DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 52-3
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 (9/10 - 11/12 - 13/14) ára.
Stærð í cm: 98/104 - 110/116 - 122/128 (134/140 – 146/152 - 158)

Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
300-350-350 (400-450-450) gr litur nr 53, koksgrå
50-100-100 (100-100-100) gr litur nr 01, natur
50- 50- 50 ( 50- 50- 50) gr litur nr 36, grænn
50- 50- 50 ( 50- 50- 50) gr litur nr 14, vínrauður
50- 50- 50 ( 50- 50- 50) gr litur nr 52, sinnepsgulur
50- 50- 50 ( 50- 50- 50) gr litur nr 11, appelsínugulur

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR OG HRINGPRJÓNAR NR 2,5 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með prjóna 3,5 og mynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS KRÆKJUR NR 601: 2 (3) pör
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Stærð: 3/5 - 6/9 - 10/14 ára.
Ummál: 44-49-54 cm.
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
100-100-100 (100-100-100) gr litur nr 53, koksgrár
+ afgangur af mynsturlitum úr peysu

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS HRINGPRJÓNAR NR 2,5 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með prjóna 3,5 og mynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.

DROPS HEKLUNÁL NR 3,5 – fyrir bönd
----------------------------------------------------------

SOKKAR:
Stærð: 3/4 - 5/6 - 7/8 (9/10 - 11/12 - 13/14) ára.
Lengd fótar: 17-19-21 (22-23-25) cm.
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
100-150-150 (150-150-200) gr litur nr 53, koksgrár
50- 50- 50 ( 50- 50- 50) gr f.nr 01, natur
+ afgangur af mynsturlitum úr peysu.

Einnig er hægt að prjóna stykkið með garni frá: "Garnmöguleiki (Garnflokkur B)" – sjá tengil að neðan.

DROPS SOKKAPRJÓNAR 3 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 lykkjur og 30 umferðir með prjóna 3,5 og mynstri verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 8008.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðin*, endurtakið frá *-*.

KANTUR:
Prjónið 1,5 cm í sléttprjóni, 1 umferð brugðin (= uppábrot), prjónið 1,5 cm sléttprjón.

STROFF:
* 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðin *, endurtakið frá *-*.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna og klippt er upp fyrir handveg og op í hálsi í lokin.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 176-184-200 (216-224-232) lykkjur með koksgrár á hringprjón 2,5 og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan - í 5-5-5 (5-6-6) cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið M.1. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir M.1 er prjónað M.2 upp úr þar til stykkið mælist ca 34-37-42 (44-46-49) cm – stillið af eftir mynstri (nú eru eftir ca 11 cm af stykki). Byrjið við M.2 við ör í mynsturteikningu og prjónið lykkjur yfir framstykki, byrjið aftur við ör og prjónið lykkjur yfir bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 29-31-34 (35-36-38) cm er aukið út um 4 lykkjur í hvorri hlið (þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur). JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 32-35-37 (39-41-42) cm fellið af miðju 6 lykkjurnar af fyrir klauf. Í næstu umferð eru fitjaðar upp 4 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af – þessar lykkjur eru til að klippa upp í lokin og eru ekki prjónaðar með inn í mynstur. Eftir M.2 er prjónað M.3 – byrjið við ör í mynsturteikningu og prjónið lykkjur yfir framstykki, byrjið aftur við ör og prjónið lykkjur yfir bakstykki. Þegar stykkið mælist 40-43-47 (49-51-54) cm fellið af miðju 22-22-24 (24-26-26) lykkjurnar + 4 lykkjur til að klippa upp á framstykki fyrir hálsmáli. Nú er prjónað til loka fram og til baka. Fækkið síðan lykkjum hvoru megin við háls í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1 sinni, 1 lykkja 2 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 43-46-51 (53-55-58) cm fellið af miðju 32-32-34 (34-36-36) lykkjurnar að aftan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 lykkjur í hvorri hlið í næstu umferð við háls að aftan. Fellið af eftir M.3 – stykkið mælist ca 45-48-53 (55-57-60) cm.

ERMI:
Fitjið upp 38-38-40 (42-44-46) lykkjur á sokkaprjón 2,5 með koksgrár og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan - í 3-4-4 (4-4-4) cm jafnframt sem aukið er út um 4-6-8 (6-6-4) lykkjur jafnt yfir í síðustu umferð = 42-44-48 (48-50-50) lykkjur. Skiptið yfir á sokkaprjón 3,5 og prjónið M.1. JAFNFRAMT eftir stroff er aukið út um 2 lykkjur mitt undir ermi 14-16-18 (20-21-24) sinnum í stærð 3/4+5/6+7/8+9/10+13/14 ára: Til skiptis í 4. og 5. hverri umferð 11/12 ára: Í 5. hverri umferð = 70-76-84 (88-92-98) lykkjur. Eftir M.1 er prjónað M.2 upp úr þar til stykkið mælist ca 23-27-31 (34-38-41) cm – stillið af eftir mynstri (nú eru eftir ca 3 cm á stykki). Eftir M.2 er prjónað M.4, síðan eru prjónaðar 2 umferðir með koksgrár. Stykkið mælist ca 26-30-34 (37-41-44) cm. Prjónið síðan 2 cm sléttprjón með rönguna út að kanti fyrir saum yfir kant sem klipptur var upp í búk. Fellið af.

FRÁGANGUR.
Saumið merkiþráð niður mitt í útauknar lykkjur í hvorri hlið við miðju að framan. Saumið tvo sauma í saumavél sitt hvoru megin við merkiþráðinn, ca ½ lykkju frá merkiþræði hvoru megin. Klippið upp fyrir handveg og opi að framan. Saumið axlasaum.

KANTUR AÐ FRAMAN:
Takið upp ca 20-30 lykkjur meðfram vinstri hlið á opi að framan á prjón 2,5 með koksgrár og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan. Endurtakið meðfram hægri hlið á opi. Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið. Saumið opið niður neðst með lykkjuspori frá réttu.

HÁLSMÁL:
Takið upp 80-94 lykkjur í kringum háls og yfir op á sokkaprjón 2,5 með koksgrár og prjónið KANTUR – sjá útskýringu að ofan – fram og til baka. Brjótið kantinn saman tvöfaldan að röngu og saumið.

FRÁGANGUR:
Saumið ermar í við fram- og bakstykki frá réttu þannig: Saumið til skiptis 1 spor í síðustu umferð frá ermi á undan kant fyrir saum og 1 spor í fram- og bakstykki eftir saum úr saumavél.
Snúið peysunni við og saumið í höndunum kant fyrir saum yfir kant sem klipptur var upp á búk. Saumið krækjur í peysuna.
----------------------------------------------------------

HÚFA:
Fitjið upp 96-108-120 lykkjur á hringprjón 2,5 með koksgrár og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan – í 2 cm. Skiptið yfir á hringprjón 3,5 og prjónið M.3 en mynstureining/mynstrið er prjónað ofan frá og niður. Prjónið síðan til loka með M.2. Þegar stykkið mælist 18-20-22 cm er fellt af. Leggið húfuna flata saman og saumið húfuna saman efst með LAUSU lykkjuspori frá réttu.

EYRNALEPPAR:
Fitjið upp 3 lykkjur á sokkaprjóna 3,5 með koksgrár og prjónið garðaprjón. Aukið út um 1 lykkju hvoru megin 9-10-11 sinnum þannig:
Hægri hlið: Prjónið tvær lykkjur í fyrstu lykkju.
Vinstri hlið: Prjónið tvær lykkjur í næst síðustu lykkju = 21-23-25 lykkjur á prjóni.
Prjónið nú þar til stykkið mælist 9-10-11 cm og fellið af.

Heklið loftlykkjur ca 25 cm með heklunál 3,5 og festið böndin í miðju á 3 uppfitjunarlykkjum.

FRÁGANGUR:
Saumið eyrnaleppana við húfuna frá röngu í síðustu umferð á undan sléttprjóni með 11-12-13 cm millibili að aftan.
----------------------------------------------------------

SOKKAR
Fitjið upp 44-46-48 (50-52-52) lykkjur á sokkaprjón 3 með koksgrár og prjónið STROFF – sjá útskýringu að ofan – í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna 3,5 og prjónið M.1 JAFNFRAMT því sem aukið er út um 4-6-4 (6-4-4) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 48-52-52 (56-56-56) lykkjur. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA! Eftir M.1 er prjónað áfram með M.2. Setjið eitt prjónamerki við miðju að aftan.
Þegar stykkið mælist 24-24-28 (27-30-32) cm fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki í 4. hverri umferð 4-5-4 (6-5-5) sinnum = 40-42-44 (44-46-46) lykkjur. Þegar stykkið mælist 30-32-34 (36-38-40) cm prjónið til loka með koksgrár.
Prjónið hæl þannig: Prjónið 5-5-5 (6-6-6) cm sléttprjón fram og til baka yfir miðju 18 lykkjurnar að aftan (efstu 22-24-26 (26-28-28) eru settar á þráð).

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið 10 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 2 (= ranga): Takið 1 lykkju óprjónaða, 4 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur slétt saman, 1 lykkja brugðin, snúið stykkinu.
UMFERÐ 3: Takið 1 lykkju óprjónaða, 5 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 4: Takið 1 lykkju óprjónaða, 6 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur brugðnar saman, 1 lykkja brugðin, snúið stykkinu.
UMFERÐ 5: Takið 1 lykkju óprjónaða, 7 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman, 1 lykkja slétt, snúið stykkinu.
UMFERÐ 6: Takið 1 lykkju óprjónaða, 8 lykkjur brugðnar, 2 lykkjur brugðnar saman, 1 lykkja brugðin, snúið stykkinu.
UMFERÐ 7: Prjónið 2 lykkjur slétt saman, 8 lykkjur slétt, 2 lykkjur snúnar slétt saman = 10 lykkjur á prjóni.

Takið nú upp 11-11-11 (13-13-13) lykkjur hvoru megin við hæl og setjið allar lykkjur jafnt yfir á 4 sokkaprjóna = 54-56-58 (62-64-64) lykkjur. Fækkið síðan um 1 lykkju hvoru megin við efstu 22-24-26 (26-28-28) lykkjur í annarri hverri umferð 6-6-5 (7-7-7) sinnum = 42-44-48 (48-50-50) lykkjur.
Þegar fóturinn mælist 13-15-16 (17-18-20) cm (frá þar sem úrtaka á hæl byrjar) er lykkjum fækkað fyrir tá.
Setjið 1 prjónamerki í hvora hlið á fæti og fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki (alls 4 úrtökur í umferð) 8-8-10 (10-10-10) sinnum til skiptis í hverri og annarri hverri umferð = 10-12-8 (8-10-10) lykkjur.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið.

Prjónið annan sokk alveg eins.

Mynstur

symbols = koksgrár
symbols = natur
symbols = grænn
symbols = vínrauður
symbols = sinnepsgulur
symbols = appelsínugulur
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 52-3

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (4)

country flag Turid Johansen wrote:

Ang. oppskrift 52-3 Linus: Stemmer det at det ikke skal være økning av masker etter at vrangborden er ferdig på bolen? Maskeantallet stemmer ikke når man kommer opp til M 2. 232 masker lar seg ikke dele på 12 ...

25.09.2023 - 12:37

DROPS Design answered:

Hej Turid, starter du ved pilen for din størrelse? Du starter både forstykke og bagstykke ved pilen (mønsteret skal altså ikke gå op hele veje rundt)

05.10.2023 - 09:07

country flag Berbett wrote:

Bonjour, Comment assembler un tricot au point de mailles, il s'agit du bonnet Linus. (Faut-il rabattre les mailles dans un premier temps puis coudre au point de mailles et quelle est la technique de ce point de mailles ?) En vous remerciant d'avance pour votre aide. Cordialement. Pia.

02.06.2020 - 16:52

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Berbett, cette vidéo montre la couture à faire en haut du bonnet (le haut du bonnet doit être plat, pliez le bien en double). Bon tricot!

02.06.2020 - 17:44

country flag Drops Design wrote:

Du feller på hver og annenhver pinne omhverandere: 1., 3., 4., 6., 7., 9........

15.01.2009 - 12:41

country flag Lena wrote:

Jeg skjønner ikke hvordan det skal felles til tå på strømpene. Hva menes med vekselvis hver og hver 2.omg??? Betyr det annenhver omgang, eller 2 omganger med felling, en omgang uten felling?

14.01.2009 - 18:52