DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Lille Trille

Prjónuð peysa fyrir börn með hringlaga berustykki og köðlum, húfa með dúsk, vettlingar og sokkar úr DROPS Alpaca. Stærð 1 - 3 ára.

DROPS Baby 14-2
DROPS design: Mynstur nr z-023-by
--------------------------------------------------------

PEYSA
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2/3) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (92/98)

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
150-150-200 (250) gr litur nr 7120, ljós grágrænn
DROPS PERLUTALA NR 521: 4-4-4 (5) stk

HÚFA:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2/3) ára
Höfuðmál ca: 40/42 - 42/44 - 44/46 (48/50) cm

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
100-100-150 (150) gr litur nr 7120, ljós grágrænn

VETTLINGAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2/3) ára
Stærð í cm: 50/56- 62/68- 74/80 (92/98)

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
100-100-150 (150) gr litur nr 7120, ljós grágrænn

SOKKAR:
Stærð: 1/3 - 6/9 - 12/18 mán (2/3) ára
Lengd fótar: 10-11-12 (14) cm

Efni:
DROPS Alpaca frá Garnstudio
100-100-150 (150) gr litur nr 7120, ljós grágrænn

DROPS HRINGPRJÓNAR og SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 l og 34 umf með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS PERLUTALA NR 521: 4-4-4 (5) stk: Fyrir peysu

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Alpaca
DROPS Alpaca
100% Alpakka
frá 990.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 4950.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu M.1 til M.3. Mynsturteikning sýnir mynstur séð frá réttu.

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT:
Fellt er af fyrir hnappagötum í hægri kanti að framan frá réttu þannig:
Prjónið 2. og 3. l frá kanti slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn (í næstu umf er uppslátturinn prjónaður slétt).
Fellið af fyrir hnappagati þegar stykkið mælist:
STÆRÐ 1/3 mán: 5, 12, 19 og 26,5 cm.
STÆRÐ 6/9 mán: 7, 14, 21 og 28,5 cm.
STÆRÐ 12/18 mán: 8, 16, 24 og 32,5 cm.
STÆRÐ 2/3 ára: 9, 16, 23, 30 og 37,5 cm.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna frá miðju að framan. Munið eftir HNAPPAGAT í hægri kanti að framan – sjá útskýringu að ofan.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 179-199-213 (246) l (meðtaldar 5 kantlykkjur í hvorri hlið við miðju að framan) á hringprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 6 umf garðaprjón (umf 1 = rétta), prjónið nú 1 umf sléttprjón, þær 5 kantlykkjur í hvorri hlið halda áfram í garðaprjóni til loka – JAFNFRAMT í þessari umf er aukið út um 15-15-17 (20) l jafnt yfir (aukið ekki út yfir l í kanti að framan) = 194-214-230 (266) l. Næsta umf er prjónuð frá röngu þannig:
Prjónið 5 kantlykkjur, M.1B (= 4 l), M.1A yfir næstu 180-200-216 (252) l (veldu rétta stærð, á röngu er mynstrið lesið frá vinstri til hægri) og endið á 5 kantlykkjum. Haldið svona áfram með mynstur. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 4-5-5 (6) cm er fækkað um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna 2 miðju l br saman (séð frá réttu). Endurtakið úrtöku með 3½-3½-4½ (5) cm millibili 3 sinnum til viðbótar = 10-12-10 (10) br l eftir í hverri mynstureiningu = 154-174-182 (210) l á prjóni. Þegar stykkið mælist 17-18-20 (23) cm prjónið næstu umf þannig: Prjónið 39-43-45 (52) m (= framstykki), fellið af 6-8-8 (8) l fyrir handvegi, prjónið 64-72-76 (90) l (= bakstykki), fellið af 6-8-8 (8) l fyrir handvegi og prjónið þær 39-43-45 (52) sem eftir eru (= framstykki).
Geymið stykkið og prjónið ermar.

ERMI:
Fitjið upp 40-42-44 (48) l skipt á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN hringinn – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 5 cm er sett 1 prjónamerki – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Haldið áfram í garðaprjóni þar til stykkið mælist 5 cm, prjónið síðan 1 umf í sléttprjóni JAFNFRAMT sem aukið er út um 4-6-18 (20) l jafnt yfir í umf = 44-48-62 (68) l. Næsta umf er prjónuð þannig – munið eftir mynstri í réttri stærð:
STÆRÐ 1/3 mán: M.2B (= 4 l), 4 l br, M.2A yfir næstu 28 l, M.2B (= 4 l) og 4 l br.
STÆRÐ 6/9 mán: M.2B (= 4 l), 4 l br, M.2A yfir næstu 32 l, M.2B (= 4 l) og 4 l br.
STÆRÐ 12/18 mán: 1 l br, M.2A yfir næstu 56 l, M.2B (= 4 l) og 1 l br.
STÆRÐ 2/3 ára: M.2B (= 4 l), 2 l br, M.2A yfir næstu 56 l, M.2B (= 4 l) og 2 l br.
Setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og látið prjónamerkið fylgja með stykkinu (í stærð 1/3 mán + 6/9 mán + 2/3 ára er prjónamerkið sett mitt í fyrsta kaðal í umf) = miðja undir ermi. Haldið áfram með mynstur eins og útskýrt er frá að ofan – jafnframt þegar stykkið mælist 6 cm er aukið út um 2 l við miðju undir ermi (í stærð 1/3 mán + 6/9 mán + 2/3 ára er aukið út um 1 l hvoru megin við kaðal við miðju undir ermi).
Aukið út um 2 l alls 5-8-5 (9) sinnum í stærð 1/3 mán: í 6. hverri umf, stærð 6/9 mán: Í 5. hverri umf, stærð 12/18 mán: Í 8. hverri umf, stærð 2/3 ára: Í 7. hverri umf = 54-64-72 (86) l – útauknar lykkjur eru prjónaðar br. Þegar stykkið mælist 15-17-17 (24) cm – passið uppá að næsta umf sé prjónuð í sömu umf í mynstri eins og á fram- og bakstykki þannig að mynstur heldur áfram í sömu umf þegar framstykki, bakstykki og ermar eru settar saman – fellið af 6-8-8 (8) l miðja undir ermi = 48-56-64 (78) l eftir á prjóni.
Prjónið aðra ermi á sama hátt.

BERUSTYKKI:
Setjið inn ermar á sama hringprjón og fram- og bakstykki þar sem fellt var af fyrir handvegi = 238-270-294 (350) l. Nú eiga að vera 10-12-10 (10) l br (séð frá réttu) milli kaðla umf hringinn.
Haldið áfram með mynstur eins og áður. Prjónið 3 eða 4 umf áður en úrtaka byrjar (í stærð 2/3 ára eru prjónaðar 7 eða 8 umf) – passið uppá að 1. umf með úrtöku er gerð frá réttu. Fækkið nú um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna 2 miðju l br saman frá réttu. Fellið af í 6. hverri umf 0-0-6 (8) sinnum, í 4. hverri umf: 8-8-2 (0) sinnum og síðan í annarri hverri umf: 0-2-0 (0) sinnum.
Eftir síðustu úrtöku eru 2 l br á milli kaðla alla umf hringinn og það eru 110-110-134 (158) l á prjóni.
Endið mynstur þegar prjónuð hefur verið 1 umf á eftir köðlum. Nú er prjónuð 1 umf slétt frá réttu jafnframt er lykkjum fækkað jafnt yfir til 63-65-69 (73) l (ekki fækka lykkjum yfir kant að að framan). Prjónið 3 umf slétt, prjónið nú gatakant frá réttu þannig: Prjónið 5 l sl, * sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* þar til 4 l eru eftir og endið á 4 l sl. Prjónið 2 umf slétt og fellið síðan laust af með sl frá röngu.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op undir ermum. Saumið tölur í. Brjótið upp neðstu 5 cm á hvorri ermi og saumið niður með nokkrum smáum sporum.

-------------------------------------------------------

HÚFA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

HÚFA:
Fitjið laust upp 104-109-114 (120) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN (sjá útskýringu að ofan). Þegar stykkið mælist 5-6-6 (7) cm er sett 1 prjónamerki í stykkið (merkir uppábrot) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 5-6-6 (7) cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 112-128-126 (140) l í umf. Prjónið nú M.2a (munið eftir að fylgja réttri stærð í mynstri). Þegar stykkið mælist 12-12-14 (16) cm fækkið um 1 l í hverri br mynstureiningu með því að prjóna saman 2 miðju l br í hverri umf (í síðasta skipti er 1 l br prjónuð saman með 1 l sl) þar til 32-32-36 (40) l eru eftir á prjóni. Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.
Húfan mælist ca 15-16-17 (19) cm frá prjónamerki.

FRÁGANGUR:
Brjótið kantinn í garðaprjóni tvöfaldan við réttu við prjónamerki og saumið niður í hvorri hlið með nokkrum smáum sporum – saumið að innan/röngu svo að sporin sjáist ekki frá réttu.

DÚSKUR:
Gerið 1 dúsk ca 5-6 cm að þvermáli og festið efst á húfuna.

-------------------------------------------------------

VETTLINGAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.Tvær stærstu stærðirnar eru prjónaðar með þumal, þær 2 minni eru án þumals.

VETTLINGUR:
Fitjið laust upp 34-36-36 (38) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – þar til stykkið mælist 2 cm. Prjónið 1 umf slétt JAFNFRAMT er fækkað um 6-4-4 (2) l jafnt yfir = 28-32-32 (36) l. Prjónið nú stroff 2 l sl/2 l br. Þegar stykkið mælist 4-4-5 (6) cm er prjónuð 1 umf slétt JAFNFRAMT er aukið út jafnt yfir til 32-36-36 (40) l – setjið 1 prjónamerki í byrjun umf og eftir 16-18-18 (20) l – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú br l jafnframt er mynstur M.3 prjónað yfir miðju 12 l ofan á handarbaki (fyrstu 16-18-18 (20) l í umf = ofan á hönd) – ör í mynstri merkir miðju.

TVÆR STÆRSTU STÆRÐIR: Jafnframt eftir 1 (2) cm í mynstri eru 5 (6) síðustu l í umf settar á þráð fyrir þumal. Fitjið upp 5 (6) nýjar l yfir l af þræði í næstu umf.

ALLAR STÆRÐIR: Þegar stykkið mælist 6-7-8 (9) cm – stillið af að prjónaðar séu 1 eða 2 umf á eftir snúning á kaðli – fækkið um 8-9-9 (10) l jafnt yfir í annarri hverri umf alls 3 sinnum = 8-9-9 (10) l eftir (fækkið um 1 lykkjum með því að prjóna 2 lykkjur brugðið saman). Þræðið tvöfaldan þráð í gegnum þær l sem eftir eru, herðið að og festið vel.

ÞUMALL:
Setjið 5 (6) l af þræði til baka á sokkaprjóna nr 2,5 og prjónið upp 7 (8) l í kantinn yfir þær = 12 (14) l alls. Prjónið umf br þar til þumall mælist 3 (4) cm. Prjónið síðan allar l saman 2 og 2.
Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og herðið að.

Prjónið annan vettling á sama hátt, en þumallinn er prjónaður í gagnstæða hlið (á við um 2 stærstu stærðir).

SNÚRA:
Fitjið upp 4 l á prjóna nr 2,5 með Alpaca og prjónið túbuprjón þannig: * Prjónið 1 l sl, leggið þráðinn fyrir framan stykkið (að þér), takið 1 l óprjónaða eins og prjóna eigi hana br, leggið þráðinn fyrir aftan stykkið (frá þér) *, endurtakið frá *-* í öllum umf þar til snúran er með lengd barns frá úlnlið til úlnliðs = ca 62-67-74 (86 til 96) cm. Fellið af og saumið snúruna að innan verðu á hvorum vettlingi.

-------------------------------------------------------

SOKKAR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað í hring á sokkaprjóna.

SOKKUR:
Fitjið upp 44-48-52 (56) l skipt niður á sokkaprjóna nr 2,5 með Alpaca. Prjónið 1 umf sléttprjón, prjónið síðan stroff með 2 l sl/2 l br þar til stykkið mælist 8-8-9 (10) cm.
Prjónið 1 umf sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4-8-8 (8) l jafnt yfir = 40-40-44 (48) l. Prjónið nú hæl þannig: Prjónið 3-3½-3½ (4½) cm sléttprjón fram og til baka yfir 16-16-16 (18) við miðju að aftan.

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 = rétta: Prjónið 9-9-9 (10) l sl, 2 l snúnar br saman, 1 l sl, snúið við.
UMFERÐ 2: Takið 1 l óprjónaða, 3-3-3 (4) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við.
UMFERÐ 3: Takið 1 l óprjónaða, 4-4-4 (5) l sl, 2 l snúnar br saman, 1 l sl, snúið við.
UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 5-5-5 (6) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við.
UMFERÐ 5: Takið 1 l óprjónaða, 6-6-6 (7) l sl, 2 l snúnar sl saman, 1 l sl, snúið við.
UMFERÐ 6: Takið 1 l óprjónaða, 7-7-7 (8) l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið við.
UMFERÐ 7: Prjónið 2 l slétt saman, 6-6-6 (8) l sl, 2 l snúnar sl saman = 8-8-8 (10) l á prjóni (= alls 32-32-36 (40) l). Prjónið upp 7-8-8 (11) l hvoru megin við hællykkjur og setjið allar l á sama prjón = 46-48-52 (62) l. Haldið áfram í sléttprjóni yfir allar l. JAFNFRAMT er fækkað um 1 l hvoru megin við efstu 18-20-22 (26) l í annarri hverri umf 7 sinnum = 32-34-38 (48) l.
Þegar fóturinn mælist 8-9-9 (11) cm (frá byrjun hælúrtöku) er sett 1 prjónamerki í hvora hlið og lykkjum fækkað fyrir tá. Fækkið um 1 l hvoru megin við prjónamerki í hverri umf (= 4 l færri í hverri umf) alls 7-7-8 (10) sinnum. Þræðið þráðinn í gegnum þær 4-6-6 (8) l sem eftir eru og festið vel.

Prjónið annan sokk á sama hátt.

-----------------------------------------------------------

TEPPI: DROPS Baby 14-20
HRINGLA: DROPS Baby 13-32

Mynstur

symbols = sl frá réttu, br frá röngu
symbols = br frá réttu, sl frá röngu
symbols = setjið 2 l á hjálparprjón fyrir aftan stykkið, 2 l sl, 2 l sl af hjálparprjóni
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 14-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (105)

country flag Lorna wrote:

Thanks for you quick response. After the decrease on the upper 18 stitches I am left with 32 stitches. As per the toe decrease the number of stitches should be equal on top and bottom, 16 stitches. Therefore my markers should be between these 16 stitches division, correct?

20.01.2024 - 00:47

country flag Lorna wrote:

Hello, I am working on the socks. How do I determine where the sides should be? I am working in the round from start to finish. Thank you.

19.01.2024 - 14:32

DROPS Design answered:

Dear Lorna, which side do you mean? The heel will be worked over the 16-18 sts (see size) on mid back, then you insert a marker on each side of foot (see video for toe decreases). Hope it can help. Happy knitting!

19.01.2024 - 16:05

country flag Romana wrote:

Guten Tag, Ich stricke Mütze Lille Trille, die Große für 6/9 Monate. In der Anleitung steht nach 12 cm man soll anfangen mit Abnahme. Wie ist das gemeint? Gemessen 12 cm Diagramm Muster MS2 oder gemessen ab der Kante (Markirungsfaden)? Ich freue mich über Ihre Antwort. Danke

23.10.2023 - 16:02

DROPS Design answered:

Liebe Romana, messen Sie ab der Markierung, deshalb wurde eine Markierung eingesetzt. Viel Spaß beim stricken!

24.10.2023 - 08:50

country flag Romana wrote:

Guten Tag, ich stricke Baby Mütze Lille Trille 14\2 und komme mit dem Diagramm M.2A nicht zurecht. Strick man zwischen die Zöpfen nur recht oder nur links oder weiter krausrippe? Links auf rechts und rechts auf links verstehe ich nicht wie das gemeint ist in Runden. Ich freue mich über Ihre Antwort. Ich stricke Ihre Modelle gerne nach. Liebe Grüße Romana Kathmann

20.10.2023 - 13:54

DROPS Design answered:

Liebe Romana, das Diagram M.2A wird in der Runde gestrickt, so stricken Sie die Maschen für die Zöpfe immer rechts und die Maschen dazwischen immer links (= links bei den Hinreihen). Vie Spaß beim stricken!

20.10.2023 - 14:22

country flag Leeanne wrote:

I’m knitting size 12/18 months, in the jacket it says to knit two stitches together in the purl section when the piece is 5cm, and then to dec in this way a further 3 times every 4.5cm living 12sts in the purl section. As the diagram used for the 12/18 months only has 14sts in the purl section to begin with this would leave me with 10sts not 12. Are the instructions incorrect or are the grid patterns labelled incorrectly?

22.07.2023 - 10:20

DROPS Design answered:

Dear Leeanne, you are right, it was a typo, it should have been 10 sts in this size, pattern is fixed now, thank you! Happy knitting!

28.07.2023 - 08:35

country flag Gillian wrote:

When I decrease the middle stitches in the purl section for the hat, on EVERY round as the pattern says, the hat is very short with just a few cable rows. Am I doing something wrong or is there a mistake in the pattern? I have finished the jacket which turned out beautifully.

09.06.2023 - 05:07

DROPS Design answered:

Dear Gillian, you have to decrease 1 stitch in the purl-sections on every round until all purl stitches have been decreased (the last time you work together 1 purl and 1 rett from the cable). If your tension in height is correct (34 rows stocking stitch = 10 cm), then you should get it right, these decrease round should measure approx. 3 cm. Happy knitting!

09.06.2023 - 09:21

country flag Emilita wrote:

Hola. Quisiera saber por q al final del patrón del cardigan dice que quedan 158 en el talle más grande y yo cuento solo 15 torsadas con sus respectivos 2 puntos a cada lado. No me da ese resultado. Me podrían aclarar. Gracias

30.05.2022 - 19:18

DROPS Design answered:

Hola Emilita, al trabajar el canesú, tendrás 25 trenzas, sumando las trenzas del cuerpo y cada manga. Después de las disminuciones, tendremos 24 trenzas x6 pts (4 pts de la trenza y 2 pts de revés) + 10 pts de la cenefa + 4 pts de una trenza más. En total son 158 pts.

31.05.2022 - 17:52

country flag Hessa wrote:

Hi.. I reached the Yoke section, I'm trying to put sleeves but it become very tight I could not continue. I don't know where is my mistake! :(

13.01.2021 - 11:14

DROPS Design answered:

Dear Hessa, this video shows how to add sleeves on the same needle as back and front pieces, over the cast off stitches for armholes - the first rows might be somewhat tricky but after a few rows, it will work nicely. Happy knitting!

13.01.2021 - 12:28

country flag Tineke Venne wrote:

I am knitting the 2nd size. Yoke section: Do I knit the 6 rows and 0 decrease and THEN 4 rows 1 decrease 8x? Or do I leave the 6 rows out altogether and start decreasing in the 4th row

10.10.2020 - 18:33

DROPS Design answered:

Dear Mrs Venne, in 2nd size you work 3 or 4 rows (just make sure next row will be from RS) before working first decrease row, then decrease a total of 8 times on every 4th row + 2 times on every other row. Happy knitting!

12.10.2020 - 08:00

country flag Gréta Ósk Sigurðardóttir wrote:

Jeg strikker jakken i str.2/3 år og jeg forstår ikke hvordan ærmet strikkes, det kommer to eller tilogmed tre fletter ved siden av hverandre!??

09.08.2020 - 00:36

DROPS Design answered:

Blessuð Gréta Ósk. Þú mátt ekki gleyma að prjóna eftir mynsturteikningu: STÆRÐ 2/3 ára: Mynstur M.2B (= 4 lykkjur), 2 lykkjur brugðið, mynstur M.2A yfir næstu 56 lykkjur, mynstur M.2B (= 4 lykkjur) og 2 lykkjur brugðið. Vona að þetta hjálpi. Gangið þér vel.

10.08.2020 - 16:11