DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Little Acorn

Prjónuð hjálmhúfa á börn í garðaprjóni og hálsklútur með hekluðum köntum úr DROPS Merino Extra Fine.

DROPS Baby 18-1
DROPS design: Mynstur nr ME-019-by
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Höfuðmál: Ca 40/42-42/44-44/46 (48/50-50/52) cm.
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) g nr 08, ljós beige
50 g í allar stærðir nr 01, natur
----------------------------------------------------------
DROPS PRJÓNAR NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 42 umferðir í garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 4 – fyrir kanta.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 2772.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

HÚFA

ÚTAUKNING:
Öll útaukning er gerð frá réttu.
Aukið út lykkjur með því að slá uppá prjóninn. Til þess að koma í veg fyrir gat er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt í næstu umferð (þ.e.a.s. prjónið í aftari lykkjubogann í stað fremri).

ÚRTAKA:
Öll úrtaka er gerð frá réttu.
Fækkið um lykkjur hvoru megin við lykkju með prjónamerki. Byrjið í lykkju á undan lykkju með prjónamerki: Setjið 1 lykkju á hjálparprjón aftan við stykkið, takið 1 lykkju óprjónaða (= lykkja með prjónamerki), prjónið næstu lykkju og lykkju af hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
------------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað fram og til baka – lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum (= garðaprjón).
Fitjið upp 97-105-109 (113-121) lykkjur á prjón 4 með ljós beige. Prjónið 1 umferð slétt frá röngu.
Setjið 7 prjónamerki í stykkið þannig (frá réttu):
1. prjónamerki í fyrstu lykkjur á prjóni.
2. prjónamerki í lykkju nr 18-20-21 (22-24)
3. Prjónamerki í lykkju nr 35-39-41 (43-47)
4. Prjónamerki í lykkju nr 49-53-55 (57-61)
5. prjónamerki í lykkju nr 63-67-69 (71-75)
6. prjónamerki í lykkjur nr 80-86-89 (92-98)
7. prjónamerki í síðust lykkju á prjóni.
Haldið áfram að prjóna slétt – JAFNFRAMT í umferð 1 byrjar útaukning og úrtaka – sjá ÚTAUKNING og ÚRTAKA – að ofan.

Aukið út um 1 lykkjur á eftir 1. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju á undan 3. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju á eftir 3. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki í 4. hverri umferð 5-7-8 (10-11) sinnum og síðan í annarri hverri umferð til loka.
Þ.e.a.s. þegar byrjað er að fækka lykkjum í annarri hverri umferð kemur lykkjufjöldinn til með að fækka.
Aukið út um 1 lykkju á undan 5. prjónamerki í 4. hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju á eftir 5. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 6. prjónamerki í annarri hverri umferð.
Aukið út um 1 lykkju á undan 7. prjónamerki í annarri hverri umferð.

Þegar stykkið mælist 13-15-16 (18-19) cm (mælt frá neðsta horni við 2. eða 6. prjónamerki og upp að lykkju á prjóni). Prjónið næstu umferð þannig frá réttu: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* JAFNFRAMT er fellt af.

FRÁGANGUR:
Bakhlið á húfu = fellið af kantinn, þ.e.a.s. tvö heil horn og tvö hálf horn.
Miðju hornið á þessum þremur heilu hornum á gagnstæðri hlið á stykki (= uppfitjunarkantur) nær niður á enni að framan.
Saumið húfuna saman kant í kant með smáu spori í hverja lykkju meðfram affellingarkantinum þannig: Saumið saman fyrsta hálfa hornið við fyrri helming á fyrsta heila horninu. Síðan er seinni helmingurinn á fyrsta heila horninu saumað saman við fyrri helming á seinna heila horninu. Eftir það er seinni helmingur á seinna heila horninu saumað saman við seinna hálfa hornið. Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan – saumið kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur.

HEKLAÐUR KANTUR:
Byrjið neðst í öðru hliðar horninu. Heklið með heklunál 4 með natur þannig: 1 fastalykkja í hornið, síðan eru heklaðir 20-22-24 (26-28) cm með loftlykkjum, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju og endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju (= snúra).
Heklið síðan kanti í kring á húfu þannig: * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* að hinu hliðar horninu. Heklið 20-22-24 (26-28) cm með loftlykkjum, snúið og heklið 1 keðjulykkju í hverja loftlykkju til baka og endið með 1 keðjulykkju í fastalykkju í hornið, heklið síðan kant í kring á húfu þannig: * 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fastalykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* að fyrsta hliðar horni, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
------------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
Prjónið slétt fram og til baka í öllum umferðum (= garðaprjón):
Fitjið upp 18-20-22 (24-26) lykkjur á prjón 4 með ljós beige. Prjónið þar til stykkið mælist ca 8-9-10 (11-12) cm. Skiptið stykkinu í miðju (= fyrir gat), setjið helming af lykkjum á þráð = 9-10-11 (12-13) lykkjur. Prjónið áfram yfir lykkjur á prjóni í 4-5-5 (6-6) cm (stykkið mælist alls 12-14-15 (17-18) cm).
Setjið lykkjur á þráð og setjið lykkjur til baka af fyrri þræði á prjóninn. Prjónið þar til stykkið nær sama máli beggja vegna við gatið. Setjið allar lykkjur til baka á prjóninn og prjónið áfram þar til hálsklúturinn mælist ca 44-47-51 (55-60) cm. Fellið af.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið í kringum hálsklútinn með natur og heklunál 4 þannig: * 1 fastalykkja, 3 loftlykkjur, 1 stuðull í fyrstu loftlykkju, hoppið yfir ca 1 cm *, endurtakið frá *-* og endið með 1 keðjulykkju í 1 fastalykkju í byrjun á umferð.

Mynstur

symbols = saumið a við a
symbols = saumið b við b
symbols = saumið c við c
symbols = saumið d við d
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (145)

country flag Amanda wrote:

Hej! Gällande virkad kant på halsduken så står det: ” *1 fm, 3 lm, 1 st i första lm, hoppa över ca 1 cm *”. Jag undrar över efter 3 lm: 1 st VAD i första lm? Tacksam för svar!

21.10.2023 - 13:27

DROPS Design answered:

Hej Amanda. "st" är förkortning för stolpe. Mvh DROPS Design

23.10.2023 - 14:45

country flag Judith wrote:

Hallo liebes Team, ist es richtig, dass bei den abnahmen mit der dargestellten Art immer zwei Maschen pro Abnahme, das heißt zum Beispiel vor und nach der zweiten Markierung jeweils zwei Maschen (=4) abgenommen werden? Oder mache ich die Abnahme nur einmal vor dem markierer? Oder mache ich ganz normale abnahmen zwei zusammenstricken? Danke!

18.05.2023 - 20:57

DROPS Design answered:

Liebe Judith, nehmen Sie so zu: nach der 1. Mark in jeder 2. Reihe. + vor der 3. Mark in jeder 2. Reihe + nach der 3. Mark in jeder 4. Reihe + vor der 5. Mark in jeder 4. Reihe + nach der 5. Mark in jeder 2. Reihe + vor der 7. Mark in jeder 2. Reihe. Gleichzeitig nehmen Sie so ab: in jeder 2. Reihe 1 M beidseitig von der 2. Mark + in jeder 4. Reihe zuerst, dann in jeder 2. Reihe beidseitig von der 4. Mark (dann wird die Maschanzahl abnehmen) + in jeder 2. Reihe beidseitig von der 6. Mark. Viel Spaß beim stricken!

19.05.2023 - 08:27

country flag Dina wrote:

Pouvez vous m'expliquer ce que veut dire "Tricoter 1 rang end sur l'envers " puisque le tricot se fait au point mousse, donc tout à l'endroit

03.03.2023 - 16:17

DROPS Design answered:

Bonjour Dina, effectivement, quand on tricote au point mousse, on tricote toujours à l'endroit, mais dans ce cas, on veut que le rang de montage soit placé avec le 1er rang sur l'envers; autrement dit, on tricote d'abord 1 rang endroit qui sera le 1er rang envers du bonnet, puis on continue comme indiqué, toujours à l'endroit, mais le rang suivant est le premier rang sur l'endroit. Bon tricot!

06.03.2023 - 08:46

country flag Bonnardel wrote:

Comment enregistrer l'explication pour que je puisse l'imprimer ?

12.11.2021 - 11:27

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bonnardel, cliquez sur 'imprimer" et choisissez ensuite une imprimante virtuelle pour l'enregistrer en .PDF. Bon tricot!

12.11.2021 - 14:08

country flag Emma wrote:

Hi there. I am not sure how to start this pattern. Do you knit the first row placing markers AND increasing/decreasing. I'm confused as it says knit 1st row from WS? So do I knit one row first, but that would be RS and Inc and Dec would be on WS? Thanks for your help

19.09.2021 - 20:57

DROPS Design answered:

Dear Emma, After casting on the stitches, knit one row, which will be the wrong side of the piece, and while knitting, put the parkers in, so in the next row, which will be the right side, you can start the decreases. Happy Stitching!

20.09.2021 - 02:38

country flag Monica Heikendahl wrote:

Ska man byta till stickor 6 efter man delat på arbetet /(Då man kommit till hålet)?

11.04.2020 - 23:50

DROPS Design answered:

Hej Monica Du stickar allt med sticka nr 4. Mvh DROPS Design

16.04.2020 - 08:15

country flag Anna wrote:

Würden Sie bitte klären, wie oft man bei Marke 4 in jeder vierten Reihe abnehmen muss? In der deutschen Anleitung steht 3-4-5 (5-6) Mal und in der englischen Anleitung steht 5-7-8 (10-11) Mal. Eine sehr schöne Mütze. Die Abnahmen sehen sehr dekorativ aus. Danke!

09.12.2019 - 09:46

DROPS Design answered:

Liebe Anna, laut original Anleitung (Norwegisch), soll man 5-7-8 (10-11) Mal abnhemen - deutsche Anleitung wird korrigiert. Vile Spaß beim stricken!

09.12.2019 - 09:56

country flag Katrine wrote:

Hej, er helt ny i i strikkeverdenen :) Angående halstørklædet; når jeg har delt og strikket den første del af "hullet" så er jeg nødt til at klippe garnet og starte på den anden del, ikke?

12.03.2019 - 21:30

DROPS Design answered:

Hej Katrine, ja det stemmer, du er nødt til at klippe garnet først. God fornøjelse! :)

13.03.2019 - 14:07

country flag Simone wrote:

Liebes Dropsteam, ich habe schon unzählige dieser süßen Mützen gestrickt. Meinen Sie, es würde zu starken Größenabweichungen kommen, wenn ich sie mal aus Drops Nepal mache? Mit der identischen Nadelstärke? Viele Grüße

19.11.2018 - 08:27

DROPS Design answered:

Liebe Simone, diese Mütze wird mit einem Garn der Garngruppe B (Merino Extra Fine) gestrickt, Nepal gehört zur Garngruppe C und hat eine ganz andere Maschenprobe, die Anleitung passt einem dickeren Garn nicht, um das gleiche Ergebnis wie auf dem Foto zu bekommen, soll Ihre Maschenprobe genau stimmen. Viel Spaß beim stricken!

19.11.2018 - 09:23

country flag Simone wrote:

Liebes Dropsteam, ich habe schon viele dieser süßen Mützen gestrickt und möchte nun ein passendes Dreieckstuch /Schal machen. Mit der angenommenen Masche in der Mitte des Tuches zur Spitze laufend, wie bei der Mütze. Da ich dann in jedem 2. Reihe eine Masche abnehme, muss ich in dieser Reihe doch dann auch eine zunehmen oder? Wo mache ich das am besten? Liebe Grüße

08.08.2018 - 21:15

DROPS Design answered:

Liebe Simone, Anleitung für Dreiecktücher finden Sie bei DROPS Children 23-54 und 23-53, davon können Sie sich inspirieren. Viel Spaß beim stricken!

09.08.2018 - 08:46