferningar saman á breiddina. Haldið síðan áfram með 3. röð niður úr o.s.frv. Þegar allir ferningarnir hafa verið heklaðir saman á breiddina eru þeir heklaðir saman á lengdina alveg eins.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið kant í kringum allt teppið með heklunál 5 með 2 þráðum natur.
UMFERÐ 1 (hekluð frá röngu): Heklið 3 stuðla um hvern loftlykkjuboga með 1 loftlykkju á milli hverra stuðlahópa (einnig er heklaður 1 stuðlahópur í hverri skiptingu þegar ferningarnir eru heklaðir saman). Í hverju horni eru heklaðir 3 stuðlar, 3 loftlykkjur og 3 stuðlar um sama loftlykkjuboga, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Heklið 1 fastalykkju um fyrsta loftlykkjuboga, * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrsta af 3 loftlykkjum, 1 fastalykkja um næsta loftlykkjuboga *, endurtakið frá *-* í kringum allt teppið. ATH: Í hvert horn er heklaður auka bogi svo að hornið verði fallegt og ekki of stíft.

Mynstur

symbols = 1 loftlykkja
symbols = 1 fastalykkja
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-22

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag Jill wrote:

Hej! Det står att man ska virka 6 lm med 2 trådar och sluta dem till en ring. Därefter står det ingenting om man ska fortsätta virka hela rutan med två trådar eller bara en. Ska rutan virkas med 1 eller två trådar?

15.09.2012 - 18:14

DROPS Design answered:

Jo hele tæppet hækles med to tråde Alpaca. God fornøjelse!

04.12.2012 - 14:46

country flag Ute Weinberner wrote:

Hallo, können Sie mir vielleicht ein Bild der ausgebreiteten Decke zeigen, damit ich besser sehen kann, wie man die Vierecke platziert. Vielen Dank im voraus.

18.08.2012 - 19:21

DROPS Design answered:

Wir haben leider nur diese beiden Fotos, aber Sie können dabei nichts falsch machen. Ordnen Sie einfach die Quadrate nach Ihrem Geschmack an.

20.08.2012 - 16:28

country flag Verónica wrote:

Perdonar, el patrón es correcto, he vuelto a comenzar desde el principio y me he dado cuenta de mi error, solo tenía en cuenta los bucles de cadena entre grupos de p.a. y no la cadena entre 2 p.a. de cada grupo. Enhorabuena por el patrón la foto con el bebé me tiene enamorada!

20.01.2012 - 22:31

country flag Verónica wrote:

Hola, gracias por contestar, habéis corregido la traducción, pero creo que hay un error. En la 4ª vuelta cada vez te dice que montes 3 p.a. o 3 pm.a. en el bucle de cadena siguiente, siguiente, siguiente... con lo que al final para poder seguir el patrón necesitarías 16 bucles de cadena y de la 3ª vuelta solo salen 8, por probar he intentado seguir la vuelta sobre los bucles de cadena formados con la primera vuelta 4 pero queda horrible, como estrujado y no se parece en nada a la foto...

18.01.2012 - 17:14

country flag DROPS Design wrote:

Hola Verónica, muchas gracias por la observación. Hemos corregido.

17.01.2012 - 23:44

country flag Verónica wrote:

Hola, la mantita es preciosa y la quiero hacer para mi futuro bebe, estoy haciendo una prueba y me he atascado en la 4 vuelta. Creo que es un error del patrón ya que despúes del la 3 vuelta me quedan 8 bucles de cadena, sin embargo te dice que repitar 3 veces de *a* con lo que necesitaría lo menos 9 bucles de cadena... y mirando el patrón en norruego e ingles veo que tampoco no se corresponde con la traducción al castellano, hay aún un bucle más...

17.01.2012 - 23:15

DROPS Design wrote:

Felicitaciones Ana Isabel! Las instrucciones te indican el procedimiento. También puedes ir directamente a los videos que se dan al final del patrón, solamente haz clic en el que te interese, o bien el índice general. Feliz crochet!

18.01.2011 - 18:41

country flag Ana Isabel wrote:

La combinación de colores seguida a sido la expuesta en el patrón,y no me ha resultado nada complicado,sin ser una experta en la materia.Ahora me falta lo que me parece más complicado,que es la unión y todo lo de alrededor,ya que no encuentro un video del procedimiento a seguir,pero me imagino,que intentándolo,lo conseguiré.Un saludo

18.01.2011 - 16:21

country flag DROPS Design wrote:

Hej, titta på trådbyte under register och sedan virka ring. Lycka till!

08.12.2010 - 15:14

country flag Jonna wrote:

Varför visar ni inte någonstans i er "virkskola" hur man byter tråd när man virkar, som i den här så ska man ju byta tråd efter varv 1, hur gör man då? Och sen vore det också bra med en film eller liknande med vad som menas med tex 15 st "om ringen", jag tror jag listat ut det nu efter en del sökande, och kanske skulle ni inte rekommendera detta mönster till en nybörjare, men iallafall, man vill ju inte behöva börja med en massa saker man egentligen inte vill göra bara för att öva.

06.12.2010 - 15:57