Cable Princess |
|||||||
|
|
||||||
Sett með prjónaðri peysu og húfu fyrir börn með köðlum úr DROPS Merino Extra Fine
DROPS Baby 17-1 |
|||||||
GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka): Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf. GARÐAPRJÓN (prjónað í hring): *1 umf sl og 1 umf br*, endurtakið frá *-*. MYNSTUR: Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. HNAPPAGAT: Fellið af fyrir hnappagötum á hægri kant að framan. 1 HNAPPAGAT = prjónið aðra og þriðju l frá miðju slétt saman og sláið síðan uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: STÆRÐ 1/3 mán: 4, 8, 13, 17, 22 og 26 cm. STÆRÐ 6/9 mán: 4, 9, 14, 19, 24 og 29 cm. STÆRÐ 12/18 mán: 4, 10, 16, 22, 28 og 33 cm. STÆRÐ 2 ára: 5, 11, 18, 24, 31 og 37 cm. STÆRÐ 3/4 ára: 5, 12, 19, 26, 33 og 40 cm. ÚRTAKA (á við um peysu): Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið l til skiptis vinstra og hægra megin við alla kaðla með því að prjóna 2 l br saman. Þ.e.a.s. í fyrsta skipti sem l er fækkað er það gert vinstra megin við alla kaðlana og í næsta skipti hægra megin við alla kaðlana o.s.frv. Einungis er lykkjum fækkað innan við ysta kaðal við kant að framan í hvorri hlið. PICOTKANTUR: Heklið með heklunál nr 4: 1 fl í fyrstu l, * 4 ll, 1 st í fyrstu ll (= 1 picot), hoppið yfir 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-*. ---------------------------------------------------------- PEYSA FRAM- OG BAKSTYKKI: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Fitjið upp 128-144-158 (170-186) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN (umf 1 = rétta) – sjá útskýringu að ofan! Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l (þ.e.a.s. 2 l eru auknar út til 4 l), prjónið br þar til 8 l eru eftir, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l, 1 l br og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 132-148-162 (174-190) l. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, þ.e.a.s. á eftir 36-40-44 (47-51) l inn frá hvorri hlið (= 60-68-74 (80-88) l á bakstykki á milli prjónamerkja). Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l sl, M.1, prjónið sl þar til 10 l eru eftir, M.1, 1 l sl og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Næsta umf frá réttu: 5 kantlykkjur í garðaprjóni, 1 l br, M.1, prjónið br þar til 10 l eru eftir, M.1, 1 l br og 5 kantlykkjur í garðaprjóni. Haldið áfram uppúr með kant að framan í garðaprjóni, 1 l innan við kant að framan í sléttprjóni með rönguna út, síðan 1 kaðal (= M.1) í hvorri hlið og þær l sem eftir eru í sléttprjóni með rönguna út. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4 cm er fækkað um eina l hvoru megin við hvert prjónamerki með því að prjóna 2 l br saman. Endurtakið úrtöku uppúr með 4 cm millibili alls 4-4-4 (5-5) sinnum = 116-132-146 (154-170) l. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-4-4 (5-5) cm fellið af fyrir HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan – meðfram kanti að framan. Þegar stykkið mælist ca 19-21-24 (27-30) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð frá röngu – fækkið um 6 l í hvorri hlið (þ.e.a.s. 3 l hvoru megin við prjónamerki) = 104-120-134 (142-158) l eftir á prjóni. Geymið stykkið og prjónið ermar. ERMI: Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna. Fitjið upp 28-30-32 (34-38) l á sokkaprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram í sléttprjóni með rönguna út – setjið eitt prjónamerki í byrjun umf = miðja undir ermi. Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um eina l hvoru megin við prjónamerkið. Endurtakið útaukningu í 6.-5.-6. (6.-8.) hverri umf alls 5-6-7 (8-8) sinnum = 38-42-46 (50-54) l. Þegar stykkið mælist 14-15-18 (22-26) cm fellið af 6 l mitt undir ermi = 32-36-40 (44-48) l. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi alveg eins. BERUSTYKKI: Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 168-192-214 (230-254) l. Prjónið 1 umf (frá réttu) með kant að framan og köðlum eins og áður og sléttprjón með rönguna út yfir þær l sem eftir eru – JAFNFRAMT er fækkað um 0-4-6 (2-6) l jafnt yfir (ekki fækka lykkjum yfir kant að framan og yfir kaðla) = 168-188-208 (228-248) l. Næsta umf er prjónuð (frá röngu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l sl, M.1, * 8 l sl, prjónið 2 l br í hverja og eina af 2 næstu l (þ.e.a.s 2 l eru auknar í 4 l) *, endurtakið frá *-* þar til 8 l eru eftir, 8 l sl, M.1, 1 l sl og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni = 196-220-244 (268-292) l. Næsta umf er prjónuð (frá réttu) þannig: 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni, 1 l br, M.1, * 8 l br, M.1 (passið uppá að byrja í sömu umf í M.1 eins og áður þegar kantur að framan var prjónaður) *, endurtakið frá *-* 15-17-19 (21-23) sinnum, 1 l br og 5 kantlykkjur að framan í garðaprjóni. Haldið svona áfram með mynstur – JAFNFRAMT í næstu umf frá réttu byrjar ÚRTAKA fyrir berustykki – sjá útskýringu að ofan! Haldið áfram með úrtöku í 8. hverri umf: 0-0-1 (2-3) sinnum til viðbótar, í 6. hverri umf: alls 1-2-2 (1-1) sinnum og síðan í 4. hverri umf: alls 4-3-2 (2-1) sinnum (nú eru 2 lykkjur br á milli kaðla). JAFNFRAMT þegar berustykkið mælist 8-9-10 (11-12) cm eru sett 8 l í byrjun umf á þráð fyrir hálsmáli. Í byrjun næstu umf eru sett 8 l á þráð í hinni hliðinni fyrir hálsmáli. Fækkið síðan lykkjum í byrjun á hverri umferð, í hvorri hlið: 1 lykkja 2 sinnum. Þegar berustykkið mælist 10-11-12 (13-14) cm fækkið allar 2 l br á milli kaðla yfir í 1 l br og þær 4 l sl á hverjum kaðli eru prjónaðar saman 2 og 2. Nú eru ca 43-49-55 (61-67) l eftir á prjóni. KRAGI: Takið upp 10 l í kanti að framan í báðum hliðum – meðtaldar l af þráðum. Prjónið 1 umf slétt á röngunni jafnframt er l fækkað jafnt yfir til 50-54-58 (62-66) l. Prjónið garðaprjón fram og til baka þar til kraginn mælist 3-3-4 (4-5) cm. Fækkið síðan um 1 l í byrjun á hverri umf 4 sinnum í hvorri hlið, fellið síðan af þær l sem eftir eru. Kraginn mælist ca 5-5-6 (6-7) cm. FRÁGANGUR: Saumið saman op undir ermum. Heklið PICOTKANTUR – sjá útskýringu að ofan - í kringum kraga, ermar og neðst í kringum fram- og bakstykki. Saumið tölur í. ---------------------------------------------------------- HÚFA: Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna! Fitjið laust upp 64-70-76 (82-88) l á hringprjóna nr 4 með Merino Extra Fine. Prjónið 4 umf GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan! Prjónið frá réttu þannig: 1 l sl, * prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 3 l eru eftir, prjónið 2 l sl í hverja og eina af 2 næstu l, 1 l sl = 86-94-102 (110-118) l. Prjónið frá röngu þannig: 1 l sl, * M.1, 4 l sl *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, þær eru prjónaðar í M.1 og 1 l sl. Prjónið frá réttu þannig: 1 l sl, * M.1, 4 l br *, endurtakið frá *-* þar til 5 l eru eftir, þær eru prjónaðar í M.1 og 1 l sl. Haldið áfram með þetta mynstur þar til stykkið mælist ca 10-11-12 (13-14) cm – passið að næsta umf sé prjónuð frá réttu – prjónið saman 4 l sl yfir hvern kaðal tvær og tvær l saman = 64-70-76 (82-88) l. Í næstu umf frá röngu eru felldar af fyrstu 23-25-27 (29-31) l, prjónið út umf. Í næstu umf frá réttu eru felldar af fyrstu 23-25-27 (29-31) l í hinni hliðinni = 18-20-22 (24-26) l eftir á prjóni. Prjónið garðaprjón fram og til baka yfir þessar l í 11-12-13 (14-15) cm og fellið síðan af. FRÁGANGUR: Saumið saman miðjustykki við hliðarstykki – saumið kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur. Takið upp ca 60 til 84 l (deilanlegt með 4) neðst í kringum húfuna á hringprjóna nr 4. Prjónið eina umf slétt frá röngu og 1 umf slétt frá réttu. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig: 2 l sl, * 2 l br saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* þar til 2 l eru eftir. Prjónið þær slétt. Prjónið síðan 2 umf slétt áður en fellt er af. Heklið með heklunál nr 4 eina snúru með ll ca 70 cm og þræðið inn í kant með gataumferð. Heklið PICOTKANTUR – sjá útskýringu að ofan – í kringum kant framan á húfunni. |
|||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||
|
|||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (197)
Marit Arnesen wrote:
Denne skulle jeg gjerne strikket
28.10.2008 - 08:57Inger wrote:
Vacker med enkla detaljer som gör att den ser elegant ut, skulle önskat att mössan gick ner lite i pannan kanske en virkad kant runt skulle göra mössan mer formad
27.10.2008 - 22:58Irene wrote:
Lovely. it's so cute
27.10.2008 - 13:25Marianne wrote:
Rigtig fin
26.10.2008 - 13:52Frances Churchill wrote:
This is adorable! I would love to do this for my granddaughter.
25.10.2008 - 06:51Dunja wrote:
Vacker och go.
24.10.2008 - 12:49Wiktoria Merete wrote:
Denne modellen er en hjerteknuser! Luen er prikken over i-en og kragen på jakken knytter det hele sammen. Merino-ull er den mykeste ulla en kan få. Her blir det flere plagg å strikke parallelt.
24.10.2008 - 10:11Roche-pateau wrote:
Très joli modèle; je connais déjà la petite fille qui portera ce superbe manteau
23.10.2008 - 22:46Maria wrote:
Helt underbar, passar bra som vår kappa til min lilla prinsessa
23.10.2008 - 18:32Margie Redmon wrote:
Beautiful pattern!!
22.10.2008 - 23:26