DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 14-27
DROPS design: Mynstur nr z-030-by
Garnflokkur A
-------------------------------------------------------

Peysa og buxur:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)
Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
PEYSA:
100-100-100 (150-150) gr nr 7300, lime
50-100-100 (100-100) gr nr 7120, ljós minnta
DROPS TRÉ TALA NR 503: 3 st.
BUXUR:
150-150-200 (200-250) gr nr 7120, ljós minnta

FYLGIHLUTIR: Teygja ca 50-60 cm.

DROPS PRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 52 umferðir í garðaprjóni verði 10 x 10 cm
-------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

LEIÐBEININGAR (á við um peysu):
Á eftir hverju skipti sem snúið er við mitt í stykki er fyrsta lykkjan tekin óprjónuð eftir að snúið hefur verið við, herðið á þræði og prjónið áfram eins og áður, þetta er gert til að koma í veg fyrir göt í skiptingunni.
-------------------------------------------------------

PEYSA:
Byrjið á vinstra framstykki, prjónið áfram að ermi, bakstykki, hinni erminni og að lokum hægra framstykki.

Fitjið laust upp 70-76-86 (96-104) lykkjur á prjón 2,5 með ljós minnta og prjónið 10 umferðir slétt fyrir kant að framanumferð 1 = rétta. Prjónið síðan þannig – sjá LEIÐBEININGAR: * 2 umferðir slétt yfir fyrstu 46-50-57 (65-70) lykkjurnar með lime (þ.e.a.s. prjónið slétt frá réttu yfir fyrstu 46-50-57 (65-70) lykkjur, snúið stykkinu og prjónið slétt til baka), 2 lykkjur slétt yfir fyrstu 64-70-80 (90-98) lykkjur með lime, 2 umferðir slétt yfir allar 70-76-86 (96-104) lykkjur með ljós minnta *, endurtakið frá *-* þar til stykkið mælist ca 16-18-19 (20,5-22) cm frá uppfitjunarkanti mælt þar sem hann er breiðastur. Setjið nú ystu 41-45-52 (60-65) lykkjur að neðri kanti á þráð (= hlið) og fitjið upp 36-42-46 (60-70) nýjar lykkjur í byrjun á umferð fyrir ermi áður en haldið er áfram þannig: * 2 umferðir slétt yfir fyrstu 41-47-51 (65-75) lykkjurnar með lime, 2 umferðir slétt yfir fyrstu 59-67-74 (90-103) lykkjurnar með lime, 2 umferðir slétt yfir allar 65-73-80 (96-109) lykkjurnar með ljós minnta. Þegar stykkið mælist 16-17-18 (18-20) cm frá þar sem fitjað var upp fyrir ermi (mælt þar sem stykkið er breiðast) eru felldar af ystu 36-42-46 (60-70) lykkjurnar neðst á ermi.
Setjið 41-45-52 (60-65) lykkjur af þræði í hlið til baka á prjóninn og setjið 1 prjónamerki í stykkið. Prjónið síðan áfram eins og áður frá *-* alveg eins og útskýrt er á framstykki.
Þegar stykkið mælist 28-31-35 (37-40) cm frá prjónamerki (mælt þar sem stykkið er breiðasta) setjið ystu 41-45-52 (60-65) lykkjurnar frá neðri kanti á þráð (= hlið). Fitjið upp 36-42-46 (60-70) nýjar lykkjur fyrir ermi og prjónið áfram eins og áður frá *-* alveg eins og útskýrt er á hinni erminni þar til prjónaðar hafa verið jafn margar umferðir á þessari ermi og á hinni. Fellið af ystu 36-42-46 (60-70) lykkjurnar neðst á ermi og setjið 41-45-52 (60-65) lykkjur af þræði í hlið til baka á prjóninn áður en haldið er áfram eins og áður. Þegar prjónaðar hafa verið jafn margar lykkjur á hægra framstykki eins og á vinstra framstykki er skipt yfir í ljós minnta og kantur að framan er prjónaður þannig: Prjónið 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur, í næstu umferð frá réttu er fellt af fyrir 3 hnappagötum þannig (þ.e.a.s. frá neðri kanti og upp að hálsi): Prjónið 43-47-55 (63-67) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 10-11-12 (13-15) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman, prjónið 10-11-12 (13-15) lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt saman og endið með 1 lykkju slétt. Snúið og prjónið slétt til baka yfir allar lykkjur, prjónið síðan 4 umferðir slétt yfir allar lykkjur áður en fellt er laust af.

FRÁGANGUR:
Saumið saum undir ermum kant í kant með smáu spori.

KANTUR Í HÁLSI:
Prjónið upp 1 lykkju í aðra hverja umferð (þ.e.a.s. í hverri umferð/rönd með garðaprjóni) í kringum hálsmál á prjón 2,5 með ljós minnta = ca 88-95-102 (106-113) lykkjur. Prjónið 3 umferðir slétt (umferð 1 = ranga) jafnframt í 1. umferð er lykkjum fækkað jafnt yfir til 62-64-66 (70-72) lykkjur. Fellið síðan af til skiptis með 1 lykkju slétt og 1 lykkju brugðið. Saumið tölur í.
-------------------------------------------------------

BUXUR:

HÆGRI SKÁLM:
Fitjið upp 52-60-64 (70-74) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) á prjón 2,5 með ljós minnta og prjónið slétt í hverri umferð. Þegar stykkið mælist 4 cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (= uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 4 cm er aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið með 1½-2-2½ (3-4) cm millibili alls 8 sinnum = 68-76-80 (86-90) lykkjur. Þegar stykkið mælist 18-21-24 (29-34) cm fækkið um 2 lykkjur í hvorri hlið. Haldið nú áfram að fækka um 1 lykkju í hinni hliðinni á stykki (= við miðju að framan) í annarri hverri umferð alls 2-4-6 (10-12) sinnum = 62-68-70 (72-74) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 36-42-46 (52-58) cm frá prjónamerki. Prjónið síðan sléttprjón í 2 cm fyrir fald áður en fellt er laust af.

VINSTRI SKÁLM:
Fitjið upp og prjónið eins og hægri skálm, nema gagnstætt.

FRÁGANGUR:
Brjótið hægri skálm saman tvöfalda og saumið saum innan á skálm innan við 1 kantlykkju – ATH: Kantur fyrir saum er saumaður út á við í neðstu 4 cm á skálm svo að saumurinn sjáist ekki þegar kanturinn er brotinn upp. Saumið vinstri skálm alveg eins. Saumið buxurnar saman að framan og að aftan innan við 1 kantlykkju og saumið saman op á milli skálma. Brjótið uppá faldinn efst tvöfaldan að röngu og saumið niður með smáu spori – skiljið eftir smá op til að þræða teygju í gegn. Brjótið uppá 4 neðstu cm á skálmum.

Froskur: SjáDROPS Baby 13-25
Teppi: SjáDROPS Baby 14-12

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Little Fern

Sharareh, France

Little Fern

Linnea, Sweden

Little Fern

Elske, Netherlands

Little Fern

Christine, Denmark

Little Fern

Alyona, Russian Federation

Little Fern

Lena, Sweden

A cardigan for Daisy

Anne, United Kingdom

Dragon & phoenix

Elli, Germany

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-27

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (71)

country flag Lisbet Sortkjær wrote:

I opskriften står at man skal bruge garn nr. 7300 Lime og nr. 7120 Lys mint, men de farver kan jeg ikke se findes i farvekortene for Drops Alpaca

30.12.2020 - 22:56

DROPS Design answered:

Hej Lisbet, de er desværre udgået, men vi har mange nye farver - se her: Alpaca Farvekort

07.01.2021 - 14:10

country flag Kim wrote:

My first time knitting newborn sweater. I’m confused about taking the stitches off the thread and knitting the other front panel? It seems like that should be the neck? There are only 41 stitches on the thread on that side? I don’t know what I did wrong?🤷🏽‍♀️

14.08.2020 - 05:39

DROPS Design answered:

Dear Kim, first row from RS is worked from the bottom edge of the jacket towards the neck, this means, the short rows are started from RS = there are more rows towards the bottom of the jacket - you then slip the first 41 sts at the beg of the next row from RS = the stitches for the side (will be worked later) and cast on 32 sts for the sleeve. Work the sleeve, then cast off the 32 sts and work the 41 sts back for back piece. Happy knitting!

14.08.2020 - 07:33

country flag Nunzia wrote:

J'ai un problème (malgré l'astuce tricot) , il se forme un trou en tournant l'ouvrage même en glissant la 1 ère maille et en tirant le fil ...ça ne marche pas ! Y a t-il une autre technique pour éviter cela ? Merci

23.03.2020 - 17:25

DROPS Design answered:

Bonjour Nunzia, retrouvez l'astuce tricot ici en vidéo ou bien essayez la méthode des mailles enveloppées. Bon tricot!

24.03.2020 - 09:37

country flag Isa wrote:

Peut- on faire ce modèle avec une seule couleur ? Si oui ,les explications sont elles les mêmes ? Merci

14.03.2020 - 16:50

DROPS Design answered:

Bonjour Isa, tout à fait, toutefois, veillez à bien tricoter le même nombre de rangs, quand on dit de tricoter 2 rangs en vert gris clair par ex, pensez à bien les tricoter dans votre couleur de fond sinon le modèle sera beaucoup trop court. Bon tricot!

16.03.2020 - 09:50

country flag Nina wrote:

Hej! Ska det verkligen vara 100 gram av lime och 50 gram av ljusmint i minsta storleken? Det ser ju ut som det är mer ljusmint i tröjan, kanter osv. Borde vara 100 gram a det snarare. Vet ni hur mycket garn det går åt om man använder bara en färg? Mvh Nina

11.01.2020 - 22:02

DROPS Design answered:

Hej Det finns dessvärre inga uppgifter om garnåtgången om den stickas enfärgad. Vi har inte fått några kommentarer om att garnet inte skulle räcka så det bör stämma (det är 2 varv lime och 1 varv mint på stor del av tröjan) Lycka till!

29.01.2020 - 11:18

country flag Carina Eurell wrote:

Förstår inte riktigt när ARB mäter 16cm ska jag då sätta maskorna på den smalaste sidan på en tråd eller den bredast sidan hoppas ni förstår hur jag menar

02.11.2019 - 14:05

DROPS Design answered:

Hei Carina. Du setter 41-45-52 (60-65) masker mot nederkant (der det er bredest/nederst på jakken) på 1 tråd. Deretter legger du opp 36-42-46 (60-70) nye masker på begynnelsen av pinnen (øverst) til erme før det fortsettes (nå strikkes første erme). God Fornøyelse!

04.11.2019 - 11:32

country flag Agneta Falk wrote:

Hur kan jag skriva ut mönstret då jobbigt att sitta med telefonen öppen

26.09.2019 - 14:45

DROPS Design answered:

Hej Agneta, du klickar på "Skriv ut" knappen till höger om bilden :)

26.09.2019 - 15:49

country flag Lisbeth Westman wrote:

Hej! Vi, dotter och barnbarn är stormförtjusta i denna fina tröja. Finns det beskrivning för större barn och vuxna att få tag på? Hoppas på svar. Vänliga hälsningar Lisbeth W

23.08.2019 - 23:09

DROPS Design answered:

Hei Lisbeth. Vi har nok dessverre ikke en akurrat lik oppskrift til større barn og voksne, men om du klikker deg inn på vår hovedside og skriver "sidledes" under "Vad letar du efter?" er det mulig noe du liker kommer opp, se evnt under modellen under DROPS 110-2 (voksen). God Fornøyelse!

09.09.2019 - 11:50

country flag Mia Gunnarsson wrote:

Hej, jag undrar om man ska kapa garnet efter varje omgång och fästa dessa, eller ska man låta garnet "halka med" till nästa gång man byter färg? Det blir väldigt många trådar att fästa annars ser jag när jag stickat några rep. Med vänlig hälsning Mia

13.02.2019 - 08:16

DROPS Design answered:

Hej Mia, du låter garnet följa med till nästa varv. Lycka till :)

13.02.2019 - 12:15

country flag Natascha Müller wrote:

Liebes Team, eine Frage zur Jacke: Wann wird beim rechten Vorderteil die Blende gestrickt? Wenn die Anzahl der Krausrippen gleich hoch ist wie beim linken Vorderteil inkl. der Borde? Oder die Anzahl der Krausrippen mit den verkürzten Reihen gleich hoch ist?

09.02.2019 - 20:10

DROPS Design answered:

Liebe Frau Müller, wenn die Anzahl Krausrippen gleich hoch ist wie am linken Vorderteil, ohne die Blende wird dann die rechte Blende mit hellgrün gestrickt (damit die gesamte Anzahl der Krausrippen genauso gleich am beiden Vorderteil ist). Viel Spaß beim stricken!

11.02.2019 - 09:02