DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Baby Dove

Sett með prjónuðu poncho og húfu fyrir börn með köðlum ásamt sokkum úr DROPS Merino Extra Fine

DROPS Baby 17-5
PONCHO:
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-96/104)
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-150-150 (200-250) g nr 01, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 og 60 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

HÚFA:
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Höfuðmál: 40/42 - 44/46 - 46/48 (48/50 - 50/52) cm.
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-100 (100-100) g nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l og 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR (40 cm) NR 3,5 – fyrir stroff.

SOKKAR:
Lengd á fæti: 10-11-12 (14-16) cm
Skóstærð 15/17-18/19-20/21 (22/23-24/25)
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-100 (100-100) gr litur nr 01, natur

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3696.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

PONCHO:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.
----------------------------------------------------------

PONCHO:
Stykkið er prjónað neðan frá og upp á hringprjóna. Stykkið er alveg eins allan hringinn.
Fitjið upp 272-288-300 (340-360) l á hringprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið stroff = 2 l sl / 2 l br í 4 cm. Skiptið yfir í hringprjóna nr 4 og prjónið síðan 1 umf slétt – JAFNFRAMT er fækkað um 56-60-60 (68-72) l jafnt yfir = 216-228-240 (272-288) l. Næsta umf er prjónuð þannig: * M.1, 28-30-32 (26-28) l br, M.2, 28-30-32 (26-28) l br *, endurtakið frá *-* alls 3-3-3 (4-4) sinnum.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Haldið áfram að prjóna samkvæmt mynstri – JAFNFRAMT í umf 2 er fækkað um 1 l vinstra megin við hverja br mynstureiningu með því að prjóna 2 l slétt. Prjónið 1-1-1 (2-2) umf og endurtakið úrtöku í næstu umf, til skiptis hægra og vinstra megin við br mynstureiningunum alls 22-23-25 (20-21) sinnum = 84-90-90 (112-120) l. Prjónið nú 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 3 l yfir allar M.1 og M.2 = 66-72-72 (88-96) l. Prjónið síðan 1 umf sl JAFNFRAMT er aukið út um 10-12-16 (12-12) l jafnt yfir = 76-84-88 (100-108). Stykkið mælist nú ca 20-21-23 (26-27) cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið stroff = 2 l sl/ 2 l br i 3-4-4 (5-6) cm. Fellið af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist nú alls ca 23-25-27 (31-33) cm.
----------------------------------------------------------

HÚFA.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.2 og M.3. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna!
Fitjið upp 96-100-100 (104-112) l á hringprjóna nr 3,5 með Merino Extra Fine. Prjónið 1 umf slétt, haldið áfram með stroff = 2 l sl / 2 l br.
Þegar stroffið mælist 4-4-5 (5-5) cm skiptið yfir á hringprjóna nr 4. Prjónið 1 umf sl og 1 umf br. Prjónið nú slétt JAFNFRAMT er aukið út um 4-4-8 (8-8) l jafnt yfir = 100-104-108 (112-120) l.
Haldið áfram að prjóna þannig: 3-3-3 (4-5) l br, M.2, 6-7-8 (8-9) l br, M.3, 6-7-8 (8-9) l br, M.2, 6-6-6 (8-10) l br, M.2, 6-7-8 (8-9) l br, M.3, 6-7-8 (8-9) l br, M.2, 3-3-3 (4-5) l br.
Þegar stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm prjónið næstu umf þannig: * 3 l br, 2 l br saman *, endurtakið frá *-* þar til 0-4-3 (2-0) l eru eftir, þær eru prjónaðar br = 80-84-87 (90-96) l.
Haldið áfram með br yfir allar l – JAFNFRAMT er fækkað um 17-18-19 (20-21) l jafnt yfir í annarri hverri umf alls 4 sinnum = 12-12-11 (10-12) l eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru. Herðið að og festið vel. Húfan mælist alls ca 14-15-16 (17-18) cm.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 5-5-5 (6-6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 4-4-4 (5-5) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram á sama hátt með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 7-9-9 (9-9) l eru ftir á prjóni.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki: Prjónið 2 l saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki: Takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana sl, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir.
--------------------------------------------------------

SOKKUR:
Sokkurinn er prjónaður í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 30-30-36 (36-36) l á sokkaprjóna nr 3 með Merion Extra Fine og prjónið stroff = 3 l sl/ 3 l br í 8-8-9 (9-10) cm. Prjónið nú 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 2-0-4 (2-0) l jafnt yfir = 28-30-32 (34-36) l. Prjónið nú 1 l sl og 1 l br. Haldið eftir fyrstu 15-17-17 (19-19) l á prjóni fyrir hæl og hinar 13-13-15 (15-17) l eru settar á þráð (= ofan á fæti). Prjónið nú sléttprjón fram og til baka yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið eitt prjónamerki. Prjónið nú HÆLÚRTAKA – sjá skýringu að ofan! Prjónið nú upp 7-8-9 (9-10) l hvoru megin við hæl og l af þræði (ofan á fæti) eru settar til baka á prjóninn = 34-38-42 (42-46) l.
Haldið áfram hringinn með sléttprjóni. JAFNFRAMT í fyrstu umf er lykkjum fækkað þannig: Þær 2 síðustu l á undan 13-13-15 (15-17) l á fæti eru prjónaðar snúnar slétt saman (prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan) og þær 2 fyrstu l á eftir 13-13-15 (15-17) l á fætir eru prjónaðar slétt saman. Endurtakið úrtöku í annarri hverri umf alls 4-6-6 (6-6) sinnum = 26-26-30 (30-34) l. Prjónið áfram þar til sokkurinn mælist ca 8-9-9½ (11½-12½) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir ca 2-2-2½ (2½-3½). Setjið nú prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. þannig að það verða 13-13-15 (15-17) l bæði ofan á fæti og undir fæti.
Fellið af fyrir tá hvoru megin við prjónamerkin – SJÁ ÚRTAKA. Fellið af í annarri hverri umf 2-2-3 (3-5) sinnum og síðan í hverri umf 3-3-3 (3-2) sinnum = 6 l eftir á prjóni.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel. Sokkurinn mælist ca 10-11-12 (14-16) cm.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

symbols = sl
symbols = br
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 1 l br, 3 l sl af hjálparprjóni
symbols = setjið 1 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 1 l br af hjálparprjóni
symbols = setjið 3 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 3 l sl, 3 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-5

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (114)

country flag Margaret Mahony wrote:

This is such a cute set i couldn't resist making it. my skill levle is intermediate but not proficient in reading charts. I have decreased 60 sts evenly. now 'Work next round M1,P32,M2,P32 (total 3 times). looking at the diagram for M1 i should P2,K6,P2 and for M2 k6? or am i supposed to for M1 P1, slip 1,K3P1 from the cable needle thenslip 3,P1K3 from the cable? thank you

24.05.2019 - 06:34

DROPS Design answered:

Dear Mrs Mahony, start reading diagrams from the bottom corner on the right side towards the left on every round (= row 1 in M.1 will be the one with the cable) - read more about diagrams here. Happy knitting!

24.05.2019 - 08:28

country flag Mel wrote:

Thanks for your fast reply but I am very confused. On the poncho after the 25 times of alternate row decreases I do have the 90 stitches I should have. If I continue the 50 rounds with the decreases on every other row as you direct won’t I run out of stitches?? And how can I then have 32 rows? Please explain because this does not seem to be on the original pattern which is terribly confusing.

18.05.2019 - 03:19

DROPS Design answered:

Dear Mel, the 32 rows = 10 cm is the tension you should have and keep. You decrease every other row a total of 25 times (= 1 row with decrease, 1 row without decrease) so that you will have worked a total of 50 rows when 90 sts remain. Work next round with K stitches while decreasing 3 sts in each M.1 and M.2 = 72 sts remain. Happy knitting!

20.05.2019 - 09:53

country flag Mel wrote:

I am at the point where I have knitted the 90 stitches but the body of the poncho is only half the length it should be. I knitted six decreases on each end of the purl sections on every other row. Where is my mistake? I hope I can finish this beautiful outfit but the instructions are not easy to follow. Thank you.

17.05.2019 - 05:49

DROPS Design answered:

Dear Mel, in the 3rd size you should have decrease every other round a total of 25 times (= you should have then worked 50 rounds from and including the 2nd round in first M.1/M.2). Is your tension right? You should have 32 rows = 10 cm. Happy knitting!

17.05.2019 - 09:01

country flag Micheline Lockerd wrote:

Towards the end of the pattern I am confused how to decrease 3 sts on all M.1 and M.2 repeats

23.04.2019 - 17:23

DROPS Design answered:

Dear Mrs Lockerd, just K2 tog a total of 3 times over the cable in M.1 and M.2, this way you will allow the piece to get the right width (cables require more stitches in width and in order to keep the correct width you will now have to decrease stitches over the cables). Happy knitting!

24.04.2019 - 08:40

country flag Danuta wrote:

Sorry,za moje nieprecyzyjne pytanie,przeczytalam jeszcze raz ze zrozumieniem I poncho wyszlo wspaniale,jest piekne,dziekuje!

11.02.2019 - 15:57

country flag Mary Lynn Verley wrote:

I am confused on the pattern line.... Repeat the dec on every 2-2-2 (3-3) round on the right and left side of each P-section alternately a total of 22-23-25 (20-21) times = 84-90-90 (112-120) sts. Am I dec twice in each repeat every OTHER round? If so that reduces 4 sts per section. By row 15, also counting non dec rounds, I am down to 72 sts and it says 22 times equals 84 sts. Please help

05.02.2019 - 14:55

DROPS Design answered:

Dear Mrs Verley, you decrease 1 stitch in each P-section, on first dec round dec on the right side of P-section, on next dec round dec on the left side of P-section (= alternately on the right and on the left side of P-section). You dec every other round = work 1 round decreasing 1 st in each P-section, work 1 round without decreases and repeat these 2 rows a total of 20-25 times depending on the size. Happy knitting!

05.02.2019 - 17:40

country flag Danuta wrote:

Hi!po przerobieniu 4 razy poncho,mam problem z zamknieciem oczek prosze pomozcie.pozdrowienia zCanady.

29.01.2019 - 17:15

DROPS Design answered:

Witaj Danusiu, napisz, o którym fragmencie wzoru mówimy, bo nie wiem o które zamykanie oczek chodzi. Pozdrawiamy!

28.02.2019 - 18:04

country flag Francesca Cecchet wrote:

Buonasera!\r\nSto cominciando questo modello, \r\nla taglia 6/9 mesi. ma montare 288maglie non è troppo?\r\n\r\nGrazie\r\nFrancesca

19.06.2018 - 18:47

DROPS Design answered:

Buonasera Francesca. Il numero delle maglie è corretto.  Si lavora dal bordo in basso a coste verso l'alto (collo). Sia il bordo a coste che il motivo a trecce stringono un po' il lavoro. Buon lavoro !

19.06.2018 - 20:12

Olga Lucía Pineda wrote:

Hermoso proyecto, ya lo realice y no tuve dificultades muy bien explicado. Mil gracias.

23.02.2018 - 18:41

country flag Danielle wrote:

Je viens de realiser le poncho et le bonnet taille 2 ans. Je voudrais faire les chaussons mais les explications commencent par "diminution talon" alors je ne sais pas du tout par ou commencer. Pouvez vous m'aider svp ? merci

12.09.2017 - 07:13

DROPS Design answered:

Bonjour Danielle, au début d'un modèle, vous trouverez les technniques employées, puis les explications du modèle, commencez sous "CHAUSSETTES" après les diminutions du talon et les diminutions. Bon tricot!

12.09.2017 - 08:40