DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24

Greyscale

Prjónuð peysa með fellingum / stuttum umferðum, prjónuðu frá hlið í garðaprjóni úr DROPS Alpaca og DROPS Cotton Viscose. Stærð S - XXXL.

DROPS 106-1
DROPS Design: Mynstur nr Z-319
-------------------------------------------------------

Stærð: S - M - L - XL - XXL - XXXL

GARN:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
250-250-300-300-350-400 gr litur nr 501, ljós grár
100-150-150-150-150-200 gr litur nr 517, milligrár
50-100-100-100-100-100 gr litur nr 1101, hvítur
Og einnig:
DROPS Cotton Viscose frá Garnstudio
150-150-150-200-200-200 gr litur nr 18, perlugrár

DROPS PRJÓNAR NR 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 23 l og 45 umf með garðaprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 3 – fyrir heklaðan kant.
DROPS SILFURTALA NR 534: 6-6-6-7-7-7 stk.

ATH! Þegar flík er prjónuð frá hlið er mikilvægt að hafa rétta prjónfestu:

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Cotton Viscose
DROPS Cotton Viscose
54% Bómull, 46% Viscose
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

LEIÐBEININGAR:
Garðaprjón gefur mikið eftir og er mjög teygjanlegt. Stykkið kemur til með að teygjast töluvert, bæði á breiddina og á lengdina, miðað við mál og teikningu.

STUTTAR UMFERÐIR:
Stuttu umferðirnar eru prjónaðar með Cotton Viscose.
1 felling er prjónuð með stuttum umferðum (umf 1- ranga) þannig:
Prjónið 75 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 68 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 62 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 55 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 49 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 42 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 36 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 29 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 23 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 16 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið yfir allar l á prjóni, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið yfir allar l á prjóni, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 16 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 23 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 29 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 36 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 42 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 49 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 55 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 62 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 68 l, snúið við og prjónið til baka,
Prjónið 75 l, snúið við og prjónið til baka.

MÆLING:
Mælt er frá uppfitjunarkanti. Mælið þar sem fellingin er grennst.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka. Allt stykkið er prjónað í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umf.
Byrjið á að prjóna frá hlið. LESIÐ LEIÐBEININGAR!

BAKSTYKKI:
Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 l á prjóna nr 3,5 með litnum milligrár DROPS Alpaca.
Prjónið 5-11-13-15-19-21 umf (umf 1 = rétta).
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Í lok næstu umf (frá röngu) fitjið upp 3 nýjar l fyrir handveg. Haldið áfram að fitja upp 3 nýjar l í lok á 6. hverri umf (frá röngu): 0-0-1-2-4-5 sinnum = 105-107-112-118-126-131 l.
Í lok næstu umf frá röngu eru fitjaðar upp 38-41-40-39-35-35 l = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram að prjóna garðaprjón yfir allar l þar til stykkið mælist 9-10-11-12-14-16 cm (passið uppá að næsta umf sé frá réttu).
Prjónið nú áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR – sjá útskýringu að ofan. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar er prjónuð 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú áfram með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 17-19-21-23-26-28 cm – lesið MÆLING að ofan. Fellið af 5 l í byrjun umf (frá réttu) fyrir hálsmáli = 138-143-147-152-156-161 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 25-27-29-31-36-38 cm. Aukið út um 5 l í lok umf (frá röngu) = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 32-35-38-41-47-49 cm (passið uppá að næsta umf er frá réttu).
Prjónið áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l áður en prjónað er áfram með litnum milligrár DROPS Alpaca. Prjónið þar til stykkið mælist ca 40-43-45-47-52-54 cm. Fellið af 38-41-40-39-35-35 l í byrjun umf (frá réttu) fyrir handveg = 105-107-112-118-126-131 l. Í næstu umf (frá réttu) fellið af 3 l í byrjun umf. Haldið áfram að fella af 3 l í byrjun á 6. hverri umf (frá réttu): 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 l. Prjónið fram og til baka þar til stykkið mælist 42-46-50-54-62-66 cm. Fellið laust af.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið frá hlið að miðju að framan.
Fitjið laust upp 102-104-106-109-111-113 l á prjóna nr 3,5 með litnum milligrár DROPS Alpaca.
Prjónið áfram og fitjið upp nýjar l fyrir handveg á sama hátt og á bakstykki = 143-148-152-157-161-166 l. Þegar stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm (passið uppá að næsta umf sé frá réttu) prjónið áfram með litnum perlugrár Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú áfram með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l. Þegar stykkið mælist 13-15-17-17-19-21 cm – lesið MÆLING - (passið uppá að næsta umf sé frá réttu) prjónið áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú með litnum hvítur DROPS Alpaca. Prjónið þar til stykkið mælist 3-3-3-5-6-6 cm eftir síðustu fellingu (stykkið mælist alls ca 17-19-21-23-26-28 cm). Fellið af fyrir hálsmáli í byrjun hverrar umf frá réttu: 9-9-11-9-11-8 l 1 sinni, 5 l 7 sinnum og 2 l 1-1-1-2-2-4 sinnum = 97-102-104-109-111-115 l. Prjónið 11 umf fram og til baka yfir allar l. Fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið frá miðju að framan og út að hlið.
Fitjið laust upp 97-102-104-109-111-115 l á prjóna nr 3,5 með litnum hvítur DROPS Alpaca.
Prjónið 11 umf (umf 1 = rétta) fram og til baka yfir allar l. Fitjið nú upp nýjar l fyrir hálsmáli í lok hverrar umf frá röngu: Fitjið upp 2 l 1-1-1-2-2-4 sinnum, 5 l 7 sinnum og 9-9-11-9-11-8 l 1 sinni = 143-148-152-157-161-166 l. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist ca 10-10-10-12-13-14 cm (passið uppá að næsta umf sé frá réttu). Prjónið nú áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið nú 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist ca 17-18-19-20-20-21 cm (pasið uppá að næsta umf sé prjónuð frá réttu). Prjónið nú með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Prjónið 1 umf. Prjónið nú STUTTAR UMFERÐIR. Þegar stuttar umferðir hafa verið prjónaðar, prjónið 1 umf yfir allar l (frá röngu). Prjónið nú með litnum milligrár DROPS Alpaca. Jafnframt þegar stykkið mælist 4-4-3-2-2-2 cm eftir síðustu fellingu er fellt af fyrstu 38-41-40-39-35-35 l (frá réttu) fyrir handveg. Í næstu umf (frá réttu) fellið af 3 l í byrjun umf. Haldið áfram að fella af 3 l í byrjun á 6. hverri umf (frá réttu: 0-0-1-2-4-5 sinnum = 102-104-106-109-111-113 l.
Haldið áfram fram og til baka yfir allar l þar til stykkið mælist 6-7-8-9-12-14 cm eftir síðustu fellingu. Fellið laust af.

ERMI:
Öll ermin er prjónuð í garðaprjóni, þ.e.a.s. lykkjur eru prjónaðar slétt í öllum umf.
Fitjið laust upp 55-57-60-62-62-66 l (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjóna nr 3,5 með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Prjónið þar til stykkið mælist ca 3 cm. Prjónið nú með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Þegar stykkið mælist 5 cm er prjónað með litnum ljós grár DROPS Alpaca. Jafnframt þegar stykkið mælist 5-5-5-7-9-7 cm er aukið út um 1 l í hvorri hlið með 5-4-3½-2½-2-2 cm millibili alls 9-11-12-15-17-18 sinnum = 73-79-84-92-96-102 l. Jafnframt þegar stykkið mælist 18 cm er prjónað áfram með litnum perlugrár DROPS Cotton Viscose. Þegar stykkið mælist 20 cm er prjónað aftur með litnum ljós grár DROPS Alpaca.
Þegar stykkið mælist 48-48-47-47-45-44 cm fellið af 3 l í hvorri hlið fyrir handveg. ATH! Styttri mál í stærri stærðum vegna víðari handvegs og breiðari axla. Haldið áfram að fella af fyrir ermakúpu í hvorri hlið í annarri hverri umf: Fellið af 2 l 2-2-2-2-1-0 sinnum og 1 l 10-12-14-15-24-28 sinnum. Haldið áfram að fella af 2 l í hvorri hlið þar til stykkið mælist 54-55-55-56-56-57 cm. Fellið af 3 l í hvorri hlið 1 sinni. Fellið af þær l sem eftir eru, stykkið mælist ca 55-56-56-57-57-58 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlarsauma. Saumið ermar í. Saumið erma- og hliðarsauma í eitt innan við 1 kantlykkju.

HEKLAÐUR KANTUR:
Byrjið við miðju að framan neðst á hægra framstykki. Heklið með litnum hvítur DROPS Alpaca og heklunál nr 3 þannig: Heklið 1 fl, * 2 ll, hoppið yfir ca 1 cm, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* upp meðfram hægra framstykki, í kringum hálsmál og niður meðfram vinstra framstykki.

FRÁGANGUR:
Saumið tölur í ca 1 cm frá kanti meðfram vinstra framstykki. Efsta talan á að vera staðsett ca 1 cm neðan við úrtöku í hálsmáli, hinar tölurnar eru staðsettar með ca 4 cm millibili. Hneppið tölum í heklaða kantinn.

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 106-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (290)

country flag Britt wrote:

Da ich sehr klein bin und die Jacke ja auch in der Länge noch nachgibt, würde ich sie gern in der Länge von Gr. S bei einer Weite von M stricken. Kann ich einfach weniger Maschen anschlagen und mich nur in den Reihen an die Vorgaben von M halten? (Beim Armausschnitt natürlich auch)

05.05.2022 - 16:59

DROPS Design answered:

Liebe Britt, wahrscheinlich können Sie sowas anpassen, sollten Sie mehr Hilfe damit brauchen, wenden Sie sich bitte an Ihrem Laden, wo Sie die Wolle gekauft haben oder bei einem Strickforum, vielleicht auch beim DROPS Workshop. Viel Spaß beim stricken!

06.05.2022 - 07:36

country flag Ailika wrote:

Danke für die schnelle Antwort, die mir allerdings nicht weiterhilft: Wie man den Ärmel einnäht weiß ich. Das Problem ist einfach, dass die vorgegebene Form nicht passt. Um in einem Laden um Rat zu fragen, müsste ich 150 km fahren. - Übrigens kamen die angegebenen Wollmengen auch nicht hin.

23.02.2022 - 08:54

DROPS Design answered:

Liebe Ailika, per Ferndiagnose ist es etwas schwierig, einen Fehler zu erkennen. Am besten machen Sie ein Foto von der Jacke mit der Ärmel und schicken das Ihrem Wollgeschäft, vielleicht kann man Ihnen dort mit Ihrem individuellen Stück weiterhelfen. Danke für Ihr Verständnis.

23.02.2022 - 13:54

country flag Ailika wrote:

Ich habe das Rückenteil, die Vorderteile und einen Arm fertig. Die Maschenprobe stimmt genau, ebenso die Längen und Breiten. Ich habe viel Erfahrung mit Ihren Anleitungen und glaube nicht, einen Fehler gemacht zu haben. Das Problem: Der Ärmel passt absolut nicht in das Ärmelloch aus Vorder- und Rückenteil. Das Ärmelloch ist "eckig" , die Armkugel, die eine vertraute Form hat, weicht viel zu sehr ab, als dass man etwas mit Spannen und den übrigen kleinen Tricks erreichen könnte.

22.02.2022 - 18:50

DROPS Design answered:

Liebe Ailika, die 7-8-9-10-12-14 cm oben an die Ärmel sollten normaleweise in das Armloch anpassen; die Mitte von den abgeketteten Maschen soll bei der Naht am Schulter sein, und die ersten 3 abgekettenen Maschen bei der Ärmel sollen beim Vorder- und Rückenteil genäht. Am besten zeigen Sie Ihr Laden ein Foto, wenn Sie Ihre Arbeit nicht dort bringen können, so kann man Ihnen am besten helfen. Viel Spaß beim stricken!

23.02.2022 - 08:20

country flag Anita Arngren wrote:

Tack till era fantastiska mönster och fina garner. Synd bara att man inte kan välja språk på kommentarerna. Skulle underlätta både för mig och säkert flera andra! I övrigt....bara plus!!!

11.07.2021 - 11:26

country flag Elisabeth Graf wrote:

3 M. für das Armloch aufnehmen. Weiter, am Schluss jeder 6. R. (von der linken Seite) aufnehmen: 3 M. 0-0-1-2-4-5 Mal = 105-107-112-118-126-131 M. Am Schluss der nächsten R. (von der linken Seite) 38-41-40-39-35-35 M. aufnehmen = 143-148-152-157-161-166 M. Schlag ich jetzt 3M miteinander an, oder einzeln in jeder Reihe? in der 6.Reihe wieder 3M Stehe auf dem Schlauch!! Mit lieben Grüssen Elisabeth Graf

13.07.2019 - 11:13

DROPS Design answered:

Liebe Frau Graf, diese Maschen sollen am Ende der Reihe angeschlagen werden -wie in diesem Video gezeigt. Viel Spaß beim stricken!

15.07.2019 - 09:29

country flag Judy Maguire wrote:

I would like to knit this but see the cotton viscose is discontinued. What is an alternative yarn I can use

12.01.2019 - 11:23

DROPS Design answered:

Dear Judy, look in the yarngroup "A" for substitutes. I would try the DROPS Belle or the Drops Cotton Light yarn. Please make sure to knit a swatch and xheck the gauge before starting the project, and make adjustments if necessary.

12.01.2019 - 15:15

country flag Maud Engelbrektsson Jonsson wrote:

Stickade denna kofta för många år sedan och har haft STOR glädje av den och nu vill en bekant ha mönstret...hur skriver jag ut det.

13.07.2018 - 09:59

country flag Anne wrote:

Wäre ja nett gewesen, wenn in der Anleitung zur Falte wenigstens mal ein Hinweis gewesen wäre, daß man bei verkürzten Reihen mit Wendemaschen arbeitet und NICHT einfach die Arbeit umdreht und zurückstrickt. Dann hätte ich mich vorher schon mal kundig gemacht und jetzt keine Löcher in der Falte!

28.03.2018 - 11:02

country flag Maura wrote:

Nella piega in cotton viscosa si vedono molto gli aumenti e le diminuzioni, c'e un modo per renderlo meno visibile?

03.02.2018 - 17:58

DROPS Design answered:

Buongiorno Maura, il Cotton Viscose è un filato che risente molto della lavorazione, può provare a lavare il capo e vedere se il risultato migliora. Buon lavoro!

02.07.2018 - 17:00

country flag Sieta Stol wrote:

Ik ben deze prachtige vest aan het breien,maar 8 cm voor de achter halslijn is dat niet te weinig voor dit model?

09.02.2017 - 13:55

DROPS Design answered:

Hoi Sieta. Ja, dat is genoeg - hij valt los over de schouders.

09.02.2017 - 14:20