Little Jamboree |
|||||||||||||
|
|
||||||||||||
Prjónuð peysa, húfa og sokkar fyrir börn úr DROPS Fabel. Peysa prjónuð frá hlið með stuttum umferðum. Stærð 1 mánaða til 4 ára.
DROPS Baby 16-3 |
|||||||||||||
PEYSA: ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- STUTTAR UMFERÐIR - FRAM- OG BAKSTYKKI: Til að flíkin verði víðari í neðri kanti verður að prjóna fleiri umferðir yfir neðstu lykkjurnar miðað við efstu lykkjur. Þetta er gert þannig: * Prjónið 20-22-24 (26-28) lykkjur, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka, prjónið 46-50-57 (65-70) lykkjur, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka, prjónið 64-70-80 (90-98) lykkjur, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka, prjónið 46-50-57 (65-70) lykkjur, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka, prjónið 20-22-24-26-28 lykkjur, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka, prjónið allar 70-76-86 (96-104) lykkjurnar, snúið stykkinu og prjónið til baka *, endurtakið frá *-*. Þ.e.a.s. 1 mynstureining = 12 umferðir yfir neðstu lykkjurnar og 2 umferðir yfir efstu lykkjurnar. STUTTAR UMFERÐIR – ERMI: * Prjónið 41-47-51 (63-72) lykkjur, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka, prjónið 59-67-74 (88-100) lykkjur, snúið stykkinu, takið fyrstu lykkjuna óprjónaða, herðið á þræði og prjónið til baka, prjónið allar 65-73-80 (94-106) lykkjurnar, snúið og prjónið til baka, * endurtakið frá *-*. Þ.e.a.s. 1 mynstureining = 6 umferðir yfir neðstu lykkjurnar og 2 umferðir yfir efstu lykkjurnar. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- PEYSA: Prjónið stykkið frá hlið frá vinstra framstykki, yfir ermi, síðan bakstykki, yfir hina ermina og að lokum hægra framstykki. Öll peysan er prjónuð slétt í öllum umferðum (= garðaprjón). FRAM- OG BAKSTYKKI: Fitjið laust upp 70-76-86 (96-104) lykkjur á prjón 2,5 með Fabel. Prjónið 10 umferðir slétt fram og til baka fyrir kant að framan (umferð 1 = rétta, þessi umferð byrjar frá neðri kanti). Prjónið síðan STUTTAR UMFERÐIR – FRAM- OG BAKSTYKKI – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist ca 13½-15-17 (18-19½) cm (mælt mitt í stykki frá uppfitjunarkanti og út að hlið) setjið síðan neðstu 41-45-52 (60-65) lykkjurnar í næstu umferð frá réttu á þráð (= í hlið), klippið frá og byrjið með að fitja upp 36-42-46 (58-67) nýjar lykkjur í byrjun á prjóni (= fyrir ermi) = 65-73-80 (94-106) lykkjur á prjóni. Prjónið út umferðina, snúið og prjónið til baka. Haldið áfram með STUTTAR UMFERÐIR – ERMI – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 16-17-18 (18-20) cm frá þar sem lykkjur voru fitjaðar upp fyrir ermi (mælt þar sem ermin er víðust) fellið af fyrstu 36-42-46 (58-67) lykkjur í næstu umferð frá réttu, prjónið út umferðina, snúið, prjónið til baka og prjónið til baka 41-45-52 (60-65) lykkjur af þræði í hlið á prjóni = 70-76-86 (96-104) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki í miðju lykkjuna, haldið áfram með STUTTAR UMFERÐIR – FRAM- OG BAKSTYKKI. Þegar stykkið mælist 23-26-30 (32-35) cm (mælt mitt í stykki frá prjónamerki) setjið neðstu 41-45-52 (60-65) lykkjur í næstu umferð frá réttu á þráð (= í hinni hliðinni). Klippið frá og byrjið með að fitja upp 36-42-46 (58-67) nýjar lykkjur í byrjun á umferð (fyrir ermi) = 65-73-80 (94-106) lykkjur á prjóni. Prjónið út umferðina, snúið og prjónið til baka. Haldið áfram með STUTTAR UMFERÐIR – ERMI þar til jafn margar umferðir hafa verið prjónaðar eins og á fyrri ermi. Í næstu umferð frá réttu eru felldar af neðstu 36-42-46 (58-67) lykkjurnar á ermi, prjónið út umferðina, snúið, prjónið til baka og prjónið inn 41-45-52 (60-65) lykkjur af þræði í hlið á prjóni = 70-76-86 (96-104) lykkjur. Prjónið STUTTAR UMFERÐIR – FRAM- OG BAKSTYKKI. Þegar prjónaðar hafa verið jafn margar umferðir á hægra framstykki eins og á vinstra framstykki (mínus 10 umferðir í kanti að framan) prjónið kant að framan þannig (umferð 1 = rétta): 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur, í næstu umferð er fellt af fyrir 5 hnappagötum þannig: Prjónið 14-16-18 (20-24) lykkjur, fellið af 2 lykkjur, * prjónið 11-12-14 (16-17) lykkjur, fellið af 2 lykkjur *, endurtakið frá *-* alls 4 sinnum, prjónið 2 síðustu lykkjur. Snúið og prjónið til baka jafnframt því sem fitjaðar eru upp 2 nýjar lykkjur yfir hvert hnappagat. Prjónið 4 umferðir til viðbótar, fellið laust af. FRÁGANGUR: Saumið saum undir ermum kant í kant svo að saumurinn verði ekki of þykkur, saumið tölur í. -------------------------------------------------------- HÚFA: ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- ÚTAUKNING: Öll útaukning er gerð frá réttu. Aukið er út með því að slá uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt til þess að koma í veg fyrir göt (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan). ÚRTAKA: Öll úrtaka er gerð frá réttu. Fækkað er um 1 lykkju hvoru megin við lykkju með prjónamerki þannig: Byrjið 1 lykkju á undan prjónamerki. Setjið 1 lykkju á hjálparprjón og setjið aftan við stykkið, takið 1 lykkju óprjónaða (= lykkja með prjónamerki), prjónið næstu lykkju og lykkju af hjálparprjóni slétt saman, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- HÚFA: Húfan er prjónuð fram og til baka. Fitjið upp 119-127-135 (139-145) lykkjur á prjóna nr 2,5 með Fabel. Prjónið 6 umferðir garðaprjón (umferð 1 = rétta). Setjið nú 7 prjónamerki í stykkið (frá réttu) þannig: 1. PRJÓNAMERKI í 1 lykkju. á prjóni. 2. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 22-24-26 (28-31). 3. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 43-47-51 (55-61). 4. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 60-64-68 (70-73). 5. PRJÓNAMERKI í lykkju nr 77-81-85 (85-85). 6. PRJÓNAMERKI Í lykkju nr 98-104-110 (112-115). 7. PRJÓNAMERKI í síðustu lykkju á prjóni. Prjónið áfram sléttprjón – JAFNFRAMT í umferð 1 byrjar útaukning og úrtaka – LESIÐ ÚTAUKNING og ÚRTAKA! Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 1. prjónamerki í annarri hverri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 2. prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 3. prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 3. prjónamerki í 4. hverri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 4. prjónamerki í 4. hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 5. prjónamerki í 4. hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á EFTIR 5. prjónamerki í annarri hverri umferð. Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við 6. prjónamerki í annarri hverri umferð. Aukið út um 1 lykkju Á UNDAN 7. prjónamerki í annarri hverri umferð. Þegar stykkið mælist 13-15-16 (18-19) cm (mælt neðst við odd við 2. eða 6. prjónamerki) prjónið næstu umferð frá réttu þannig: * 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman *, endurtakið frá *-* JAFNFRAMT sem fellt er af. FRÁGANGUR: Bakstykki á húfu = affellingarkantur, þ.e.a.s. 2 heil horn og 2 hálf horn. Miðjan á 3 heilu hornunum í gagnstæðri hlið á stykki (= uppfitjunarkantur) nær niður á ennið að framan. Saumið húfuna saman kant í kant með 1 spori í hverja l meðfram affellingarkanti þannig: Saumið fyrsta hálfa hornið saman við helminginn á fyrsta heila horninu. Saumið síðan hinn helminginn af fyrsta hálfa horninu saman við fyrri helming af öðru heila horninu. Saumið síðan annan helminginn af seinna heila horninu saman við síðasta hálfa hornið. Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan – passið að sauma kant í kant þannig að saumurinn verði ekki of þykkur. SNÚRA: Fitjið upp 4 lykkjur á prjón nr 2,5 með Fabel. Prjónið þannig: * Prjónið 1 lykkja slétt, færið þráðinn að framhlið á stykki (að þér), takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana brugðið, færið þráðinn aftur að bakhlið (frá þér) *, endurtakið frá *-* umferðina út og í öllum umferðum. Þetta verður núna hringlaga snúra. Fellið af þegar snúran mælist ca 20-22-24 (26-28) cm. Prjónið aðra snúru alveg eins. Saumið snúruna neðst í sitt hvort hornið í hliðum. ------------------------------------------------------- UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR: ------------------------------------------------------- HÆLÚRTAKA: UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 2 (ranga): Prjónið þar til 6-7-7 (7-8) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 5-6-6 (6-7) lykkjur eru eftir, lyftið 1 lykkju af prjóni, 1 lykkja brugðið, steypið lyftu lykkjunni yfir, snúið. Haldið áfram á sama hátt með því fækka um 1 lykkju áður en 1 lykkju er steypt yfir þar til 8-10-10 (10-12) lykkjur eru eftir á prjóni. ÚRTAKA-1: Fækkið lykkjum á undan stroffprjóni þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir stroffprjóni þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ÚRTAKA-2 Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir. ------------------------------------------------------- BYRJIÐ Á STYKKI HÉR: ------------------------------------------------------- SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI: Sokkarnir eru prjónaðir í hring á sokkaprjóna, ofan frá og niður að tá. SOKKUR: Fitjið upp 44-48-48 (52-56) lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með DROPS Fabel. Prjónið stroffprjón = 2 lykkjur slétt / 2 lykkjur bruðgið í 7-8-9 (10-11) cm. Haldið eftir fyrstu 18-22-22 (22-26) lykkjum á prjóni fyrir hæl (setjið hinar 26-26-26 (30-30) lykkjur á þráð = ofan á fæti). Prjónið sléttprjón yfir hællykkjur í 3-3½-4 (4-4½) cm – setjið prjónamerki. Prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan! Takið síðan upp 8-9-10 (11-12) lykkjur sitt hvoru megin við hæl og setjið til baka lykkjur af þræði (= ofan á) fæti á prjóninn = 50-54-56 (62-66) lykkjur. Haldið áfram í stroffprjóni yfir 26-26-26 (30-30) lykkjur ofan á fæti og sléttprjóni yfir þær lykkjur sem eftir eru. JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við stoffprjónslykkjurnar – SJÁ ÚRTAKA-1 í annarri hverri umferð alls 5-7-6 (7-9) sinnum = 40-40-44 (48-48) lykkjur. Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur þar til sokkurinn mælist 7-8-9 (10-12) cm frá prjónamerki á hæl (nú eru eftir 3-3-3 (4-4) cm að loka máli). Setjið prjónamerki í hvora hlið á sokknum, þ.e.a.s. að það verða 20-20-22 (24-24) lykkjur bæði ofan á fæti og undir fæti. Haldið áfram í sléttprjón yfir allar lykkjjur – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við hvort prjónamerki – SJÁ ÚRTAKA-2: Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð 3 sinnum og síðan í hverri umferð 5-5-6 (7-7) sinnum = 8 lykkjur eftir á prjóni. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru. Sokkurinn mælist nú ca 10-11-12 (14-16) cm. Prjónið annan sokk alveg eins. |
|||||||||||||
Skýringar á teikningu |
|||||||||||||
|
|||||||||||||
Hefur þú gert þessa eða einhverja af annarri hönnun frá okkur? Merktu myndirnar þínar á samfélagsmiðlum með #dropsdesign svo að við séð þær! Vantar þig aðstoð með þetta mynstur?Þú finnur kennslumyndbönd, dálk með athugasemdum/spruningum og fleira með því að skoða mynstrið á garnstudio.com © 1982-2024 DROPS Design A/S. Við áskiljum okkur öll réttindi. Þetta skjal ásamt öllum undirhlutum þess, hefur höfundarétt. Lestu meira varðandi hvað þú mátt gera við mynstrin okkar neðst á hverju mynstri á síðunni okkar. |
Athugasemdir / Spurningar (90)
Ingunn wrote:
Så søtt og farveglad sett nå er det fram med strikkepinnene håper vi ikke må vente alt for lenge:)
05.11.2008 - 20:16Anne-Marie Jenkins wrote:
Sooooooooooooo pretty!
05.11.2008 - 05:21Britta wrote:
I hope you will make this pattern up till 3 years - please!
01.11.2008 - 22:56Linda Rassa wrote:
I love this--how, where can I get this pattern?
30.10.2008 - 20:32TantPernilla wrote:
Ujuj, så fin!
29.10.2008 - 00:34Hélène wrote:
Très beau, d'une belle simplicité (apparente?) j'attends avec impatience les explications
25.10.2008 - 21:40Jelena wrote:
Denne var da søt ett flott litet sett
22.10.2008 - 22:29Cecilia wrote:
Jättefin! Älskar ert Fabel garn.
22.10.2008 - 00:10Alvhild wrote:
Klassisk babyfasong i ny design. Denne ser ut til å være velsittende og morsom å strikke.
21.10.2008 - 21:12Heidi Kolstadbråten wrote:
En søt og yndig jakke til en prinsesse, med lue og sokker blir jo dette et flott antrekk
21.10.2008 - 09:45