DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Cables and Cuddles Bib

Prjónaður smekkur fyrir börn úr DROPS Safran. Stykkið er prjónað fram og til baka, ofan frá og niður í garðaprjóni og köðlum. Stærð 0 – 4 ára.

DROPS Baby 45-16
DROPS Design: Mynstur e-084-by
Garnflokkur A
-----------------------------------------------------------

STÆRÐ:
0/3 - 6/9 - 12/18 mánaða (2 - 3/4) ára
Hæð mælt í miðju ca: 10-12-14 (18-20) cm
Lengd mælt meðfram efri hlið ca: 39-43-47 (61-65) cm

EFNI:
DROPS SAFRAN frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki A)
50-50-50 (50-50) g litur 50, mynta

TÖLUR:
DROPS TALA, NR 521: 1 stk.

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNN NR 3,5: lengd 60 cm.
DROPS KAÐLAPRJÓNN

PRJÓNFESTA:
24 lykkja á breidd og 48 umferðir á hæð með garðaprjóni = 10 x 10 cm.
Mynstur A.1 mælist ca 7 cm á breidd.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Safran
DROPS Safran
100% Bómull
frá 440.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 440.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

GARÐAPRJÓN (prjónað fram og til baka):
Lykkjurnar eru prjónaðar slétt í öllum umferðum.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

SMEKKUR - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Stykkið er prjónað fram og til baka á hringprjóna, ofan frá og niður.

SMEKKUR:
Fitjið upp 27 lykkjur í öllum stærðum á hringprjón 3,5 með DROPS Safran.
Prjónið 1 umferð slétt yfir allar lykkjur frá röngu.
UMFERÐ 1 (rétta):
Prjónið 2 kantlykkjur í GARÐAPRJÓN – sjá útskýringu að ofan, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir 21 lykkju, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 1 lykkju garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (það hafa verið auknar út 6 lykkjur í umferð, 2 af þessum lykkjum hafa verið auknar út í A.1). Það eru 33 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 2 (ranga):
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, prjónið A.1 yfir 23 lykkjur, prjónið 3 lykkjur garðaprjón, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (2 lykkjur fleiri). Það eru 35 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 3 (rétta):
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón fram að A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir 23 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (4 lykkjur fleiri og 2 lykkjur færri í A.1). Það eru 37 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 4 (ranga):
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón fram að A.1, prjónið A.1 yfir 21 lykkjur, prjónið garðaprjón þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (2 lykkjur fleiri). Það eru 39 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 5 (rétta):
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón fram að A.1, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið A.1 yfir 21 lykkjur, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (það hafa verið auknar út 6 lykkjur í umferð, 2 af þessum lykkjum hafa verið auknar út í A.1). Það eru 45 lykkjur í umferð.
UMFERÐ 6 (ranga):
Prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni, sláið 1 sinni uppá prjóninn, prjónið garðaprjón fram að A.1, prjónið A.1 yfir 23 lykkjur, prjónið garðaprjón þar til 2 lykkjur eru eftir, sláið 1 sinni uppá prjóninn og prjónið 2 kantlykkjur í garðaprjóni (2 lykkjur fleiri). Það eru 47 lykkjur í umferð.
ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Prjónið eins og umferð 3 og 6 (aukið er út um 4 lykkjur frá réttu og 2 lykkjur frá röngu, A.1 hefur breytilegan lykkjufjölda með 21 eða 23 lykkjum). Prjónið þar til stykkið mælist ca 9-11-13 (17-19) cm mælt fyrir miðju á A.1 – stillið af að síðasta umferðin sem prjónuð er sé umferð 2 eða umferð 6 í A.1. Prjónið 4 umferðir garðaprjón yfir allar lykkjur. Fellið af með sléttum lykkjum frá réttu.

FRÁGANGUR:
Festið tölu í öðrum enda á smekknum (tölunni er hneppt í gegnum eitt af götum innan við 2 kantlykkjur í garðaprjóni).

Þetta mynstur hefur verið leiðrétt.

Yfirfarið á vefsvæði: 15.08.2023
Mynsturteikning A.1 hefur verið uppfærð og fjöldi lykkja leiðréttur í byrjun í mynstri.
Yfirfarið á vefsvæði: 29.09.2023
Leiðrétting í mynsturteikningu í umferð 3-6 í uppskrift.

Mynstur

symbols = slétt lykkja frá réttu, brugðin lykkja frá röngu

symbols = brugðin lykkja frá réttu, slétt lykkja frá röngu
symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn, uppslátturinn er prjónaður brugðið frá röngu svo það myndist gat
symbols = prjónið 3 lykkjur slétt, lyftið fyrstu lykkjunni sem var prjónuð (af þessum 3 lykkjum) yfir hinar tvær lykkjurnar, þannig að lyfta lykkjan liggi utan um hinar tvær lykkjurnar (1 lykkja færri)
symbols = þessi rúða sýnir enga lykkju þar sem búið er að fækka um þessa lykkju áður, farðu beint áfram í næstu rúðu í mynsturteikningu
symbols = setjið 3 lykkjur á kaðlaprjón aftan við stykkið, prjónið 1 lykkju slétt, prjónið 3 lykkjur slétt af kaðlaprjóni
symbols = setjið 1 lykkju á kaðlaprjón framan við stykkið, prjónið 3 lykkjur slétt, prjónið 1 lykkju slétt af kaðlaprjóni
diagram
Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Skrifaðu athugasemd um DROPS Baby 45-16

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (8)

country flag Marchand wrote:

Bonjour Je tricote avec des aiguilles droites. Y a t-il des modifications à faire? Merci pour votre réponse

08.12.2023 - 17:58

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Marchand, dans le cas présent, il n'y a aucune modification à faire, retrouvez ici d'autres informations sur les aiguilles circulaires. Bon tricot!

11.12.2023 - 07:13

country flag Margarete Czernecki wrote:

Vielen lieben Dank für die schnelle Antwort zum Anleitung 45-16 ,es erscheint mir jetzt logischer nur dann muss ich statt 29 doch 27 Maschen anschlagen?wäre das richtig? Sonst wenn ich in der 2-te Hinreihe den Anschlag zwischen den beiden re.Maschen mache habe ich 2 Maschen zu viel also statt 33 sind es 35 Maschen.Wenn ich in dem Diagramm 9 re.Maschen stricke bleiben mir am Ende dann die zwei zuviel...ich hoffe,Sie verstehen was ich meine...Herzlichen Dank für Ihre Unterstützung.

22.08.2023 - 18:27

DROPS Design answered:

Liebe Frau Czernecki, ja genau, eine Korrektur von der deutschen Anleitung kommt so schnell wie möglich, 27 Maschen muss man am Anfang anschlagen. Viel Spaß beim stricken!

23.08.2023 - 07:56

country flag Margarete Czernecki wrote:

Hallo,ich versuche immer wieder dieses Lätzchen 45-16 zu stricken,scheitere jedoch direkt am Anfang der Arbeit. Wie soll ich die Masche bearbeiten welche als schwarze Kästchen im Diagramm dargestellt ist?Ich meine in der erste Reihe konnte ich noch keine Masche abgenommen(nur re.Maschen)haben und mit dem A1 Diagramm fängt man doch in der zweite Hinreihe...was mache ich falsch?\r\nUnd werden die Rückreihen nicht so gearbeitet wie sie erscheinen?\r\nVielen Dank vorab!!

20.08.2023 - 00:38

DROPS Design answered:

Liebe Frau Czernecki, bei der 1. und 2 . Reihe existiert diese Masche noch nicht, so wird man hier 2 M rechts glatt stricken (bei der 2. Reihe stricken Sie 1 M re, 1 Umschlag, 1 M re), so sind es jetzt 3 Maschen bei der nächsten Reihe, und bei der 4. Reihe wird man 1 Masche abnehmen (= 3 Maschen rechts stricken, die erste gestrickte Masche (dieser 3 Maschen) über die beiden anderen ziehen, sodass diese Masche um die beiden anderen herum liegt (1 Masche abgenommen)). Viel Spaß beim stricken!

21.08.2023 - 09:38

country flag Merete Jensen wrote:

Jeg vil gerne strikke hagesmækker 45-16 men det ser ud til at diagrammet begynder forkert det siger at A.1 er 23 masker men første pind er 21 masker jeg har jo ikke taget ind endnu hvor begynder jeg

07.08.2023 - 10:27

DROPS Design answered:

Hej Merete, det kan jeg godt se, vi skal lade design se på diagrammet, så kommer der en rettelse. Hvis du ikke vil vente kan du strikke de 2 masker ret, så det først bliver taget ind på 4.pind :)

10.08.2023 - 14:23

country flag Zz wrote:

Bonjour, Y a t il une erreur dans le motif ? De bas en haut, on voit une maille manquante et de haut en bas on ajoute que 2 mailles et non 4 comme précisé. Merci

25.07.2023 - 22:41

DROPS Design answered:

Bonjour, S'il s'agit du diagramme A.1: en bas on a 2 mailles manquantes (2 carres noirs) au premier rang > 21 mailles. En haut (rang 8): 2 mailles sont diminuees > 21 mailles. Bon tricot!

26.07.2023 - 08:24

country flag Petra wrote:

Det här känns ju knepigt… varv 1 är rät enligt mönstret och varv 2 avig. Ska man verkligen sticka flätor på avigvarven?

17.06.2023 - 19:15

DROPS Design answered:

Hei Petra. Takk for ditt innspill. Design avd skal ta en dobbeltsjekk på oppskriften og evnt. komme med en forandring/rettelse. mvh DROPS Design

19.06.2023 - 09:44

country flag Toni Burgau wrote:

I sent an question earlier and tells me it is too long - so I will shorten this question....when I am knitting the ROW 1 and working the chart with 23 stitches I end up with 2 extra at the end of the row - is this because of the black squares in the first row should be knit and not ignored as it indicates in the explanation field?

06.06.2023 - 14:08

DROPS Design answered:

Dear Toni, those stitches should be skipped; in that specific row, the number of stitches in the chart would be 21 instead of 23. You will increase to 23 in the next row. So there would be 21 stitches in the chart and 31 stitches in the row. In that case, you should cast on 2 less stitches. We will check with the design department to see and correct the mistakes in the pattern. There may be a delay in the response due to the vacation period. Happy knitting!

17.06.2023 - 17:24

country flag Debora wrote:

Buonasera, come posso lavorare il motivo A1 di 23 maglie se ne ho avviate solo 5? Non riesco a capire, grazie mille!

21.05.2023 - 20:04

DROPS Design answered:

Buonasera Debora, grazie per la segnalazione, deve avviare 29 maglie per il bavaglino. Abbiamo corretto il testo. Buon lavoro!

22.05.2023 - 16:33