DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 98-1
DROPS Design: Mynstur nr Z-240
--------------------------------------------------------
Stærð: Ein stærð
Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
200 gr litur nr 100, natur
Og einnig:
DROPS Snow frá Garnstudio
afgangur af lit nr 01, natur (fyrir blóm)

DROPS HRINGPRJÓNAR (80 cm) NR 4 – eða þá stærð sem þarf til að 19 l og 25 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS HEKLUNÁL NR 7 (fyrir blóm)
FYLGIHLUTIR: Ein lítil næla fyrir blómið.
--------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
DROPS Snow
DROPS Snow
100% Ull
frá 550.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 3960.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Mynsturteikningin sýnir mynstur séð frá réttu.

ÚTAUKNING:
Aukið út innan við 1 kantlykkju með því að slá uppá prjóninn, í næstu umf er uppslátturinn prjónaður snúinn (þ.e.a.s. prjónið aftan í l í stað framan) svo að ekki myndist gat.

ÚRTAKA:
Fækkið lykkjum innan við 1 kantlykkju.
Fækkið lykkjum á eftir 1 kantlykkju þannig : Prjónið 2 l br saman.
Fækkið lykkjum á undan 1 kantlykkju þannig: Prjónið 2 l snúnar br saman (þ.e.a.s. prjónið aftan í lykkjubogann í stað framan).
--------------------------------------------------------

HÁLSSKJÓL:
Miðju hlutinn með kaðli er prjónaður fyrst, síðan eru teknar upp l í kringum allt stykkið og prjónaður er stroffkantur.

Fitjið upp 15 l á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum af Alpaca. Prjónið 2 umf slétt (fram og til baka, (síðan er prjónað M.1 (= 13 l) með 1 kantlykkju í garðaprjóni í hvorri hlið. Haldið áfram með mynstur (kantlykkjan er prjónuð sl í hverri umf) jafnframt er aukið út um 1 l í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 6 sinnum – sjá ÚTAUKNING = 27 l – útauknar lykkjur eru prjónaðar slétt frá röngu og brugðið frá réttu. Þegar stykkið mælist 65 cm er fækað um 1 lykkju í hvorri hlið í annarri hverri umf alls 6 sinnum – sjá ÚRTAKA = 15 l. Prjónið 2 umf slétt og fellið laust af.

STROFFKANTUR:
Stykkið er prjónað í hring. Prjónið upp ca 342 til 366 l (deilanlegt með 3) í kringum allt hálsskjólið á hringprjóna nr 4 með 2 þráðum af Alpaca. Prjónið 1 umf brugðið og 1 umf slétt. Prjónið nú stroff 2 l sl / 1 l br. Þegar stroffið mælist 2 cm er 1 l br aukin út til 2 l br.
Þegar stroffið mælist 3 cm eru auknar út þær 1 l br sem eftir eru að 2 l br.
Þegar stroffið mælist 5 cm eru 2 l br auknar út til 3 l br. Í næstu umf er fellt laust af með sl yfir sl og br yfir br.

HEKLAÐ BLÓM:
Heklið með heklunál nr 7 og Snow þannig: Heklið 4 ll og tengið í hring með 1 kl í 1. ll.
UMFERÐ 1: Heklið 6 fl í hringinn og endið á 1 kl í 1. fl.
UMFERÐ 2: * Heklið 4 ll, 1 st í fyrstu af þeim 4 ll, 1 fl í næstu l *, endurtakið frá *-* og endið á 1 kl í byrjun umf = 6 blöð. Klippið frá og festið enda.
Saumið litla nælu á bakhlið á blóminu og festið blómið á hálsskjólið.
--------------------------------------------------------

HÁRBAND:
Fitjið upp 4 l á prjóna nr 4 með 2 þráðum af Alpaca. Prjónið SNÚRUPRJÓN þannig:
* Prjónið 1 l sl, leggið þráðinn fyrir framan stykkið, takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, leggið þráðinn fyrir aftan stykkið *, endurtakið frá *-* í öllum umf. Fellið af þegar stykkið mælist ca 150 cm.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu
symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón framan við stykkið, 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 98-1

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (60)

country flag Kathy wrote:

Hello again, I apologize for having multiple questions, and I very much appreciate your help. After knitting the central cable portion, I have 207 rows. If I pick up a stitch on every row, I will have a rib consisting of 444 stitches (207 x 2 + 15 cast on edge + 15 cast off edge) for the rib rather than the 342 to 366 called for in the pattern. I could not determine from the pattern if I am supposed to pick up a stitch at each row. Would you please advise me? thank you.

03.04.2023 - 07:36

DROPS Design answered:

Hi Kathy, You do not need to pick up 1 stitch in each row - depending on the size you are working, you pick up approx. 310 to 366 stitches in addition to the cast-on and cast-off edges. This will be approx. pick up on first row, skip 1 row, pick up on 3rd and 4th row, skip 1 row, pick up on 6th and 7th row etc. Hope this helps and happy Easter!

04.04.2023 - 06:51

country flag Kathy wrote:

Hello, Do you recommend blocking the central cable portion before adding the rib? Thank you.

03.04.2023 - 06:42

DROPS Design answered:

Hi Kathy, it is not necessary. Block the piece after completing the whole thing. Happy knitting!

04.04.2023 - 07:50

country flag Kathy wrote:

I am confused by the increases and decreases. I have two questions. (1) does “inside 1 edge st” mean immediately after the first stitch of the row and immediately before the last stitch of the row? why is the increase done with a yarn over, which is used when you want to make a hole (such as lace). the instructions next say to knit into the back of the stitch to avoid a hole. I found the video confusing. Can I use another form of increase, such as Make One Right or Left? Thank you.

01.04.2023 - 04:47

DROPS Design answered:

Dear Kathy, yes, inside the edge stitch is immediately after the first stitch or before the last stitch of the row. You can increase in several different ways; yarn overs are the most basic and easier to work, even though there may be a small gap remaining (take into account that, since it's twisted on the next row, the gap will be smaller than in lace patterns). But of course you can use M1R or M1L for this pattern. Happy knitting!

02.04.2023 - 22:45

country flag Freda Corrigan wrote:

Greetings, can I knit this neckwear using knit N purl stitching I really love the style but not good with pattern reading Thank you hope to hear from you soon

23.06.2022 - 14:58

DROPS Design answered:

Dear Mrs Corrigan, we only have diagrams to this pattern, but this lesson will explain you how to read a knitting diagram. Happy knitting!

23.06.2022 - 16:15

country flag Tanya wrote:

I am sorry but i am lost on what this means. Could you lease step by step clarify this. "When Rib measures 2 cm inc every other P section to P2. When piece measures 3 cm inc remaining purl sections to P2. When Rib measures 5 cm inc every other purl section from P2 to P3. Cast off on next row in Rib." Thank you

24.11.2019 - 06:59

DROPS Design answered:

Dear Tanya, to beginn with you are knitting a K2, P2 rib. At the first increase (when piece is 2 cm) you knit the row like this: * K1, P1, K1, P1, make 1, * and repeat *-*. In the next oncrease row (piece is 3 cm), you knit *K1, 1 P, make1, K2, P2. * and repeat *-*. For the next increase round (piece is 5 cm, you knit like this: K2, P1, K2, P1, make 1, P1 * and repeat *-*. Casting of in rib means that you cast of knit stitches with knit stitches, and purl stitches with purl stitches. I hope this helps. Happy Knitting!

24.11.2019 - 16:16

country flag Tanya wrote:

Hello: I see this says a sport weight yarn, would that be sport weight in "Canada" too or would it be classified as DK in Canada. I am also a bit confused as in some places that sell your yarn it says it is 4 ply others say 5 ply..

18.11.2019 - 20:31

DROPS Design answered:

Dear Tanya, we are glad to inform you that our yarns are available in Canada - please check retailer list in/to Canada here. Happy knitting!

19.11.2019 - 08:51

country flag Joyce Boatman wrote:

Name it Beauty as it is Beautiful

17.11.2019 - 01:22

Ngaire wrote:

Truly love this. Can this be knitted on straight needles

28.03.2018 - 06:19

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ngaire, the main part of the neck warmer can be worked on straight needle, but the edge (ribbingn part) is then worked in the round picking up sts around whole neck warmer. Happy knitting!

28.03.2018 - 15:52

country flag Joana Rodrigues wrote:

Só uma pequena nota em relação à tradução para Português: Nas dicas para as diminuições, falta acrescentar que, antes da m/p ourela, deve-se tricotar 2 ms/pts juntamente em liga/tricô enfiando a agulha na alça de trás (m/pt liga/tricô torcida/o)

03.12.2016 - 21:06

DROPS Design answered:

Obrigado pela nota. Vamos editar as explicações. Bom tricô! Boas Festas!

16.12.2016 - 17:06

Gwen Schmitt wrote:

I was wondering how much yarn to buy? I have a customer that wants to use a different yarn called Lions Pride Woolspun for this. Can anyone convert it for me and tell me how much to buy?

16.04.2016 - 06:40

DROPS Design answered:

Dear Mrs Schmitt, We are able to provide free patterns thanks to our yarns sold throughout the world. You will therefore understand that we can only recomand you to contact our DROPS Storefor any further help & assistance. Thank you for your comprehension.

18.04.2016 - 09:02