DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Children 15-14
Stærð: 5/6 - 7/8 - 9/10 -11/12 - 13/14 ára
Stærð í cm: 110/116-122/128-134/140-146/152-158/164
Efni:
DROPS Paris frá Garnstudio
300-350-400-400-450 gr nr 23, ljós grár
100-100-100-150-150 nr 48, bensínblár
100-100-100-150-150 gr nr 16, hvítur
100 gr í allar stærðir nr 12, rauður
100 gr í allar stærðir nr 25, mosagrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 l x 23 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Paris
DROPS Paris
100% Bómull
frá 352.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4576.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1.

RENDUR:
Rendurnar eru prjónaðar eftir mynsturteikningu M.1 þannig:
Axlastykki: Sjá ör fyrir byrjun í mynstri M.1.
Fram-/bakstykki: Prjónið M.1 áfram. Á eftir M.1 er M.1b endurtekið til loka.
Ermi: Prjónið M.1 áfram eins og á fram- og bakstykki að * í mynstri. Prjónið M.1c 1 sinni á hæðina. Haldið áfram með M.1 frá * í mynstri. Á eftir M.1 er M.1b endurtekið til loka.

LEIÐBEININGAR (á við um hálsmál):
Til þess að koma í veg fyrir göt þegar stykkinu er snúið við er 1. l tekin óprjónuð þegar prjónað er til baka og hert er á þræði.

ÚTAUKNING (á við um laskalínu):
Aukið út frá réttu: Byrjið 2 l á undan prjónamerki: Sláið uppá prjóninn, 4 l sl (prjónamerki er staðsett mitt á milli þessa l), sláið uppá prjóninn.
Í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn slétt (þ.e.a.s. prjónað er í aftari lykkjubogann í stað fremri) til þess að koma í veg fyrir göt.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna. Prjónað er ofan frá og niður svo hægt sé að stilla lengdina á stykkinu að eigin ósk.

AXLASTYKKI:
Fitjið upp 76-80-84-88-88 l á sokkaprjóna nr 4,5 með blágrænn. Prjónið stroff 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 3 cm. Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf (= hægri hlið). Prjónið nú upphækkun við hnakka (svo að hálsmálið sitji fallega). Haldið áfram með stroff 2 l sl/2 l br og prjónið fram og til baka þannig: Prjónið 38-40-42-44-44 l, snúið við – lesið LEIÐBEININGAR – og prjónið til baka að prjónamerki. Snúið við. Prjónið 43-45-47-49-49 l. Snúið við. Prjónið 48-50-52-54-54 l til baka. Snúið við. Prjónið 56-58-60-62-62 l. Snúið við. Prjónið 64-66-68-70-70 l til baka. Snúið við. Prjónið 1 umf yfir allar l og haldið áfram fram og til baka að prjónamerki. Prjónið nú í hring.
Prjónið 1 umf sléttprjón með blágrænn jafnframt er aukið út um 12-10-8-12-12 l jafnt yfir = 88-90-92-100-100 l. Prjónið 8 l áfram frá prjónamerki (byrjun umf færist til). Setjið 4 ný prjónamerki í stykkið þannig: 1. prjónamerki í byrjun umf (= 1. skipting á milli hægri ermi og bakstykkis), 2. prjónamerki á eftir 28-29-30-34-34 l (= bakstykki), 3. prjónamerki á eftir 44-45-46-50-50 l (= vinstri ermi), 4. prjónamerki á eftir 72-74-76-84-84 l (= framstykki). Lykkjur á milli 4. og 1. prjónamerki = hægri ermi.
Haldið áfram í sléttprjóni og rendur samkvæmt M.1 – sjá útskýringu að ofan – til loka. Jafnframt er aukið út fyrir laskalínu: Aukið út um 1 l hvoru megin við 4 prjónamerkin (= 8 útaukningar í hvert skipti) – lesið ÚTAUKNING – að ofan.
Aukið út í hverri umf 2-4-6-3-7 sinnum og síðan í annarri hverri umf 15-15-15-18-17 sinnum.
Eftir allar útaukningar fyrir laskalínu eru 224-242-260-268-292 l á prjóni. Í næstu umf eru 50-54-58-58-64 l í hvorri hlið (á milli 2. og 3. prjónamerkis og á milli 4. og 1. prjónamerkis) settar á þráð fyrir ermi. Jafnframt eru fitjaðar upp 8 nýjar l í hvorri hlið neðan við l á þræði = 140-150-160-168-180 l á prjóni.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Haldið áfram með sléttprjón og rendur samkvæmt M.1 – sjá útskýringu að ofan. Í umf 1 er sett 1 prjónamerki í hvora hlið á stykki undir ermum (þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við hvort prjónamerki). Jafnframt þegar stykkið mælist 4 cm frá prjónamerkjum í hlið er fækkað um 1 l hvoru megin við hvort prjónamerki með 5-6-5½-6-6 cm millibili alls 4-4-5-5-5 sinnum = 124-134-140-148-160 l. Haldið áfram þar til stykkið mælist 41-44-49-51-53 cm frá öxl. Endið M.1. Ef óskað er eftir að hafa stykkið lengra þá er haldið áfram að prjóna rendur samkvæmt M.1. Prjónið nú stroff 2 l sl/2 l br með ljós grár. (ATH: Í stærð 7/8 ára: Áður en byrjað er að prjóna stroff er prjónuð 1 umf í sléttprjóni þar sem fækkað er um 2 l jafnt yfir = 132 l). Haldið áfram þar til stroffið mælist 4 cm. Fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br. Stykkið mælist ca 45-48-53-55-57 cm mælt frá öxl.

ERMI:
Setjið l af þræði (= 50-54-58-58-64 l) yfir á sokkaprjóna nr 4,5. Haldið áfram í sléttprjóni og með röndum samkvæmt M.1 – sjá útskýringu að ofan. Jafnframt í umf 1 eru fitjaðar upp 8 nýjar l undir ermi = 58-62-66-66-72 l. Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (þ.e.a.s. 4 nýjar l hvoru megin við prjónamerki). Þegar stykkið mælist 4-4-3-3-3 cm frá prjónamerki mitt undir ermi er fækkað um 1 l hvoru megin við prjónamerki með 3½-3-3-4-3½ cm millibili alls 7-9-11-9-12 sinnum = 44-44-44-48-48 l. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 29-33-36-39-43 cm frá prjónamerki mitt undir ermi, skiptið yfir í ljós grár. Haldið áfram með stroff 2 l sl/2 l br í 6 cm, fellið laust af með sl yfir sl og br yfir br.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 16.04.2007
Nýtt efnismagn

Mynstur

symbols = hvítur
symbols = bensínblár
symbols = rauður
symbols = ljós grár
symbols = mosagrænn
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Seashore Stripes

Cora, Germany

Seashore Stripes

Lanade, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Children 15-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (42)

country flag JZ wrote:

Thanks for your answer relating to knitting short rows once knitting in rounds! You sent me a video how to do this. I suggest to include this video in your instructions.

28.03.2023 - 16:09

country flag JZ wrote:

Increase decription asks for knitting two rows: first row with increase by Yo and second to knit over the Yo. I assume that increaing every row means that I need to increase by first knitting over Yo from previous row and then immediatly make Yo. Is it a correct assumtion? I.e Yo every single row.

28.03.2023 - 15:59

DROPS Design answered:

Dear JZ, correct, remember the increases should be always worked as explained under Increasing tip (applies to raglan):, ie work until 2 sts remain before marker, YO, K4 (marker is in the middle of these 4 sts), YO; and repeat at each marker. Happy knitting!

29.03.2023 - 09:23

country flag Laura wrote:

In the raglan directions, so to be more clear, "every other row" does NOT mean alternating rows, it means every subsequent row, therefore each of the next 17 rows, inc 8 in each row. Correct?

23.02.2023 - 14:06

DROPS Design answered:

Dear Laura, when you have to increase 7 times on every round, increase on each of the next 7 rounds; when you have to increase on every other round a total of 17 times work as follows *work 1 round without increase, work 1 roudn with increases* work these 2 rounds a total of 17 times (= a total of 34 rounds will have been worked). Happy knitting!

23.02.2023 - 14:49

country flag Laura wrote:

I am having trouble with the raglan part of this pattern. I am making the size 14. I started with 100 stitches on, then inc 8 sts for each of the 7 rows gave me 156 sts, BUT, if I were to add 8 inc per every other row for the next 17 rows, I only have 220 sts - NOT 292. Should I inc 8 sts per row for each of the 17 next rows instead? Help! I look forward to finishing this project!

22.02.2023 - 23:52

DROPS Design answered:

Dear Laura, in size 13/14 years you first increase on every round for raglan a total of 7 times then you increase a total of 17 times on every other round, you will have then: 100 + (7x8) + (17x8) = 292 sts. Happy knitting!

23.02.2023 - 13:48

country flag Timo wrote:

Erre a részre gondoltam: "Folytassuk2 S / 2 F bordás mintával. Oda-vissza haladva kötünk:..."

02.05.2021 - 19:13

country flag Timo wrote:

Köszönöm szépen a gyors választ! Megint elakadtam. Ha a nyakánál kötöm az oda-vissza sorokat, utána elcsúsztatom a kezdést 8 szemmel akkor nekem a legkeskenyebb résznél lesz az új kör kezdete. Annak nem az elejének kellene lennie?

02.05.2021 - 12:55

DROPS Design answered:

Kedves Timo, ha a pulóvert körben kötjük (tehát nem kardigánunk van) a sor/kör kezdete gyakran esik a háta és az egyik ujja közé. Sikeres kézimunkáázást!

02.05.2021 - 17:17

country flag Timo wrote:

Sziasztok! Segítségeteket szeretném kérni abban, hogy ha a vállrészt folyamatosan a színén kötöm, mivel körkötőtűvel készítem a minta szerint, akkor is minden sorban kell szaporitani? Nem csak minden másodikban? A másik kérdésem az lenne, hogy a mintaív szerint a színét mutatja a mintának. A körkötés miatt ezt is ugye úgy kell érteni, hogy duplázódik a sorszám? Válaszotokat előre is köszönöm

26.04.2021 - 07:56

DROPS Design answered:

Kedves Timo, nem kell duplázni a sorokat a körkötés miatt. Vagyis a vállrész szaporítása, ahogy a leírásban is van : Szap minden körben 2-4-6-3-7 alkalommal majd minden 2. körben 15-15-15-18-17 alkalommal. Ezzel a raglánvonal egészen enyhén íves lesz. A minta kötésénél is MINDEN sort lát a diagramban, de minden sort úgy, ahogy azok a SZO felől látszanak (vagyis S szemkén, tehát a bord mintás szegélyeken kívül a pulóvert végig harisnyakötéssel kell kötni). Sikeres Kézimunkázást!

26.04.2021 - 10:23

country flag Sabine Kastrop wrote:

Ik meerder aan weerszijde van de merkdraden 1 steek. Voor de raglan, dat snap ik. Daarna staat er” Meerder 2-4-6 keer in elke naald ? ( waar in de naald?) en vervolgen 15 in elke tweede naald? ??? Snap echt niet hoe er gemeerderd moet worden. Dan staat er als de meerderingen voltooid zijn. Hoeveel naalden gaat dit over? Ik hoop dat u mij kunt helpen

20.07.2020 - 23:00

DROPS Design answered:

Dag Sabine,

Je meerdert eerst in elke naald en dit doe je voor maat 5/6 2 keer, voor maat 7/8 doe je dit 4 keer, enzooort. Vervolgens meeder je op elke tweede naald dus om de naald. En dit doe je in totaal 15 keer.

23.07.2020 - 11:37

country flag Elsebeth Jungsled wrote:

Hej Jeg forstår ikke helt, at der står man skal strikke rundt og at man slår op på strømpepinde. Kan man bruge rundpinde ? Vh Elsebeth

10.06.2020 - 14:58

DROPS Design answered:

Hej Elsebeth, Ja hvis der er masker nok så de når rundt på en rundpind, så kan du vælge det istedet for strømpepinde. God fornøjelse!

10.06.2020 - 15:04

country flag Marian wrote:

Can I get this pattern knitting from bottom up. Tried top down few times and messed up. Probably because I’m old!

07.04.2020 - 10:30

DROPS Design answered:

Dear Marian, could this video and/or this lesson help you to understand how to knit a jumper top down? Or maybe one of these patterns worked top down could help you? Do not hesitate to contact your DROPS store for any individual assistance. Happy knitting!

09.04.2020 - 15:38