DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 990.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 18-21
DROPS Design: Mynstur nr Z-067-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Höfuðmál: Ca 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50 - 50/52) cm.

Efni: DROPS ALPACA frá Garnstudio
50-50-100 (100-100) g nr 8105, ísblár.

DROPS HRINPGPRJÓNAR (40 cm) NR 3 mm – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 mm – fyrir heklaðan kant.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 990.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

------------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umf.

------------------------------------------------------------

LAMBHÚSHETTA:
Stykkið er prjónað ofan frá og niður, fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 29-29-35 (35-41) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á hringprjóna nr 3 með Alpaca.
Prjónið frá réttu þannig:
UMFERÐ 1: 1 kantlykkja í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Haldið áfram alveg eins fram og til baka á hringprjóna þar til stykkið mælist ca 11-12-13 (14-16) cm.
Fellið nú af 1 kantlykkju í hvorri hlið = 27-27-33 (33-39) lykkjur, klippið frá.
Prjónið upp frá réttu innan við 1 kantlykkju þannig: 25-31-31 (37-43) lykkjur í hægri hlið á stykki (uppfitjunarkantur að þér), prjónið 27-27-33 (33-39) lykkjur á prjóni (haldið áfram með stroff) og prjónið upp 25-31-31 (37-43) lykkjur (innan við 1 kantlykkju) meðfram vinstri hlið á stykki = 77-89-95 (107-125) lykkjur.
Prjónið áfram fram og til baka á hringprjóna frá röngu þannig: 1 kantlykkja í garðaprjón, * 3 lykkjur brugðið, 3 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* og endið með 3 lykkjur brugðið og 1 kantlykkju í garðaprjóni.
Frá réttu er prjónað þannig: 1 kantlykkja, * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 3 lykkjur slétt og 1 kantlykkju.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 11-12-13 (14-15) cm (frá þar sem lykkjur voru prjónaðar upp) fitjið upp 13-13-13 (19-19) lykkjur í lok umferðar í næstu umferð frá réttu = 90-102-108 (126-144) lykkjur.
HÉÐAN ER NÚ STYKKIÐ MÆLT!
Haldið áfram með stroff = 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðið í hring á hringprjóna.
Þegar stykkið mælist 3-4-5 (5-6) cm er aukið út um 1 lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu með því að prjóna 2 lykkjur brugðið í fyrstu lykkju brugðið.
Endurtakið útaukningu til skiptis í síðustu og fyrstu lykkju í hverri brugðinni mynstureiningu í 3.-3.-3. (5.-5.) hverri umferð alls 6-6-6 (5-5) sinnum = 180-204-216 (231-264) lykkjur.
Þegar stykkið mælist ca 11-12-13 (14-15) cm fellið af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál nr 3 með Alpaca í kringum op á húfunni við andlit þannig: * 1 fastalykkja, 1 loftlykkja *, endurtakið frá *-*, endið með 1 keðjulykkju í fyrstu fastalykkju.
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 18-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (39)

country flag Liselotte Hansen wrote:

Valgte at erstatte garn med Babymerino, da jeg tænkte huen ville blive slasket foran i alpaca. Desværre dur det ikke rigtig, da ribstrikning i siderne trækker huen for langt bagud. Løsning blev at erstatte rib i siden med retstrik , mens der i midterstykket bag på hovedet forsættes i rib. Når der slås masker op under hagen strikkes atter i rib hele vejen rundt. Forkant strammes op med 4 pinde i retstrikning. Huen blev perfekt til barnebarn på 1 1/2

11.12.2020 - 19:43

country flag Gianna wrote:

Mi piace molto questo modello vorrei realizzarlo ma vi chiedo se posso farlo con i ferri normali e non circolari utilizzando sempre lo stesso filato e aghi n.3.Grazie

10.10.2020 - 21:06

DROPS Design answered:

Buongiorno Gianna. Può lavorare con i ferri dritti. Rimarrà aperta la parte finale a coste e sarà quindi necessario fare una cucitura laterale a fine lavoro. Buon lavoro!

11.10.2020 - 13:44

country flag Inger Hansen wrote:

Hej Jeg er nu i gang med hue nr. 2 til mine børnebørn på 3 og 7 uger. I stedet for en hæklet en kant rundt, har jeg samlet ca. 65 masker op og strikket en bredere kant i riller (hveranden pind ret og hveranden pind vrang) Huen er blevet meget bedre, og dækker nu de små hoveder perfekt

07.11.2019 - 08:05

country flag Lelletta wrote:

Grazie mille anche per la rapidità della risposta! Buon lavoro anche a voi!

26.06.2017 - 15:18

country flag Lelletta wrote:

Buongiorno! Ho aumentato le 13 maglie (12/18 mesi) otttendendo le 108 maglie, ma iniziando il ferro in tondo non riprendono più le coste del giro precedente, cioè sono sfalsate di una maglia. E' giusto così o c'è qualche errore? grazie infinite per la risposta

26.06.2017 - 11:26

DROPS Design answered:

Buongiorno Lelletta. Le coste devono essere incolonnate correttamente. Deve lavorare quella che era la maglia vivagno (quindi la prima maglia del giro) a dritto se le maglie della costa successiva sono a rovescio, o a rov se le maglie della costa successiva sono a diritto. Alla fine del giro le rimarranno 2 maglie che lavora come ha lavorato la prima maglia. In questo modo le coste procedono correttamente. Buon lavoro!

26.06.2017 - 12:22

country flag Eve Bardou wrote:

Bonjour, pouvez-vous préciser les augmentations (taille 12/18) Est-ce une maille (tantôt premiere, tantôt dernière ) sur toutes les sections envers d'un tour tous les 3 tours ? Ou bien Est-ce 6 mailles (tantôt première, tantôt dernière ) réparties sur 6 des 18 sections envers d'un tour tout les 3 rangs ? Dans ce cas, comment les repartir pour avoir un tricot uniforme?

06.12.2016 - 04:44

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Bardou, pour augmenter dans les sections en m env, tricotez d'abord 2 fois la 1ère m env de chaque section 3 m env = 4 m env. Pour l'augmentation suivante, tricotez 2 fois la dernière m env de chaque section 4 m env = 5 m env. Continuez ainsi en tricotant 2 fois la 1ère m de chaque section env à l'augmentation suivante puis 2 fois la dernière m env de chaque section en m env à l'augmentation suivante et ainsi de suite. Bon tricot!

06.12.2016 - 10:05

country flag Mabel wrote:

I read the pattern, but I'm confused. Do you have pictures, diagrams or video that show how to do the Little Knight baby hat? My problem is with the pick up st. No with the technique but where to do it.

20.10.2016 - 21:19

DROPS Design answered:

Dear Mabel, you are working here from top down starting with the straight piece on the top of head. When this piece is worked, cut the thread and leave sts on needle, then pick up sts along right side of piece (seen from RS), work the sts on needle (top of head = will be now back of head) and pick up sts along left side of piece. Work now back and forth over all sts. Happy knitting!

21.10.2016 - 09:22

country flag Tina Andersen wrote:

Måske en tegning af huen vil hjælpe mange til at forstå at man striker en hanekam fra pande til nakke først og derefter strikker siderne ....? Det var bare et forslag 😄 Nu prøver jeg den også. Tusind talk for gratis opskrifter 👍

26.02.2016 - 19:06

MetteHansen wrote:

Jeg har læst dette er en fantastisk hue. Jeg har strikket selve huen og skal nu til at tage masker ud til hals/nakke. Det volder mig problemer. Kan I lave et video klip eller beskrive det mere uddybende? På forhånd tak.

29.12.2015 - 10:49

DROPS Design answered:

Hej, jo men når du har strikket selve huen, er det bare at slå maskerne op i slutningen af pinden, sætte arbejdet sammen og fortsætte rundt fra halsen og ned. God fornøjelse!

25.01.2016 - 14:25

country flag Ulli wrote:

BabyDrops18-21 - Mütze: hallo, ich checks grad echt net... wer kann mir helfen. ich hab die Mütze nun soweit, dass ich die Maschen unterm Kinn angeschlagen hab. nun soll ich 3 re/3li. weiter arbeiten und nach 5 cm in jeder li.Partie 1 masche aufnehmen. ich gehe a) davon aus, dass ich nun in runden stricke und b) jetzt stimmt doch mein Muster nicht mehr. kann mir das bitte jemand erklären?! danke jetzt schon ... gruß ulli

20.10.2015 - 17:59

DROPS Design answered:

Ja, Sie stricken in Rd und Sie stricken das Muster dann entsprechend folgerichtig weiter, also mit 3 M re und 4 M li, dann mit 3 M re und 5 M li usw., die zugenommenen M werden also einfach weiter li gestrickt.

30.10.2015 - 09:48