DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Dreamy Bluebell

Ferðapoki með hettu fyrir börn úr garðaprjóni, prjónað úr DROPS Alpaca. Stærð 1 mán - 4 ára.

DROPS Baby 14-14
DROPS design: Mynstur nr z-018-by
Garnflokkur A
--------------------------------------------------------

Ferðapoki:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2- 3/4) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (86/92-98/104)

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
400-450-500 (600-650) gr litur nr 2917, ljós turkos

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 5 – eða þá stærð sem þarf til að 17 lykkjur og 34 umferðir með 2 þráðum og garðaprjóni verði = 10 x 10 cm.
DROPS TRÉTALA NR 511: 6-6-7 (7-7) st.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 7920.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MÆLING:
Vegna þyngdar á garninu verður að taka öll mál þegar stykkinu er haldið uppi. Annars verður stykkið og langt þegar það er notað.

HNAPPAGAT:
Fellið af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan. 1 hnappagat = prjónið saman 2. Og 3. Lykkju frá kanti og sláið 1 sinni uppá prjóninn. Fellið af fyrir hnappagötum þegar stykkið mælist: Munið eftir MÆLING!
Stærð 1/3 mán: 27, 32, 37, 42, 47, 52 cm.
Stærð 6/9 mán: 28, 34, 41, 47, 54, 61 cm.
Stærð 12/18 mán: 29, 36, 42, 49, 55, 62, 69 cm.
Stærð 2 ára: 30, 37, 44, 51, 58, 65, 72, 80 cm
Stærð 3/4 ára: 31, 39, 47, 55, 63, 71, 80, 89 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

FERÐAPOKI - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Pokinn er prjónaður í 2 stykkjum sem síðan eru saumuð saman í hliðum og á öxlum.
Til þess að fá pláss fyrir allar lykkjurnar eru hvort stykki prjónað fram og til baka á hringprjón.

FRAMSTYKKI:
Lesið MÆLING!
Fitjið laust upp 54-60-66 (70-76) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum á hringprjón 5. Prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 24-25-26 (27-28) cm skiptist stykkið í 2 hluta, setjið lykkjur frá hægri hlið á þráð = 27-30-33 (35-38) lykkjur á prjóni.

VINSTRA FRAMSTYKKI:
= 27-30-33 (35-38) lykkjur. Fitjið upp 3 nýjar lykkjur við miðju að framan fyrir kant að framan = 30-33-36 (38-41) lykkjur á prjóni. Prjónið áfram í garðaprjóni nema 5 ystu lykkjur við miðju að framan (= kantur að framan) er prjónaður brugðið í hverri umferð til loka, lykkjur í garðaprjóni koma þá til með að færast til og kantur að framan verður afmarkaður. Þegar stykkið mælist 47-55-62 (72-80) cm – munið eftir MÆLING – fitjið upp nýjar lykkjur fyrir ermi í hlið í annarri hverri umferð þannig (þ.e.a.s. í lok hverrar umferðar að hlið): 3 lykkjur 3-2-3 (3-1) sinnum, 4 lykkjur 2-3-3 (5-5) sinnum, 6 lykkjur 1-1-1 (1-3) sinnum og 10 lykkjur 1 sinni = 63-67-73 (83-92) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 53-62-70 (81-90) cm fellið af ystu 8-8-9 (10-10) lykkjur við miðju að framan fyrir hálsmáli. Haldið áfram að fækka um 1 lykkju við miðju að framan fyrir hálsmáli í 4. hverri umferð 3 sinnum = 52-56-61 (70-79) lykkjur á prjóni (= öxl + ermi). Þegar stykkið mælist ca 58-67-75 (86-95) cm setjið lykkjur á þráð – endið með 1 umferð slétt frá röngu.

HÆGRA FRAMSTYKKI:
Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og prjónið eins og vinstra framstykki nema gagnstætt. Að auki er fellt af fyrir HNAPPAGAT í kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

BAKSTYKKI:
Fitjið upp 54-60-66 (70-76) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið) með 2 þráðum Alpaca á hringprjón 5. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 47-55-62 (72-80) cm. Fitjið nú upp lykkjur fyrir ermi í hvorri hlið í annarri hverri umferð: 3 lykkjur 3-2-3 (3-1) sinnum, 4 lykkjur 2-3-3 (5-5) sinnum, 6 lykkjur 1-1-1 (1-3) sinnum og 10 lykkjur 1 sinni = 120-128-140 (160-178) lykkjur á prjóni. Þegar stykkið mælist 56-65-73 (84-93) cm fellið af miðju 14-14-16 (18-18) lykkjur fyrir hálsmáli. Í næstu umferð er fækkað að auki um 1 lykkju við háls = 52-56-61 (70-79) lykkjur eftir á prjóni (= öxl + ermi). Þegar stykkið mælist ca 58-67-75 (86-95) cm – stillið af eftir 1 umferð slétt frá röngu – setjið lykkjur á þráð.

FRÁGANGUR:
Saumið sauma yfir ermum með lykkjuspori. Saumið saum undir ermum, niður meðfram allri hliðinni og í neðri kant á poka innan við 1 kantlykkju. Festið kanta að framan neðst með nokkrum sporum. Brjótið uppá neðstu 4 cm á hvorri ermi og saumið e.t.v. niður með nokkrum sporum.

HETTA:
Prjónið upp frá réttu ca 45-55 lykkjur í kringum hálsmáli með hringprjón 5 með 2 þráðum Alpaca. Prjónið 3 umferðir slétt jafnframt því sem í 2. umferð er aukið út jafnt yfir til 72-74-76 (78-82) lykkjur. Í næstu umferð frá réttu eru fitjaðar upp 7 nýjar lykkjur í hvorri hlið fyrir uppábrot = 86-88-90 (92-96) lykkjur. Prjónið garðaprjón þar til stykkið mælist 21-23-25 (27-28) cm og fellið af. Brjótið uppá hettuna og saumið saman efst uppi. Brjótið uppá 4 ystu cm í kanti að framan tvöfalt að réttu og saumið uppábrotið niður fallega að kanti hálsi.

Gerið 1 dúsk ca 6-7 cm að þvermáli og saumið niður í toppinn aftan á hettu. Saumið tölur í.


Leikföng: Sjá Skálmar og Þumall DROPS Baby 13-34

Mynstur

diagram measurements

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-14

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (65)

country flag Catherine Chapuis wrote:

Bonjour, Je ne comprends pas les 5 mailles de bordures"tout à l'envers "? la maille envers est "plus haute que le mousse et , du coup, la bande est plus grande, elle gondole et ce n'est pas joli! je défais en attendant votre réponse!Merci d'avance ! Catherine Chapuis

06.07.2018 - 15:49

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Chapuis, pour "marquer" la bordure des devants, on la tricote au point mousse en tricotant tous les rangs à l'envers, ainsi, elle va se démarquer légèrement du reste du devant qui, lui se tricote au point mousse "classique" soit tous les rangs à l'endroit. Bon tricot!

06.07.2018 - 16:06

country flag Susi wrote:

Hi Is it possible to use incawool 100% heighland wool. 10X10cm = 18m 100gram = 160m. p4½-5 Thanks

15.03.2018 - 18:35

DROPS Design answered:

Hi Susi, It is the knitting tension which is important so that you get the right size when working. So you will need to adjust the number of stitches to suit the new yarn as the Drops Alpaca uses 17 stitches for 10 cm in width. Happy knitting !

16.03.2018 - 07:51

country flag JOELLE TARNAUD wrote:

Bonjour, J'ai terminé le devant gauche et je ne comprends pas la signification de ajuster après un rang envers? ensuite on met les mailles en attente mais quand les reprend on? je ne trouve pas . Vous dites la meme chose pour devant droit et dos mais quand arrete -t-on le travail? je ne comprends pas non plus comment on sait pour l'assemblage répartir manches épaules et capuche merci de votre aide

01.11.2016 - 12:06

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Tarnaud, le dernier rang de chaque devant et du dos doivent être tricotés sur l'envers avant de les mettre en attente. On les assemble ensuite en grafting - cf vidéo ci-dessous. Les mailles des épaules/manches correspondent à celles qui restent de chaque côté quand les diminutions de l'encolure sont faites. Bon tricot!

01.11.2016 - 12:40

country flag Paula wrote:

Jetzt habe ich noch erfahren/festgestellt, dass die Merino-Wolle beim Waschen ausleiert. Nun weiß ich aber nicht wie sehr sich das auf das Endstück auswirkt.. Bei anderen Anleitungen auf garnstudio.com mit Baby-Merino ist davon auch nirgends was geschrieben. Leiert die Wolle nur minimal, so dass es nicht viel ausmacht? Oder teilt das nur keiner mit, dass die Kleidung nach dem Waschen größer ist?...

31.05.2016 - 11:13

DROPS Design answered:

Hallo Paula, Sie müssen sich an die Pflegehinweise halten - vor allem das Kleidungsstück im liegen trocken. Wichtig ist auch, dass nicht zu locker gestrickt wird, also die Maschenprobe beachtet wird.

01.06.2016 - 08:26

country flag Paula wrote:

Ich würde statt Alpaka gerne Baby-Merino-Wolle nehmen, kenn mich aber nicht so gut aus. Mir ist nur aufgefallen, dass das doppelt gestrickte ganz schön dick ist und sich von der Breite her zusammen zieht. Was kann ich da machen? Und ist der Schlafsack wirklich so dick?

30.05.2016 - 16:45

DROPS Design answered:

Liebe Paula, dies ist ein wärmeres Modell und wird mit doppeltem Faden gestrickt. Sie können die Alpaca durch Baby Merino ersetzen (auch doppelt verstrickt).

01.06.2016 - 08:33

country flag Angelique wrote:

Hallo! Ich verstehe nicht in der Anleitung wo und wie die Ärmel gestrickt werden?

11.05.2016 - 21:02

DROPS Design answered:

Hallo Angelique, die Ärmel werden direkt angestrickt. Sie finden es in der Anleitung an dieser Stelle: Nach 47-55-62 (72-80) cm... bei jeder 2. R. (am Schluss jeder R.) für die Ärmel neue M. anschlagen...

12.05.2016 - 07:22

country flag Susan Vegsund wrote:

When casting on additional stitches for the sleeves the instructions are to cast on three stitches at the end of each row. Do you knit a row in between each cast on row. I am having trouble with the idea of casting on three stitches at the end of each row and then casting on an additional 3 stitches on the very next row.

27.01.2016 - 07:26

DROPS Design answered:

Dear Mrs Vegsund, on back piece you will cast on new sts for sleeve at the end of each row, ie work RS row and cast on 3 sts, turn and work next row from WS at the end of this row, cast on 3 sts = you have cast on 3 sts on each side ie 3 sts for each sleeve. Happy knitting!

27.01.2016 - 10:34

Mónica wrote:

Holal! la duda que tengo es en la capucha,,, donde dice "montar aprox. 45-55 pts"....... después dice aum. 72 pts. equitativamente, después 7 pts. de cada lado,,, es igual a tener 86 pts. Qué es lo correcto, aumentar de 45 hasta tener 72 ó aumentar 72, porque si es aumentar 72, más los 45 de inicio, más los 7 de cada lado nos dá 113 pts.,,Gracias! les saludo desde México!,, Moni.

03.12.2015 - 06:55

DROPS Design answered:

Hola Mónica, efectivamente se aumenta hasta 72, que sumados luego los otros 14 (7 a cada lado) nos dan los 86. Voy a cambiar ligeramente el texto para que no de lugar a equivocación. Debería poner "aum hasta tener 72 pts...". Gracias por escribirnos.

03.12.2015 - 10:07

country flag Judy wrote:

Thank you for all the wonderful, easily accessed patterns free of charge. This bunting looks lovely, but it would be more useful with an option for a car seat opening. Would you be able to add instructions for that? I have no idea where to place the opening. Many thanks.

13.03.2015 - 08:55

DROPS Design answered:

Dear Judy, you can get help from other patterns with an opening for seat belt adjusting number of sts with your tension, see here or there for example. Happy knitting!

13.03.2015 - 09:45

Irene Freeman wrote:

I have commence bunting bag back piece, cast on on 66sts and have knitted 62cm so far. NOW, cast on for new sts for sleeves pattern reads...at the end of each row, each side: so to end up with 140 stitches in my reckoning means that I have to increase at beg and end of the next row 3 sts both ends of the row (=6 sts in all for that round x 3) and so on. What is the best way to do this and am I correct. Thank you

09.03.2015 - 10:41

DROPS Design answered:

Dear Mrs Freeman, you cast on new sts at the end of each next row from RS + from WS to inc 3 sts each side, so that cast on 3 sts 3 times will get you 9 sts more each side, you will cast on a total of 37 sts each side. Happy knitting!

09.03.2015 - 10:53