DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 102-43
DROPS Design: Mynstur U-002-h
Garnflokkur B
-----------------------------------------------------------

Stærð: XS-S-M

Mál:
Yfirvídd: ca 28/32 – 40/44 – 48/52 cm
Lengd á bakstykki: ca 24 – 32 - 40 cm
Dæmi fyrir hundategundir: XS = Chihuahua,
S = Bichon Frisé, M = Cocker Spaniel

EFNI:
DROPS Karisma frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
100-150-200 g litur 21, milligrár

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 4 (sokkaprjónar fyrir minnstu stærðina XS): lengd 40 cm.
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3: lengd 40 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
DROPS KAÐLAPRJÓNN – fyrir kaðla.
Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 1848.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-----------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-----------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STROFF:
Prjónið * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina.

ÚTAUKNING:
Aukið út með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn til að koma í veg fyrir göt.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA FYRIR HUND - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring frá hálsmáli og niður, síðan skiptist stykkið fyrir framfætur, þaðan er prjónað fram og til baka yfir hluta á baki. Síðan er stykkið prjónað undir maga, stykkin eru sett saman og prjónað í hring. Lykkjur undir maga eru felldar af og fellt er af í hvorri hlið í nokkra cm. Endað er á að prjóna stroff í kringum peysuna að neðan og lykkjur eru prjónaðar upp í opi fyrir framfætur þar sem einnig er prjónað stroff.

PEYSA FYRIR HUND:
Fitjið upp 60-80-100 lykkjur á sokkaprjóna 3 með Karisma. Prjónið stroff í 8-10-12 cm (= kragi sem brotinn er saman tvöfaldur). Skiptið yfir á stuttan hringprjón 4 (sokkaprjóna í minnstu stærðinni). Prjónið 1 umferð slétt JAFNFRAMT því sem aukið er út um 16-32-54 lykkjur jafnt yfir - sjá ÚTAUKNING = 76-112-154 lykkjur.
Prjónið nú mynstur þannig:
STÆRÐ XS: M.2, 2 lykkjur brugðið, M.2, 3 lykkjur brugðið, M.3, M.2, M.1 (= mitt ofan á baki), M.2, M.3 og 3 lykkjur brugðið.
STÆRÐ S: * M.2, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* 2 sinnum, M.2, * M.3, M.2 *, endurtakið frá *-* 2 sinnum, M.1 (= mitt ofan á baki), * M.2, M.3 *, endurtakið frá *-* 2 sinnum.
STÆRÐ M: * M.2, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, M.2, * M.3, M.2 *, endurtakið frá *-* 3 sinnum, M.1 (= mitt ofan á baki), * M.2, M.3 *, endurtakið frá *-* 3 sinnum.
JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 12-16-20 cm (frá uppfitjunarkanti) skiptist stykkið við framfætur þannig (reynið að skipta stykkinu þannig að kaðlarnir séu prjónaðir frá réttu): Setjið fyrstu 10-16-22 lykkjur á þráð (= magastykki), snúið stykkinu og haldið áfram með mynstur fram og til baka, fellið af 1 lykkju í hvorri hlið í byrjun á næstu 2 umferðum = 64-94-130 lykkjur (= bakstykki). Haldið áfram með mynstur fram og til baka yfir þessar lykkjur í 6-8-10 cm (stykkið mælist alls 18-24-30 cm). Stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu og klippið frá. Setjið lykkjur á þráð og setjið lykkjur af þræði frá magastykki til baka yfir á prjóninn. Fitjið upp 1 nýja lykkju í hvorri hlið = 12-18-24 lykkjur. Prjónið mynstur áfram fram og til baka með 1 lykkju brugðið í hvorri hlið. Þegar prjónaðir hafa verið 6-8-10 cm eru allar lykkjur settar á sama prjón = 76-112-154 lykkjur, stillið af að næsta umferð sé prjónuð frá réttu.
Þegar stykkið mælist alls 24-31-38 cm fellið af 12-20-28 lykkjur mitt undir maga. Nú er stykkið prjónað til loka fram og til baka – JAFNFRAMT er lykkjum fækkað í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 1-1-1 sinni, 2 lykkjur 2-3-4 sinnum, 1 lykkja 2-3-4 sinnum, 2 lykkjur 2-3-4 sinnum og 3 lykkjur 1-1-1 sinni = 32-50-74 lykkjur eftir á prjóni.
Stykkið mælist nú ca 30-39-48 cm.

FRÁGANGUR:
Setjið þær lykkjur sem eftir eru á stuttan hringprjón 3, prjónið til viðbótar upp lykkjur í kringum affellingarkantinn þannig að það verða ca 84-108-140 lykkjur. Prjónið stroff í 2-3-4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur.

KANTUR Í KRINGUM OP FYRIR FRAMFÓT:
Prjónið upp ca 36-44-52 lykkjur á sokkaprjón 3 í kringum annað opið fyrir framfót. Prjónið stroff í 2-3-4 cm, fellið laust af með sléttum lykkjum yfir sléttar lykkjur og brugðnum lykkjum yfir brugðnar lykkjur. Prjónið kant í kringum hitt opið fyrir framfót á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = Kaðall: Setjið 1 lykkju á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 1 lykkja brugðið af kaðlaprjóni
symbols = Kaðall: Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 1 lykkja brugðið, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Kaðall: Setjið 2 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = Kaðall: Setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

The Lookout

Lisa, Canada

The Lookout

jendeavours, United Kingdom

The Lookout

Gordana, Serbia

The Lookout

Marita

The Lookout

Kerstin, Germany

The Lookout

Marte, Norway

The Lookout

cmw113, United States

The Lookout

Joanna, Poland

Skrifaðu athugasemd um DROPS 102-43

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (387)

country flag Therese Briand wrote:

Je vous ai envoyé un post pour une question qui finalement d'autres personnes ont demandé et que je vais essayé. En passant avez d'autres patron de chandails tricotés ou crochetés pour chihuahua. Merci:))

19.10.2014 - 04:13

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Briand, cliquez ici pour voir nos modèles de pulls / manteaux pour chien. Bon tricot!

20.10.2014 - 10:49

country flag Therese Briand wrote:

Bonjour je suis rendu a l' étape de mettre les 10 premières mailles en attente et de continuer en aller retour et je ne comprend pas! Pourriez vous m'aidez svp. Ps: je travail avec 5 aiguilles droite et je ne suis pas expérimentées.... :)

19.10.2014 - 03:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Briand, on tricote ici en rond sur des aiguilles doubles pointes (cf vidéo ci-dessous) - avant de continuer en allers et retours, vérifiez bien que les tours avec les torsades (croisement) seront des rangs sur l'endroit. Bon tricot!

20.10.2014 - 10:06

country flag Christa Roggensack wrote:

Unabhängig von M.3 trotzdem noch mal nachgefragt zu M.1. Bei den Randrapporte von M.1 wird der untere Zopf über die 6 Maschen in der 2.Reihe nach der Zusammenführung der 2 x 3 Maschen für den Zopf gekreuzt, bei dem mittleren Rapport in M.1 erst in der 4. Reihe nach Zusammenführung der 2x3 Maschen. Sollte es nicht in der Mitte genau wie bei den Randrapporten des Musters M.1 laufen? Und was ist in dem Fall dann richtig. 2. Reihe oder 4. Reihe?

17.10.2014 - 13:00

DROPS Design answered:

Ich würde Ihnen vorschlagen, das Muster M.1 ohne die anderen Muster auf einem Probestück zu stricken und zu schauen, welche Variante Ihnen besser gefällt - mit 3 Zwischenreihen oder mit einer. Letztendlich ist das einfach eine Frage der Optik und des persönlichen Geschmacks, wo die Verzopfung sitzt.

17.10.2014 - 16:16

country flag Christa Roggensack wrote:

Frage zum Muster M.1: Der mittlere Rapport scheint mir genauso aufgebaut wie die beiden Randrapporte. Mit einer Ausnahme: der untere Zopf über 6 Maschen startet in der Mitte in der 4. Reihe über den Zöpfen mit 4 Maschen (Tausch 3 mit 1), bei den Randrapporten aber schon in der 2. Reihe. Kann es sein, dass der mittlere Rapport eigentlich genauso wie die Randrapporte verlaufen sollte? In dem Fall liefe der Gesammtrapport nämlich über 20 statt 22 Reihen, was genau mit 2x M.3 übereinstimmen würde.

14.10.2014 - 18:05

DROPS Design answered:

Die Muster M.3 und M.1 sind ja nicht aneinander gekoppelt, sondern verlaufen jeweils in einem eigenen "Streifen", getrennt durch M.2. Auch müssen die Muster nicht an einer bestimmten Stelle oder nach einem ganzen Rapport beendet werden. Das Muster M.1 kann also wie gezeichnet gestrickt werden.

17.10.2014 - 00:44

country flag Shardha Jhinnoe-Bachasingh wrote:

Hallo ik wil graag deze truitje breien voor mijn chihuahua maar ik heb moeite met patronen lezen ben een beginner en heb ook moeite met afkortings termen ik zou graag hulp willen voor deze patroon of wat makkelijker uitleg en rond breien kan ik niet kan ik deze ook op rechte naald kunnen breien en zo ja hoe ik hoop dat u me kunt helpen mijn chihuahua haar nek is 22 en borst 33 en rug 28

07.10.2014 - 21:11

DROPS Design answered:

Hoi Shardha. Je kan in onze FAQ lezen hoe je onze teltekeningen moet lezen. Verder kan je veel hulp halen bij onze instructievidoe's (kabels en in de rondte breien) en vraag eventueel hulp bij jouw DROPS verkooppunt, misschien hebben ze een breicafé / cursus waar je ondersteuning kan krijgen.

09.10.2014 - 13:54

country flag Hanna wrote:

Hej, när det står "*M2, 2am*, upprepa *-* 2ggr" tolkade jag det som att M2 2am ska göras 3 gånger. När man upprepar något så har man ju gjort det en gång först... Maskantalet stämde dock inte, men det gör det om man upprepar en gång. Är ingen jättevan mönsterstickare, brukar man skriva så eller är det fel i mönstret? Mvh hanna

01.10.2014 - 10:26

country flag ROOS wrote:

Waarom kan ik het patroon niet doormailen

29.09.2014 - 18:00

DROPS Design answered:

Hoi Roos. Als je op het envelopje bovenaan het patroon drukt zou je het patroon kunnen doormailen via jouw provider (gmail, outlook etc) of via Facebook, LinkedIn enzovoort. Ik heb hier geen problemen, dus ik weet helaas niet waarom het bij jou niet lukt.

30.09.2014 - 16:35

country flag NYCKEES wrote:

Bonjours à vous Peut-on tricoter ce modèle aux aiguilles droites et comment doit-on procéder pour les diagramme en aller et retour. Merci à vous.

06.07.2014 - 13:43

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Nyckees, pour tricoter ce modèle sur aiguilles droites, ajoutez 2 m lis (couture) et répartissez les motifs pour chaque pièce (sur l'envers, lisez les diag. de gauche à droite). Pensez aussi à consulter nos vidéos (cf onglet à droite de photo) pour apprendre à tricoter en rond (pour plus de simplicité). Bon tricot!

07.07.2014 - 08:58

country flag Renee Garnett wrote:

How do I find a shop that understands, and can help me with the grey cabled dog sweater.

20.06.2014 - 23:18

DROPS Design answered:

Dear Mrs Garnett, you are welcome to ask your question here or click here to find a store. Happy knitting!

21.06.2014 - 09:33

Carole wrote:

Un gros merci, jai finalement compris et réussi. Merci encore pour les infos.

20.06.2014 - 07:15