DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11550.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Elephant Ears

Prjónuð síð peysa úr DROPS Snow með stórum kraga í stroffprjóni. Stærð S - XXXL.

DROPS 117-8
DROPS Design: Mynstur nr EE-255
Garnflokkur E
--------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

Efni:
DROPS SNOW frá Garnstudio
1050-1150-1250-1400-1550-1700 gr litur nr 46, milligrár

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) og SOKKAPRJÓNAR NR 8 – eða þá stærð sem þarf til að 11 l og 15 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) og SOKKAPRJÓNAR NR 7 – fyrir stroff og garðaprjón.
DROPS TALA ÚR HORNI NR 536:
4-5-5-5-6-6 stk.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11550.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í hverri umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring á sokkaprjóna):
* Prjónið 1 umf sl og 1 umf br *, endurtakið frá *-*.

LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU:
Vegna þyngdar á garninu verður að halda stykkinu uppi þegar mælt er, annars verður stykkið of sítt.

HNAPPAGÖT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri lista að framan.
1 hnappagat = fellið af 3.l frá miðju að framan, sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
Stærð S: 38, 46, 54 og 62 cm.
Stærð M: 40, 48, 56 og 64 cm.
Stærð L: 42, 50, 58 og 66 cm.
Stærð XL: 40, 47, 54, 61 og 68 cm.
Stærð XXL: 38, 46, 54, 62 og 70 cm.
Stærð XXXL: 39, 47, 55, 63 og 71 cm.

ÚRTAKA (hálsmál):
Fækkið lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur saman í byrjun umf í hvorri hlið.

ÚTAUKNING:
Aukið út í með því að slá 1 sinni uppá prjóninn í brugðnu einingunum. Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Prjónið stykkið fram og til baka á hringprjóna.

PEYSA:
Fitjið upp 134-142-150-162-174-189 l á hringprjóna nr 7 með Snow. Prjónið 6 umf garðaprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 8. Setjið tvö prjónamerki í stykkið, 36-38-40-43-46-50 l frá hvorri hlið (bakstykki = 62-66-70-76-82-89 l). Prjónið áfram sléttprjón með 5 l GARÐAPRJÓN við miðju að framan í hvorri hlið –sjá útskýringu að ofan! Þær 5 l með garðaprjóni = kantur að framan. Kantur að framan er prjónaður í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 15 cm er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerkin í hvorri hlið. Endurtakið úrtöku með 7-7-7½-8-8-8 cm millibili alls 8 sinnum = 102-110-118-130-142-157 l. LESIÐ LEIÐBEININGAR UM MÆLINGU! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-40-42-40-38-39 cm byrjar úrtaka fyrir HNAPPAGAT– sjá útskýringu að ofan! Þegar stykkið mælist 64-66-68-70-72-73 cm eru ystu 7 lykkjur við miðju að framan settar á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið um 1 l við hálsmál í hvorri hlið – LESIÐ ÚRTAKA! Endurtakið úrtöku með 4-4-4-4-4-3½ cm millibili alls 5-5-6-6-6-7 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 68-70-72-74-76-77 cm fellið af6 l fyrir handveg í hvorri hlið (fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki). Hvert stykkið er nú prjónað til loka fyrir sig.

BAKSTYKKI:
=40-44-48-54-60-67 l. Fellið af fyrir handveg í byrjun hverrar umf í hvorri hlið þannig: 2 l 0-0-1-2-3-4 sinnum og 1 l 0-1-1-1-2-3 sinnum = 40-42-42-44-44-45 l. Þegar stykkið mælist 87-90-93-96-99-101 cm er fellt af miðju 12-12-14-14-14-15 fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið af 1 l í næstu umf frá hálsmáli = 13-14-13-14-14-14 l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 89-92-95-98-101-103 cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fellið af fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki, JAFNFRAMT er haldið áfram með úrtöku fyrir hálsmáli. Þegar úrtöku er lokið eru 13-14-13-14-14-14l eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 89-92-95-98-101-103 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið á sama hátt og vinstra framstykki, nema gagnstætt.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 30-32-32-34-34-36 l á sokkaprjóna nr 7. Prjónið 6 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan stroff 3 l sl / 3 l br, JAFNFRAMT er aukið út í umf 1 um 12-10-10-14-14-12 l jafnt yfir í umf – LESIÐ ÚTAUKNING! =42-42-42-48-48-48 l. Setjið prjónamerki í byrjun umf. Þegar stykkið mælist 15 cm er fellt af 12-10-10-14-14-12 l jafnt yfir umf = 30-32-32-34-34-36 l. Skiptið yfir í sokkaprjóna nr 8 og haldið áfram í sléttprjón. Þegar stykkið mælist 18 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við prjónamerki. Endurtakið útaukningu með 5-5-4-3½-2½-2½ cm millibili alls 6-6-7-7-9-9 sinnum = 42-44-46-48-52-54 l. Þegar stykkið mælist 48-48-47-45-45-43 cm er fellt af 6 l undir miðri ermi (fellið af 3 l hvoru megin við prjónamerki). ATH! Styttri mæling í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla. Fellið af fyrir handveg í byrjun umf í hvorri hlið þannig: Fellið af 2 lykkjur 2 sinnum, 1 lykkja 0-0-1-3-4-5 sinnum, fellið af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 55-55-56-56-57-57 cm. Fellið af 3 l í hvorri hlið einu sinni. Stykkið mælist nú ca 56-56-57-57-58-58 cm. Fellið af. Saumið axlarsauma.

KRAGI:
Takið upp 102-106-112-114-116-120 l (meðtaldar l af þræði) frá röngu frá hálsmáli á hringprjón nr 7 (prjónað er frá röngu því innri hlið kragans verður sýnilegur). Prjónið 1 umf slétt (þetta er frá röngu), aukið út um 31-33-33-37-41-43 l jafnt yfir umf = 133-139-145-151-157-163 l. Prjónið næstu umf frá réttu þannig: Prjónið 5 l garðaprjón, stroff 3 l sl / 3 l br þar til 8 l eru eftir, endið með 3 l sl, 5 l garðaprjón. Haldið áfram áfram svona þar til stykkið mælist 8 cm. Í næstu umf frá réttu er auknar út allar 3 br að 4 l br = 153-160-167-174-181-188 l. Haldið áfram með stroff 3 l sl / 4 l br. Þegar kraginn mælist 22 cm er prjónað 6 umf garðaprjón yfir allar l. Fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í og tölur.

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 117-8

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (40)

country flag Gerbrich wrote:

Het is me niet helemaal duidelijk hoe de meerderingen in de boord van de mouwen gedaan worden. Er staat dat er 1 omslag in de averechte delen gedaan moet worden. Maar dan kom ik niet aan het aantal benodigde steken? En is het de bedoeling dat er een gaatje ontstaat?

25.12.2022 - 09:28

DROPS Design answered:

Dag Gerbrich,

De tip voor het meerderen in de averechte delen is inderdaad niet duidelijk waar dit voor bedoeld is. Bij de mouw kun je na de boordsteek gewoon over de hele naald verdeeld meerderen door omslagen te maken die je op de volgende naald gedraaid breit.

28.12.2022 - 08:10

country flag Jenneke wrote:

Ik ben gekomen tot de 7 steken op de hulpdraad zetten maar begrijp het niet helemaal. Welke steken zet je op de hulpdraad en vanaf waar tot waar? Ik maak trouwens het vest in maat XXL. Alvast bedankt!

09.04.2015 - 10:48

DROPS Design answered:

Beste Jenneke, precies zoals het er staat: Zet bij een hoogte van 72 cm 7 st middenvoor aan iedere kant op een hulpdraad voor de hals. Middenvoor is het begin en het eind van de naald, met de biezen voor de knopen. Dus aan de goede kant brei je 7 st, zet deze 7 st op een hulpdraad en vervolg het patroon. De volgende naald, aan de verkeerde kant, brei je 7 st, zet ze op een hulpdraad en brei je verder en minder je zoals aangegeven staat - deze 7 st aan elke kant worden later weer gebruikt voor de kraag.

09.04.2015 - 12:08

country flag Anna wrote:

Hallo , Hier zit een fout in ik ben ermee bezig maar kom er niet uit het zit hem in de minderingen het eerste gedeelte ik hoop dat u het voor mij kunt oplossen ?

06.04.2013 - 00:58

DROPS Design answered:

Hoi. Zou je willen aangeven waar het precies mis gaat en welke maat je breit, dan kan ik sneller meekijken en helpen ;o)

08.04.2013 - 21:45

country flag Artmonique wrote:

Il manque,dans l'explication Veste, le nombre de mailles à monter en taille XXXL. A la lecture de la marche à suivre j'en ai déduis que ce devait être 189. Merci pour ces merveilles que vous mettez à notre disposition.

16.06.2012 - 12:24

DROPS Design answered:

Merci Artmonique, les explications ont été ajustées. Bon tricot !

18.06.2012 - 09:37

country flag Trudy wrote:

Prachtig vest met plezier gebreid,reactie zeer goed,brei het vest nog een keer voor een andere dochter

04.12.2009 - 11:08

country flag Miriam wrote:

Wat een geweldig vest. Ik kan niet wachten om er mee te beginnen.

15.11.2009 - 19:40

country flag Karin wrote:

Vilken mysig kofta

12.08.2009 - 23:47

country flag Gabriele wrote:

Für mich das schönste Teil der ganzen Kollektion. Schöner großer Kragen, der super wirkt durch das schlichte Muster. Toll auch in der abgebildeten Farbe. Noch schicke Handschuhe und ein Schal dazu - perfekt.

12.08.2009 - 16:54

country flag Ramona wrote:

Diese Jacke werde ich auf alle Fälle stricken. Bin gespannt auf die Anleitung.

14.07.2009 - 11:51

country flag Rabbit wrote:

Very nice. I'm looking forward to making this.

01.07.2009 - 19:55