DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS Baby 11-15
DROPS Design mynstur Z-006-by
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Stærð: 1/3 mán - 6/9 mán.
Stærð í cm: 50/56 - 62/68.
Húfa höfuðmál: ca 40/42 - 44/46 cm.

Kjóll efni:
DROPS BabyAlpaca Silk frá Garnstudio.
500-550 gr litur nr 1101, hvítur

Heilgalli efni:
DROPS BabyAlpaca Silk frá Garnstudio.
300-300 gr litur nr 1101, hvítur

Húfa efni:
DROPS BabyAlpaca Silk frá Garnstudio.
50-50 gr litur nr 1101, hvítur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 25 l x 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm. ATH: Þegar mynstrið er prjónað þá verða fleiri umf á hæðina á 10 cm. Munið að uppgefin prjónastærð er eingöngu til viðmiðunar.

DROPS HEKLUNÁL NR 2,5

DROPS PERLUTALA NR 523: 5 st fyrir skírnarkjól, 5 st fyrir heilgalla.

FYLGIHLUTIR: Silkiborði í lit að eigin ósk. Skírnarkjóll: 560 cm. Heilgalli: 160 cm. Húfa: 80 cm = Alls 8 metrar.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS BabyAlpaca Silk
DROPS BabyAlpaca Silk
70% Alpakka, 30% Silki
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

PERLUPRJÓN:
UMFERÐ 1: * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, prjónið frá *-*.
UMFERÐ 2: Prjónið sléttar lykkjur yfir brugðnar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir sléttar lykkjur.
Endurtakið umferð 2.

FELLING:
Prjónið 1 umferð brugðið frá réttu, prjónið síðan 4 umferðir sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: * Takið upp toppinn á lykkju frá umferðinni að neðan sem prjónuð var brugðið, setjið lykkjuna á hægri prjón, prjónið 1 lykkju brugðið, steypið lykkjunni yfir prjónuðu lykkjuna þannig að lykkjan fellur af *, endurtakið frá *-*. Prjónið 2 umferðir sléttprjón á milli hverra fellinga.

ÚRTAKA-1 (á við um berustykki á kjól):
Fækkið lykkjum innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni.
Það eru tvær gerðir af úrtöku:
1. Úrtaka með gatamynstri og 2. Úrtaka án gatamynsturs.
Öll úrtaka er gerð frá réttu!

1. Úrtaka (= úrtaka með gatamynstri):
Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum þannig:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt, steypið lyftu lykkunni yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Fækkið lykkjum 3 lykkjum á undan 2 kantlykkjum í garðaprjóni þannig: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 3 l slétt saman.

2. Úrtaka (= úrtaka án gatamynsturs):
Fækkið lykkjum á eftir 2 kantlykkjum þannig:
Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum 2 lykkjum á undan 2 kantlykkjum í garðaprjóni þannig:
Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

ÚRTAKA-2 (á við um buxur fyrir miðju að framan):
Fækkið lykkjum hvoru megin við 2 lykkjur sléttprjón.
Fækkið lykkjum á undan 2 lykkjur þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á eftir 2 lykkjur þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.7. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

LAUFBLAÐAMYNSTUR:
UMFERÐ 1 (= ranga): * 5 lykkjur slétt, 5 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*, endið með 5 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= rétta): 2 lykkjur brugðið * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 3 lykkjur eru eftir, endið umferð með að slá 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn og 2 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 3,-5,-8,-9,-11,-13,-16, og 17: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, uppslátturinn er prjónaður brugðið.
UMFERÐ 4: 2 lykkjur brugðið, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 5 lykkjur eru eftir, endið umferð með 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt og 2 lykkjur brugðið.
UMFERÐ 6: 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* þar til 7 lykkjur eru eftir, endið umferð með 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt og 2 lykkja brugðið.
UMFERÐ 7: 2 lykkjur slétt, * 7 lykkjur brugðið, 5 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-* þar til 9 lykkjur eru eftir, endið umferð með 7 lykkjur brugðið og 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 10: 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjónan eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 12: 2 lykkjur brugði, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið, * 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 14: 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur brugðið, * 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 1 lykkja slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 15: 5 lykkjur slétt, * 7 lykkjur brugðið, 5 lykkjur slétt *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 18: 5 lykkjur brugðið, * lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 3 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt saman, 5 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.
UMFERÐ 19: Prjónið sléttar lykkjur yfir sléttar lykkjur og brugðnar lykkjur yfir brugðnar lykkjur, aukið út í 5 sléttu lykkja á milli hverra laufblaða þannig (aukið út með því að taka upp lykkju frá fyrri umferð): 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 3 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju, 1 lykkja slétt.
UMFERÐ 20: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur nema laufblöðin, yfir þær lykkjur er prjónað þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, 1 lykkja slétt, 2 lykkjur slétt saman.
UMFERÐ 21: 3 lykkjur í laufblöðum eru prjónaðar brugðið, aðrar lykkjur eru prjónaðar slétt og aukið er út á milli laufblaða þannig: 1 lykkja slétt, aukið út um 1 lykkju, 5 lykkjur slétt, aukið út um 1 lykkju.
UMFERÐ 22: Prjónið brugðið yfir allar lykkjur, nema 3 lykkjur yfir laufblöðum sem eru prjónaðar þannig: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

KJÓLL - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Pilsið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að aftan.

KJÓLL:
Fitjið laust upp 378-412 lykkjur á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk.
Prjónið M.1 (umferð 1 = rétta), en 2 lykkjur í hvorri hlið eru prjónaðar í garðaprjóni til loka. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið 1 umferð sléttprjón áður en prjónaðar eru 2 fellingar – sjá FELLING í útskýringu að ofan.

Prjónið síðan 4 fyrstu umferðir M.2 á meðan fækkað er um 11-13 lykkjur jafnt yfir (lykkjur sem ekki ganga upp í gataumferð eru prjónaðar í sléttprjóni) = 367-399 lykkjur.
Prjónið síðan næstu 9 umferðir M.2 þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 1 mynstureining með gatamynstri, síðan 3 mynstureiningar án gatamynsturs (= 24 lykkjur sléttprjón) *, endurtakið frá *-* þar til 13 lykkjur eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: 1 mynstureining með gatamynstri, 3 lykkjur sléttprjón og 2 lykkjur garðaprjón. (Í reitina þar sem prjónaðar voru 24 lykkjur sléttprjón mætti sauma út nafn barna sem nota kjólinn).
Prjónið síðan síðustu 4 umferðir M.2 yfir allar lykkjur (lykkjur sem ganga ekki upp í gataumferð eru prjónaðar í sléttprjóni). Prjónið síðan LAUFBLAÐAMYNSTUR – sjá útskýringu að ofan!

JAFNFRAMT í 1. umferð er fækkað um 18-20 lykkjur jafnt yfir = 349-379 lykkjur. Á eftir blaðamynstri er prjónað M.2 (2 lykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni) – jafnframt í 1. umferð er fækkað um 6-4 lykkjur jafnt yfir = 343-375 lykkjur.
Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón jafnframt er fækkað um 18-20 lykkjur jafnt yfir = 325-355 lykkjur.
Prjónið nú 2 fellingar, síðan 1 umferð í sléttprjóni jafnframt er fækkað um 21-31 lykkjur jafnt yfir = 304-324 lykkjur. Prjónið síðan M.3 þar til stykkið mælist ca 63-72 cm – stillið af eftir 1 heila mynstureiningu. Næsta umferð er prjónuð frá röngu þannig: 2 lykkjur garðaprjón, * 2 lykkjur brugðið saman *, endurtakið frá *-* yfir allar lykkjur og endið með 2 lykkjur garðaprjón = 154-164 lykkjur.

Prjónið 2 umferðir sléttprjón (umferð 1 = rétta) jafnframt í annarri umferð er fækkað um 18-14 lykkjur jafnt yfir = 136-150 lykkjur.
Prjónið síðan 4 fellingar og eftir það 1 umferð sléttprjón. Næsta umferð er prjónuð þannig (frá röngu): 38-42 lykkjur slétt, 60-66 lykkjur brugðið, 38-42 lykkjur slétt. Í næstu umferð eru felldar af 36-40 lykkjur í hvorri hlið.
Stykkið mælist nú ca 68-77 cm.

BERUSTYKKI:
= 64-70 lykkjur. Lesið allan kaflann áður en prjónað er áfram!
Prjónið sléttprjón með M.5 yfir 4 miðjulykkjur jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hvorri hlið í annarri hverri umferð – sjá ÚRTAKA-1: Fækkið um 1 lykkju 10 sinnum – prjónið 1. og 2. úrtöku í annað hvert skipti.
ATH: Eftir alla úrtöku er haldið áfram að prjóna gatamynstur í 4. hverri umferð (frá réttu) meðfram handveg þannig:
Eftir 2 lykkjur garðaprjón: Lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir, sláið 1 sinni uppá prjóninn.
Á undan 2 lykkjur garðaprjón: Sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman.

HÁLSMÁL:
Jafnframt þegar stykkið mælist ca 4 cm frá byrjun á berustykki (stillið af eftir 3 eða 4 gatamynstri í M.5) eru felldar af 2 miðjulykkjur fyrir hálsmáli – fellið af frá réttu með brugðnum lykkjum. Setjið lykkjur frá vinstri hlið (séð þegar flíkin er mátuð) á þráð.

HÆGRI HLIÐ:
Fækkið um 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umf 11-13 sinnum – sjá ÚRTAKA-1 – prjónið 1. og 2. úrtöku í annað hvort skipti. Eftir alla úrtöku fyrir handveg og hálsmáli eru 10-11 lykkjur eftir á hvorri öxl (= 2 lykkjur garðaprjón, 6-7 lykkjur sléttprjón, 2 lykkjur garðaprjón). ATH: Eftir alla úrtöku er haldið áfram að prjóna gatamynstur í 4. hverri umferð meðfram hálsmáli alveg eins og meðfram handvegi.
Prjónið þar til stykkið mælist ca 28-32 cm frá byrjun berustykkis, fellið af.

VINSTRI HLIÐ:
Setjið lykkjur af þræði aftur til baka á prjóninn og prjónið til loka eins og hægri hlið.

FRÁGANGUR:

HNESLUR / LYKKJUR:
Heklið meðfram fellingunni í hægri hlið að aftan með heklunál nr 2,5 þannig: 9 fastalykkjur, heklið síðan næstu umferð þannig: * 1 keðjulykkja, 5 loftlykkjur, hoppið yfir 1 fastalykkju, 1 keðjulykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-* þar til heklaðar hafa verið 3 hneslur / lykkjur.
Saumið 3 tölur meðfram fellingunni í vinstri hlið.
Setjið prjónamerki í hlýra þannig að lengdin verði næg fyrir barnið og heklið 1 hneslu / lykkju frá réttu mitt í hvorn hlýra við prjónamerki – 1 hnesla/lykkja = 1 keðjulykkja, 5 loftlykkjur og 1 keðjulykkja í sömu lykkju. Auka lengdin á hlýranum lafir innan á kjólnum.

Saumið niður 1 tölu frá réttu efst meðfram kanti 3-4 cm inn frá hvorri hlið frá miðju að aftan. Hlýrunum er hneppt með þessum tölum.

SILKIBORÐI:
Klippið 3 st 170 cm langan borða og þræðið 1 í hverja af 3 efstu gataröðunum í mynstri M.2 (þ.e.a.s. það verður 1 undir blaðamynstri og 2 yfir), saumið endana niður með tvinna innan í kjólunum.
Klippið 1 st 50 cm langan borða og þræðið í gegnum gataumferðina hvoru megin við hálsmál og áfram meðfram hlýrum.

-------------------------------------------------------

HEILGALLI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hvor skálm er prjónuð fyrir sig, síðan eru skálmarnar tengdar saman og afgangurinn af fram- og afturstykki er prjónað, ermar eru prjónaðar í lokin.

VINSTRI SKÁLM:
Fitjið upp 32-40 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk.
Prjónið PERLUPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 5-6 cm. Prjónið síðan 1 umferð sléttprjón jafnframt því sem aukið er út um 8 lykkjur jafnt yfir = 40-48 lykkjur.
Næsta umferð er prjónuð þannig: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*, síðan er prjónuð 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 8 lykkjur jafnt yfir = 48-56 lykkjur.
Prjónið M.2. Haldið síðan áfram í sléttprjóni, jafnframt í 1. umferð er aukið út um 12 lykkjur jafnt yfir = 60-68 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í byrjun umferðar = innan á skálm. Jafnframt þegar stykkið mælist 11-12 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 4. hverri umferð alls 6 sinnum = 72-80 cm.
Þegar stykkið mælist 18-21 cm er stykkinu skipt upp í innri hlið í skálm, þ.e.a.s. við prjónamerki (þetta er gert til að það verði auðveldara að tengja skálmarnar saman á hringprjóna í lokin). Prjónið nú til loka fram og til baka. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið fyrir saum = 74-82 lykkjur. Þegar stykkið mælist 20-23 cm eru felldar af 5 lykkjur í hvorri hlið = 64-72 l. Geymið stykkið.

HÆGRI SKÁLM:
Prjónið eins og vinstri skálm.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Setjið hægri og vinstri skálm á sama hringprjón = 128-144 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í skiptinguna á milli skálma við miðju að framan og við miðju að aftan. Prjónið 3 umferðir sléttprjón. Aukið síðan út um 1 lykkju hvoru megin við 2 lykkjur við miðju að aftan í annarri hverri umferð 8 sinnum. Jafnframt er felld af 1 lykkja hvoru megin við 2 lykkjur við miðju að framan – sjá ÚRTAKA-2 – í annarri hverri umferð 8 sinnum = 128-144 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 30-40 cm eru felldar af 8 lykkjur fyrir miðju að aftan (= op til að klæða barnið í og úr flíkinni) og stykkið er prjónað til loka fram og til baka = 120-136 lykkjur. Þegar stykkið mælist 39-48 cm er M.6 prjónað – umferð 1 = ranga (1 kantlykkja í hvorri hlið við miðju að aftan er ekki prjónuð inn í mynstur), jafnframt í síðustu umferð eru prjónaðar 2 miðjulykkjur saman = 119-135 lykkjur.
Prjónið síðan næstu umferð þannig: 1 kantlykkja, M.7A (= 9 lykkjur), M.7B yfir 96-112 lykkjur, M.7C (= 12 lykkjur) og 1 kantlykkja.
Jafnframt þegar stykkið mælist 45-54 cm er næsta umferð prjónuð frá réttu þannig: 25-29 lykkjur (= vinstra bakstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 57-65 lykkjur (= framstykki), fellið af 6 lykkjur fyrir handveg, 25-29 lykkjur (= hægra bakstykki). Hvor hluti er nú prjónaður til loka fyrir sig.

HÆGRA BAKSTYKKI:
= 25-29 lykkjur. Prjónið áfram með M.7 jafnframt er lykkjum fækkað fyrir handveg í hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1-1 sinni og 1 lykkja 3-4 sinnum = 20-23 lykkjur. ATH: Prjónið sléttprjón yfir þær lykkjur sem mynstrið gengur ekki upp í við handveg. Þegar stykkið mælist 53-63 cm eru felldar af 5-6 lykkjur við miðju að aftan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fella af 1 lykkju við hálsmál í annarri hverri umf 2 sinnum = 13-15 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 55-65 cm.

VINSTRA BAKSTYKKI:
Prjónið eins og hægra bakstykki.

FRAMSTYKKI:
= 57-65 lykkjur. Prjónið áfram með M.7 jafnframt er fellt af fyrir handvegi í hvorri hlið eins og á bakstykki = 47-53 lykkjur. Þegar stykkið mælist 51-60 cm eru felldar af miðju 11-13 lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fella af við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni og 1 lykkja 3 sinnum = 13-15 lykkjur eftir á hvorri öxl. Fellið af þegar stykkið mælist ca 55-65 cm – stillið af við bakstykki.

ERMI:
Fitjið laust upp 68-68 lykkjur á sokkaprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk.
Prjónið M.4 – jafnframt í síðustu umferð er fækkað um 28-20 lykkjur jafnt yfir = 40-48 lykkjur. Prjónið M.2, prjónið síðan M.7B til loka. Jafnframt þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi í 6.-9. hverri umf 5-4 sinnum = 50-56 lykkjur – útauknar lykkjur eru prjónaðar í sléttprjóni. Þegar stykkið mælist 17-19 cm eru felldar af 6 lykkjur mitt undir ermi og prjónað fram og til baka til loka. Fækkið nú lykkjum fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2-3 sinnum, 1 lykkja 5-3 sinnum, síðan er fækkað um 2 lykkjur í hvorri hlið þar til stykkið mælist 23-25 cm. Fellið af.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

VINSTRI KANTUR:
Takið upp ca 60-65 lykkjur meðfram vinstra bakstykki á hringprjóna nr 2,5 með BabyAlpaca.
Prjónið fram og til baka þannig: 1 umferð slétt frá röngu, síðan perluprjón í 2,5 cm, fellið af.

HÆGRI KANTUR:
Takið upp meðfram hægra bakstykki og prjónið eins og vinstri kantur, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5 hnappagötum jafnt yfir: 1 hnappagat = fellið af 2 lykkjur og fitjið upp 2 nýjar lykkjur í næstu umferð yfir þær lykkjur sem felldar voru af. Leggið hægri kant yfir vinstri kant og saumið fallega niður neðst í klaufinni.

BLÚNDUKRAGI:
Takið upp frá röngu ca 55-65 lykkjur í kringum hálsmál (lykkjur eru ekki teknar upp í kanti að framan og að aftan) á prjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk.
Prjónið 4 umferðir garðaprjón, prjónið síðan 1 umferð sléttprjón jafnframt er aukið út um 123 lykkjur jafnt yfir. Prjónið síðan M.4 – byrjið á 3. umferð í mynstri – með 2 lykkjur garðaprjón í hvorri hlið við miðju að aftan. Eftir M.4 er fellt af.

Heklið í kringum kraga með heklunál nr 2,5 þannig: 1 keðjulykkja í 1. lykkju, * 4 loftlykkjur, hoppið yfir 2 lykkjur, 1 keðjulykkja í næstu lykkju *, endurtakið frá *-*.

Saumið ermar í. Saumið skrefbót / klofsauma og saum undir fæti.
Saumið tölur í kantinn.
Klippið 2 st 20 cm langan silkiborða og þræðið 1 í efstu gataumferðina á hvorri ermi.
Klippið 2 st 60 cm langan silkiborða og þræðið 1 í neðstu gataumferðina á hvorri skálm.
-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka og saumuð saman í lokin.

HÚFA:
Fitjið laust upp 87-104 lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk. Prjónið M.1 þar til stykkið mælist 10-12 cm en 1 kantlykkja í hvorri hlið er prjónuð í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan.
Prjónið FELLING – sjá útskýringu að ofan – prjónið 1 fellingu jafnframt í 1. umf í fellingu er fækkað um 1 lykkju í stærstu stærð = 87-103 l. Fellið síðan af 28-36 lykkjur í hvorri hlið = 31 lykkjur eftir á prjóni (= miðjustykki aftan á húfu).
HÉÐAN ER NÚ MÆLT!

Prjónið þannig: 1 kantlykkja í garðaprjóni, M.7A (= 9 lykkjur), M.7B (= 8 lykkjur), M.7C (= 12 lykkjur) og 1 kantlykkja í garðaprjóni. Fellið af þegar miðjustykki að aftan mælist 11-14 cm.
Saumið miðjustykki við hliðarstykkin.
Takið upp lykkjur meðfram neðri kant á húfu ca 86-98 lykkjur (deilanlegt með 4+2, til þess að fá slétta tölu á götum til að þræða silkiborðann í) á prjóna nr 2,5 með BabyAlpaca Silk og prjónið M.6 með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Fellið af með brugðnum lykkjum (séð frá réttu).
Þræðið 1 stykki ca 80 cm langan silkiborða í gegnum gataumferð.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 29.08.2016
SKÍRNARKJÓLL:..Prjónið síðan 4 fyrstu umf af M.2 á meðan fækkað er um 11-13 l jafnt yfir (l sem ganga ekki upp í gataumferð eru prjónaðar með sléttprjóni). 367-399 l. Prjónið síðan 9 næstu umf M.2 þannig: 2 l garðaprjón, * 1 mynstureining með gatamynstri, síðan 3 mynstureiningar án gatamynsturs (= 24 l sléttprjón) *, endurtakið frá *-* þar til 13 l eru eftir, þær eru prjónaðar þannig: ..

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur brugðið saman
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi brugðið, 2 lykkjur brugðið saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 11-15

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (68)

country flag Heidi Daguyt wrote:

Beste, bij het patroon van het doopjurken staat dat M1 moet gebreid worden tot de vereiste afmeting. Hoeveel naalden moet ik dan breien in ribbelsteek? En moet de kantsteek dan averecht gebreid worden? Groetjes Heidi

24.01.2018 - 19:53

DROPS Design answered:

Hoi Heide, De kantsteken brei je de hele tijd in ribbelsteek en omdat je heen en weer breit, brei je ze dus steeds recht. Nadat je M.1 hebt gebreid tot de gewenste lengte ga je verder met de beschrijving, dus brei je 1 naald tricosteek en daarna de eerste 4 naalden van M.2 (Dit zijn de ribbels onderaan het lijf)

28.01.2018 - 19:45

country flag Mai-Britt wrote:

Jeg strikker buksepresse nå. Men kommer til slutten der en skal felle 5 m i hver side. Da blir det jo en bit uten masker. Kan det forklares bedre hvordan disse maskene skal felles?

12.04.2017 - 23:03

DROPS Design answered:

Hei Mai-Britt Dette partiet vil bli sydd sammen når du kommer til monteringen lengre ned på oppskriften, skrittsømmen. Hvordan du feller kommer an på hvor du er når du oppnår ditt mål (20-23 cm). Fra retten: Fell 5 masker, strikk raden ut, snu og fell 5 masker fra vrangen. Legg arb til side. Fra vrangen: Fell 5 masker, strikk raden ut, snu og fell 5 masker fra retten. Legg arb til side. God Fornøyelse!

26.04.2017 - 13:28

country flag Eva Gabrielsson wrote:

Hej. Jag stickade klänningen för ca 2 år sedan och mönstret stämde mycket bra. Nu har den åter igen kommit fram för nytt dop. Jag slås åter igen av hur fantastiskt vacker den är. Och blev också påmind om hur många timmar jag lade ner på den när jag stickade den, hur koncentrerad man fick vara. Ångrar inte en sekund all den tid den tog.

26.12.2016 - 11:48

country flag Charlotte Ekelund wrote:

Jeg er i gang med babydrops 11-15 men der står ikke hvor mange pinde bladmønster man skal strikke. På billedet ser det ud til mere en de 22 pinde mønsteret fylder i opskriften. jeg savner et mere tydeligt billede af kjolen hvor man kan rækkefølgen på mønstret da jeg ikke synes billedet og mit arbejde helt ligner hinanden. M:V:H Charlotte Ekelund

04.10.2016 - 16:48

DROPS Design answered:

Hej Charlotte. Vi har desvaerre ikke flere billeder end hvad der staar her. Du strikker 1 gentagelse af bladmönstret (22 p) med M.2 paa hver side. Saa vidt jeg kan se er der ogsaa kun et blad paa billedet :)

05.10.2016 - 12:35

country flag Vanja Johannessen wrote:

Hei igjen! Jeg lurer fremdeles på hva det betyr "avstem etter en hel rapport"..

11.07.2016 - 11:29

DROPS Design answered:

Hej Vanja. Du skal afstemme efter du har afsluttet en hel rapport af et mönster = at diagrammet/mönstret er strikket faerdig i höjden.

11.07.2016 - 13:40

country flag Vanja Johannessen wrote:

Hva betyr "avstem etter en hel rapport"?

06.07.2016 - 22:29

country flag HELENE wrote:

Bonjour, pour la robe de baptême je suis aux motifs M.7A M.7B et M.7C et voici ma question : où s'arrêtent ces trois motifs sachant qu'ils font partie de M7 car pour les demis dos et devant on dit de faire M7 entier. Est-ce avant les diminutions pour les emmanchures ? Merci pour votre réponse.

24.06.2016 - 16:41

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, M.7 en hauteur = les 2 motifs ajourés soit tout le diagramme en hauteur. Quand on tricote M.7, on commence par M.7A, puis on répète M.7B et on termine par M.7C. Bon tricot!

24.06.2016 - 17:20

country flag HELENE wrote:

Bonsoir, je viens de commencer la combinaison pour la robe de baptême et j'arrive à M2. Ici j'ai un petit souci : M2 se termine par un surjet et un jeté à la fin mais vu qu'il n'y a pas de m lisière pour la combinaison, comment faire un jeté au bout de mon rang ? Merci.

18.06.2016 - 20:33

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène, les jambes de la combinaison se tricotent en rond, sans m lis donc - vous trouverez ici différentes informations pour adapter un modèle et le tricoter en aller-retour. Bon tricot!

20.06.2016 - 08:44

country flag HELENE wrote:

Maintenant nous sommes d'accord et je vais pouvoir continuer mon ouvrage. Merci pour l'ajustement. Bonne journée.

13.06.2016 - 10:37

country flag HELENE wrote:

Bonjour, excusez-moi de vous déranger encore mais je ne comprend toujours pas. ma question se porte sur la 2ème diminution : Après 2 m lis : glisser 1 m à l'end, 2 m ens à l'end, passer la m glissée par dessus la m tricotée = 2 m diminuées. Avant 2 m lis : 2 m ens à l'end= 1 seule m diminuée non ?

13.06.2016 - 09:49

DROPS Design answered:

Bonjour Hélène et autant pour moi, vous avez raison, il faut faire 1 surjet simple après les 2 m lis= glissez 1 m à l'end, 1 m end, passez la m glissée par-dessus la m tricotée, les explications ont été ajustées, merci. Bon tricot!

13.06.2016 - 10:07