Sweet Snow |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Sett með prjónuðum sokkum fyrir börn og peysu með köðlum án ermasauma úr DROPS Merino Extra Fine.
DROPS Baby 16-20 |
|||||||||||||||||||
PEYSA: MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum. ---------------------------------------------------------- PEYSA: Til að fá pláss fyrir allar lykkjur er peysan prjónuð fram og til baka á hringprjón eftir stroffið. FRAMSTYKKI: Fitjið upp 66-74-82 (90-98) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5, prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 5-5-9 (9-13) lykkjur jafnt yfir = 61-69-73 (81-85) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð (frá réttu) þannig: 1 kantlykkja, 12-16-18 (22-24) lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur brugðnar, M.1, 2 lykkjur brugðið, M.2, 2 lykkjur brugðið, M.1, 2 lykkjur brugðið, 12-16-18 (22-24) lykkjur sléttprjón og 1 kantlykkja. Haldið áfram með þetta mynstur fram og til baka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermar – fitjið upp í lok hverrar umferðar í báðum hliðum: 4 lykkjur 2-2-1 (1-1) sinnum, 6 m 1-1-1 (2-1) sinnum, 8 lykkjur 0-0-1 (1-2) sinnum og 10-11-11 (14-20) lykkjur 1 sinni = 109-119-131 (157-177) lykkjur – nýjar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Haldið síðan áfram með mynstur og í sléttprjóni eins og áður. Þegar stykkið mælist ca 22-24-26 (28-31) cm fækkið lykkjum í næstu umferð frá réttu: 5 lykkjur jafnt yfir M.2 og 2 lykkjur jafnt yfir hvert M.1 = 100-110-122 (148-168) lykkjur. Í næstu umferð eru miðju 10-10-12 (14-16) lykkjurnar settar á þráð fyrir hálsmáli og hvor hlið er prjónuð til loka fyrir sig. VINSTRI ÖXL/ERMI: = 45-50-55 (67-76) lykkjur. Haldið áfram með sléttprjón yfir lykkjur í M.1 og aðrar lykkjur eins og áður. JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í byrjun á hverri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 41-46-51 (63-72) lykkjur á öxl/ermi. Fellið af þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm. HÆGRI ÖXL/ERMI: = 45-50-55 (67-76) lykkjur. Prjónið og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eins og vinstri öxl/ermi. Þegar stykkið mælist 24-26-29 (31-34) cm prjónið áfram í garðaprjóni yfir ystu 12-13-14 (15-16) lykkjur að hálsi (aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður). Eftir 4 umferðir í garðaprjóni er fellt af fyrir 2 hnappagötum þannig (frá réttu): 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 5-6-7 (8-9) lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið út umferðina. Prjónið síðan í sléttprjóni og garðaprjóni yfir fyrstu 12-13-14 (15-16) lykkjur við háls þar til stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm. Fellið af. BAKSTYKKI: Fitjið upp 66-74-82 (90-98) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið í 4 cm. Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 14-14-18 (18-22) lykkjur jafnt yfir = 52-60-64 (72-76) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu, haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist 16-17-19 (20-22) cm fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermar eins og á framstykki = 100-110-122 (148-168) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-26-29 (31-34) cm fellið af miðju 16-16-18 (20-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl/ermi er prjónað til loka fyrir sig. VINSTRI ÖXL/ERMI: = 42-47-52 (64-73) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni – JAFNFRAMT er felld af 1 lykkja í næstu umferð frá hálsi = 41-46-51 (63-72) lykkjur á öxl/ermi. Fellið af þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm. HÆGRI ÖXL/ERMI: = 42-47-52 (64-73) lykkjur. Prjónið og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli eins og vinstri öxl/ermi = 41-46-51 (63-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-28-31 (33-36) cm fellið af fyrstu 29-33-37 (48-56) lykkjur frá neðst á ermi og upp úr. Prjónið síðan 1½ cm í sléttprjóni og 1 lykkju garðaprjón í hvorri hlið yfir þær 12-13-14 (15-16) lykkjur sem eftir eru (= tölu kantur), prjónið síðan 1 umferð slétt frá röngu yfir allar lykkjur, áður en fellt er af með sléttu frá réttu. FRÁGANGUR: Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori – á hægri öxl/ermi er einungis saumað fram að tölukanti. STROFF: Takið upp 38-42-46 (50-54) lykkjur á prjón 3,5 neðst meðfram annarri erminni. Prjónið 2 umferðir slétt, haldið áfram með stroff = 1 lykkja slétt/1 lykkja brugðin með 1 kantlykkju í hvorri hlið. Fellið af þegar stroffið mælist 4 cm. Endurtakið á hinni erminni. Saumið hliðarsauma og sauma undir ermum innan við 1 kantlykkju. KANTUR Í HÁLSI. Prjónið upp frá réttu ca 52 til 68 lykkjur í kringum háls (meðtaldar lykkjur á bandi að framan) á prjón 3,5. Prjónið 5 umferðir slétt, fellið síðan af. Saumið tölur á öxl. ---------------------------------------------------------- SOKKAR: Lengd á fæti: 10-11-12 (14-16) cm HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við. Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA: Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. -------------------------------------------------------- SOKKUR: Sokkurinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 30-30-36 (36-36) lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með Merion Extra Fine og prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/3 lykkjur brugðið í 8-8-9 (9-10) cm. Prjónið nú 1 umferð sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-0-4 (2-0) lykkjur jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) lykkjur. Prjónið nú 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. Haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) lykkjum á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) lykkjur eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Prjónið nú upp 7-8-9 (9-10) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) lykkjur. Haldið áfram hringinn í sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umferð er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu lykkjur á undan 13-13-15 (15-17) lykkum á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og þær 2 fyrstu lykkjur á eftir 13-13-15 (15-17) lykkjum á fæti eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umferð alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) lykkjur. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½). Setjið nú prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. þannig að það verða 13-13-15 (15-17) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerkin – SJÁ ÚRTAKA. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umferð 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk alveg eins. |
|||||||||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||||||||
|
|||||||||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (41)
Anita Strunk wrote:
Sind bei den Mustersätzen M2 und M1 jeweils die Hinreihen angegeben und die Rückreihen stricken wie die Maschen erscheinen (z.B. M2 Reihe 1,3,5)
07.02.2012 - 17:41Kristina wrote:
Super schöner Pulli. Zeitlos und schnell zu stricken. Hab für beide meine Kinder einen gestrickt - ging recht schnell und ist supersüß - und werde für den nächsten Winter bestimmt wieder zwei einplanen.
18.02.2011 - 21:51Erin wrote:
I like this little jumper and made it for my 12 month old. I did find that for him, using the 12-18 month sizes I had to add around 20 rows of extra rib at the end of the arms to make the sleeves long enough. I also found that the drops merino extra fine bobbled quite quickly. I haven't found this with Debbie Bliss Cashmerino which I have used a lot.
30.11.2010 - 08:26Anna wrote:
Superhärlig tröja! Första gången jag stickade en tröja med flätor. Modellen var väldigt lättstickad och blev jättefin. Valde att sticka resår (1rm/1am) i halsen och vek den dubbel. Mjukare halskant för känslig babyhud på det viset.
02.06.2009 - 10:16Vibeke Ilsøe wrote:
Den skal jeg da strikke til mit barnebarn.Hvordan får jeg fat i opskriften?
17.11.2008 - 22:06Berit Rasmussen wrote:
Hej Jeg vil gerne vide hvor jeg findere de nye opskrifter ? For når man trykker på opskrift får man ikke noget frem!
16.11.2008 - 17:57Anita wrote:
Denne vil jeg strikke!
04.11.2008 - 22:17Marianne wrote:
Rigtig flot
26.10.2008 - 13:55Alvhild wrote:
Fin genser, men den passer vel best for barn fra 1 år og oppover.
21.10.2008 - 21:08Lisbeth wrote:
Den er rigtig lækker. jeg glæder mig til opskriften.
20.10.2008 - 12:44