DROPS Fisherman
DROPS Fisherman
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika
DROPS SS24
DROPS 39-12
DROPS design: Mynstur nr ff-001
Garnflokkur E
-------------------------------------------------------

STÆRÐ: Herrar: Small/medium (Medium/large)

EFNI:
Efni: DROPS Fisherman frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki E)
1000 (1100) gr litur 2, brúnn

(DROPS Fisherman er hætt í framleiðslu, hægt er að prjóna þessa flík úr öðrum garntegundum í garnflokki E eins og t.d. DROPS Andes, DROPS Snow og DROPS Wish).

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 8.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 8.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.

PRJÓNFESTA:
12 lykkjur á breidd og 16 umferðir á hæð með mynstri = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Fisherman
DROPS Fisherman
100% Ull
Hætt í framleiðslu
finna valmöguleika

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

STROFF:
* 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-*.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á hringprjóna, neðan frá og upp að handvegi. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón, neðan frá og upp. Fram- og bakstykki er prjónað fram og til baka á hringprjón hvort fyrir sig frá handvegi. Í lokin eru ermar saumaðar við handveg og hálsmál prjónað í hring á stuttan hringprjón.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 132 (136) lykkjur á hringprjón 4 og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjón 8, prjónið M.1 upp úr og aukið út um 20 (24) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 152 (160) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 20 (22) cm prjónið M.2. Prjónið áfram þar til stykkið mælist 39 (42) cm fellið af 2 lykkjur í hvorri hlið fyrir handveg (passið uppá að það sé ein mynstureining mitt að framan). Fram- og bakstykkið er prjónað til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 74 (78) lykkjur. Fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 (1) sinni, 1 lykkja 1 (1) sinni = 68 (72) lykkjur. Eftir M.2 er prjónað til loka M.3. Þegar stykkið mælist 63 (67) cm fellið af miðju 22 (24) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af lykkjur við hálsmál í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 1 sinni. Fellið af þegar stykkið mælist 68 (72) cm (stillið af eftir mynstri).

BAKSTYKKI:
= 74 (78) lykkjur. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki = 68 (72) lykkjur. Eftir að M.2 hefur verið prjónað til loka prjónið M.3. Þegar stykkið mælist 66 (70) cm fellið af miðju 24 (26) lykkjur fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð við hálsmál. Fellið af þegar stykkið mælist 68 (72) cm (stillið af eftir mynstri).

ERMI:
Fitjið upp 32 (32) lykkjur á sokkaprjóna 4 og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan í 6 cm. Skiptið yfir á sokkaprjón 8, prjónið M.1 upp úr og aukið út um 2 (2) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 34 (34) lykkjur. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út mitt undir ermi: 2 lykkjur 18 (19) sinnum til skiptis í 3. Og 4. hverri umferð = 70 (72) lykkjur. Þegar stykkið mælist 27 (27) cm prjónið M.2. Þegar 14 umferðir eru eftir í M.2 eru 4 lykkjur mitt undir ermi settar á þráð og prjónað er eftir það fram og til baka. Setjið áfram lykkjur á þráði í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 5 lykkjur 3 sinnum. Setjið nú allar lykkjur til baka á prjóninn og prjónið í hring. Fellið af eftir M.2. Þegar stykkið mælist ca 56 (56) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma, saumið ermar í við handveg.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 72 lykkjur í kringum hálsmál á sokkaprjóna 4 eða stuttan hringprjón og prjónið 6 cm sléttprjón. Fellið af.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS 39-12

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (14)

country flag Germaine Blagnac wrote:

Merci de votre réponse rapide -autrement dit le damierM1 se tricote sur 8 rgs 4 endroit 4 envers. les traits pleins foncés par exemple avant le 1er motif M2 au début du 2e motif au milieu du 3e a la fin du 4e- je vous remercie. g blagnac

20.01.2024 - 21:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Blagnac, le diagramme M.1 correspond aux 8 premiers rangs du long diagramme - les 8 rangs du bas, sous M.2. M.1 correspond au point de blé (1 m env, 1 m end sur 2 rangs, puis 1 m end, 1 m env sur 2 rangs). Les rangs suivants sont le motif M.2. Au 3ème rang de M.2 par ex vous avez une ligne de carrés noirs - à tricoter à l'envers sur l'endroit. Les damiers se tricotent sur 8 mailles (4 m end, 4 m env) sur 4 rangs, (4 m env, 4 m end) sur 4 rangs et correspondent au diagramme M.3. En espérant avoir pu vous aider avec les diagrammes. Bon tricot!

22.01.2024 - 08:52

country flag Germaine Blagnac wrote:

BONJOUR? JE commence le modèle homme 39.12 le diagramme ne présente-t-il que les rangs endroit ,?_ si oui au rang envers les mailles sont tricotées comme elle se présentent- . le nombre de rangs du diagramme est doublé -que veulent dire les traits pleins foncés ? merc

18.01.2024 - 21:15

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Blagnac, tous les rangs figurent dans les diagrammes, autrement dit 1 case = 1 m x 1 rang. Les cases blanches sont des mailles jersey endroit (tricotées à l'endroit sur l'endroit, à l'envers sur l'envers) et les carrés noirs sont des mailles jersey envers (tricotées à l'envers sur l'endroit et à l'endroit sur l'envers). Quant aux "traits pleins foncés", pouvez-vous m'en dire plus? Je ne suis pas sûre de comprendre à quoi vous faites référence, merci. Bon tricot!

19.01.2024 - 09:19

country flag Melissa wrote:

Could you tell me if Drops Wish is an alternative to Drops Fisherman? There isn't a yarn group indicated in the pattern and it seems like the stitch count could be similar. Thank you for your help. Melissa

01.12.2023 - 09:23

DROPS Design answered:

Dear Melissa, yes, you could substitute DROPS Fisherman with Drops Wish. Remember to work a gauge first to check that it matches or to calculate the pattern. Happy knitting!

03.12.2023 - 19:43

country flag Gonnie Weustenraad wrote:

Ik denk dat bij M2 geen 2 nld tricot tussen de patronen zit. Kijk maar eens goed naar de foto. Ook bij M3 zijn de blokjes maar 3 naalden ipv 4. Ik had zoals aangegeven gebreid maar dan kon ik nog maar 12 blokjes M3 breien tot aan de gegeven lengte. Op de foto zie ik ongeveer 16 . Ook brei ik op nld 7 ipv 8 dus zou er eigenlijk meer moeten kunnen maken. Heb het zelf al aangepast, maar het patroon klopt niet.

12.01.2023 - 20:13

country flag Gonnie Weustenraad wrote:

Volgens mij kloppen de patronen M2 en M3 niet. Heeft u een duidelijke/scherpere foto vd trui voor mij. Groet Gonnie

12.01.2023 - 19:02

country flag Gonnie Weustenraad wrote:

Volgens mij kloppen de patronen M2 en M3 niet. Heeft u een duidelijke/scherpere foto vd trui voor mij. Groet Gonnie

12.01.2023 - 19:00

DROPS Design answered:

Dag Gonnie,

Helaas moeten we het met deze tekeningen doen. Misschien kun je aangeven waar je precies tegenaan loopt, zodat we je daarmee wellicht kunnen helpen.

12.01.2023 - 19:42

country flag Danielle Fin wrote:

Quand je mets les mailles des manches en attente je ne sais pas les reprendre après, elles sont plus basses comment faire pour continuer

13.11.2019 - 19:22

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Fin, vous tricotez des rangs raccourcis, donc davantage de rangs sur les mailles du dessus de la manche que sur ceux du dessous: tricotez les 4 premières m en début de rang et glissez-les en attente, tricotez jusqu'à la fin du rang, tournez, tricotez les 4 premières m et mettez-les en attente, répétez ces 2 rangs encore 3 fois (mais maintenant avec 5 mailles à chaque fois), puis tricotez 1 rang jusqu'à la fin du rang, tournez et tricotez le rang suivant sur toutes les mailles = toutes les mailles ont été maintenant tricotées, continuez en rond. Bon tricot!

14.11.2019 - 09:43

country flag Helene Champagne wrote:

Bonjour Je suis rendue à la fin de la manche mais après avoir fait les mailles en attentes comment on s’y prend pour faire adonner le motif avec le reste du tricot qu’on doit reprendre et continuer à tricoter en rond. Merci

02.10.2019 - 12:32

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Champagne, vous pouvez couper le fil et reprendre le motif à partir du milieu sous la manche, comme avant, et tricotez les derniers rangs du diagramme M.2 sur toutes les mailles. Bon tricot!

02.10.2019 - 13:51

country flag Helene Champagne wrote:

Mais si on rabat 2 mailles de chaque cote pour les manches donc: on a 160 mailles divisées en 2 = 80 mailles moins 2 mailles a droite et 2 mailles a gauche donc 4 mailles pour le devant et 4 mailles pour le dos. Il reste 76 mailles pour le dos et 76 mailles pour le devant je crois

15.08.2019 - 15:29

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Champagne, vous ne rabattez que 2 mailles pour chaque épaule, il vous restera 78 m pour le devant et le dos et 2 mailles seront rabattues de chaque côté pour les emmanchures. Bon tricot!

15.08.2019 - 16:27

country flag Helene Champagne wrote:

Est ce possible qu’il y ait une erreur en ce qui a trait au nombre de maille après avoir rabattu les 2 mailles de chaque côté et qu’on doit continuer séparément. Moi je pense qu’on arrive avec 76 mailles pour le devant et le dos et non 78

15.08.2019 - 15:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Champagne, vous aviez 160 m et vous avez rabattu 2 fois 2 m pour les emmanchures = 160-4= 156 m / 2 = 78 m pour le devant et pour le dos. Bon tricot!

15.08.2019 - 15:22