DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Woolies

Prjónaðir sokkar fyrir dömur og herra í strofprjóni úr 1 þræði DROPS Big Fabel eða 2 þráðum DROPS Fabel. Stærð 38-46.

DROPS 135-10
DROPS Design: Mynstur nr bf-01
Garnflokkur C
---------------------------------------------------------

Stærð: 38/40 – 41/43 – 44/46
Lengd fótar: 24 – 27 - 30 cm
Hæð á sokk: 35 – 37 - 38 cm

Efni:
DROPS BIG FABEL frá Garnstudio
200-300-300 gr litur nr 905, svartur/natur
Eða notið:
DROPS FABEL frá Garnstudio
150-200-250 gr litur nr 905, svartur/natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l og 25 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Big Fabel
DROPS Big Fabel
75% Ull, 25% Polyamid
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið sl þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið sl þar til 5-6-6 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið sl þar til 4-5-5 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið br þar til 4-5-5 l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram með úrtöku á sama hátt með því að það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir prjóninn þar til eftir eru 10-10-12 l á prjóni.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá.

SOKKUR:
Fitjið upp 55-60-65 l með 1 þræði Big-Fabel eða 2 þráðum Fabel á sokkaprjóna nr 4. Prjónið 2 sléttar umf, síðan er prjónað stroffprjón 2 l sl/3 l br. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20-22-23 cm er öllum 3 l br fækkað niður í 2 l br = 44-48-52 l. Haldið áfram með stroffprjón 2 l sl / 2 l br þar til stykkið mælist 30-31-32 cm
Haldið eftir fyrstu 18-22-22 l á prjóni fyrir hæl (þær 2 fyrstu og 2 síðustu l af þessum eru sléttar l), setjið síðustu 26-26-30 l á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 5-5½-6 cm – jafnframt í 1. umf er fækkað um 0-2-0 l jafnt yfir = 18-20-22 l. Setjið 1 prjónamerki – héðan er nú mælt! Fækkið nú lykkjum fyrir hæl – sjá HÆLÚRTAKA!. Þegar hælúrtöku er lokið eru prjónaðar upp 10-11-12 l hvoru megin við hæl og 26-26-30 l af þræði eru settar aftur á prjóninn = 56-58-66 l. Setjið 1 prjónamerki hvoru megin við 24-26-28 ofan á fæti.
Prjónið nú stroffprjón yfir 26-26-30 l ofan á fæti, hinar l eru prjónaðar í sléttprjóni – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið þannig: Prjónið síðustu 2 l Á UNDAN fyrra prjónamerki snúnar sléttar saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan), prjónið 2 fyrstu l Á EFTIR seinna prjónamerki á fæti slétt saman. Fækkið lykkjum svona í annarri hverri umf 8-7-9 sinnum = 40-44-48 l. Prjónið áfram stroffprjón yfir 26-26-30 l ofan á fæti og sléttprjón yfir 14-18-18 l undir fæti þar til stykkið mælist 20-22-24 cm frá prjónamerki á hæl (= 4-5-6 cm að loka máli).
Nú er sett 1 prjónamerki í hvora hlið svo að það verða 20-22-24 l bæði ofan á fæti og undir fæti. Prjónið til loka í sléttprjóni – jafnframt er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við bæði prjónamerkin.
Fækkið lykkjum þegar 3 l eru eftir á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l sl saman, 2 l sl (prjónamerki er á milli þeirra), 2 l snúnar sl saman. Fækkið lykkjum í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 3-4-5 sinnum og síðan í hverri umf 4-4-4 sinnum = 12-12-12 l eftir á prjóni. Í næstu umf eru allar l prjónaðar sl saman 2 og 2.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 135-10

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (18)

country flag Mette wrote:

Er det noe feil med oppskriften? Det kan vel ikke stemme at sokken skal være 8 cm (eller mer) lengere enn foten?

06.03.2023 - 12:31

DROPS Design answered:

Hei Mette, Denne oppskriften er for ganske lange sokker. Dette kan du justere ved å strikke kortere før du begynne på hælen. God fornøyelse!

07.03.2023 - 07:18

country flag Marianne wrote:

Når man tager ind i tåen, og der står “ ag ind i hver side på hver 2.omg totalt 3-4-5 gange og videre på hver omg 4-4-4 gange”, hvad betyder “videre på hver omg 4 gange”?

12.11.2022 - 21:47

DROPS Design answered:

Hei Marianne. Når du har felt i hver side på hver 2. omgang totalt 3-4-5 ganger, så skal du nå felle på hver omgang, dette gjøre 4-4-4 ganger, til det er 12-12-12 masker igjen tilbake på pinnen. mvh DROPS Design

14.11.2022 - 14:13

country flag Cathrine wrote:

Er det noe feil i oppskriften? Skal man virkelig strikke først 22 cm også deretter 10 cm til FØR en begynner på hæl? Blir fryktelig lange sokker ??, Eller skal man begybbe på hæl etter 22 cm?

07.11.2022 - 10:19

DROPS Design answered:

Hei Cathrine. Jo, dette er noen lange sokker. Men du kan fint strikke kortere skaft om du ønsker det. mvh DROPS Design

07.11.2022 - 14:10

country flag Leigh wrote:

Hello, thank you for this pattern. I was wondering when the pattern states to measure the foot length from the marker placed at the heel, is that a straight measurement to the working stitches or is that a curved measurement along the curve of the heel please. I am new to knitting socks and reading sock patterns. Thank you so much.

05.04.2022 - 11:11

DROPS Design answered:

Dear Leigh, insert the marker to measure foot in the middle of the row before decreases for heel. And then measure from that marker in the knitting direction towards the stitches on needle, there shouldn't any curved: to measure, place sock flat. Happy knitting!

05.04.2022 - 16:23

country flag Kristina wrote:

Gör sockarna 135-10, förstår inte riktigt vad som menas med, (mät efter markeringen)mäter man inte hela foten , eller mäter man där man tog upp maskor från arbetet (efter hälen stickas det upp 12 m på var sida)är det därifrån man mäter ,

02.09.2021 - 18:48

DROPS Design answered:

Hei Kristina. Første gang du måler er det fra oppleggskanten (når vrangborden måler 20-22-23 ). Så strikkes hælen og da settes det et merke som det skal måles fra (før det felles til hæl). mvh DROPS design

06.09.2021 - 14:13

country flag Anne-Beate Dokken wrote:

Jeg er klar over at Big Fabel ikke produsere mere. Lurte på om dere muligens hadde et nøste i en mørk farge. Hilsen Anne-Beate Dokken.

19.04.2021 - 15:00

DROPS Design answered:

Hei Anne-Beate. Vi sender kun ut kilovis til butikker og DROPS Fabel er helt tomt. Ta kontakt med div butikker, kanskje noe har litt igjen. Eller gjør en etterlysning av garnet på sosiale medier. Der er det mange som hjelper hverandre med etterlysning av garn. mvh DROPS design

19.04.2021 - 15:20

country flag Tamsin wrote:

The photograph is misleading as the leg length is actually much longer than shown.

05.04.2020 - 17:36

country flag Birgitte Bjergø wrote:

Jeg er lidt usikker på hvordan jeg måler foden. Jeg strikker størrelse 44/46 - nu passer den til een med en fod der er 32 cm lang fra hæl til tå.

05.12.2019 - 10:59

DROPS Design answered:

Hej Birgitte, Det lyder til at du strikker lidt løsere end hvad vi gør i opskriften. Den største størrelse skal være 30 cm fra hæl til tå. Men prøv gerne strømpen, så ser du tydeligt om du skal begynde indtagningen lidt tidligere :)

06.12.2019 - 08:09

country flag Anne-Beate Dokken wrote:

Skal strikke sokker til barn og voksne i Big Fabel. Lurer på hvorfor det skal felles masker når jeg har strikket litt på vr bord. Har prøvd og finne sokker der vr bord strikkes rett opp. Takk for fine sider og god hjelp.

15.02.2016 - 12:05

DROPS Design answered:

Hej. Det är för att vr-borden ska vara lite smalare längre ner på benet för att passa bättre. Om du önskar ha det på ett annat sätt kan du säkert bara justera lite i oppskriften. Lycka till!

15.02.2016 - 13:38

country flag Hanne Pedersen wrote:

Opskriften er nem nok at forstå, men strikker str. 44/46 til min søn, de bliver jo sygt lange knæstrømper 😳

14.12.2015 - 03:42