DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lasse

Settið samanstendur af: Prjónaðri peysu með norsku mynstri og hálsklút úr DROPS Karisma eða Merino Extra Fine.

DROPS 85-21
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Peysa:
Stærð: (12/14 ára) S/M - L - XL - XXL
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
(600) 700-800-850-950 gr nr 01 natur
(50) 100-100-100-100 gr nr 55 ljós brunn
(50) 50 - 50 - 50 - 50 gr nr 56 dökk brúnn
(50) 50 - 50 - 50 - 50 gr nr 30 gallabuxnblár

Eða notið:
Efni:
DROPS Merino Extra Fine frá Garnstudio
(600) 700-800-850-950 g nr 01, natur
(50) 100-100-100-100 g nr 07, ljós brúnn
(50) 50 - 50 - 50 - 50 g nr 06, brúnn
(50) 50 - 50 - 50 - 50 g nr 23, gráblár

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 3 og 4 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja og 28 umferðir með sléttprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 11088.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

STROFF:
* 4 lykkjur slétt, 4 lykkjur brugðnar *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1. Allt mynstrið er prjónað með sléttprjóni.
----------------------------------------------------------
PEYSA:
Peysan er prjónuð neðan frá og upp á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring. Tölur í () eiga við um minnstu stærðina.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp (184) 200-224-240-256 lykkjur á hringprjón 3 með ljós brúnu Karisma eða Merino Extra Fine og prjónið 2 umferðir sléttprjón, skiptið yfir í natur og haldið áfram með STROFF – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist (6) 7 cm er skipt yfir á hringprjón 4 og haldið áfram með sléttprjón – JAFNFRAMT í 1. umferð á eftir stroffi er lykkjufjöldinn jafnaður til (184) 202-218-240-258 lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið (= (92) 101-109-120-129 lykkjur á milli prjónamerkja). Þegar stykkið mælist (8) 10 cm er aukið út um 1 lykkju hvoru megin við bæði prjónamerkin í (3,5.) 5. hverjum cm alls (7) 6 sinnum = (212) 226-242-264-282 lykkjur. Þegar stykkið mælist (34) 42-43-44-45 cm fellið af 6 lykkjur á hvorri hlið fyrir handveg (þ.e.a.s. 3 lykkjur hvoru megin við prjónamerkin) = (100) 107-115-126-135 lykkjur á fram- og bakstykki. Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitið upp (56) 56-56-64-64 lykkur á sokkaprjón 3 með ljós brúnum og prjónið 2 umferðir sléttprjón, skiptið yfir í natur og haldið áfram með STROFF – sjá skýringu að ofan. Þegar stroffið mælist (8) 10 cm er skipt yfir á sokkaprjón 4 og haldið áfram með sléttprjón. Þegar stykkið mælist (10) 14-12-14-14 cm er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi í (3.) 2.-2.-2.-2. hverjum cm alls (12) 16-18-16-18 sinnum = (80) 88-92-96-100 lykkjur. Þegar stykkið mælist (45) 47-49-49-51 cm fellið af 6 lykkjur fyrir miðju undir ermi = (74) 82-86-90-94 lykkjur. Setjið lykkjur á 1 band og prjónið aðra ermi alveg eins.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handveg = (348) 378-402-432-458 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki í allar skiptingar á milli framstykkis, bakstykkis og erma = 4 prjónamerki. Prjónið (0) 1-0-1-0 umferðir áður en úrtaka byrjar.

Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: 2 lykkjur slétt saman.
Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 lykkju óprjónaða eins og prjóna eigi hana slétt, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir.
Fækkið lykkjum í annarri hverri umferð (5) 7-9-10-12 sinnum = (308) 322-330-352-362 lykkjur. Prjónið 1 umferð JAFNFRAMT því sem lykkjufjöldinn er jafnaður til (308) 319-330-352-363 lykkjur. Prjónið áfram og fækkið lykkjum samkvæmt M.1. ATH: Þegar 5 umferðir eru eftir í M.1 er fækkað um (14) 14-15-16-16 lykkjur með því að fækka lykkjum alvegi eins og áður en í annarri hverri einingu (í stærð S/M + XXL verða 2 mynstureiningar á eftir hverri annarri án úrtöku í lok umferðar) – passið uppá að úrtakan verði ofan við úrtöku í mynstri. Eftir síðustu úrtöku eru (126) 131-135-144-149 lykkjur á prjóni – prjónið til loka M.1. Prjónið síðan 1 umferð jafnframt því sem lykkjum er fækkað jafnt yfir til (88) 96-104-104-112 lykkjur.

KRAGI:
Skiptið yfir á sokkaprjón 3 og prjónið 1 umferð brugðin, 1 umferð slétt, 1 umferð brugðin og 1 umferð slétt áður en haldið er áfram með stroff – passið uppá að það verða 4 lykkjur slétt eða 4 lykkjur brugðnar nákvæmlega við miðju að framan.
Þegar kraginn mælist (10) 12-12-14-14 cm fellið af með stroffprjóni.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum.
----------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
________________________________________
Mál: ca 22 x 150 cm
Efni: DROPS Karisma frá Garnstudio
150 gr nr 01 natur
100 gr nr 55 ljós brúnn
100 gr nr 56 dökk brúnn
50 gr nr 30 gallabuxnablár

Eða notið:
Efni:
DROPS Merino Extra Fine frá Garnstudio
150 g nr 01, natur
100 g nr 07, ljós brúnn
100 g nr 06, brúnn
50 g nr 23, gráblár

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 19 lykkjur og 38 umferðir með garðaprjóni verða 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.2. ATH: 1. umferð í mynsturteikningu = 2 umferðir garðaprjón

KÖGUR:
Gerið kögur á hvorn enda á hálsklútnum með því að skilja eftir ca 18-20 cm af bandi á hvorum enda á eftir hverja umferð. Þetta þýðir að þú klippir þráðinn frá og byrjar með nýjum þræði eftir hverja umferð.
---------------------------------------------------------

HÁLSKLÚTUR:
Hálsklúturinn er prjónaður á lengdina, vegna lykkjufjöldans eru lykkjurnar prjónaðar fram og til baka á hringprjón.

Fitjið upp 342 lykkjur á hringprjón 5 með natur og prjónið 2 umferðir garðaprjón – JAFNFRAMT í 2. umferð er lykkjum fækkað í 6. hverri umferð (þ.e.a.s. prjónið saman 5. og 6. hverja lykkju) = 285 lykkjur (þetta er til að uppfitjunarkanturinn verði ekki stífur). Prjónið síðan garðaprjón samkvæmt M.2 – munið eftir að gera KÖGUR – sjá útskýringu að ofan. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 22 cm (eða að óskaðri breidd), prjónið síðan 2 umferðir garðaprjón með natur, jafnframt er aukið út um 1 lykkju í 6. hverja lykkju = 342 lykkjur, fellið af.

FRÁGANGUR:
Hnýtið saman þræðina í kögri 4 og 4 með tvöföldum hnút – gerið þetta á báðum endum.

Mynstur

symbols = natur
symbols = ljós brúnn/ljós brúnn
symbols = dökk brúnn/brúnn
symbols = gallabuxnablár/gráblár
symbols = 2 lykkjur slétt saman í þeim lit sem prjónað er með
symbols = Í M.2 er 1 umferð í mynstri (= 2 umferðir garðaprjón)
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 85-21

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (49)

country flag Christine FLORET wrote:

Je ne comprends pas comment on peut tricoter droit avec des aiguilles circulaires sans fermer les rangs (modèle écharpe). Il faut 2 paires d'aiguilles circulaires ? Est-ce que l'écharpe se tricote uniquement à l'endroit ou endroit/ envers en tournant le tricot? Ou doit-on couper le fil à chaque rang ? Ce n'est pas du tout expliqué.

01.12.2023 - 17:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Floret, on utilise une aiguille circulaire pour l'écharpe pour avoir suffisamment de place pour y loger toutes les mailles, mais on va tricoter alternativement sur l'endroit et sur l'envers en tournant à la fin de chaque rang; dans cette vidéo, nous montrons par ex. comment tricoter du jersey ainsi, il vous suffira juste de tricoter tous les rangs à l'endroit pour l'écharpe. Retrouvez plus d'infos sur les aiguilles circulaires ici. Bon tricot!

04.12.2023 - 07:39

country flag Veronika Isemann wrote:

Hallo, ich habe den Pullover Lasse mit Merino Extra Fine gestrickt. Die Maschenprobe und die Maße sind korrekt und der Pullover ist sehr schön geworden

19.11.2023 - 11:43

country flag Veronika Isemann wrote:

Hallo, Ich habe diesen Pullover in Gr. L fertig gestrickt. Wie angegeben, hatte ich 800 g Wolle in Natur gekauft. Nun habe ich 200 g übrig. Da kann ja dann was nicht stimmen ?

15.11.2023 - 19:57

DROPS Design answered:

Liebe Frau Isemann, haben Sie Karisma oder Merino Extra Fine gestrickt? Wir hatten bis jetzt keine solche Hinweise gehabt.

16.11.2023 - 09:57

country flag Anette wrote:

Tak for hjælpen. Desværre havde jeg stillet spørgsmålet forkert. \\r\\nJeg forstod ikke hvad der kom efter de 11 masker.\\r\\nMen jeg er kommet frem til at der strikkes 6 masker grundfarve 1m mønsterfarve, 4 m grundfarve, derefter 6 masker grundfarve, 1 m mønsterfarve 4 m grundfarve 6 m grundfarve etc. Dvs at man starter med 6 grundfarve, men derefter strikkes 10 m grundfarve og 1 m mønsterfarve indtil slut. Er det ret forstået? Håber at mit spørgsmål giver mening.

10.10.2023 - 10:17

DROPS Design answered:

Hej Anette, ja du vil altid få 10 masker grundfarve imellem hver maske med mønster farve på de 2 første omgange :)

17.10.2023 - 13:08

country flag Anette Foss wrote:

Drops 85-21 er jeg nu kommet til mønsteret. Når jeg kigger på dette starter det med 11 m grundfarve, derefter farve 2 med1 m, derefter 4 grundfarve i mønster skabelon, og så er mit spørgsmål: er det så fortsat 11m med grundfarve, hvor der vises 4 m grundfarve og mønsteret ikke viser mere! Altså 11 m grundfarve, 1 m farve 2. 11m grundfarve ect. omgangen ud? Håber I forstår mit spørgsmål!

29.09.2023 - 17:37

DROPS Design answered:

Hei Anette. Ikke helt sikker på om jeg har forstått spørsmålet ditt helt. Men diagram M.1 består av 11 masker og når du skal starte å strikke etter M.1, strikker du først 6 masker med hovedfargen, 1 maske med mønsterfarge og 4 masker med hovedfargen = 11 masker. Det er denne rapporten som gjentar seg omgangen rundt. mvh DROPS Design

09.10.2023 - 13:48

country flag Anette Foss wrote:

Hej jeg strikker Drops 85-21, og er snart færdig med rib på ryg/forstykke. Men forstår ikke "første pind efter ribben justeres med antal masker til (for mig 218m, jeg har 224m) betyder det at jeg skal tage ind og hvor henne eller hvad menes?

29.06.2023 - 17:20

DROPS Design answered:

Hej Anette, ja efter ribben skifter du pind og på første retpind tager du 6 m ind jævnt fordelt på pinden så du har 218 masker :)

30.06.2023 - 09:06

country flag Ruth wrote:

Skal man, efter at have samlet alle dele, strikke med bundfarven mens man tager ind på hverandre omgang, og først her begynde på M1 ?

26.03.2022 - 09:29

DROPS Design answered:

Hej Ruth, ja du strikker først alle stykkerne sammen med bundfarven og først når vi skriver "videre strikkes der og tages ind ifølge M.1 begynder du med diagrammet. God fornøjelse!

30.03.2022 - 14:27

country flag Kirsten wrote:

Hej Er det korrekt at det kun er rib på ærmer og bluse der har lys brun kant, og ikke rib på halsen? Mvh. Kirsten

08.02.2022 - 20:10

DROPS Design answered:

Hej Kirsten, jo ifølge opskriften strikkes halsen også i rib 4ret, 4vrang men den lille bruge kant har du kun på ærmerne og nederst på blusen :)

09.02.2022 - 10:24

country flag Annelie Rosander wrote:

Hej! Vad kan ni rekommendera för alternativt garn? Han jag ska sticka tröjan till tycker att Karisma drops är för varmt garn, även om det är mjukt och skönt.

21.12.2021 - 14:30

DROPS Design answered:

Hei Annelie. Denne genseren er strikket i DROPS Karisma og ønsker du å strikke denne modellen er det Karisma tykkelse du må bruke (Garngruppe B). I stedenfor DROPS Karisma kan du evnt bruke DROPS Cotton Merion, et herlig mykt garn, 50% ull og 50% bomull. Kanskje det vil passe bedre? Ellers så kan du ta en titt på herre oppskrifter som er strikket i garngruppe A (som er tynnere enn garn i garngruppe B). mvh DROPS Design

21.12.2021 - 14:43

country flag Marliese Dexheimer wrote:

Modell Drops 85-21 „Lasse“: Warum soll beim Hals zuerst 1 Runde links, 1 Runde rechts, 1 Runde links, 1 Runde rechts gestrickt werden?

26.03.2021 - 11:35

DROPS Design answered:

Liebe Frau Dexheimer, so hat man 2 schöne Krausrippen zwischen Passe und Halsblende/Kragen. Viel Spaß beim stricken!

26.03.2021 - 12:09