DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

My First Christmas

Prjónaður galli fyrir börn fyrir jólin með hettu úr 2 þráðum DROPS Alpaca. Þema: Jól.

DROPS Baby 19-16
DROPS design: Mynstur nr Z-082-by-jul
Garnflokkur A
---------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS ALPACA frá Garnstudio
250-250-300 (300-350) g nr 3620, rauður
100-100-100 (100-150) g nr 1101, hvítur

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 22 umferðir með sléttprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR OG PRJÓNAR NR 4,5 – fyrir perluprjón.
DROPS PERLUTALA NR 541: 5-5-6 (6-6) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6930.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan.
1 HNAPPAGAT = prjónið saman 2. og 3. lykkju frá miðju að framan slétt og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist alls:
STÆRÐ 1/3 MÁN: 23, 30, 37, 44, 51 cm
STÆRÐ 6/9 MÁN: 28, 36, 44, 52, 60 cm
STÆRÐ 12/18 MÁN: 31, 38, 46, 53, 61, 68 cm
STÆRÐ 2 ÁRA: 34, 42, 50, 58, 66, 74 cm
STÆRÐ 3/4 ÁRA: 39, 48, 56, 65, 73, 82 cm

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

GALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Skálmar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna, síðan er stykkið sett saman og gallinn er prjónaður uppúr.

SKÁLM:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið laust upp 34-36-40 (44-48) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur.
Prjónið 1 umferð slétt, haldið áfram í PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 12 cm er skipt yfir á sokkaprjón 5 og 2 þræði í litnum rauður. Prjónið síðan sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í byrjun á umferð = innan á skálm. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 14 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki, endurtakið útaukningu í 2.-2.-3. (4.-5.) hverri umferð alls 7-8-9 (9-10) sinnum = 48-52-58 (62-68) lykkjur. Þegar stykkið mælist 21-24-27 (32-37) cm fellið af 4 lykkjur innan á skálm (= 2 lykkjur hvoru megin við prjónamerki) = 44-48-54 (58-64) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið hina skálmina á sama hátt.

GALLI:
Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón 5 með affellingu á mót hvor annarri = 88-96-108 (116-128) lykkjur. Prjónið síðan fram og til baka frá miðju að framan (umferð 1 = rétta): Fitjið upp 3 nýjar lykkjur á prjóninn, prjónið slétt yfir allar lykkjur og fitjið upp 3 nýjar lykkjur í lok umferðar = 94-102-114 (122-134) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki 25-27-30 (32-35) lykkjur inn frá hvorri hlið (= 44-48-54 (58-64) lykkjur á milli prjónamerkja á bakstykki). Prjónið síðan sléttprjón en 5 ystu lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan eru prjónaðar í garðaprjóni upp að hálsmáli (= kantar). JAFNFRAM þegar stykkið mælist 23-28-31 (34-39) cm fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan – sjá HNAPPAGAT!
Þegar stykkið mælist 45-53-61 (66-73) cm skiptist stykkið við 2 prjónamerkin og fram- og bakstykki er prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
= 44-48-54 (58-64) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok hverrar umferðar í hvorri hlið fyrir ermar: 3 lykkjur 2-1-3 (1-2) sinnum, 5 lykkjur 1-2-1 (2-2) sinnum, 7 lykkjur 1-1-1 (2-2) sinnum og síðan 9-10-12 (14-16) lykkjur 1 sinni = 98-108-120 (140-156) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-64-73 (79-87) cm fellið af miðju 16-18-18 (20-20) lykkjur fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónuð til loka fyrir sig. Prjónið 2 umferð til viðbótar yfir 41-45-51 (60-68) lykkjur í hvorri hlið – fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 25-27-30 (32-35) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni og 5 kantlykkjur í garðaprjóni – JAFNFRAMT eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í lok umferðar í hlið fyrir ermi eins og á bakstykki = 52-57-63 (73-81) lykkjur. Þegar stykkið mælist 52-61-69 (75-83) cm fellið af fyrstu 5-6-6 (7-7) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsmáli: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 41-45-51 (60-68) lykkjur eftir á prjóni fyrir öxl/ermi. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 56-65-74 (80-88) cm, fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra framstykki, nema spegilmynd – munið eftir hnappagötum í kanti að framan.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori frá réttu.
Leggið hægri kant að framan yfir vinstri og saumið þá saman neðst við uppfitjunarkant. Saumið saum undir ermum kant í kant í ystu lykkjubogana. Saumið tölur í.

STROFF:
Prjónið upp 32-36-36 (40-40) lykkjur á sokkaprjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur neðst í kringum aðra ermina. Prjónið perluprjón þar til stroffið mælist 5 cm. Fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið á sama hátt neðst í kringum hina ermina. Brjótið uppá ermar og skálmar eftir þörf.

HETTA:
Prjónið upp frá réttu ca 40 -50 lykkjur í kringum hálsmál á hringprjón 5 með 2 þráðum í litnum rauður – byrjið eftir 5 kantlykkjur að framan á hægra framstykki og endið á undan 5 kantlykkjum að framan á vinstra framstykki. Prjónið sléttprjón fram og til baka – JAFNFRAMT í umferð 2 (= frá réttu) er aukið út jafnt yfir til 66-70-74 (78-82) lykkjur. Þegar hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm fellið af. Saumið hettuna saman efst í toppnum með lykkjuspori.
Prjónið kant meðfram opinu á hettunni þannig: Prjónið upp frá réttu ca 81-89-97 (105-109) lykkjur meðfram opi á húfu á prjón 4,5 með 2 þráðum í litnum hvítur. Prjónið perluprjón þar til kanturinn mælist 6 cm og fellið síðan LAUST af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Brjótið tvöfalt uppá kant að réttu og saumið kantinn niður við 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið. Gerið einn dúsk ca 4-5 cm að þvermáli í litnum hvítur og saumið niður í hornið aftan á hettu.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

First Christmas

kobanul, United States

My First Christmas

Maren, Norway

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 19-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Mathilde wrote:

Hej. Jeg har svært ved at forstå afsnittet "DRAGT". Har i mulighed for at skære det mere ud i pap? Lige nu har jeg begge ben på rundpind men det skaber jo et hul mellem benene. Også når I skriver "strik frem og tilbage" hvorfor kan man ikke bare strikke rundt? I forhold til "Sæt 1 mærke 25 m ind fra hver side ( =48 m imellem mærkerne på rygstk)" så kan jeg ikke regne ud hvor de mærker skal være? Håber I kan hjælpe :-) Kh Mathilde

15.10.2023 - 01:24

country flag Maite Fabregat wrote:

Hello! I have a question regarding the buttonholes. When following the instructions the hole seems to not be centered but moved to the left. Is that correct? To center it i would need to 2nd and 3rd from mid. Thanks for the help!

27.11.2022 - 08:31

DROPS Design answered:

Dear Maite, yes, the holes are slightly moved to the left. You could move them towards the center if you want. Happy knitting!

27.11.2022 - 16:06

country flag Marissa Kanewske wrote:

Under the instructions for BACK PIECE, for the 1/3 MONTHS size: it says you will have 98 sts after all of the increases. Then you bind off 16 sts in the middle for the neck. Then it says "complete each shoulder/sleeve separately" with no other instructions on how to do so. 98 sts minus 16 sts should equal 82 sts but instead it says to bind off the remaining 41 sts. What happens to the other 41 sts?

16.11.2021 - 05:45

DROPS Design answered:

Dear Mrs Kanewske, each shoulder/sleeve will be worked separately means that you will first work one set of 41 sts (one side/shoulder/sleeve) leaving the other set of 41 sts unworked; and after these 2 rows over the first 41 sts on one side, cast off, cut the yarn. Join it to the other set of 41 sts for the other shoulder/sleeve and work the same way. Happy knitting!

16.11.2021 - 09:15

country flag Anne Stecker wrote:

I used twice as much yarn as the pattern called for. I used 2 strands of Cascade 220. Gauge was good, sizzle was good. Anyone else use much more yarn?

12.10.2021 - 02:32

country flag Betty Wagner wrote:

It looks like a pretty pattern

20.08.2020 - 19:58

country flag Ivana wrote:

Hi, I am looking for a crochet pattern for this amazing romper overal.... please, have you got anything similar for the crocheters???

04.06.2020 - 07:45

DROPS Design answered:

Dear Ivana, you will find our crocheted overalls for babies here. Happy crocheting!

04.06.2020 - 09:09

country flag Diane Jackson wrote:

Hello, I am interested in knitting the pattern, My First Christmas by DROPS Design. I have a friend who is going to have a baby right before Christmas this year and I was wondering if the smallest size (1-3 mo) would be too large for a brand new baby. I looked at the bust measurement and it said 20 1/2" and I was wondering if that is the measurement for the garment or if that is the infant measurement? Thank you for any assistance you can provide. Kind regards, Diane

02.06.2020 - 00:44

DROPS Design answered:

Dear Mrs Jackson, the measurements are the finished one when pieces is laying flat (read more here. This might help you to find out the matching size -or you can find more overall patterns here. Happy knitting!

02.06.2020 - 10:35

country flag Nicole Groß wrote:

Schönen guten Tag, ich habe eine Frage zu den Übergang von bein und Strampler! Da steht das die Beine auf eine rundstricknadel kommen damit man dann mit den Strampler anfangen kann. Die Frage ist jetzt werden die Beine in rund oder als hin und rückgestrickt? Und wenn sie in rund gestrickt werden kommen dann beide Beine auf einer Nadel? LG Nicole

12.08.2019 - 06:47

DROPS Design answered:

Liebe Frau Groß, Strampler wird hin und zurück gestrickt, es wird bei der 1. Reihe 3 M angeschlagen, dann die Maschen der 1. Beine gestrickt, dann die Maschen der 2. Beine gestrickt, und schliesslich 3 M angeschlagen. Vile Spaß beim stricken!

12.08.2019 - 08:56

country flag Nancy Crosier wrote:

Want to print off free knitted patterns do not find any place to be able to do it

20.07.2019 - 12:46

DROPS Design answered:

Dear Nancy, you can easily print every our pattern for free whenever you like - see symbol of printer just under the header of pattern and tab with material. Happy knitting!

20.07.2019 - 17:38

country flag Anne wrote:

Hej, hvor er beskrivelsen på hvordan ærmerne strikkes? De er slet ikke nævnt i opskriften.

04.07.2018 - 17:31

DROPS Design answered:

Hei Anne. Ermene strikkes som en del av forstykkene og bakstykket: det legges opp masker i sidene til ermer. God fornøyelse

06.07.2018 - 08:02