DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12628.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Colourful Dreams

Prjónað sett sem samanstendur af: Peysu, buxum, húfu, vettlingum, sokkum og trefli úr DROPS BabyMerino og teppi með mynsturáferð úr DROPS Karisma. Þema: Barnateppi.

DROPS Baby 4-18
DROPS Design
Garnflokkur B
----------------------------------------------------------
Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára.

Í allt settið þarf:
Efni:
DROPS Baby Merino frá Garnstudio
200-200-250 (300-350) gr nr 25, bláfjólublár
150-150-200 (200-250) gr nr 32, turkos
50-100-100 (100-100) gr nr 10, ljós turkos
50-100-100 (100-100) gr nr 14, fjólublár

DROPS HRINGPRJÓNAR OG SOKKAPRJÓNAR NR 2 og 2,5 – eða þá stærð sem þarf til að 26 lykkjur og 52 umferðir með prjóna nr 2,5 og garðaprjóni verði 10 cm á breidd og 10 cm á hæð.
DROPS HEKLUNÁL NR 2,5 – fyrir band á sokkum.
DROPS TALA: 5 st – fyrir peysu

FYLGIHLUTIR: Teygja – fyrir buxur
----------------------------------------------------------

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Baby Merino
DROPS Baby Merino
100% Ull
frá 924.00 kr /50g
DROPS Karisma
DROPS Karisma
100% Ull
frá 616.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 12628.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar prjónast slétt í öllum umferðum.

GARÐAPRJÓN (prjónað í hring):
*1 umferð slétt og 1 umferð brugðið*, endurtakið frá *-*.

HNAPPAGAT (á við um peysu):
Þegar stykkið mælist:
1-1-1 (1-1),
6,5-7-8 (9-9,5),
11,5-12.5-14,5 (16,5-18),
16,5-18-21 (24-26,5) og
22-24-28 (32-35) cm er fellt af fyrir hnappagötum í hægra framstykki þannig:
Fellið af 3. 4. og 5. lykkju og fitjið upp 3 nýjar lykkjur yfir þær lykkjur sem felldar voru af í næstu umferð.
----------------------------------------------------------

PEYSA:

Peysan er prjónuð fram og til baka á hringprjóna upp að handvegi. Við handveg skiptist stykkið upp og þá er fram- og bakstykki prjónað til loka hvor fyrir sig fram og til baka. Ermar eru prjónaðar fram og til baka.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
Fitjið upp 144-156-180 (204-216) lykkjur á prjóna 2,5 með bláfjólublár og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - yfir 6 síðustu lykkjur að framan = kantur að framan. Munið eftir að prjóna HNAPPAGAT – sjá útskýringu að ofan. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 17-18-21 (24-24) cm prjónið næstu umferð þannig: 37-40-46 (52-55) lykkjur framstykki, fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, 62-68-80 (92-98) lykkjur bakstykki, fellið af 4 lykkjur fyrir handveg, 37-40-46 (52-55) lykkjur framstykki. Nú er fram- og bakstykki prjónað til loka hvort fyrir sig.

FRAMSTYKKI:
= 37-40-46 (52-55) lykkjur. Fellið af fyrir handveg í annarri hverri umferð: 2 lykkjur 1-1-2 (2-2) sinnum, 1 lykkja 2-1-1 (2-1) sinni = 33-37-41 (46-50) lykkjur. Þegar stykkið mælist 23-25-29 (33-36) cm fellið af fyrir hálsmáli í annarri hverri umferð: 10-12-13 (16-19) lykkjur 1, 2 lykkjur 4 sinnum, 1 lykkja 2 sinnum. Fellið af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm.

BAKSTYKKI:
= 62-68-80 (92-98) lykkjur. Fellið af fyrir handveg eins og á framstykki = 54-62-70 (80-88) lykkjur. Þegar stykkið mælist 25-27-31 (35-38) cm fellið af miðju 24-28-30 (36-42) lykkjur af fyrir hálsmáli. Nú eru felldar af 2 lykkjur hvoru megin í næstu umferð við háls. Fellið af þegar stykkið mælist 27-29-33 (37-40) cm.

ERMI:
Fitjið upp 42-42-44 (46-46) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið fyrir saum) á prjóna 2,5 með bláfjólublár og prjónið GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 6-6-6 (6-6) cm er aukið út á hvorri hlið innan við kantlykkju: 1 lykkja 6-9-10 (12-20) sinnum
fyrir 3 mán: Til skiptis í 7. og 8. hverri umferð
fyrir 6/9 mán og 2 ára: Til skiptis í 6. og 7. hverri umferð
fyrir 12/18 mán: í 7. hverri umferð
fyrir 3/4 ára: Til skiptis í 4 og 5. hverri umferð = 54-60-64 (70-86) lykkjur (meðtalin kantlykkja). Þegar stykkið mælist 17-20-22 (24-27) cm fellið af 2 lykkjur á hvorri hlið fyrir öxl í annarri hverri umferð 8 sinnum. Fellið af þær lykkjur sem eftir eru þegar ermin mælist 20-23-25 (27-30) cm.

FRÁGANGUR:
Saumið axlasauma. Takið upp ca 80-100 lykkjur á prjón 2,5 í kringum hálsmál með bláfjólublár og prjónið 3 umferðir garðaprjón, fellið af. Saumið ermasauma og saumið ermar í og tölur. Brjótið uppá ermar þannig að það verði ca 3 cm kantur neðst.
----------------------------------------------------------

BUXUR:

SKÁLM:
Fitjið upp 64-70-72 (74-78) l (meðtalin 1 lykkja í hvorri hlið fyrir saum) á prjóna 2,5 með turkos og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan. Þegar stykkið mælist 8-8-8 (8-8) cm er aukið út á hvorri hlið innan við kantlykkju (= innan á skálm): 1 lykkja 7-4-8 (11-12 í 2-4-2 (2-2) sinnum í hverjum cm = 78-78-88 (96-100) lykkjur (meðtalin 1 kantlykkja í hvorri hlið). Þegar stykkið mælist 22-24-27 (31-34) cm eru felldar af 4 lykkjur í hvorri hlið = 70-70-80 (88-94) lykkjur. Geymið stykkið og prjónið aðra skálm alveg eins.

BUXUR:
Setjið báðar skálmarnar á sama hringprjón = 140-140-160 (176-188) lykkjur. Setjið eitt prjónamerki við miðju að framan og prjónið buxurnar fram og til baka frá miðju að aftan. Aukið út um 1 lykkju í hvorri hlið við miðju að aftan fyrir saum. Aukið nú JAFNFRAMT í hvorri hlið innan við kantlykkju = miðja að aftan og fækkið lykkjum hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar að framan í 4. hverri umferð: Aftan: 1 lykkja 7-7-7 (7-4) sinnum og framan: 1 lykkja 4-2-9 (12-15) sinnum – fækkið lykkjum þannig: Á undan prjónamerki: 2 lykkjur slétt saman, á eftir prjónamerki: takið 1 lykkju óprjónaða, prjónið 1 lykkju slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir 1 lykkju slétt = 146-150-156 (166-166) lykkjur. Þegar stykkið mælist 42-46-51 (56-60) cm fækkið um 26-26-26 (30-30) lykkjur jafnt yfir í umferð = 120-124-130 (136-136) lykkjur og prjónið 3 cm garðaprjón og síðan 3 cm sléttprjón (= uppábrot), fellið af.

FRÁGANGUR:
Saumið saman op á skálmum og við miðju að aftan með lykkjuspori. Brjótið kantinn efst saman tvöfaldan að röngu og saumið. Þræðið teygju í gegnum faldinn. Brjótið uppá skálmar þannig að það verði kantur neðst ca 4 cm.
----------------------------------------------------------

VETTLINGAR:
Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára.
Lengd á vettling (hendi): 9-10-11 (12-12) cm.

Fitjið upp 44-48-48 (52-52) lykkjur á sokkaprjóna nr 2 með ljós turkos og prjónið stroff 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið, í 6 cm.
Skiptið yfir á sokkaprjón 2,5 og prjónið GARÐAPRJÓN í hring – sjá útskýringu að ofan – og fækkið um 8-6-6 (8-8) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð = 36-42-42 (44-44) lykkjur.
Þegar stykkið mælist 12-12-13 (14-14) cm setjið eitt prjónamerki í hvora hlið.
Fækkið nú lykkjum hvoru megin við prjónamerki: 1 lykkja 7-8-8 (8-8) sinnum á 3 mán: Í annarri hverri umferð 6/9+12/18 mán og 2+3/4 ára: Til skiptis í annarri hverri og 3. hverri umferð = 8-10-10 (12-12) lykkjur.
Klippið frá og þræðið þráðinn í gegnum þær lykkjur sem eftir eru og festið vel.

Prjónið annan vettling alveg eins.
----------------------------------------------------------

HÚFA:

Stærð: 3 - 6 (12 mán - 2 ára)

Fitjið upp 33-38 (42-46) lykkjur með turkos á prjóna 2,5 og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan – jafnframt er aukið út um 1 lykkju í hægri hlið og feld af 1 lykkja í vinstri hlið.
UMFERÐ 1 (= rétta): 2 lykkjur slétt, sláið 1 sinni uppá prjóninn (= 1 lykkja fleiri), prjónið þar til 4 lykkjur eru eftir á prjóni og prjónið 2 lykkjur slétt saman, 2 lykkjur slétt.
UMFERÐ 2 (= ranga): Prjónið slétt að uppslættinum og prjónið síðan uppsláttinn snúinn slétt og síðan 2 lykkjur slétt.
Endurtakið þessar 2 umferðir þar til stykkið mælist 5,5-6 (6,5-7) cm. Fellið síðan af 1 lykkju á hægri hlið og aukið út um 1 lykkju í vinstri hlið. Prjónið síðan þannig:
Næsta umferð (rétta): 1 lykkja slétt, takið 1 lykkju óprjónaða, 1 lykkja slétt, steypið óprjónuðu lykkjunni yfir, prjónið þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn, 2 lykkjur slétt.
Næsta umferð (ranga): 2 lykkjur slétt, prjónið 1 uppsláttinn snúinn slétt, prjónið slétt út umferðina.
Endurtakið þessar 2 umferðir þar til prjónaðir hafa verið 5,5-6 (6,5-7) cm. Skiptið yfir í fjólublár og haldið áfram með að auka út um 1 lykkju í hægri hlið í 4. hverri umferð og fækkið um 1 lykkju í vinstri hlið í annarri hverri umferð þar til stykkið mælist 15,5-17 (17,5-18) cm frá byrjun = miðja á húfu. Setjið eitt prjónamerki í hvora hlið á stykki. Haldið áfram að prjóna eftir útskýringu – en í öfugri röð. Prjónið áfram með fjólublár og skiptið síðan yfir í ljós turkos í stað turkos.
Fellið af þegar stykkið mælist 31-34 (35-36) cm.

FRÁGANGUR:
Framhlið = Sá hluti á stykki sem hefur þrjú horn.
Bakhlið = sá hluti stykkis sem hefur 2 heil horn og 2 hálf horn.
Saumið húfuna saman þannig:
Saumið saman húfuna að aftan með því að sauma fyrra hálfa hornið saman við fyrri helming af fyrra heila horninu.
Saumið síðan seinni helminginn á fyrra heila horninu saman við fyrri helming á seinna heila horninu.
Saumið síðan seinni helming á seinna heila horninu saman við síðari hálfa hornið.
Að lokum er húfan saumuð saman við miðju að aftan.

BAND:
Fitjið upp 4 lykkjur með turkos á sokkaprjón 2,5 og prjónið 4 lykkjur slétt * snúið ekki stykkinu, en færið þráðinn aftan við 4 lykkjur slétt, herðið á þræði og prjónið þær aftur frá réttu *, endurtakið frá *-* þar til þráðurinn mælist 15 (16-17) cm, fellið af. Prjónið annað band til viðbótar með ljós turkos. Saumið niður eitt band á röngu í hvort horn í hvorri hlið.
----------------------------------------------------------

TREFILL:
Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára.

Fitjið upp 4 lykkjur með fjólublár á prjóna 2,5 og prjónið GARÐAPRJÓN fram og til baka – sjá útskýringu að ofan, JAFNFRAMT er aukið út á hvorri hlið þannig:
Hægri hlið: Prjónið tvær lykkjur í fyrstu lykkju.
Vinstri hlið: Prjónið tvær lykkjur í næst síðustu lykkju.
Aukið út í annarri hverri umferð: 1 lykkja 10-10-11 (12-12) = 24-24-26 (28-28) lykkjur. Prjónið 10-10-14 (20-20) umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur.
Nú er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð með því að prjóna tvær fyrstu og tvær síðustu lykkjurnar slétt saman: 1 lykkja 6-6-7 (8-8) sinnum = 12-12-12 (12-12) lykkjur.
Skiptið yfir á prjón nr 2 og prjónið stroffprjón * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið frá *-* út umferðina í 4 cm og setjið lykkjur á hjálparprjón. Takið upp 12-12-12 (12-12) lykkjur í síðustu umferð í garðaprjóni og prjónið stroffprjón í 4 cm. Prjónið nú lykkjur af prjóni saman við lykkjur á hjálparprjóni á prjóninn 2,5 með því að prjóna 1 lykkju af hjálparprjóni slétt saman við 1. lykkju af prjóni, áfram 2. lykkju við 2. lykkju o.s.frv. Nú eru 12-12-12 (12-12) lykkjur á prjóni nr 2,5 – HÉÐAN ER NÚ MÆLT!
Prjónið nú garðaprjón JAFNFRAMT er aukið út til 19-21-24 (28-31) lykkjur jafnt yfir í 1. umferð. Þegar stykkið mælist 35-37-39 (41-42) cm fellið af þar til 12-12-12 (12-12) lykkjur eru eftir á prjóni. Skiptið yfir á prjón nr 2 og prjónið stroffprjón * 1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið *, endurtakið út umferðina í 4 cm. Skiptið yfir á prjón nr 2,5 og prjónið til loka í garðaprjóni. Aukið út í hvorri hlið í annarri hverri umferð eins og útskýrt er að ofan (hægri og vinstri hlið) þar til 24-24-26 (28-28) lykkjur eru á prjóni, prjónið 5-5-7 (10-10) lykkjur garðaprjón yfir allar lykkjur. Fækkið síðan lykkjum eins og útskýrt er að ofan í annarri hverri umferð í hvorri hlið þar til 4 lykkjur eru eftir. Fellið af.
----------------------------------------------------------

SOKKAR:

Stærð: 3 - 6/9 - 12/18 mán (2 - 3/4) ára.
Lengd á sokk: 10-11-12 (14-15) cm.

Fitjið upp 46-50-50 (54-54) lykkjur á prjóna nr 2 með ljós turkos og prjónið 6-7-7 (8-8) cm stroff * 2 lykkjur slétt, 2 lykkjur brugðið *, endurtakið frá *-* fram og til baka frá miðju að aftan. Prjónið 1 umferð sléttprjón og skiptið yfir á prjóna 2,5 JAFNFRAMT er fækkað um 10-14-8 (12-8) lykkjur = 36-36-42 (42-46) lykkjur. Næsta umferð frá réttu: * 2 lykkjur slétt saman, sláið 1 sinni uppá prjóninn *, endurtakið frá *-*. Prjónið 1 umferð sléttprjón. Setjið 12-12-14 (12-14) lykkjur á þráð í hvorri hlið og prjónið 6-7-9 (10-10) cm GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan - yfir miðju 12-12-14 (18-18) lykkjur. Setjið lykkjur af þræði til baka á prjóninn og takið upp 16-18-23 (26-26) lykkjur hvoru megin við miðjustykki = 68-72-88 (94-98) lykkjur á prjóni. Prjónið 3-4-4 (5-5) cm lykkjur garðaprjón yfir allar lykkjur JAFNFRAMT eftir 2-2,5-2,5 (3-3) cm er lykkjum fækkað í annarri hverri umferð: 1 lykkja í byrjun og í lok á stykki og prjónið 2 lykkjur slétt saman hvoru megin við 2 miðju lykkjurnar þar til prjónaðir hafa verið alls 3-4-4 (5-5) cm.
Fellið af og saumið sauminn undir fæti og upp meðfram stroffi með lykkjuspori.

Prjónið annan sokk alveg eins.

BAND:
Heklið band með loftlykkjum og heklunál nr 2,5 (ca 30-35 cm) til að þræða í gegnum gataumferð á sokk.
----------------------------------------------------------

TEPPI:

Efni:
DROPS KARISMA frá Garnstudio
350 g litur nr 1, natur

DROPS HRINGPRJÓNAR NR: 3,5 – eða þá stærð sem þarf til að 21 lykkja með mynsturprjóni verði 10 cm á breidd. Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar.
----------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4.
ATH! Ef mynsturteikning endar frá réttu byrjar fyrsta umferð í næstu mynsturteikningu frá röngu. Takið vel eftir að mynsturteikning sýnir mynstrið séð frá réttu.

TEPPI:
Til að fá pláss fyrir allar lykkjurnar er prjónað fram og til baka á hringprjóna.
Fitjið upp 128 lykkjur með Karisma á prjóna 3,5.
Haldið áfram í garðaprjóni yfir 4 ystu lykkjurnar í hvorri hlið og prjónið MYNSTUR – sjá útskýring að ofan, yfir 120 miðju lykkjur þannig:
Prjónið A.3 í ca 8 cm – stillið af eftir heilum ferningi.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Eftir þetta er A.4 prjónað einu sinni (= 5 umferðir).
Prjónið áfram A.1 í ca 11 cm – stillið af eftir heilum ferningi.
Eftir þetta er A.4 prjónað einu sinni (= 5 umferðir).
Prjónið áfram A.2 í ca 8 cm.
Eftir þetta er A.4 prjónað einu sinni (= 5 umferðir).
Prjónið áfram A.3 í ca 16 cm – stillið af eftir heilum ferningi.
Eftir þetta er A.4 prjónað einu sinni (= 5 umferðir).
Prjónið áfram A.1 í ca 11 cm – stillið af eftir heilum ferningi.
Eftir þetta er A.4 prjónað einu sinni (= 5 umferðir).
Prjónið áfram A.2 í ca 8 cm.
Eftir þetta er A.4 prjónað einu sinni (= 5 umferðir).
Prjónið áfram A.3 í ca 8 cm – stillið af eftir heilum ferningi.
Prjónið nú 6 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur á prjóni. Stykkið mælist ca 82 cm – fellið af.

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 20.04.2018
Mynsturteikning hefur verið uppfærð
Yfirfarið á vefsvæði: 08.10.2020
Leiðrétting: Mynsturteikning hefur hefur skipt um nafn frá M til A. Textinn í uppskrift á teppi er einnig uppfærður til að auðveldara sé að lesa mynstrið.

Mynstur

symbols = slétt
symbols = brugðið
diagram
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 4-18

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (28)

country flag Regine wrote:

Liebe Strickprofis, können Sie mir bitte nochmals ausführlich schildern, wie man bei der Jacke das Vorder- und Rückenteil erstellt? V.a. wie das Abketten gegen das Armloch erfolgen soll. Die Anleitung ist sehr knapp gehalten, ich kann dem leider nicht folgen. Vielen Dank! Regine

01.09.2015 - 12:08

DROPS Design answered:

Liebe Regine, die Anleitung ist schon recht alt und wird in Kürze noch einmal sprachlich überarbeitet, dann wird es hoffentlich verständlicher.

08.09.2015 - 11:00

country flag Juliane wrote:

Ich verstehe die Zunahmen am Ärmel nicht. Abwechselnd in der 4. und 5. Reihe. Muss ich in der 4. Reihe zunehmen und dann 4 Reihen Stricken, damit ich in der 5. Reihe erneut zunehme? Oder erfolgen die Zunahmen direkt hintereinander in der 4. und 5. Reihe. ?? Danke für die Hilfe!,

22.03.2015 - 15:04

DROPS Design answered:

Die erste Variante stimmt. Sie nehmen in der 4. R zu, dann nehmen Sie in der darauf folgenden 5. R zu (also mit 4 Zwischenreihen), dann wieder in der darauf folgenden 4. R (also mit 3 Zwischenreihen) usw. Also nicht direkt hintereinander in der 4. und 5. R.

23.03.2015 - 11:19

country flag Juliane wrote:

Ich verstehe die Zunahmen am Ärmel nicht. Abwechselnd in der 4. und 5. Reihe. Muss ich in der 4. Reihe zunehmen und dann 4 Reihen Stricken, damit ich in der 5. Reihe erneut zunehme? Oder erfolgen die Zunahmen direkt hintereinander in der 4. und 5. Reihe. ?? Danke für die Hilfe!,

22.03.2015 - 15:04

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben! :-)

23.03.2015 - 11:19

country flag Juliane wrote:

Ich verstehe die Zunahmen am Ärmel nicht. Abwechselnd in der 4. und 5. Reihe. Muss ich in der 4. Reihe zunehmen und dann 4 Reihen Stricken, damit ich in der 5. Reihe erneut zunehme? Oder erfolgen die Zunahmen direkt hintereinander in der 4. und 5. Reihe. ?? Danke für die Hilfe!,

22.03.2015 - 14:20

DROPS Design answered:

Antwort siehe oben! :-)

23.03.2015 - 11:20

country flag Rita Olesen wrote:

Halstørklæde: Jeg er ved at strikke rib, og der står, at jeg skal samle 12 masker op.. skal det være jævnt fordelt, eller 12 samlede masker midtpå ?

17.03.2015 - 11:32

DROPS Design answered:

Hej Rita, Du strikker en ny maske op i hver af de 12 masker du strikkede i retstrik inden ribben. Når du har 2 stykker med 4 cm rib ovenover hinanden strikker du de to stykker sammen igen. Nu har du et lille hul i halstørklædet. God fornøjelse!

21.05.2015 - 09:29

country flag Henriette Kristensen wrote:

Jeg kan ikke helt finde ud af hvornår jeg skal begynde at strikke ind til ærmer på forst.

14.07.2012 - 10:05

country flag Drops Design wrote:

Vi forklarer bare at de yderste m er en forkant (og i nogle tilfælde er disse masker ekstra fordi de overlapper hinanden foran...) Står der i opskriften at de 6m skal strikkes i retstrik, så skal du ikke strikke flere kantm end hvad der står i opskriften. God fornøjelse!

10.05.2010 - 12:17

country flag Susan wrote:

Hej, Jeg skal i gang med at strikke jakken. Hvad betyder det at der står at de 6 yderste masker i hver side mod midt foran er = forkant? Når man strikker retstrik er der vel ikke behov for at lave kantmasker eller hvordan skal jeg forstå det? Mvh. Susan

08.05.2010 - 19:08

country flag Drops Design wrote:

Du lukker 2 m af i hver side på hver 2.p 8 gange.

16.10.2009 - 08:42

country flag Ellen Wendell wrote:

Jeg er ved atr strikke jakken, men ærmerne passer ikke når jeg skal sy dem i. hvordan gør jeg når der står at der skal lukkes af i hver side til ærmekuppelpå hver 2.p:2mx8??

15.10.2009 - 23:28