DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 106-2
DROPS Design: Mynstur nr R-501
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stærð: XS – S - M – L – XL – XXL
Efni:
DROPS Muskat frá Garnstudio
400-450-500-550-600-650 gr nr 08, natur

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS HRINGPRJÓNAR 4,5 (80 cm) – eða þá stærð sem þarf til að 20 lykkjur og 26 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 4 – fyrir heklaðan kant
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA-1:
Fækkið lykkjum á undan lykkju með prjónamerki þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir lykkju með prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.

ÚRTAKA-2:
Öll úrtaka er gerð frá réttu! Fækkið lykkjum innan við 3 lykkjur með garðaprjóni.
Fækkið lykkjum á eftir 3 lykkjum þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum á undan 3 lykkjum þannig: Prjónið 2 lykkjur slétt saman.

MÆLING:
Vegna þyngdar á stykkinu verður að gera alla lengdarmælingu þegar stykkinu er haldið uppi, annars verður kjóllinn allt of langur þegar hann er mátaður.
----------------------------------------------------------

KJÓLL:
Stykkið er prjónað í hring, neðan frá og upp. Lesið MÆLING!

Fitjið laust upp 198-216-234-252-270-288 lykkjur á hringprjón 4,5. Prjónið 1 umferð brugðna, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðna og 1 umferð slétt. Haldið áfram með M.1 fjórum sinnum á hæðina, prjónið síðan M.2 og síðan M.3. Nú mælist stykkið ca 15 cm og það eru 176-192-208-224-240-256 lykkjur á prjóni. Haldið áfram með sléttprjón.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 24-24-25-25-26-26 cm setjið 6 prjónamerki í stykkið þannig: Prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur, setjið prjónamerki-1, prjónið 33-35-37-39-43-45 lykkjur, setjið prjónamerki-2, prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur, setjið prjónamerki-3 mitt í næstu lykkju (= í hlið), prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur, setjið prjónamerki-4, prjónið 33-35-37-39-43-45 lykkjur, setjið prjónamerki-5, prjónið 27-30-33-36-38-41 lykkjur og setjið prjónamerki-6 mitt í síðustu lykkju (= í hlið).
Í hæstu umferð er fækkað um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki-3 og 6 (þ.e.a.s. þau prjónamerki sem eru í hliðum) – sjá ÚRTAKA-1 að ofan.
Haldið áfram með þessa úrtöku í 6.-6.-7.-7.-9.-9. hverri umferð alls 8-8-7-7-6-6 sinnum. JAFNFRAMT með 4.-4.-3.-3.-2.-2. úrtöku byrjar einnig úrtaka við hin prjónamerkin þannig: Fækkið lykkjum á eftir 1. og 4. prjónamerki og á undan 2. og 5. prjónamerki – sjá ÚRTAKA-1 að ofan. Endurtakið þessa úrtöku í 6.-6.-7.-7.-9.-9. hverri umferð (sömu umferðir og fækkað var í hliðum) alls 4 sinnum.

Eftir allar úrtökur eru 128-144-164-180-200-216 lykkjur og stykkið mælist ca 40-40-41-41-42-42 cm. Haldið áfram með sléttprjón, takið frá 1.,2.,4. og 5. prjónamerki – JAFNFRAMT í umferð 1 í stærð XS og XL: fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir á framstykki. Stærð M: Fækkið um 2 lykkjur jafnt yfir á bakstykki (þetta er gert til að það komi 1 lykkja við miðju að framan og að aftan á stykki og að lykkjufjöldinn gangi upp í M.2) = 126-144-162-180-198-216 lykkjur (ekki er lykkjum fækkað í stærð S, L og XXL).
Þegar stykkið mælist 42-43-44-45-46-47 cm prjónið M.1 3 sinnum á hæðina – ATH: Passið uppá að örin í mynsturteikningu verði við miðju að framan. Prjónið M.2 og síðan M.4 þannig að mynstrið komi beint ofan við M.1 eins og útskýrt er í mynsturteikningu. (Eftir M.4 eru aftur jafn margar lykkjur að framan og að aftan þar sem útaukning í M.4 kemur 1 sinni oftar á bakstykki og á framstykki í stærð XS og XL og 1 sinni oftar á framstykki en á bakstykki í stærð M).

Haldið áfram með sléttprjón. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 56-57-58-60-61-62 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerkin á hvorri hlið, endurtakið útaukningu í 3 minnstu stærðum 3-2-1 sinni með 2-2-3 cm millibili = 156-172-188-204-224-244 lykkjur (= 77-85-93-101-111-121 lykkjur á framstykki og bakstykki + 1 lykkja á hvorri hlið).

HÁLSMÁL:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-63-64-65-66-67 cm eru prjónaðar 4 umferðir með GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – yfir 7 lykkjur við miðju að framan, aðrar lykkjur eru prjónaðar með sléttprjóni. Fellið síðan af miðju lykkjuna og stykkið er prjónað áfram fram og til baka frá miðju að framan. Haldið áfram með 3 lykkjur með garðaprjóni á hvorri hlið við háls og fækkið lykkjum fyrir hálsmáli innan við þær – sjá ÚRTAKA-2: Fækkið um 1 lykkju í annarri hverri umferð 11-11-12-12-13-13 sinnum og síðan 1 lykkja í 4. hverri umferð 6 sinnum.

HANDVEGUR:
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 64-65-66-67-68-69 cm prjónið 4 umferðir með garðaprjóni yfir 13-13-15-17-19-21 lykkjur á hvorri hlið (þ.e.a.s. lykkjur með prjónamerki + 6-6-7-8-9-10 lykkjur hvoru megin við þær), aðrar lykkjur eru prjónaðar eins og áður. Fellið síðan af miðju 7-7-9-11-13-15 lykkjur á hvorri hlið fyrir handveg. Fram- og bakstykki er prjónað til loka hvort fyrir sig.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Haldið áfram að fækka lykkjum fyrir hálsmáli, JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju innan við 3 lykkjur með garðaprjóni fyrir handveg – sjá ÚRTAKA-2: Í annarri hverri umferð 5-7-8-9-11-13 sinnum. Eftir allar úrtökur fyrir handveg og hálsmáli eru 13-15-16-18-19-21 lykkja eftir á prjóni. Haldið áfram með sléttprjón og 3 lykkjur með garðaprjón á hvorri hlið. Fellið af þegar stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Prjónið eins og vinstra nema gagnstætt.

BAKSTYKKI:
= 71-79-85-91-99-107 lykkjur. Fellið af fyrir handvegi á hvorri hlið eins og á framstykki = 61-65-69-73-77-81 lykkjur. Haldið áfram með 3 lykkjur garðaprjón á hvorri hlið. Þegar stykkið mælist 76-78-80-82-84-86 cm prjónið 4 umferðir með garðaprjóni yfir miðju 31-31-33-33-35-35 lykkjurnar, síðan eru felldar af miðju 25-25-27-27-29-29 lykkjurnar. Haldið áfram með 3 lykkjur garðaprjón við háls – JAFNFRAMT er fækkað um 1 lykkju í annarri hverri umferð alls 5 sinnum – sjá ÚRTAKA-2 = 13-15-16-18-19-21 lykkjur eftir á öxl. Fellið af þegar stykkið mælist 82-84-86-88-90-92 cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma.

HEKLAÐUR KANTUR:
Heklið með heklunál 4 í kringum handveg og hálsmál þannig: 1 fastalykkja í fyrstu lykkju, * 3 loftlykkjur, hoppið yfir 1 cm og festið með 1 fastalykkju *, endurtakið frá *-*.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir
symbols = sláið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 1 kúla: Prjónið 4 lykkjur í sömu lykkju, með því að prjóna til skiptis í fremri og aftari lykkjuboga. Prjónið eftir það 3 umferðir í sléttprjóni fram og til baka yfir þessar 4 lykkjur. Næsta umferð er prjónuð frá réttu þannig: lyftið 1 lykkju af prjóni, 3 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir, herðið á þræði og prjónið áfram
symbols = miðja að framan
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 106-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (79)

country flag Aisa wrote:

Hvor mange garnnøster (Karisma) trenger jeg til en tunika i str. XS, 10 cm kortere enn i oppskriften?

03.12.2023 - 10:00

DROPS Design answered:

Hei Aisa. Vi har ikke strikket den 10 cm kortere så en nøyaktig garnmengde har vi ikke. Men vil tippe 1-2 nøster mindre. mvh DROPS Design

04.12.2023 - 10:19

country flag Christelle R wrote:

Bonjour. Merci pour ces précisions mais après M4, j'ai toujours 144 m puisque les 2 jetés compensent les 2 dim de M3...J'ai du louper quelque chose

20.04.2022 - 14:30

Christelle R answered:

Gloups ! Je viens de voir mon erreur : j'ai tricoté M3 par erreur. Ceci explique cela. Encore merci et bravo pour tous ces magnifiques modèles. Bien cdlt

20.04.2022 - 14:33

country flag Christelle R wrote:

Bonjour. Je fais le modèle en taille S. A 57cm, je dois augmenter 1m de chaque côté des marqueurs des côtés soit 4 aug. par rg. Je dois le faire 2x. Soit 8 aug. + 144 m initiales= 152 or vous indiquez un total de 172 m ! Je ne comprends pas. Merci de votre retour. Bien cordialement

15.04.2022 - 21:32

DROPS Design answered:

Bonjour Christelle, sur vos 144 mailles, vous tricotez d'abord M.1, puis M.2 et enfin M.4 - et, dans M.4, vous augmentez 2 mailles x 8 fois M.4 tout le tour = 16 soit 160 mailles. Vous augmentez ensuite 3 fois 2 mailles de chaque côté (l'augmentation + les 2 répétitions) soit 160 + 3x4 = 172 mailles. Bon tricot!

19.04.2022 - 14:07

country flag Frauke HENZE wrote:

Hallo, ich habe noch eine Frage. Ich bin jetzt beim Halsausschnitt. Bleiben alle Maschen auf der Rundnadel, oder sollte ich die einzelnen Teile auf eine Hilfsnadel ziehen.? Da ja nach dem Armausschnitt jedes Teil einzeln gestrickt wird. Würde mich freuen über eine rasche Antwort. Mit frdl. Gruß.

13.09.2020 - 20:45

DROPS Design answered:

Liebe Frau Henze, wenn Sie die Arbeit teilen, können Sie nur die Maschen, die Sie stricken sollen, auf den Nadeln bleiben und die anderen stilllegen, die werden dann später aufgefassen und gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

14.09.2020 - 09:12

country flag Frauke Henze wrote:

Hallo, ich habe eine Frage zu diesem Modell. Wird das Kleid in Runden gestrickt ( ähnlich wie ein Rvo) Oder von rechts nach links und wieder zurück.? Das ist mir nicht ganz ersichtlich in der Anleitung. Würde mich über eine schnelle Antwort freuen.

25.08.2020 - 16:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Henze, das Kleid wird von unten nach oben in Runden bis Halsauschnitt gestrickt, dann wird die Arbeit in Hin- und Rückreihen gestrickt. Nach Armausschnitt wird jedes Teil separat gestrickt. Viel Spaß beim stricken!

25.08.2020 - 17:06

country flag Vera wrote:

Es geht bei M 1 um Reihe 3 die letzten 4 gezeichneten Maschen. In der Strickschrift werden 3 x hintereinander 2 M rechts zusammengestrickt gefolgt von einer weiteren rechten Masche. Die 3 aufeinanderfolgenden müssen aber nicht zusammen gestrickt werden sondern 1 M rechts abheben, 1 M rechts stricken und die abgehobene M überziehen. Das Symbol ist falsch herum

11.07.2018 - 15:13

DROPS Design answered:

Liebe Vera, in M.1 wird man 2 M rechts zusammen am Anfang und am Ende des Diagrams - siehe dieses Video (das Muster im Video ist etwas unterschiedlich aber troztdem wird man auch 2 M re zs stricken). Viel Spaß beim stricken!

11.07.2018 - 15:58

country flag Vera wrote:

Die Strickschrift von M 1 ist falsch.Die 3 letzten Abnahmen im Rapport müssen links geneigt sein sonst entsteht kein Fächer (also 1 M abheben, 1 re, abgehobene überziehen).Weiter bei Gr. L und der Einteilung der Markierungsfäden. So muss es richtig heißen 36 M stricken, 1. Markierungsfaden, 40 M stricken, 2. Markierungsfaden, 36 M stricken, 3. Markierungsfaden,36 M stricken,4. Markierungsfaden,40 M stricken,5. Markierungsfaden,36 M stricken, 6. Markierungsfaden.Sonst sind es 222 M statt 224

11.07.2018 - 13:02

DROPS Design answered:

Liebe Vera, M.1 ist so richtig, bei der letzten Reihe in M.1 stricken Sie 3 M li, 11 M re, 4 M li = diese 18 M wiederholen. Bei der Größe L stimmt schon die Maschenanzahl, die 3. Markierungsfaden und die 6. Markierungsfaden sind in einem M eingesetzt, das sind sicher die 2 "fehlenden" Maschen. Viel Spaß beim stricken!

11.07.2018 - 13:46

country flag Vibeke Tryk wrote:

Hvordan får jeg en midt maske for og bag når jeg har 80m på forstk og 82 m på bagstk?

14.05.2018 - 01:27

DROPS Design answered:

Hei Vibeke. Merketråd 3 og 6 (i sidene) sitter i hver sin maske, og ikke mellom 2 masker. Du vil derfor ha 79 masker på forstykke og 81 masker på bakstykke, og da blir det en midtmaske på hver del. God fornøyelse

15.05.2018 - 14:58

Jeanette wrote:

When inserting the marking threads (MT) for decreasing the large size, I come up with two extra stitches. The count of stitches don't add up to 224 stitches, but 222. Please tell me what I'm doing wrong. The maths don't work, so I'm thinking I don't understand the pattern. Thank you.

13.12.2017 - 02:15

DROPS Design answered:

Dear Jeanette, 2 markers are inserted in a stitch and not between sts, these maybe the both you are missing: work 36 sts, MT-1, work 39 sts, MT-2, work 36 sts, MT-3 in next st (= side), work 36 sts, MT-4, work 39 sts, MT-5, work 36 sts, MT-6 in next st (= side) = 36+39+36+ 1 (st with marker) + 36+39+36 + 1 (st with marker) = 224 sts. Happy knitting!

13.12.2017 - 10:31

country flag María Antonia wrote:

Buenos días En la talla XL, cuando hay que insertar los MP no me salen las cuentas 38 MP1 43 MP2 38 MP3 38 MP4 43 MP5 38 MP6 suman en total 238 puntos, no 240. Saludos

11.09.2016 - 13:02

DROPS Design answered:

Hola Maria Antonia. El MP3 y MP6 hay que insertar dentro del pt y no entre ellos. Son justo los 2 pts que te faltaban en el número total.

17.09.2016 - 18:40