DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24
DROPS 52-2
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------

PEYSA:
Stærð : Dömu S-L (herra S/M – M/L).
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
550-600-650 (700-750) gr nr 53, koksgrár
200-200-200 (250-250) gr nr 01, natur
50- 50- 50 ( 50- 50) gr nr 36, grænn
50- 50- 50 ( 50- 50) gr nr 14, vínrauður
50- 50- 50 ( 50- 50) gr nr 52, sinnepsgulur
50- 50- 50 ( 50- 50) gr nr 11, appelsína

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2,5 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf á prjóna nr 3,5 og mynstri verði 10 x 10 cm.

FINGRAVETTLINGAR:
Stærð: Dömu (herra)
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
100 (100) gr nr 53, koksgrár
+ afgangur af mynsturlitum

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf á prjóna nr 3,5 og sléttprjóni verði 10 x 10 cm.

SOKKAR:
Stærð: 38-41 (41-44)
Lengd: 58 (65) cm.
Fótur: 23 (26) cm.
Efni:
DROPS Karisma frá Garnstudio
250 (300) gr nr 53, koksgrár
50 ( 50) gr nr 01, natur
+ afgangur af mynsturlitum

DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3 OG 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 22 l x 30 umf á prjóna nr 3,5 og sléttprjóni verði 10 x 10 cm.
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12320.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

PEYSA:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu. Allt mynstrið er prjónað í sléttprjóni.
----------------------------------------------------------
PEYSA:
Peysan er prjónuð í hring á hringprjóna og er klippt upp fyrir handveg. Tölur í () = herrastærð.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 192-200-208 (208-216) l með litnum koksgrár Karisma á hringprjóna nr 2,5 og prjónið stroff 1 l sl, 1 l br í 6 cm. Skiptið yfir á hringprjóna nr 3,5 og prjónið M.1 JAFNFRAMT er aukið út um 60-64-68 (56-60) l jafnt yfir í 1. umf = 252-264-276 (264-276) l. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið. Fram- og bakstykki = 126-132-138 (132-138) l. Á eftir M.1 er prjónað M.2 þar til stykkið mælist ca 32-36-38 (37-40) cm – stillið af eftir mynstri . ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir M.2 er prjónað M.3 – byrjið við ör í mynstri og prjónið l yfir framstykki, byrjið aftur við ör og prjónið l yfir bakstykki. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 38-42-43 (42-44) cm er aukið út um 5 l í hvorri hlið (þessar l eru til að klippa stykkið upp í lokin og eru ekki prjónaðar inn í mynstur).
Þegar stykkið mælist 58-62-64 (63-66) cm fellið af miðju 24-26-28 (28-30) l á framstykki fyrir hálsmáli og prjónið til loka fram og til baka. Fellið síðan af við háls í annarri hverri umf 3 l 1 sinni, 2 l 2 sinnum, 1 l 3 sinnum. JAFNFRAMT þegar stykkið mælist 62-66-68 (67-70) cm fellið af miðju 40-42-44 (44-46) l af að aftan fyrir hálsmáli. Fellið síðan af 2 l í hvorri hlið í næstu umf við háls að aftan. Fellið af eftir M.3 – stykkið mælist nú ca 64-68-70 (69-72) cm.

ERMI:
Fitjið upp upp 56-58-58 (58-60) l á sokkaprjóna nr 2,5 með litnum koksgrár Karisma og prjónið stroff 1 l sl, 1 l br í 5 cm. Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið M.1. JAFNFRAMT eftir stroffið er aukið út um 2 l mitt undir ermi 29-28-30 (30-32) sinnum í Dömu S+L og Herra M/L: Í 4. hverri umf. Í Dömu og Herra S/M: Til skiptis í 4. og 5. hverri umf = 114-114-118 (118-124) l. JAFNFRAMT á eftir M.1 er M.2 prjónað þar til stykkið mælist ca 36-35-35 (41-41) cm – stillið af eftir mynstri. Nú eru eftir ca 13 cm af stykki. Á eftir M.2 er M.4 prjónað og síðan M.5. Stykkið mælist ca 49-49-48 (54-54) cm. Prjónið síðan 2 cm sléttprjón með rönguna út að kanti fyrir saum yfir kant kant sem klipptur er í á fram- og bakstykki með litnum koksgrár. Fellið af. Prjónið aðra ermi.

FRÁGANGUR:
Saumið merkiþráð niður mitt í útauknu l í hvorri hlið. Saumið tvo sauma í saumavél sitt hvoru megin við merkiþráðinn ca ½ l frá þræðinum. Klippið upp fyrir handveg. Saumið axlasauma.
Takið upp ca 104-116 l í kringum háls með sokkaprjóna nr 2,5 með litnum koksgrár og prjónið 1 umf sléttprjón og síðan stroff 1 l sl, 1 l br í ca 6 cm, fellið af. Leggið stroffið saman tvöfalt að röngu og saumið niður.
Saumið ermar í við fram- og bakstykki frá réttu þannig: Saumið til skiptis eitt spor í síðustu umf á ermi á undan fald saum og eitt spor í fram- og bakstykki á eftir spori úr saumavél. Snúið peysunni við og saumið faldinn frá ermi yfir kant sem klipptur var í bol í höndunum.
----------------------------------------------------------

FINGRAVETTLINGUR:

Tölur í () = Herra.
Fitjið upp 52 (56) l á sokkaprjóna nr 3,5 með litnum koksgrár Karisma og prjónið stroff 2 l sl, 2 l br í 15 cm JAFNFRAMT er fækkað um 8 (8) l jafnt yfir í síðustu umf = 44 (48) l.
Skiptið yfir á sokkaprjóna og prjónið M.6 JAFNFRAMT er sett eitt prjónamerki á eftir 22 (24) l = ofan á hönd – prjónamerki er sett í 23. (25.) l – lykkjur fyrir þumal eru auknar út hvoru megin við þessa l – aðrar eru 21 (23) l = innan í lófa. HÉÐAN ER NÚ MÆLT! Þegar stykkið mælist 1 cm er aukið út um 1 l hvoru megin við 1 l með prjónamerki þannig: 5 (6) sinnum í 4. hverri umf (3.) = 54 (60) l – útauknu l eru prjónaðar inn í M.6 jafnóðum. Þegar útaukningu fyrir þumal er lokið eru settar miðju 11 l yfir þumal á þráð. Fitjið síðan upp 1 nýja l á þráðinn = 44 (50) l. Á eftir M.6 er prjónað með litnum koksgrár. Haldið svona áfram þar til stykkið mælist 10 (11) cm. Prjónið nú fingur þannig:

LITLI FINGUR:
Takið upp 4 (6) l ofan á handarbanki og 4 (5) l innan í lófa og fitjið upp 1 l við baugfingur = 9 (12) l.
Prjónið 5 (6) cm með litnum koksgrár í sléttprjóni. Prjónið síðan l saman 2 og 2 í næstu umf og þræðið þráðinn tvöfaldan í gegnum l.
Prjónið 3 umf yfir þær l sem eftir eru á fingravettlingi áður en næstu fingur eru prjónaðir.

BAUGFINGUR:
Takið upp 6 (6) l ofan á handarbaki og 6 (7) l innan í lófa og fitjið upp 1 l við litla fingur og 1 l við löngutöng = 14 (15) l. Prjónið 6 (7) cm sléttprjón með litnum koksgrár og síðan eru allar l prjónaðar 2 og 2 saman í næstu umf, þræðið síðan þráðinn tvöfaldan í gegnum l.

LANGATÖNG:
Prjónið eins og baugfingur, nema prjónið 7 (8) cm sléttprjón með litnum koksgrár.

VÍSIFINGUR:
Takið upp 6 (6) l ofan á handarbaki og 6 (7) l innan í lófa og fitjið upp 1 l við löngutöng = 13 (14) l. Prjónið eins og baugfingur.

ÞUMALL:
Takið upp 11 l af þræði + 3 (5) l við hönd og prjónið (6,5) cm sléttprjón með litnum koksgrár og fellið af eins og á baugfingri.
Saumið smá lykkjuspor á milli fingra.

Prjónið annan fingravettling alveg eins, nema með þumal í gagnstæðri hlið.
----------------------------------------------------------

SOKKUR:

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu. Mynsturteikning sýnir allar umf í mynstri séð frá réttu.

----------------------------------------------------------

HÆLÚRTAKA:
UMFERÐ 1 (= rétta): Prjónið þar til 8 (9) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið þar til 8 (9) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 3 (= rétta): Prjónið þar til 7 (8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 4 (= ranga): Prjónið þar til 7 (8) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 5 (= rétta): Prjónið þar til 6 (7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 6 (= ranga): Prjónið þar til 6 (7) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 7 (= rétta): Prjónið þar til 5 (6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
UMFERÐ 8 (= ranga): Prjónið þar til 5 (6) l eru eftir, takið 1 l óprjónaða, 1 l br, steypið óprjónuðu l yfir, snúið við.
Haldið áfram alveg eins með því það fækki um 1 l áður en 1 l er steypt yfir þar til 12 (14) l eru eftir á prjóni.
----------------------------------------------------------

SOKKUR:
Fitjið upp 72 (84) l á sokkaprjóna nr 3 með litnum koksgrár Karisma og prjónið 14 (16) cm stroff 2 l sl, 2 l br.
Skiptið yfir á sokkaprjóna nr 3,5 og prjónið 2 umf sléttprjón. Prjónið M.1, prjónið síðan áfram með M.2. Þegar stykkið mælist 30 (32) cm byrjar úrtaka á legg.
Setjið eitt prjónamerki við miðju að aftan. Fækkið lykkjum hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 2 l á undan prjónamerki, takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir, prjónið 2 l á eftir prjónamerki slétt saman – endurtakið í 5. (4.) hverri umf alls 12 (14) sinnum = 48 (56) l.
Þegar stykkið mælist 50 (56) cm eru miðju 24 (28) l að framan settar á þráð og prjónað er til loka með koksgrár.
Prjónið nú 5 (6) cm sléttprjón (hæll) yfir 24 (28) miðju-l að aftan og prjónið síðan HÆLÚRTAKA – sjá útskýringu að ofan. Takið nú upp 12 (13) l hvoru megin við hæl og skiptið öllum l niður á 4 prjóna = 60 (70) l.
Setjið eitt prjónamerki hvoru megin við efstu 24 (28). Fækkið um 1 l á undan prjónamerki á undan 24 (28) l og 1 l á eftir prjónamerki á eftir 24 (28) l í annarri hverri umf alls 6 sinnum = 48 (58) l.
Fækkið lykkjum á undan prjónamerki þannig: Prjónið 2 l slétt saman. Fækkið lykkjum á eftir prjónamerki þannig: Takið 1 l óprjónaða, 1 l sl, steypið óprjónuðu l yfir. Prjónið þar til fóturinn mælist ca 19 (21,5) cm. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið og fækkið lykkjum fyrir tá hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið 2 l á undan prjónamerki slétt saman og 2 l á eftir prjónamerki slétt saman, endurtakið 3 sinnum í annarri hverri umf = 36 (46) l. Síðan 7 (9) sinnum í hverri umf = 8 (6) ml. Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru, herðið að og festið vel.

Mynstur

symbols = litur koksgrár
symbols = litur natur
symbols = litur flöskugrænn
symbols = litur vínrauður
symbols = litur sinnep
symbols = litur appelsína
symbols = M.3a+M.3b
diagram
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Skrifaðu athugasemd um DROPS 52-2

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (19)

country flag Marilyn wrote:

There appears to be an error in the glove pattern for this pattern and 52-18. This is between the little finger and starting the ring finger. Since one is knitting 3 rows over palm and back before the longer fingers, casting on 1st between little finger and ring finger at base of ring finger is not right.

10.02.2024 - 15:40

DROPS Design answered:

Dear Marilyn, you don't cast on 1 extra stitch towards small finger when working the 3 rounds over all stitches for hand, if you did, then you should decrease this stitch on first round to let the number of stitches work. Happy knitting!

20.02.2024 - 09:17

country flag Nanna Rose Rask wrote:

Hej. Det er ikke muligt for mig at trykke på diagrammerne (eller åbne dem)? Er det noget i kan hjælpe mig med?

22.01.2024 - 10:00

DROPS Design answered:

Hei Nanna. Her manglet den danske diagramteksten, den er nå lagt til og alle diagram og målskisse skal nå vises. mvh DROPS Design

22.01.2024 - 13:28

country flag Hege wrote:

Hei. Tenkte å strikke disse vantene, men stemmer det at en skal legge opp på pinne 3.5 for så å bytte til pinne3.5?

14.03.2023 - 00:36

DROPS Design answered:

Hei Hege, Du skal legge opp med pinnestørrelse 2,5. God fornøyelse!

14.03.2023 - 07:03

country flag Véronique wrote:

Je tricote le pull Henrik. Vous dites qu'il ne faut pas tricoter les mailles steek en jacquard, mais en jersey. Dans ce cas comment faites vous pour emmener les 2 fils de l'autre côté de ces mailles ? Tricoter 2 fils en même temps ? Commencer un nouveau fil à chaque tour ? Merci pour votre réponse.

07.03.2023 - 21:26

DROPS Design answered:

Bonjour Véronique, on ne doit pas les tricoter dans le motif du pull (elles ne comptent pas dans ces motifs), mais vous pouvez les tricoter alternativement d'une couleur et de l'autre en largeur et en hauteur - ou seulement en largeur - dans cette vidéo, on montre, à titre d'exemple, des mailles steek tricotés pour une bordure devant. Bon tricot!

08.03.2023 - 09:16

country flag Monica Numme wrote:

Hei. Hvor er diagrammet M3? Jeg vet det var der tidligere, men er borte nå. Hilsen Monica

20.11.2022 - 19:17

DROPS Design answered:

Hei Monica, M.3 er diagrammet som er rett ovenfor målskissen. God fornøyelse!

21.11.2022 - 06:48

country flag Monica Numme wrote:

Hei. \r\nHvor er mønster M3? Jeg vet det var i oppskriften tidligere, men er borte nå. (?)\r\nHilsen Monica

20.11.2022 - 19:15

country flag Lissi Beckedorf wrote:

Hej, hvor høj er jeres model? Findes der evt et billede, hvor modellen står op så man kan se hele blusen? På forhånd tak Med venlig hilsen Lissi

10.11.2022 - 21:54

DROPS Design answered:

Hej Lissi, du finer tøjets mål i måleskitsen nederst i opskriften. Vi har ikke flere billeder, men mønsteret ser ud som i drengeblusen du ser på et billede lidt længere nede i opskriften :)

11.11.2022 - 13:34

country flag Sima wrote:

Bonsoir, je voudrais savoir une fois le jacquard terminé pour atteindre la longueur du pull souhaité avant de rabattre les mailles pour l’encolure devant est ce que on continue en jerseys avec la couleur de fond ou en refait la bande M2 pour mon modèle il faut que j’atteigne 66 cm merci beaucoup

23.02.2021 - 22:36

DROPS Design answered:

Bonjour Sima, normalement, on rabat après M.3, autrement dit, si l'échantillon est juste en hauteur vous devriez terminer M.3 en même temps que la hauteur pour rabattre les mailles des épaules. S'il vous manque quelques rangs, essayez d'ajuster au mieux en fonction du nombre de rangs/cm qu'il vous reste à faire. Bon tricot!

24.02.2021 - 07:38

country flag Sima wrote:

Bonjour; je reviens encore vers pour m'expliquer le diagramme M3 qui est sur 36 mailles est ce qu'on divise l'ouvrage sur 36 mailles pour voir combien de fois ce diagramme se répète dans mon cas c'est la taille L Homme j'ai donc 138 (dos) et 138 (devant) donc 3x M3 merci.

04.02.2021 - 14:57

DROPS Design answered:

Bonjour Sima, en taille homme M/L, tricotez M.3 ainsi en commençant par la flèche: les 15 dernières mailles du diagramme, puis répétez 3 fois les 36 mailles du diagramme, et terminez par les 15 premières mailles du diagramme (= 15 + 3*36 + 15 = 138), puis reprenez de nouveau pour la 2ème moitié: les 15 dernières mailles, 3 x M.3 et les 15 premières mailles. Le diagramme ne tombe pas juste sur les côtés mais il est ainsi centré au milieu devant et au milieu dos. Bon tricot!

04.02.2021 - 15:37

country flag Sima wrote:

Rebonjour; Quand vous dites monter 5 m de chaque côté est ce que on monte 5m de part et d'autre des 138 m devant et derriere? c'est à dire on ajoute 5*2 au début et à la fin devant (138m) et 5*2 au début et à la fin dos (138m) au total 20 mailles merci de votre aide :)

15.01.2021 - 17:01

DROPS Design answered:

Bonjour Sima, ces 5 mailles x 2 sont les mailles steek qui seront ensuite découpées pour les manches, elles doivent être de chaque côté du pull: vous aurez ainsi: 5 m steek, 138 m, 5 m steek, 138 m. (cf aussi la vidéo. Bon tricot!

18.01.2021 - 11:31