DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 17-1
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-96/104)
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
200-200-250 (250-300) g nr 15, ljós grágrænn

HÚFA:
Stærð: 1/3-6/9-12/18 mán (2-3/4) ára
Höfuðmál: 42-44-46 (48-50) cm
Efni:
DROPS MERINO EXTRA FINE frá Garnstudio
50-50-100 (100-100) g nr 15, ljós grágrænn

PEYSA:
DROPS SOKKAPRJÓNAR og HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 4
DROPS TRÉTALA NR 503: 6 st.

HÚFA:
DROPS HRINGPRJÓNAR (60 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 l x 28 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 4
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Merino Extra Fine
DROPS Merino Extra Fine
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4620.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan.
1 HNAPPAGAT = prjónið aðra og þriðju l frá miðju slétt saman og sláið síðan uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 4, 8, 13, 17, 22 og 26 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 4, 9, 14, 19, 24 og 29 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 4, 10, 16, 22, 28 og 33 cm.
STÆRÐ 2 ára: 5, 11, 18, 24, 31 og 37 cm.
STÆRÐ 3/4 ára: 5, 12, 19, 26, 33 og 40 cm.

ÚRTAKA (á við um peysu):
Öll úrtaka er gerð frá réttu!
Fækkið l til skiptis vinstra og hægra megin við alla kaðla með því að prjóna 2 l br saman. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti sem l er fækkað er það gert vinstra megin við alla kaðlana og í næsta skipti hægra megin við alla kaðlana o.s.frv.
Einungis er lykkjum fækkað innan við ysta kaðal við kant að framan í hvorri hlið.

PICOTKANTUR:
Heklið með heklunál nr 4: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*.
----------------------------------------------------------

PEYSA

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan.
Fitjið upp 128-144-158 (170-186) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (umf 1 = rétta) – sjá útskýringu að ofan!
Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l (þ.e.a.s. 2 l eru auknar út til 4 l), prjónið br þar til 8 l eru eftir, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l, 1 l br og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 132-148-162 (174-190) l.
Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. á eftir 36-40-44 (47-51) l inn frá hvorri hlið (= 60-68-74 (80-88) l á bakstykki á milli prjónamerkja).
Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l sl, M.1, prjónið sl þar til 10 l eru eftir, M.1, 1 l sl og 5 kantlykkjur í garðaprjóni.
Næsta umf frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l br, M.1, prjónið br þar til 10 l eru eftir, M.1, 1 l br og 5 kantlykkjur í garðaprjóni.
Haldið áfram uppúr með kant að framan í garðaprjóni, 1 l innan við kant að framan í sléttprjóni með rönguna út, síðan 1 kaðal (= M.1) í hvorri hlið og þær l sem eftir eru í sléttprjóni með rönguna út.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um eina l hvoru megin við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l br saman. Endurtakið úrtöku uppúr með 4 cm millibili alls 4-4-4 (5-5) sinnum = 116-132-146 (154-170) l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan.
Þegar stykkið mælist ca 19-21-24 (27-30) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu – fækkið um 6 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við prjónamerki) = 104-120-134 (142-158) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.
Fitjið upp 28-30-32 (34-38) l á sokkaprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjóni með rönguna út – setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um eina l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu í 6.-5.-6. (6.-8.) hverri umf alls 5-6-7 (8-8) sinnum = 38-42-46 (50-54) l. Þegar stykkið mælist 14-15-18 (22-26) cm fellið af 6 l mitt undir ermi = 32-36-40 (44-48) l.
Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 168-192-214 (230-254) l. Prjónið 1 umf (frá réttu) með kant að framan og köðlum eins og áður og sléttprjón með rönguna út yfir þær l sem eftir eru – JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-6 (2-6) l jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan og yfir kaðla) = 168-188-208 (228-248) l.
Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l sl, M.1, * 8 l sl, prjónið 2 l br í hverja og eina af 2 næstu l (þ.e.a.s 2 l eru auknar í 4 l) *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir, 8 l sl, M.1, 1 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 196-220-244 (268-292) l.
Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, M.1, * 8 l br, M.1 (passið uppá að byrja í sömu umf í M.1 eins og áður þegar kantur að framan var prjónaður) *, endurtakið frá *-* 15-17-19 (21-23) sinnum, 1 l br og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni.
Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar ÚRTAKA fyrir berustykki – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram með úrtöku í 8. hverri umf: 0-0-1 (2-3) sinnum til viðbótar, í 6. hverri umf: alls 1-2-2 (1-1) sinnum og síðan í 4. hverri umf: alls 4-3-2 (2-1) sinnum (nú eru 2 lykkjur br á milli kaðla). JAFNFRAMT þegar berustykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm eru sett 8 l í byrjun umf á þráð fyrir hálsmáli. Í byrjun næstu umf eru sett 8 l á þráð í hinni hliðinni fyrir hálsmáli.
Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð, í hvorri hlið: 1 lykkja 2 sinnum. Þegar berustykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm fækkið allar 2 l br á milli kaðla yfir í 1 l br og þær 4 l sl á hverjum kaðli eru prjónaðar saman 2 og 2. Nú eru ca 43-49-55 (61-67) l eftir á prjóni.

KRAGI:
Takið upp 10 l í kanti að framan í báðum hliðum – meðtaldar l af þráðum. Prjónið 1 umf slétt á röngunni jafnframt er l fækkað jafnt yfir til 50-54-58 (62-66) l. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til kraginn mælist 3-3-4 (4-5) cm. Fækkið síðan um 1 l í byrjun á hverri umf 4 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Kraginn mælist ca 5-5-6 (6-7) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.
Heklið PICOTKANTUR – sjá útskýringu að ofan - í kringum kraga, ermar og neðst í kringum fram- og bakstykki. Saumið tölur í.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna!
Fitjið laust upp 64-70-76 (82-88) l á hringprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan!
Prjónið frá réttu þannig: 1 l sl, * prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l, 1 l sl = 86-94-102 (110-118) l.
Prjónið frá röngu þannig: 1 l sl, * M.1, 4 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, þær eru prjónaðar í M.1 og 1 l sl.
Prjónið frá réttu þannig: 1 l sl, * M.1, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, þær eru prjónaðar í M.1 og 1 l sl.
Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 10-11-12 (13-14) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið saman 4 l sl yfir hvern kaðal tvær og tvær l saman = 64-70-76 (82-88) l.
Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 23-25-27 (29-31) l, prjónið út umf.
Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 23-25-27 (29-31) l í hinni hliðinni = 18-20-22 (24-26) l eftir á prjóni.
Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar l í 11-12-13 (14-15) cm og fellið síðan af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman miðjustykki við hliðarstykki – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur.
Takið upp ca 60 til 84 l (deilanlegt með 4) neðst í kringum húfuna á hringprjóna nr 4. Prjónið eina umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu.
Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 2 l sl, * 2 l br saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir. Prjónið þær slétt. Prjónið síðan 2 umf slétt áður en fellt er af.
Heklið með heklunál nr 4 eina snúru með ll ca 70 cm og þræðið inn í kant með gataumferð.
Heklið PICOTKANTUR – sjá útskýringu að ofan – í kringum kant framan á húfunni.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 26.02.2018
BERUSTYKKI:... Fellið síðan af í byrjun á hverri umf, á hvorri hlið: 1 l 2 sinnum. Þegar berustykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm fækkið allar 3 l br á milli kaðla yfir í 2 l br og þær 4 l sl yfir hverjum kaðli eru prjónaðar saman tvær og tvær. Nú eru ca 43-49-55 (61-67) l eftir á prjóni.
Yfirfarið á vefsvæði: 23.03.2021
ÚRTAKA:...Lykkjum er eingungis fækkað innan við ysta kaðal við kant að framan í hvorri hlið.
BERUSTYKKI:..Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar ÚRTAKA fyrir berustykki – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram með úrtöku í 8. hverri umf: 0-0-1 (2-3) sinnum til viðbótar, í 6. hverri umf: alls 1-2-2 (1-1) sinnum og síðan í 4. hverri umf: alls 4-3-2 (2-1) sinnum (nú eru 2 lykkjur br á milli kaðla). JAFNFRAMT þegar berustykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm eru sett 8 l í byrjun umf á þráð fyrir hálsmáli. Í byrjun næstu umf eru sett 8 l á þráð í hinni hliðinni fyrir hálsmáli.
Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð, í hvorri hlið: 1 lykkja 2 sinnum. Þegar berustykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm fækkið allar 2 l br á milli kaðla yfir í 1 l br og þær 4 l sl á hverjum kaðli eru prjónaðar saman 2 og 2. Nú eru ca 43-49-55 (61-67) l eftir á prjóni.

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir framan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 17-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (197)

Sita wrote:

K tog the 4 sts on each cable 2 by 2 it means knit 4 sts tog once or knit 2 tog then k2tog again

07.12.2012 - 17:58

DROPS Design answered:

Yes Sita, each cable is K4, so K2tog twice will dec 2 sts on cable. Happy Knitting !

08.12.2012 - 11:09

Sita wrote:

Hi i am kitting it and face with alot of problems so search net and others who knit it are problems too is it possible tp rewrite the pattern again and with some picture in order to k.itters k.it it easly

07.12.2012 - 17:29

DROPS Design answered:

Dear Sita, we'll try to help you answering your questions, but don't forget to contact the shop where you bought your yarn for any individual assistance. Happy knitting !

08.12.2012 - 11:08

Sita wrote:

Hi please explain decrease for size 1-3 how many rows do we decrease for yoke

07.12.2012 - 15:17

DROPS Design answered:

Dear Sita, for size 1-3 month, you will decrease for yoke : every 6th row : 1 time, every 4th row : 4 times. Don't forget the dec for neckline each side ! Happy Knitting !

07.12.2012 - 16:54

Sita wrote:

Hi can you explain more abour decreasing (since dec on every 8 rows...... To end of dec) i am confused and i didnot buy your yarn in order to ask from your shop please help thanks

04.12.2012 - 20:04

DROPS Design answered:

Dear Sita, you have to work 1 round dec, 7 rows without dec (= every 8th row), then work 1 round dec, work 5 rows without dec (= every 6th row), and work 1 round dec, work 4 rows without dec (= every 4th row), repeat the number of times indicated for your size. Happy knitting !

06.12.2012 - 09:39

Zim wrote:

Hi if i want to knit this with 90 cast on stich how should i change sleeve and yoke

27.11.2012 - 19:58

DROPS Design answered:

Dear Kim, may we ask you to look for another pattern in our pattern database? Thank you and happy knitting!

28.11.2012 - 11:02

country flag Steffi wrote:

Hallo,ich verstehe den Absatz leider nicht ganz.Können Sie mir helfen?Stricke die Größe 6/9Monate. "Mit dem Muster so weiterfahren – GLEICHZEITIG bei der nächsten R. mit dem Abnehmen für die Passe anfangen – SIEHE TIPP ZUM ABNEHMEN. Weiter bei jeder 8. R. abn.: 0 Mal, bei jeder 6. R.: 2 Mal und danach bei jeder 4. R.: 3 Mal." Wann und wie oft nehme ich ab? LG

15.10.2012 - 14:02

DROPS Design answered:

Hallo Steffi, für die Grösse nehmen Sie 2 x in jeder 6. R und 3 x in jeder 4. R ab. Wo Sie abnhemen steht unter dem TIPP ZUM ABNEHMEN.

17.10.2012 - 08:37

country flag Frau Kürbis wrote:

Ich komme mit dem abnehmen bei der passe nicht klar. ich stricke die kleinste größe. sie schreiben 15reihen im muster stricken, Abnahme nach 8.reihe-0-, dann nach 6.reihe-1x-,dann 4x alle 4 reihen???? das sind ja anstelle von 15reihen schon 30reihen(wäre ja viel zu groß dann.Wenn ich alle abnahme maschen rechne komme ich zum ende hin auch auf 53maschen und nicht auf ca 43. wo liegt da mein denkfehler, bitte helfen sie mir.danke

17.08.2012 - 21:34

DROPS Design answered:

Ich kann die Stelle mit den 15 Reihen nicht finden - können Sie das zitieren?

23.08.2012 - 12:43

country flag Soleil D(Oc wrote:

C'est un tres joli modele, je l'ai tricote en couleur rouille. Merci drops desing !

24.07.2012 - 16:29

country flag Crepel wrote:

Erreur niveau diminutions dernière empiècement

11.04.2012 - 12:19

DROPS Design answered:

Bonjour Crepel, les indications de l'empiècement paraissent justes et ce modèle a déjà été réalisé tellement de fois avec succès. si toutefois vous pensé avoir repéré une erreur, n'hésitez pas à nous expliquer en détail. Merci.

13.04.2012 - 08:47

country flag Margarett wrote:

Hoping for a little guidance. I have knitted this up to the part when you need to slip 8 stitches at each side onto holders and I don't understand the next instruction - "Cast off to shape the neckline each side at the beginning of every row from mid front : 1 st 2times. -- Does this mean to cast of 1 stitch at the beginning of the next two rows or the next four rows? Thanks.

01.04.2012 - 03:53

DROPS Design answered:

You cast off 1 st 2 times each side - so a total of 4 rows.

09.04.2012 - 23:59