DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Matheo

Sett með prjónaðri peysu fyrir börn með hettu, sokkum og teppi með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine. Þema: Barnateppi.

DROPS Baby 17-2
DROPS design: Mynstur nr ME-011-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Stærði í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)
Fótlengd á sokk: 10-11-12 (14-16) cm
Mál á teppi: ca 56 cm x 92 cm.

Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
PEYSA:
250-300-300 (350-400) g nr 01, natur
SOKKAR:
50-50-50 (100-100) g nr 01, natur
TEPPI:
450 g nr 01, natur

----------------------------------------------------------
PEYSA:
DROPS PRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – fyrir stroff.
DROPS TRÉTALA NR 503: 5-5-5 (6-6) st.

SOKKAR:
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 lykkjur og 32 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

TEPPI:
DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 25 umferðir í sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 5.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 13860.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 2: sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1, M,2 og M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan með því að prjóna aðra og þriðju lykkju frá kanti slétt saman og sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 3, 8, 13, 18 og 23 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 5, 10, 15, 20 og 25 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 5, 11, 17, 23 og 29 cm.
STÆRÐ 2 ára: 5, 11, 16, 21, 27 og 32 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 5, 11, 17, 23, 29 og 35 cm.
----------------------------------------------------------

PEYSA:

BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 72-80-84 (96-104) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja, * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 2 lykkjur slétt og 1 kantlykkja. Þegar stroffið mælist 4 cm er skipt yfir á prjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 6-8-6 (8-10) lykkjur jafnt yfir = 66-72-78 (88-94) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Haldið síðan áfram þannig (frá réttu): 1 kantlykkja, 4-7-8 (11-11) lykkjur PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, 2 lykkjur brugðið, M.1 (= 15 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.2 (= 15 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 4-7-8 (11-11) lykkjur perluprjón og 1 kantlykkja.
Haldið áfram héðan samkvæmt sama mynstri. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handveg í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið: 3 lykkjur 1 sinni, 2 lykkjur 0-1-2 (3-3) sinnum og 1 lykkja 2-3-2 (2-2) sinnum = 56-56-60 (66-72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 26-28-32 (36-39) cm prjónið lykkjur yfir hvert M.3 saman tvær og tvær = 50-50-54 (60-66) lykkjur. Í næstu umferð eru felldar af miðju 12-12-16 (20-22) lykkjurnar fyrir hálsmáli og hvor öxl er prjónuð til loka fyrir sig. Fellið síðan af 1 lykkju í næstu umferð frá hálsi = 18-18-18 (19-21) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-41) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 12-12-12 (13-15) lykkjur eftir á öxl. Fellið af í næstu umferð.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 42-46-50 (54-58) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hlið og 5 kantlykkjur við miðju að framan) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff frá miðju að framan þannig (umferð 1 = rétta): 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), *2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 1 kantlykkju. Munið eftir að fella af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 4 cm er skipt yfir á prjón 4,5. Prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 4-5-6 (5-6) lykkjur jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan) = 38-41-44 (49-52) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan), 1 lykkja brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.1 (= 15 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 4-7-8 (11-11) lykkjur perluprjón og 1 kantlykkja. Haldið núna áfram samkvæmt sama mynstri.
Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-26) cm fækkið lykkjum fyrir handvegi í hlið eins og á bakstykki = 33-33-35 (38-41) lykkjur. Þegar stykkið mælist 24-26-30 (33-36) cm prjónið 6 lykkjur yfir M.3 saman tvær og tvær = 30-30-32 (35-38) lykkjur, setjið síðan ystu 8-8-10 (12-13) lykkjurnar við miðju að framan á þráð fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð frá hálsi: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 2 sinnum = 18-18-18 (19-21) lykkjur eftir á öxl. Þegar stykkið mælist 28-30-34 (38-41) cm fækkið um 6 lykkjur jafnt yfir = 12-12-12 (13-15) lykkjur eftir á öxl. Fellið af í næstu umferð.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og hægra, nema gagnstætt og án hnappagata.
Þ.e.a.s. umferð 1 er prjónuð frá hlið þannig (umferð 1 = rétta): 1 kantlykkja, * 2 lykkjur brugðið, 2 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan).
Þegar mynstrið er prjónað þá er það prjónað frá réttu þannig: 1 kantlykkja, 4-7-8 (11-11) lykkjur perluprjón, 2 lykkjur brugðið, M.2 (= 15 lykkjur), 4-4-6 (8-11) lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 1 lykkja brugðið og 5 lykkjur garðaprjón (= kantur að framan).

ERMI:
Stykkið er prjónað fram og til baka.
Fitjið upp 46-46-46 (50-50) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 2 lykkjur slétt/2 lykkjur brugðið með 1 kantlykkju í hvorri hlið í 4 cm. Skiptið yfir á prjón 4,5 og prjónið 1 umferð slétt frá réttu – JAFNFRAMT er fækkað um 10-8-8 (10-10) lykkjur jafnt yfir = 36-38-38 (40-40) lykkjur. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá réttu): 1 kantlykkja, 12-13-13 (14-14) lykkjur perluprjón, 2 lykkjur brugðið, M.3 (= 6 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, 12-13-13 (14-14) lykkjur perluprjón og 1 kantlykkja. Haldið áfram að prjóna samkvæmt sama mynstri. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 7 cm er aukið út um eina lykkju í hvorri hlið. Endurtakið útaukningu í 4. hverri umferð alls 6-7-9 (10-12) sinnum = 48-52-56 (60-64) lykkjur – útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í perluprjón. Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-28) cm fækkið lykkjum fyrir handvegi í byrjun á hverri umferð í hvorri hlið þannig: 4 lykkjur 1 sinni, síðan 2 lykkjur saman þar til stykkið mælist 21-23-26 (30-34) cm og að lokum 3 lykkjur 1 sinni – JAFNFRAMT í síðustu umferð eru lykkjur prjónaðar yfir M.3 saman tvær og tvær. Fellið síðan af þær lykkjur sem eftir eru.
Stykkið mælist ca 22-24-27 (31-35) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HETTA:
Prjónið upp ca 46 til 68 lykkjur (meðtaldar lykkjur af þræði að framan) í kringum háls á prjón 4,5. Prjónið 2 umferðir slétt – JAFNFRAMT í síðustu umferð er aukið út jafnt yfir til 68-72-76 (80-84) lykkjur. Prjónið sléttprjón með rönguna út með 5 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að framan þar til hettan mælist 21-23-25 (27-28) cm, fellið af. Saumið hettuna saman að ofan – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við kantlykkju. Saumið tölur í.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.4. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 lykkjur saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-6 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-6 (6-6) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-5 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-5 (5-5) lykkjur eru eftir, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja brugðin, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 9-9-12 (12-12) lykkjur eru eftir á prjóni.
--------------------------------------------------------

SOKKUR:
Fitjið upp 36-36-42 (42-42) lykkjur á sokkaprjóna nr 3 með Merino Extra Fine og prjónið stroff = 3 lykkjur slétt/ 3 lykkjur brugðið í 2 cm. Prjónið nú 1 umferð þar sem allar 3 lykkjur slétt eru auknar út til 4 lykkjur slétt = 42-42-49 (49-49) lykkjur. Prjónið 1 umferð með 4 lykkjur slétt / 3 lykkjur brugðið. Prjónið nú þannig: * M.4, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* alls 6-6-7 (7-7) sinnum. Þegar M.4 hefur verið prjónað 3 sinnum á hæðina eru lykkjur prjónaðar í M.4 saman tvær og tvær = 30-30-35 (35-35) lykkjur. Haldið eftir fyrstu 17-17-22 (22-22) lykkjum á prjóni (= hæll) og setjið síðustu 13 lykkjur á þráð (= ofan á fæti). Prjónið sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm. Setjið prjónamerki í mitt stykkið. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Takið síðan upp 7-8-9 (9-10) lykkjur hvoru megin við hæl og lykkjur af þræði ofan á fæti eru settar aftur á prjóninn = 36-38-43 (43-45) lykkjur. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar lykkjur – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað hvoru megin við 13 lykkjur ofan á fæti þannig: Þær 2 síðustu lykkjur á undan þessum 13 lykkjum eru prjónaðar snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og 2 fyrstu lykkjur á eftir þessum 13 eru prjónaðar slétt saman. Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð alls 5-6-7 (6-6) sinnum = 26-26-29 (31-33) lykkjur.
Haldið áfram að prjóna þar til stykkið mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½) cm). Setjið prjónamerki í hvora hlið þannig að það verða 13-13-15 (15-17) lykkjur ofan á fæti og 13-13-14 (16-16) lykkjur undir fæti. Fækkið nú lykkjum fyrir tá á hvoru megin við bæði prjónamerkin – SJÁ ÚRTAKA! Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð: 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umferð: 3-3-3 (3-2) sinnum = 6-6-5 (7-5) lykkjur eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk alveg eins.
----------------------------------------------------------

TEPPI:

GARÐARPJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út með því að slá uppá prjóninn.
Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt (prjónað er aftan í lykkjubogann í stað framan).

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.
---------------------------------------------------------

TEPPI:
Teppið samanstendur af 3 ferningum á breiddina og 4 ferningum á lengdina = alls 12 ferningar.
1 ferningur mælist ca 18 cm á breidd x 22½ cm á hæðina.

1 FERNINGUR:
Fitjið upp 36 lykkjur á prjóna nr 5 með Merino Extra Fine. Prjónið 8 umferðir GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Prjónið síðan 1 umferð slétt frá réttu JAFNFRAMT er aukið út – sjá ÚTAUKNING – 10 lykkjur jafnt yfir 26 miðju lykkjur = 46 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: Prjónið 5 lykkjur garðaprjón, 3 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið, 4 lykkjur slétt, 6 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt og 5 lykkjur garðaprjón. Prjónið nú þannig: 5 lykkjur garðaprjón, M.1 yfir 36 lykkjur og 5 lykkjur garðaprjón.
Haldið svona áfram þar til 2 umferðir eru eftir. Prjónið nú 1 umferð slétt frá réttu yfir allar lykkjur JAFNFRAMT er fækkað um 10 lykkjur jafnt yfir miðju 36 lykkjur = 36 lykkjur. Prjónið 8 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur, fellið laust af.
ATH: Ef óskað er eftir því er hægt að prjóna 4 ferninga á eftir hverjum öðrum á lengdina án þess að fella af, þá er byrjað strax á næsta ferning eftir að hafa prjóna 8 umferðir með garðaprjóni.

FRÁGANGUR:
Saumið saman ferningana 3 st á breiddina og 4 st á lengdina – saumið kant í kant yst í lykkjubogann þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið í kringum allt teppið með heklunál nr 5 þannig:
* Heklið 1 fastalykkju, 3 loftlykkjur, 1 fastalykkju í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir 1 cm *, endurtakið frá *-* , endið á 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju frá byrjun umferðar.

Mynstur

symbols = slétt frá réttu, brugðið frá röngu
symbols = brugðið frá réttu, slétt frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðin, 3 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt,1 lykkja brugðin af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á hjálparprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af hjálpaprjóni
symbols = setjið 2 lykkjur á hjálparprjón framan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af hjálparprjóni
symbols = Kúla: Prjónið þannig: 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt í sömu lykkju (= 5 lykkjur), snúið stykki. Prjónið 4 umferðir sléttprjón yfir þessar 5 lykkjur. Eftir það eru 2. lykkju steypt yfir 1. lykkju, áfram 3. lykkju steypt yfir 1. lykkju, 4 lykkju yfir 1. lykkju og að lokum 5. lykkju yfir 1. lykkju (= 1 lykkja eftir)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (142)

country flag Hege wrote:

Denne var heeelt nydelig. Teppe også!

04.11.2008 - 22:34

country flag Donata Thießen wrote:

Am liebsten würde ich gleich losstricken! Auch mir fehlen noch einige Hände, um all die schönen Sachen zu machen!

04.11.2008 - 12:54

country flag Tatjana wrote:

Dieses modell ist mein Favorit. Ich warte mit Ungeduld auf die Anleitung!

02.11.2008 - 23:16

country flag Maritta Salmela wrote:

Tosi kaunis malli. Toivottavasti saa kokoon 4-5 v.saakka. Terveisin 8 lapsen mummu.

01.11.2008 - 14:19

country flag Bärbel wrote:

Auch dieses modell steht auf meiner Liste ,ich brauch mehr Zeit und mehr Hände ,ihr habt so tolle Sachen ,danke

27.10.2008 - 18:51

country flag Marianne wrote:

Rigtig flot. elsker strik med mønster

26.10.2008 - 13:54

country flag Maggie wrote:

A beautiful set!

26.10.2008 - 13:15

country flag Kerstin Andersson wrote:

Ursnygg, bra med kapushong, detta mönster har jag letet efter...

24.10.2008 - 14:51

country flag Mette W wrote:

Rigtig sødt og anvendeligt sæt

23.10.2008 - 21:25

country flag Jelena wrote:

Classisk vakker i sin helhet!

22.10.2008 - 22:33