DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Winter Star

Settið samanstendur af: Prjónaðri DROPS peysu og húfu með norrænu mynstri, vettlingum og sokkabuxum. Stærð 3 mán – 3 ára.

DROPS Baby 3-11
DROPS Design
Garnflokkur A
----------------------------------------------------------

Efni:
DROPS Baby Merino frá Garnstudio
Í allt settið þarf:
100-150-150 (150-150) gr nr 30, blár
250-300-300 (300-350) gr nr 02, natur

PEYSA:
Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2-3) ára
Efni:
DROPS Baby Merino frá Garnstudio
100-100-100 (150-150) gr f.nr 30, bár
100-100-100 (150-150) gr f.nr 02, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf með prjóna nr 3 og sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
DROPS TALA: 5-5-5 (6-6) st.

BUXUR:
Efni:
DROPS Baby Merino frá Garnstudio
Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2-3) ára.
Mál: Lengd á buxum (án sokks): 38-42-47 (52-55) cm.
Mál: Lengd skálma (án sokks): 18-20-23 (27-29) cm.

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf á prjóna nr 3 með sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

HÚFA:
Efni:
DROPS Baby Merino frá Garnstudio
Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3) ára.
Ummál: 35-41-46 (46-52) cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf á prjóna nr 3 með sléttprjóni verði 10 x 10.

VETTLINGAR:
Efni:
DROPS Baby Merino frá Garnstudio
Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2-3) ára.
Lengd á vettling: 9-10-11 (12-12) cm.

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 og 3 – eða þá stærð sem þarf til að 24 l x 32 umf á prjóna nr 3 og sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 6468.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.

KANTUR:
Prjónið 2,5 cm sléttprjón með blár, skiptið yfir í natur, prjónið 2 umf sléttprjón, næsta umf er prjónuð þannig: * 2 l slétt saman, sláið uppá prjóninn *, endurtakið frá *-* út umf (uppábrot – HÉÐAN ER NÚ MÆLT). 2 umf sléttprjón, skiptið yfir í blár og prjónið 2,5 cm sléttprjón.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð í hring á eftir kanti og er klippt upp fyrir handveg og við miðju að framan í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 120-134-148 (154-160) l á hringprjón nr 2,5 með blár og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á hringprjón nr 3 og prjónið sléttprjón í hring JAFNFRAMT er aukið út um 5-6-5 (14-21) l jafnt yfir í umf, aukið út um 5 l við miðju að framan (þessar 5 l eru til að klippa stykkið upp í lokin og eru þessar l ekki prjónaðar með í mynstri) = 125-140-153 (168-181) l (+5 l).
Prjónið M.1 uppúr. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 18-19-22 (23-26) cm er aukið út um 5 l í hvorri hlið (þessar l eru til að klippa stykkið upp fyrir handveg í lokin og eru þessar l ekki prjónaðar með í mynstri), framstykki = 31-35-38 (42-45) l, bakstykki = 63-70-77 (84-91) l. JANFRAMT er skipt um mynsturlit blár = natur og natur = blár (stillið af eftir heilli eða hálfri stjörnu). Þegar stykkið mælist 26-28-32 (34-38) cm fellið af 16-18-20 (24-26) l (+5 l) við miðju að framan við háls og stykkið er prjónað til loka fram og til baka. Fækkið lykkjum við háls í annarri hverri umf þannig: 2 l 2 sinnum, 1 l 1 sinni. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 28-30-34 (36-40) cm fellið af miðju 23-24-27 (30-33) l aftan við háls. Fellið síðan af 2 l á hvorri hlið í næstu umf við háls að aftan. Fellið af þegar stykkið mælist 30-32-36 (38-42) cm.

ERMI:
Fitið upp 38-40-40 (42-42) l á sokkaprjóna nr 2,5 með blár og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 JAFNFRAMT sem aukið er út um 2-4-8 (10-16) l jafnt yfir í 1. umf = 40-44-48 (52-58) l. Prjónið M.1 uppúr (staðsetjið 1 mynstureiningu mitt á ermi) – JAFNFRAMT er aukið út mitt undir ermi 2 l 9-9-10 (10-9) sinnum á 3 mán: í 3. hverri umf 6/9+12/18 mán + 2 ára: til skiptis í * 4. og 5. hverri umf *: til skiptis í * 6. og 7. hverri umf * = 58-62-68 (72-76) l.
Þegar stykkið mælist 14-18-20 (22-24) cm eru prjónaðir 1,5 cm sléttprjón með blár og brugðið út að brún fyrir saum yfir kant sem klippt verður upp í á búk, fellið af

FRÁGANGUR:
Saumið merkiþráð niður mitt í útauknar l á hvorri hlið (fyrir handveg) og við miðju að framan. Saumið tvo sauma í saumavél sitt hvoru megin við merkiþráðinn. Klippið upp fyrir handveg og við miðju að framan. Saumið axlasauma.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 70-90 l með bláum á prjóna nr 2,5 meðfram vinstra framstykki og prjónið KANTUR – sá utskýringu að ofan - fram og til baka. Endurtakið meðfram hægra framstykki, en eftir 1 cm er fellt af fyrir 5-5-5 (6-6) hnappagötum jafnt yfir á kant að framan. 1 hnappagat = fellið af 3 l og aukið út um 3 nýjar l í næstu umf.

HÁLSMÁL:
Takið upp ca 74-86 l með blár á prjóna nr 2,5 í kringum háls og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan (en 1,5 cm með blár í stað fyrir 2,5 cm).

FRÁGANGUR:
Saumið ermar á búkinn frá réttu þannig: Saumið til skiptis 1 spor í síðustu umf á ermi innan við kant fyrir saum og eitt spor í búkinn á eftir saumavélasaumi. Snúið peysunni við með rönguna út og saumið sauminn frá ermi yfir kant sem klipptur var upp á búk í höndunum. Saumið tölur í.

SOKKABUXUR:
Buxurnar eru prjónaðar frá mitt og niður.

Fitjið upp 120-120-132 (132-144) l með natur á hringprjóna nr 2,5 og prjónið 3 cm sléttprjón, 1 umf br (uppábrot ) – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!, 3 cm sléttprjón. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3 og prjónið stroff 1 l sl, 1 l br JAFNFRAMT er aukið út um 128-128-136 (144-156) l jafnt yfir í 1. umf. Þegar stykkið mælist 16-18-20 (21-22) er aukið út við miðju að aftan hvoru megin við 2 miðju l í 3. hverri umf: 1 l 4 sinnum, JAFNFRAMT er lykkjum fækkað við miðju að framan hvoru megin við miðju l í 3. hverri umf: 1 l 4 sinnum, fækkið lykkjum þannig: 2 l snúnar slétt saman, 2 miðju-l, 2 l slétt saman. Þegar stykkið mælist 20-22-24 (25-26) cm skiptist stykkið upp og skálmarnar eru prjónaðar til loka hvor fyrir sig.

HÆGRI SKÁLM:
= 64-64 68 (72-78) l. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 2-4-2 (1-2) cm fækkið lykkjum að innanverðu á skálminni: 2 l 5 sinnum í 3e-3e-4e (5e-5e) hverjum cm = 54-54-58 (62-68) l. Þegar stykkið mælist 18-20-23 (27-29) cm fækkið lykkjum jafnt yfir umf þar til 38-40-42 (42-44) l eru á prjóni, prjónið nú til loka í sléttprjóni. Eftir 2 umf eru prjónaðir 3 cm sléttprjón fram og til baka yfir 18 l við miðju að aftan (fyrir hæl).
HÆLÚRTAKA (1. umf frá réttu):
UMFERÐ 1: Prjónið 10 l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2: Takið 1 l óprjónaða, 4 l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Takið 1 l óprjónaða, 5 l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: Takið 1 l óprjónaða, 6 l sl, 2 l br saman, 1 l br, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5: Takið 1 l óprjónaða, 7 l sl, 2 l snúnar slétt saman, 1 l sl, snúið stykkinu.
UMFERÐ 6: Takið 1 l óprjónaða, 8 l br, 2 l br saman, 1 l br, snúið stykkinu.
UMFERÐ 7: 2 l slétt saman, 8 l sl, 2 l snúnar slétt saman = 10 l á prjóni.
Takið upp 7 l hvoru megin við hæl og setjið allar l á sama prjón = 44-46-48 (48-50) l.
Áfram er fellt af hvoru megin við efstu 16-18-18 (20-22) l: 1 l 6-6-7 (6-6) sinnum í hverri umf = 32-34-34 (36-38) l. Þegar fóturinn mælist 7-8-9 (11-12) cm (frá þar sem úrtaka fyrir hæl byrjaði) prjónið 1 umf sléttprjón. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið og nú er lykkjum fækkað fyrir tá hvoru megin við prjónamerkin: 1 l 8-8-9 (9-9) sinnum í hverri umf (= 4 l færri í hverri úrtöku). Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og saumið saman. Brjótið kantinn í mitti saman tvöfaldan og þræðið teygju í faldinn.

VINSTRI SKÁLM:
Prjónið eins og hægri.
----------------------------------------------------------

HÚFA:

KANTUR:
Prjónið 1 cm sléttprjón með blár, skiptið yfir í natur, prjónið 2 umf sléttprjón, næsta umf er prjónuð þannig: * sláið uppá prjóninn, 2 l slétt saman *, endurtakið frá *-* út umf (uppábrot – HÉÐAN ER NÚ MÆLT). 2 umf sléttprjón, skiptið yfir í blár og prjónið 1 cm sléttprjón.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Fitjið upp 84-98-112 (112-126) l á sokkaprjón nr 2,5 með blár og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið M.1, prjónið síðan til loka með blár. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Þegar stykkið mælist 14-16-18 (18-20) cm er prjónað til skiptis * 1 umf þar sem l eru prjónaðar saman 2 og 2 og 1 umf sléttprjón *, endurtakið frá *-* 4 sinnum = 6-6-7 (7-8) l. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið enda.

EYRNALEPPAR:
Fitjið upp 9 l á prjóna nr 2,5 með natur og prjónið garðaprjón í 20 cm. Aukið nú út um 1 l í hvorri hlið til skiptis í * hverri umf og í annarri hverri umf * þar til 23-25-25 (27-27) l eru á prjóni. Prjónið nú slétt þar til eyrnaleppurinn mælist 8-8-9 (9-9) cm. Fellið af. Saumið eyrnaleppinn á húfuna frá röngu (saumið í 1. sléttprjónuðu umf).
Prjónið annan eyrnalepp og saumið niður á gagnstæða hlið - það eiga að vera ca 8-10 cm bil á milli eyrnaleppa við miðju að aftan.
----------------------------------------------------------

VETTLINGUR:
Fitjið upp 38-40-40 (42-44) l á sokkaprjóna nr 2,5 með blár og prjónið 6 cm stroff 1 l sl, 1 l br. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3 og prjónið sléttprjón JAFNFRAMT er fækkað um 4-2-2 (2-4) l jafnt yfir í 1. umf = 34-38-38 (40-40) l. Þegar stykkið mælist 7-8-8,5 (9-9) cm setjið 5-5-6 (6-6-6) l á þráð fyrir þumal, í næstu umf eru fitjaðar upp nýjar l yfir þær l sem settar voru á þráðinn. Þegar stykkið mælist 12-12-13 (14-14) cm setjið eitt prjónamerki í hvora hlið, fellið nú af hvoru megin við prjónamerkin 1 l 7-8-8 (8-8) sinnum til skiptis * í hverri og annarri hverri umf * = 6-6-6 (8-8) l. Þræðið þráðinn í gegnum þær l sem eftir eru og festið enda.

ÞUMALL:
Takið upp l af þræði og takið upp 5-5-6 (6-6) l í útauknar l yfir gati fyrir þumal = 10-10-12 (12-12) l. Prjónið 3 til 4 cm, þræðið tvöfaldan þráð í gegnum allar l og festið enda.
Prjónið annan vettling alveg eins nema þumallinn er á gangstæðri hlið.

Mynstur

symbols = natur
symbols = blár
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 3-11

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (17)

country flag Lucy Wright wrote:

Thank you for reply but I am still don’t quite follow. I understand you cast on 5 stitches, does that mean you have a hole there ? Normally when I cut armholes I don’t add stitches ! Many thanks - I love your patterns .

21.03.2024 - 08:48

DROPS Design answered:

Dear Mrs Wright, correct there will be a hole at the bottom of the new stitches but as these stitches will be cut afterwards this won't be visible, - see in this video how to work steek stitches and cut afterwards for the armholes. Happy knitting!

21.03.2024 - 09:02

country flag Lucy Wright wrote:

Can you explain how you increase 5 stitches for the armhole - does it mean you have a hole ?

20.03.2024 - 19:55

DROPS Design answered:

Hi Lucy, The best method is to cast on 5 stitches in each side, then work these stitches in stocking stitch onwards. As it mentions in the text, these stitches are used to when cutting an opening for the armholes later. Happy knitting!

21.03.2024 - 06:44

country flag Sarah wrote:

When I measure the piece (for example, to know when to increase for sleeves and switch colors on the chart) do I measure from the folded edge, or with the entire 6cm edge included in the length?

23.04.2022 - 23:10

DROPS Design answered:

Dear Sarah, unless otherwise stated, you measure from the cast-on edge. In this pattern, you always measure from the cast-on edge. Happy knitting!

24.04.2022 - 22:53

country flag Gaby Barbacci wrote:

How can I make this pattern in size 4 yrs, this is one size larger than the 2/3 yrs in the instructions

22.02.2019 - 22:32

DROPS Design answered:

Hi Gaby, You can try increasing all the stitch numbers and rows to give the measurements you need, or you can search under Nordic patterns for children, where there are a number of similar patterns. Happy knitting!

23.02.2019 - 06:48

country flag Margareta Heed wrote:

Finns det här mönstret,eller snarlikt ,i damstorlek??Har stickat den åt barn,men tänkte den kanske finns även i vuxenstorlek,så man slipper sitta och räkna själv.

27.10.2018 - 12:43

country flag Birgitte Bjergø wrote:

Når der sættes masker af til tommelfinger skal der i følge opskriften slås en måske op, hvilket betyder at der skal være 33 masker til hånden - kan det være rigtigt?

07.10.2018 - 14:49

country flag Fran Ordway wrote:

I almost quit doing this sweater when I read that I have to cut the sweater to insert the sleeves. I would love an option to just insert the sleeves. Does this option exist.

09.08.2018 - 04:03

DROPS Design answered:

Dear Mrs Ordway, the steek-stitches technique is often used to work in the round to the end - if you don't like to use this technique, you can simply work back and forth without casting on the new steek sts for front band and armholes - after armhole, continue each piece separately. Your DROPS store will be able to assist you if required. Happy knitting!

09.08.2018 - 08:53

country flag Janni Pyrmer wrote:

Hej Jeg kan ikke se diagrammet til denne opskrift ? Findes det stadig ? kan jeg evt. få det tilsendt ? pft /Janni

07.12.2016 - 13:00

DROPS Design answered:

Hej Janni. Ja, det er der stadig, men vi skal faa det tilföjet til den danske opskrift hurtigst muligt. Du kan se diagrammet i den norske opskrift.

07.12.2016 - 13:03

country flag Torild Lund wrote:

Holder på med øreklaffene men det står at jeg skal strikke 20 cm riller før jeg begynner å øke. da blir dem veldig lange. er det riktig?

08.11.2016 - 12:46

DROPS Design answered:

Hej Torild. Ja, du binder med de 20 cm, saa det er korrekt.

08.11.2016 - 15:10

country flag Gertrud wrote:

Jetzt habe ich noch eine Frage, ich verstehe in der Anleitung nicht, wie der Ärmel eingenäht wird. Gibt es dazu ein video?

22.04.2016 - 22:09

DROPS Design answered:

Liebe Getrud, die etwas komplizierte Anleitung für das Einsetzen der Ärmel müssen Sie nur befolgen, wenn Sie die Jacke in der Steek-Technik Aufschneide-Technik) gestrickt haben. Ich werde Ihren Video-Wunsch weitergeben.

26.04.2016 - 09:27