DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

Milk & Chocolate

Prjónuð peysa með norsku mynstri úr tveimur þráðum DROPS Alpaca. Stærð S-XXL

DROPS 97-24
DROPS Design mynstur no: z-221
Garnflokkur A+A

----------------------------------------------------------
Stærð: S - M - L- XL - XXL
Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
250-300-300-350-350 gr nr 401, ljós brúnn
150-200-200-200-200 gr nr 100, natur
50 - 50 - 50 - 50 - 50 gr nr 601, dökk brúnn
50 - 50 - 50 - 50 - 50 gr nr 506, koksgrár

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 4,5 – eða þá stærð sem þarf til að 18 lykkjur og 23 umferðir með sléttprjóni með tveimur þráðum verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3,5 – fyrir stroff.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 9900.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS Super Sale

30% AFSLÁTTUR á 6 tegundum af bómullargarni!
Tilboðið gildir til 12.04.2024

Leiðbeiningar um mynstur

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 og M.2. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna neðan frá og upp.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 150-162-180-198-216 lykkjur á hringprjón 3,5 með 2 þráðum ljós brúnum. Skiptið yfir í 2 þræði natur og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* í 6 cm.
Skiptið yfir á hringprjón 4,5 og haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT er lykkjufjöldinn jafnaður út til 144-152-176-192-208 lykkjur í 1. umferð. Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= 72-76-88-96-104 lykkjur á milli prjónamerkja). Þegar stykkið mælist 10 cm er M.1 prjónað (örin á einungis við um ermi). Haldið síðan áfram með sléttprjóni með ljós brúnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 18 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin í 7.-7-.8.-8.-9. hverjum cm alls 3 sinnum = 156-164-188-204-220 lykkjur. Þegar stykkið mælist 34-35-36-37-38 cm prjónið næstu umferð þannig: Fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-86-94-102 lykkjur (= framstykki), fellið af 8 lykkjur fyrir handveg, prjónið 70-74-86-94-102 lykkjur (= bakstykki) og fellið af 4 lykkjur fyrir handveg. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Stykkið er prjónað í hring.
Fitjið upp 42-48-54-54-60 lykkjur á sokkaprjón 3,5 með 2 þráðum ljós brúnn. Skiptið yfir í 2 þræði natur og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 4,5 og haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður út til 42-45-49-51-55 lykkjur í 1. umferð. Þegar stykkið mælist 8-10-10-10-9 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi með 4-3½-3½-3½-3½ cm millibili alls 10 sinnum = 62-65-69-71-75 lykkjur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 15 cm er prjónað M.1. Staðsetjið 1 mynstureiningu mitt á ermi (sjá ör í mynsturteikningu sem merkir miðju), útauknu lykkjurnar eru prjónaðar inn í mynstur – passið uppá að mynstrið færist ekki til. Þegar stykkið mælist 46-45-45-45-44 cm fellið af 8 lykkjur mitt undir ermi = 54-57-61-63-67 lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra ermi.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = 248-262-294-314-338 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingarnar á milli fram- og bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Haldið áfram með sléttprjón JAFNFRAMT er úrtaka fyrir laskalínu. Prjónið 2-3-2-1-2 umferðir áður en úrtakan byrjar. Nú eru 8 úrtökur í hverri úrtökuumferð.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum í 4. hverri umferð 0-0-4-5-5 sinnum, síðan í annarri hverri umferð 4-4-0-0-0 sinnum = 216-230-262-274-298 lykkjur. Prjónið 3-4-2-1-2 umferðir með ljós brúnum JAFNFRAMT sem lykkjufjöldinn er jafnaður til 216-225-261-270-297 lykkjur í 1. umferð. Prjónið og fækkið lykkjum eftir M.2. Á eftir síðustu úrtöku eru 120-125-145-150-165 lykkjur á prjóni. Prjónið nú 1 umferð natur jafnframt er lykkjum fækkað til 102-108-108-114-120 lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið stroff * 3 lykkjur slétt, 3 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-* með natur í 12 cm. Fellið síðan af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.

Mynstur

symbols = ljós brúnn
symbols = natur
symbols = dökk brúnn
symbols = koksgrár
symbols = 2 lykkjur slétt saman
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 97-24

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (157)

country flag Kristýna wrote:

Dobrý večer, vaše svetry se pletou vždy od shora dolů, máte i svetry od spoda nahoru, děkuji za odpověď Kristýna

28.01.2024 - 20:57

DROPS Design answered:

Dobrý den, Kristýno, určitě máme. Podívejte se třeba tady. Ať se Vám dobře plete!

06.02.2024 - 19:43

country flag Lydie wrote:

Bonjour je viens de terminer mes 6 cm de cote en taille M et j ai donc 162 mailles je dois " ajuster " les mailles a 152 cela veut il dire que l on doit diminuer de 10 mailles ? ensuite où mettre les marqueurs ? a combien de mailles par rapport au debut du rang ?? je vous remercie

10.12.2023 - 19:38

DROPS Design answered:

Bonjour Lydie, vous allez effectivement devoir diminuer 10 mailles (cf cette leçon) sur le 1er tour jersey endroit. Mettez ensuite le 1er marqueur au début du tour et le 2ème marqueur après 76 mailles (- après la moitié des mailles). Bon tricot!

11.12.2023 - 09:30

country flag Marja wrote:

Ben bezig met patroon 97-24. De steekverhouding krijg ik niet goed. Er staat dat je moet breien met dubbele draad. Hoe wordt dit bedoeld? Is dit met 2 bolletjes wol tegelijk? En hoe moet dat als je met 2 kleuren moet breien en de kleuren achterlangs mee moet nemen? Hoop dat u antwoord op mijn vragen heeft.

22.11.2023 - 22:45

DROPS Design answered:

Dag Marja,

Je breit inderdaad met 2 draden zodat het breiwerk dikker wordt. Dus ook het proeflapje brei je met 2 draden. In plaats van 1 dikke draad brei je dus met 2 dunne draden samen gehouden. Als je in patroon breit en met 2 kleuren bezig bent dan heb je dus ook van elke kleur 2 draden. Verder doe je het op dezelfde manier als dat je van elke kleur 1 dikke draad hebt.

25.11.2023 - 09:19

country flag Anita Sigrist wrote:

Ho aggiunto le maniche. Adesso quanti giri devo fare prima di iniziare il disegno?

04.10.2023 - 20:47

country flag Nataliya Chernichenko wrote:

Hei! Jeg la opp 180 masker på pinne 3,5. og strikket et strikk og litt til. \r\nOg har fått veldig vid hals, ikke høy som på bilde. \r\nJeg har lyst på høy hals. Hva kan jeg gjøre?

24.04.2023 - 16:16

DROPS Design answered:

Hej Nataliya, den her model er strikket nedefra og op. Det vil sige at det er selve kroppen du legger op til først. Halsen kan du strikke med 102 masker ifølge opskriften og du kan gøre den endnu mindre når du kommer så langt :)

25.04.2023 - 14:24

country flag LYDIE MADAME PUERTAS wrote:

Bonjour je souhaiterai faire ce modele en laine NORD mais je ne veux pas doubler le fils combien de pelotes de chaque couleur est ce que je dois prendre ?? taille M je vous remercie bonne journee

06.02.2023 - 13:05

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Puertas, si vous voulez tricoter avec 1 seul fil Nord, votre tension sera complètement différente, il vous faudra alors tout recalculer les explications par rapport à votre tension en largeur et hauteur, ou bien vous orienter sur un modèle tricoté avec 1 seul fil du groupe A (comme Nord), autrement, vous pouvez tricoter avec 2 fils Nord, utilisez le convertisseur pour calculer les quantités correspondantes pour votre taille et dans chaque couleur. Bon tricot!

06.02.2023 - 14:57

country flag Liz wrote:

How can i get this pattern in English? can't find the translate button :) thank you.

11.11.2022 - 21:09

DROPS Design answered:

Dear Liz, you can select the language under the photos. Happy knitting!

13.11.2022 - 23:31

country flag Sigrid Lutter wrote:

Liebe Mitarbeiter, ich stricke den Pullover in Größe S, bin bei der Passe angekommen und habe die angegebenen zwei Reihen gestrickt, ehe das Abnehmen beginnt. Nach der wievielten Reihe nehme ich nun das erste Mal ab, bzw. nach wievielen Reihen beginnt Muster 2? Vorab vielen Dank für Ihre Antwort und die ansonsten tolle Anleitung mit freundlichen Grüßen Sigrid

15.02.2022 - 18:40

DROPS Design answered:

Liebe Frau Lutter, nach den 2 ersten Runden wie zuvor nehmen Sie für den Raglan ab (8 Maschen pro jede Abanahmerunde) = 216-298 M (siehe Größe) - dann stricken Sie noch ein paar Runden mit braun (bei der 1. Runde Maschenanzahl anpassen = 216-297 M)), dann stricken Sie M.2 (= 120-165 M nach allen Abnahmen). Viel Spaß beim stricken!

16.02.2022 - 10:56

country flag Beatrice Larsson wrote:

Är det bara i mudden som det ska vara dubbeltråd, eller är det i hela tröjan?

28.01.2022 - 16:01

DROPS Design answered:

Hei Beatrice. Hele genseren strikkes med 2 tråder om du strikker med garn fra garngruppe A. Om du strikker med et garn fra garngruppe C, kan du bruke 1 tråd, bare husk å overholde strikkefastheten som er oppgitt i oppskriften. mvh DROPS Design

31.01.2022 - 13:38

country flag Solfrid wrote:

Det står i oppskriften at vrangborden er 6 cm. Deretter står det at man skal strikke hvitt til arbeidet måler 10 cm. Er det målt fra vrangborden? Når jeg ser på bildet er det hvite som strikkes etter vrangborden lenger enn vrangborden, dvs at det må i hvert fall strikkes mer enn 6cm for at forholdet skal se ut som på bildet.

01.01.2022 - 18:23

DROPS Design answered:

Hej Solfrid, jeg kan se hvad du mener, men opskriften er beregnet efter de 10 cm (hele arbejdet) husk at de første pinde i M.1 er også natur :)

05.01.2022 - 08:35