DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS Baby 14-26
DROPS design: Mynstur nr z-034-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

GALLI:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56-62/68-74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
150-150-200 (200-250) gr litur nr 7120 grágrænn
150-150-200 (200-250) gr litur nr 7300 eplagrænn

DROPS PRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 34 umferðir í garðaprjóni með 2 þráðum verði 10 x 10 cm.
DROPS TRÉ TALA NR 501: 6-6-6 (7-7) st

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5940.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = fellið af 3. og 4. lykkju frá kanti, fitjið upp 2 nýjar lykkjur í næstu umferð.
Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist (frá uppfitjunarkanti neðst):
Stærð 1/3 mán: 25, 31, 38, 44 og 50 cm.
Stærð 6/9 mán: 29, 37, 44, 52 og 59 cm.
Stærð 12/18 mán: 32, 41, 49, 58 og 66 cm.
Stærð 2 ára: 37, 45, 53, 61, 69 og 77 cm.
Stærð 3/4 ára: 42, 51, 60, 68, 77 og 85 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

VINSTRI SKÁLM AÐ AFTAN:
Fitjið upp 17-19-20 (22-24) lykkjur á prjón 5 með 1 þræði af hvorum lit. Prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 8 cm er aukið út um 1 lykkju í hægri hlið (= innan á skálm) í 5.-6.-6. (8.-8.) hverri umferð alls 9-9-11 (11-12) sinnum = 26-28-31 (33-36) lykkjur. Þegar stykkið mælist 22-25-28 (33-38) cm fellið af 4 lykkjur innan á skálm, þ.e.a.s. í sömu hlið og aukið var út = 22-24-27 (29-32) lykkjur. Prjónið 6 umferðir garðaprjón og setjið lykkjur á þráð.

HÆGRI SKÁLM AÐ AFTAN:
Prjónið á sama hátt og vinstri skálm, nema með útaukningar og úrtöku í gagnstæðri hlið, haldið lykkjum eftir á prjóni.

BAKSTYKKI:
Setjið skálmarnar inn á sama prjón með úrtöku að hvorri annarri = 44-48-54 (58-64) lykkjur. Haldið áfram í garðaprjóni yfir allar lykkjur. Þegar stykkið mælist 46-54-61 (71-79) cm fitjið upp nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir ermi í annarri hverri umferð (þ.e.a.s. í lok hverrar umferðar): 2 lykkjur 1-1-3 (1-1) sinnum, 3 lykkjur 2-2-2 (1-1) sinnum, 4 lykkjur 3-3-3 (6-7) sinnum og síðan 16-17-17 (20-22) lykkjur 1 sinni = 116-122-136 (156-174) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 55-64-72 (83-92) cm fellið af miðju 14-16-16 (18-18) lykkjur fyrir hálsmáli. Í næstu umferð er felld af að auki 1 lykkja við hálsmál = 50-52-59 (68-77) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Fellið laust af þegar stykkið mælist 57-66-74 (85-94) cm.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstri skálm að aftan en í stað þess að setja lykkjur á þráð eru fitjaðar upp 3 nýjar lykkjur við miðju að framan fyrir kant að framan (þ.e.a.s. í sömu hlið á stykki sem aukið var út og úrtakan var gerð) = 25-27-30 (32-35) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram í garðaprjóni en 5 ystu lykkjur við miðju að framan eru prjónaðar brugðið í hverri umferð til loka (= kantur að framan), lykkjurnar í garðaprjóni koma þá til með að færast til og kanturinn að framan verður afmarkaður.
Þegar stykkið mælist 46-54-61 (71-79) cm eru fitjaðar upp nýjar lykkjur fyrir ermi eins og á bakstykki = 61-64-71 (81-90) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 53-62-69 (80-88) cm fellið af ystu 5-6-6 (7-7) lykkjur fyrir hálsmáli. Haldið áfram með úrtöku fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 2 sinnum og 1 lykkja 2 sinnum = 50-52-59 (68-77) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Þegar stykkið mælist 57-66-74 (85-94) cm fellið laust af.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Fitjið upp og prjónið eins og vinstra framstykki, nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir hnappagötum meðfram kanti að framan – sjá HNAPPAGAT – að ofan.

FRÁGANGUR:
Saumið saum yfir ermum.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Prjónið upp ca 40 – 55 lykkjur í kringum hálsmál með 1 þræði í hvorum lit. Prjónið 4 umferðir slétt – jafnframt eftir 1 umferð er fellt af fyrir hnappagati ofan við hin í kanti að framan. Fellið af með sléttum lykkjum frá röngu.
Saumið saum undir ermum + niður meðfram allri hliðinni í ystu lykkjubogana svo að saumurinn verði ekki þykkur.
Saumið sauma innan á skálmum alveg eins.
Saumið op á milli skálma (framstykki að bakstykki). Saumið tölur í.
Það er reiknað með ca 4 cm uppábroti neðst á ermum og skálmum.

Önd: DROPS Baby 13-29
Froskur: DROPS Baby 13-25
Sól: DROPS Baby 13-30
Teppi: DROPS Baby 14-19

Mynstur

diagram measurements
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (23)

country flag Breda wrote:

Modéle trés facile et complet au niveau explication

22.06.2019 - 22:54

country flag Meret Walter wrote:

Hallo zusammen, Ich verstehe die Beine nicht so ganz. Werden diese zweimal gestrickt, hinten und vorne, oder sind die 17 M das ganze Bein? Ich vermute eine Seite des Beins ist 17 M breit und die beiden Teile werden dann innnen und außen vernäht? Vielen Dank für eine kurze Rückmeldung. Viele Grüße, Meret

19.11.2018 - 22:41

DROPS Design answered:

Liebe Frau Walter, jedes Bein wird insgesamt 2x gestrickt für Rückenteil und Vorderteil - und dann zusammengenäht. Die 17 M = die Hälfte von dem Bein. Viel Spaß beim stricken!

20.11.2018 - 08:19

country flag Terese Fosser wrote:

Hvilken størrelse på knappene er anbefalt? Vil jo ikke kjøpe for store.. :)

12.03.2015 - 20:28

DROPS Design answered:

Hej Therese. Treknapp 501 er 20 mm - se ogsaa paa oversigt af knapper her

13.03.2015 - 15:44

country flag Marga Barink wrote:

Bij de beschrijving van de linkepijp achter is een (vertaal)fout gemaakt. Waar staat 'op elke 5-6-6 (8-8) cm = 26-28-31 (33-36) st' moet de 'cm' door nld vervangen worden. Met de huidige beschrijvingen worden de pijpen erg lang.

27.02.2014 - 20:01

DROPS Design answered:

Hoi Marga. Je hebt gelijk. Het patroon is aangepast. Bedankt voor het melden.

28.02.2014 - 14:30

Mina wrote:

Aah, those instructions were meant for "x 2 sides"... :O) Thank you so much for your prompt response! BR, mina

14.09.2013 - 10:40

Mina wrote:

Hi, re the back piece: If you start off with 44sts(for the smallest size 1-3 mths)and cast on new sts.for sleeve (2x1, 3x2, 4x3 and then only once 16 = 36 new sts), this adds up to 80sts at end of increase for sleeves. but, your pattern shows 116 sts as the total no. of sts. (?) Also, dont quite understand why on the last increase row 16 sts are only increased once, what about the other sleeve side? won't the sleeve then be asymmetrical if not increased on both sides? Pls clarify, thanks. mina

13.09.2013 - 17:46

DROPS Design answered:

Dear Mina, these sts are cast on for sleeve at the end of every row, each side, so that you will have 36 new sts each side x 2 sides (2 sleeves)= 72 sts + 44 = 116 ssts. Happy knitting!

14.09.2013 - 09:52

country flag Drops Design wrote:

Hej Gitte Jo det stemmer godt nok. Hvis du ser på måleskitsen så skal denne model have den længde når du er færdig. du bukker også buksebenet op. God fornøjelse!

10.11.2008 - 10:44

country flag Gitte wrote:

Hej, er ved at strikke ovennævnte model. Strikkefastheden er lige i øjet. Og jeg følger de angivne mål. Nu er jeg nået til det punkt hvor jeg har slået alle maskerne op til ærmerne, og gragten er allerede ca 57 cm lang.Næsten så lang som hele barnet. Er ikke dreven nok til at justere mønstret selv. Hvad er der galt??? Med venlig hilsen Gitte Agerlund

10.11.2008 - 10:37

country flag Anita wrote:

Hvad er kropslængden (nakke til skridt) i str 6/9 mdr? jeg kan ikke få diagrammets oplysninger til at stemme

14.11.2007 - 14:29

country flag Drops Design wrote:

Hei! Du må nok nesten bare prøve deg frem, men det kan være en god idè å titte på oppskriften for kjøredress, ja(D14-14). Halsen ser også ganske lik ut på de to modellene, så det ser ut som det skulle gå an. Lykke til! Mvh Garnstudio/Drops Design

17.01.2007 - 11:48