DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

DROPS SS24

Green Grove Tee

Prjónuð peysa með stuttum ermum úr DROPS Muskat eða DROPS Cotton Merino. Stykkið er prjónað ofan frá og niður með hringlaga berustykki og gatamynstri. Stærð S - XXXL.

DROPS 239-26
DROPS Design: Mynstur r-805
Garnflokkur B
-------------------------------------------------------

STÆRÐ:
S - M - L - XL - XXL - XXXL

EFNI:
DROPS MUSKAT frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
450-500-550-600-650-700 g litur 89, ljós sægrænn

Eða notið:
DROPS COTTON MERINO frá Garnstudio (tilheyrir garnflokki B)
400-450-500-550-600-650 g litur 29, sægrænn

PRJÓNAR:
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 4: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS HRINGPRJÓNAR NR 3: lengd 40 cm og 80 cm.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 4.
DROPS SOKKAPRJÓNAR NR 3.
Hægt er að nota MAGIC LOOP aðferðina – þá þarf einungis hringprjón 80 cm í hverju prjónanúmeri.

PRJÓNFESTA:
21 lykkja á breidd og 28 umferðir á hæð með sléttprjóni = 10 x 10 cm.
ATH: Prjónastærð er einungis til leiðbeiningar. Ef þú ert með of margar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í grófari prjóna. Ef þú ert með of fáar lykkjur á 10 cm, skiptu yfir í fínni prjóna.

-------------------------------------------------------

Garnmöguleiki – Sjá hvernig breyta á um garn hér
Garnflokkur A til F – Nota sama mynstur og breyta um garn hér
Efnismagn ef notað er annað garn – Notaðu umreiknitöfluna okkar hér

-------------------------------------------------------

DROPS Muskat
DROPS Muskat
100% Bómull
frá 572.00 kr /50g
Þú færð garn sem þarf í að gera þetta mynstur frá 5148.00kr.

Garnkostnaður er reiknaður út frá minnstu stærð mynsturs og ódýrustu vörutegund garns. Ertu að leita að enn betra verði? Þú gætir fundið það á DROPS Tilboð!

Leiðbeiningar um mynstur

-------------------------------------------------------

UPPLÝSINGAR FYRIR MYNSTUR:

-------------------------------------------------------

ÚTAUKNING:
Aukið út um 1 lykkju með því að slá 1 sinni uppá prjóninn. Í næstu umferð er uppslátturinn prjónaður snúinn, svo ekki myndist gat.

MYNSTUR:
Sjá mynsturteikningu A.1 til A.4. Mynsturteikning sýnir allar umferðir í mynstri séð frá réttu.

ÚRTAKA (á við um miðju undir ermum í stærð L, XL, XXL og XXXL):
Fækkið um 1 lykkju hvoru megin við prjónamerki þannig: Prjónið þar til 3 lykkjur eru eftir á undan prjónamerki, prjónið 2 lykkjur slétt saman, prjónið 2 lykkjur slétt (prjónamerki situr á milli þessa 2 lykkja), lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, 1 lykkja slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð (2 lykkjur færri).

-------------------------------------------------------

BYRJIÐ Á STYKKI HÉR:

-------------------------------------------------------

PEYSA - STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Kantur í hálsmáli og berustykki er prjónað í hring á hringprjóna frá miðju að aftan, ofan frá og niður. Berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar. Fram- og bakstykki er prjónað í hring á hringprjóna. Ermar eru prjónaðar í hring á sokkaprjóna / stuttan hringprjón.

KANTUR Í HÁLSMÁLI:
Fitjið upp 122-126-130-136-142-148 lykkjur á stuttan hringprjón 3 með DROPS Muskat eða DROPS Cotton Merino. Prjónið 1 umferð slétt. Prjónið síðan stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 3 cm.
Þegar stroffið hefur verið prjónað til loka, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 36-38-40-44-48-52 lykkjur jafnt yfir – sjá ÚTAUKNING = 158-164-170-180-190-200 lykkjur. Setjið 1 prjónamerki mitt í umferð. Berustykkið er nú mælt frá þessu prjónamerki.

BERUSTYKKI:
Skiptið yfir á hringprjón 4. Prjónið A.1 hringinn á berustykki. Þegar A.1 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn. ATHUGIÐ PRJÓNFESTUNA!
Þegar stykkið mælist 4-4-5-5-6-6 cm frá prjónamerki, aukið út um 40-44-50-56-60-64 lykkjur jafnt yfir – munið eftir ÚTAUKNING = 198-208-220-236-250-264 lykkjur.
Þegar stykkið mælist 7-7-8-8-9-10 cm frá prjónamerki, prjónið A.2 hringinn á berustykki. ATH: Í 11. umferð í mynsturteikningu færist byrjun á umferð til um 2 lykkjur til hægri til að mynstrið gangi jafnt upp hringinn alla umferðina.
Síðan byrja næsta umferð aftur eins og áður.
JAFNFRAMT í hverri umferð merktir með ör í mynsturteikningu er aukið út jafnt yfir þannig:
Ör-1: Aukið út 42-44-50-58-62-66 lykkjur jafnt yfir = 240-252-270-294-312-330 lykkjur (nú er pláss fyrir 40-42-45-49-52-55 mynstureiningar með A.2 hringinn á berustykki).
Ör-2: Aukið út 38-42-48-56-58-58 lykkjur jafnt yfir = 278-294-318-350-370-388 lykkjur.

Þegar A.2 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.3 hringinn á berustykki. JAFNFRAMT í umferð merktri með ör er aukið út jafnt yfir þannig:
Ör-3: Aukið út 32-36-42-50-50-52 lykkjur jafnt yfir = 310-330-360-400-420-440 lykkjur.

Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið A.4 hringinn á berustykki. Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið sléttprjón, en athugið að í nokkrum stærðum skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar eins og útskýrt er að neðan, áður en A.4 hefur verið prjónað til loka.

SKIPTING FYRIR FRAM- OG BAKSTYKKI OG ERMAR:
Þegar berustykkið mælist 17-18-20-21-23-25 cm frá prjónamerki, skiptist berustykkið fyrir fram- og bakstykki og ermar. Ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka í þinni stærð, prjónið A.4 til loka á fram- og bakstykki og ermum.
Prjónið 47-51-55-61-65-69 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið 95-101-110-122-130-138 lykkjur eins og áður (framstykki), setjið næstu 60-64-70-78-80-82 lykkjur á þráð fyrir ermi, fitjið upp 10-10-12-12-14-16 nýjar lykkjur á prjóninn (í hlið undir ermi), prjónið síðustu 48-50-55-61-65-69 lykkjur eins og áður (hálft bakstykki). Fram- og bakstykki og ermar er síðan prjónað til loka hvert fyrir sig. Héðan er nú stykkið mælt.

FRAM- OG BAKSTYKKI:
= 210-222-244-268-288-308 lykkjur. Ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki í þinni stærð, prjónið A.4 til loka (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp í hliðum mitt undir hvorri ermi, en passið uppá að mynstrið haldið beint áfram yfir lykkjur frá berustykki og prjónið mynstur eins langt og hægt er inn að hvorri hlið undir ermum, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni).
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón.
Þegar prjónaðir hafa verið 6-6½-7-7-7½-7½ cm sléttprjón eftir A.4, prjónið A.3 hringinn á fram- og bakstykki.
Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón í 6-6½-7-7-7½-7½ cm.
Prjónið síðan A.3 aftur hringinn á fram- og bakstykki. Þegar A.3 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón.
Þegar stykkið mælist 25-26-26-27-27-27 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem aukið er út um 20-22-22-26-28-30 lykkjur jafnt yfir = 230-244-266-294-316-338 lykkjur.
Skiptið yfir á hringprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af.
Peysan mælist ca 52-54-56-58-60-62 cm frá öxl.

ERMI:
Setjið 60-64-70-78-80-82 lykkjur af þræði í annarri hlið á stykki á sokkaprjóna eða stuttan hringprjón 4 – prjónið að auki upp 1 lykkju í hverja af 10-10-12-12-14-16 lykkjum sem fitjaðar voru upp undir ermi = 70-74-82-90-94-98 lykkjur.
Setjið 1 prjónamerki mitt undir ermi (mitt í 10-10-12-12-14-16 lykkjur).
Byrjið umferð við prjónamerki. Ef A.4 hefur ekki verið prjónað til loka á berustykki í þinni stærð, prjónið A.4 til loka (mynstrið kemur ekki til með að ganga jafnt upp mitt undir ermi, en passið uppá að mynstrið haldið beint áfram yfir lykkjur frá berustykki og prjónið mynstur eins langt og hægt er að miðju undir ermi, þær lykkjur sem eru eftir eru prjónaðar í sléttprjóni).
Þegar A.4 hefur verið prjónað til loka, prjónið sléttprjón hringinn.
Í stærð L, XL, XXL og XXXL á að fækka lykkjum mitt undir ermi eins og útskýrt er að neðan (lykkjum er ekki fækkað í stærð S og M).
STÆRÐ L, XL, XXL og XXXL:
Þegar ermin mælist 4-3-3-2 cm frá skiptingu, fækkið um 2 lykkjur mitt undir ermi – sjá ÚRTAKA.
Fækkið lykkjum svona með 4-3-3-2 cm millibili alls 2-3-3-3 sinnum = 78-84-88-92 lykkjur.
ALLAR STÆRÐIR:
Þegar ermin mælist 14-14-12-11-10-8 cm frá skiptingu, prjónið 1 umferð slétt þar sem fækkað er um 4-6-8-10-10-10 lykkjur jafnt yfir = 66-68-70-74-78-82 lykkjur.
Skiptið yfir á sokkaprjón 3. Prjónið stroff (1 lykkja slétt, 1 lykkja brugðið) í 4 cm. Fellið aðeins laust af. Ermin mælist ca 18-18-16-16-14-12 cm frá skiptingu.
Prjónið hina ermina á sama hátt.

Mynstur

symbols = slétt lykkja
symbols = brugðin lykkja

symbols = á milli 2 lykkja er slegið 1 sinni uppá prjóninn
symbols = 2 lykkjur slétt saman
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 1 lykkju slétt, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjuna sem var prjónuð
symbols = lyftið 1 lykkju af prjóni eins og prjóna eigi slétt, prjónið 2 lykkjur slétt saman, steypið lyftu lykkjunni yfir lykkjurnar sem prjónaðar voru saman
symbols = útaukningsumferð
diagram
diagram

Hvert mynstur okkar hefur sérstök kennslumyndbönd til að hjálpa þér.

Ertu með spurningu? Sjá lista yfir algengar spurningar (FAQ)

Prjónfesta er það sem ákveður endanlega mælingu á stykkinu þínu og er oftast mæld per 10 x 10 cm. Prjónfestan er tekin þannig: fjöldi lykkja á breidd x fjöldi lykkja í umferð á hæðina – t.d: 19 lykkjur x 26 umferðir = 10 x 10 cm.

Prjónfestan er mjög einstaklingsbundin; sumir prjóna/hekla laust á meðan aðrir prjóna þéttar. Þú aðlagar festuna með grófleika á prjóni, þess vegna er uppgefin prjónastærð hjá okkur aðeins til leiðbeiningar! Þú þarft að stilla prjónfestuna af (upp eða niður) til að tryggja að prjónfestan þín passi við þá festu sem er gefin upp í mynstri. Ef þú vinnur með aðra prjónfestu en þá sem gefin er upp þá þarftu annað efnismagn og verkefnið þitt kemur til með að hafa annað mál en sem stendur í uppskrift.

Prjónfestan ákveður einnig hvaða garni er hægt að skipta út og setja inn annað. Svo lengi sem þú nærð sömu prjónfestu þá getur þú skipt einu garni út fyrir annað.

Sjá DROPS kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu /gera prufu

Efnismagn af garni er gefið upp í grömmum, t.d.: 450 g. Til þess að reikna út hversu margar dokkur þú þarft þá verður þú fyrst að vita hversu mörg grömm eru í einni dokku (25g, 50g eða 100g). Þessar upplýsingar eru aðgengilegar ef þú smellir á garntegundirnar á síðunni okkar. Deildu síðan uppgefnu efnismagni með magni í hverri dokku. T.d. ef hver dokka er 50g (algengasta tegundin), þá verður útreikningurinn sem hér segir: 450/50 = 9 dokkur.

Það mikilvægasta þegar skipt er frá einu garni yfir í annað er að prjón-/heklfestan verði sú sama. Það er svo að mælingar á full unnu stykki verði þær sömu og á skissunni sem fylgir mynstrinu. Það er auðveldara að ná sömu prjónfestu með því að nota garn úr sama garnflokki. Einnig er hægt að vinna með mörgum þráðum saman með fínna garni til að ná prjónfestu á grófara garni. Endilega notaðu garnreiknivélina okkar. Við mælum alltaf með að þú gerir prufustykki.

Vinsamlegast ATHUGIÐ: þegar garni er skipt út þá getur þú fengið annað útlit og áferð á flíkina en sem er sýnt á myndinni, garnið hefur mismunandi eiginleika og gæði.

Sjá DROPS kennsla: Get ég notað annað garn en það sem gefið er upp í mynstri?

Allt garnið okkar er flokkað í garnflokka (frá A til F) eftir grófleika og prjónfestu - garnflokkur A samanstendur af fínasta garninu okkar og garnflokkur F grófasta garninu okkar. Þetta auðveldar þér að finna garn sem passar fyrir mynstrið þitt, langi þig til að skipta um garn. Allt garn í sama garnflokki hefur sömu prjónfestu og má nota sem valmöguleika þegar skipt er um garn . Hins vegar skaltu hafa í huga að garnið getur haft mismunandi eiginleika og áferð, sem gefur verkinu einstakt útlit.

Smelltu hér til að fá yfirlit yfir garn í hverjum garnflokki

Efst í öllum mynstrunum okkar finnur þú link að garnreiknivélinni okkar, sem er hjálpartæki þegar þú vilt skipta út garni fyrir annað garn en það sem gefið er upp í uppskrift. Með því að setja inn þá tegund af garni sem þú ætlar skipta út, fjölda (í þinni stærð) lykkja, þá reiknar reiknivélin út þá möguleika af garni með sömu prjónfestu. Að auki mun reiknivélin segja til um hversu mikið magn þú þarft af nýja garninu og hvort þú þurfir að hafa fleiri en einn þráð. Flestar dokkurnar okkar eru 50g (sumar 25g og 100g).

Ef mynstrið er unnið með mörgum litum, þá verður að reikna út hvern lit fyrir sig. Á sama hátt ef mynstrið er með nokkrum þráðum af mismunandi garni (t.d. 1 þræði Alpaca og 1 þræði Kid-Silk) þá verður þú að finna út möguleika fyrir hvert garn, fyrir sig.

Smelltu hér til að sjá garnreiknivélina okkar

Þar sem mismunandi garn er með mismunandi eiginleika og áferð þá höfum við valið að halda upprunalegu garntegundinni í mynstrunum okkar. Hins vegar þá getur þú auðveldlega fundið aðra valkosti með því að nota garnreiknivélina okkar, eða einfaldlega valið garn úr sama garnflokki.

Það er hugsanlegt að sumar verslanir eigi enn garn sem hætt er í framleiðslu eða að einhver eigi nokkrar dokkur heima sem langar til að finna mynstur sem passar garninu.

Notaðu garnreiknivélina sem mun koma með tillögu að öðru garni og nauðsynlegt efnismagn fyrir nýja garnið.

Ef þér finnst erfitt að ákveða hvaða stærð þú átt að gera getur verið gott að mæla flík sem þú átt nú þegar og líkar við stærðina á. Síðan geturðu valið stærðina með því að bera þessi mál saman við þær stærðir sem til eru í stærðartöflu mynstrsins.

Þú finnur stærðartöfluna neðst á mynstrinu.

Prjónastærðin er einungis gefin upp til leiðbeiningar, mikilvægt er að ná réttri prjónfestu. Prjónfestan getur verið mjög einstaklingsbundin, þú verður að skipta út prjónum til að vera viss um að prjónfestan ÞÍN verði sú saman og í mynstrinu – kannski verður þú að fara upp eða niður um 1 eða 2 grófleika á prjónum til að ná réttri prjónfestu. Fyrir það þá mælum við með að þú gerir prjónaprufu.

Ef þú ert með aðra prjónfestu en sem gefin er upp í mynstri, þá verða málin á flíkinni önnur en þau mál sem gefin eru upp í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að mæla prjónfestu

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að kanna prjónfestu / gera prufu

Að vinna með flík frá toppi og niður gefur meiri sveigjanleika til að láta flíkina passa betur. T.d. er auðveldara að máta flíkina á meðan hún er enn í vinnslu, sem og jafna til lengd á ermum, berustykki og öxlum.

Leiðbeiningarnar eru sérstaklega með útskýringum á hverju þrepi, í réttri röð. Mynsturteikning er sniðin að prjónfestu og er unnin eins og venjulega.

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri. 1 rúða = 1 lykkja.

Þegar prjónað er fram og til baka, þá er önnur hver umferð prjónuð frá réttu og önnur hver umferð prjónuð frá röngu. Þar sem mynsturteikning sýnir allar lykkjur séð frá réttu þá verður þú að prjóna frá gagnstæðri hlið þegar prjónað er frá röngu: frá vinstri til hægri, sléttar lykkjur eru prjónaðar brugðnar, brugðnar lykkjur eru prjónaðar sléttar o.s.frv.

Þegar prjónað er í hring þá er hver umferð prjónuð frá hægri hlið og mynsturteikning er unnin frá hægri til vinstri í öllum umferðum/hringjum.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Mynsturteikning útskýrir allar umferðir/hringi og hverja lykkju séð frá réttu. Teikningin er lesin frá botni upp á topp, frá hægri til vinstri..

Þegar heklað er fram og til baka er önnur hver umferð hekluð frá réttu: frá hægri til vinstri og önnur hver umferð hekluð frá röngu: frá vinstri til hægri.

Þegar heklað er í hring, er hver umferð í mynsturteikningu hekluð frá hægri hlið, frá hægri til vinstri.

Þegar hekluð er hringlaga mynsturteikning þá byrjar þú í miðju og vinnur þig út á við, réttsælis, umferð eftir umferð.

Umferðirnar byrja yfirleitt með ákveðnum fjölda af loftlykkjum (jafngilda hæð á eftirfarandi lykkjum), þetta er annað hvort útskýrt í mynstri eða lýst í mynsturteikningu.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Í leiðbeiningum þegar unnið er eftir nokkrum mynsturteikningum á eftir hverri annarri í sömu umferð/hring, þá er oftast skrifað þannig: „ prjónið A.1, A.2, A.3 alls 0-0-2-3-4 sinnum“. Þetta þýðir að þú prjónar A.1 einu sinni, síðan er A.2 prjónað einu sinni, svo er A.3 endurtekið (á breiddina) í þeim fjölda sem er gefinn upp í þinni stærð – í þessu dæmi þá er: S = 0 sinnum, M = 0 sinnum, L = 2 sinnum, XL = 3 sinnum og XXL = 4 sinnum.

Mynsturteikningin er unnin eins og venjulega: Byrjað er á fyrstu umferð í A.1, síðan er prjónuð fyrsta umferð í A.2 o.s.frv.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa prjón mynsturteikningu

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa hekl mynsturteikningu

Heildar breidd á flíkinni (frá úlnlið að úlnlið) verður lengri í stærri stærðum, þrátt fyrir að ermin verði styttri. Stærri stærðirnar hafa lengri ermakúpu og breiðari axlir, þannig að peysan passi vel í öllum stærðum.

Stærðarteikning/skýringarmynd veitir upplýsingar um alla lengd á flíkinni. Ef þetta er jakkapeysa eða peysa þá er lengdin mæld frá hæsta punkti á öxl næst hálsmáli og beint niður að enda á stykkinu. EKKI er mælt frá enda á öxl. Á sama hátt er berustykkið mælt frá hæsta punkti á öxl og niður þar sem berustykkið skiptist fyrir fram- og bakstykki og ermar.

Á opnum peysum/jakkapeysum eru málin aldrei tekin meðfram kantlykkjum að framan, nema ef sérstaklega er sagt til um það. Mælið ávallt innan við kantlykkjur að framan þegar lengdin er mæld.

Sjá DROPS Kennsla: Hvernig á að lesa úr stærðarteikningu

Mynstureining er oft endurtekin í umferðinni eða á hæðina. 1 endurtekning á mynstureiningu eins og hún birtist í mynstri. Ef tekið er fram að endurtaka eigi A.1 5 sinnum í umferð, þá vinnur þú A.1 alls 5 sinnum á eftir hverju öðru í umferðinni. Ef tekið er fram að prjóna eigi mynstureiningu A.1 2 sinnum á hæðina þá vinnur þú mynstureininguna einu sinni, byrjar aftur frá upphafi og vinnur mynstureininguna einu sinni enn.

Loftlykkjur eru aðeins þrengri en aðrar lykkjur og til þess að koma í veg fyrir að uppfitjunarkanturinn verði of stífur, þá gerum við einfaldlega fleiri lykkjur til að byrja með. Lykkjufjöldinn verðu síðan stilltur af í næstu umferð til að passa inn í mynstur og mælingar á teikningu.

Stroff kantur er með meiri teygjanleika samanborið við t.d. sléttprjón. Með því að auka út fyrir stroffi, þá kemur þú í veg fyrir sýnilegan mun á breidd á milli stroffs og afgangs af stykki.

Mjög auðvelt er að fella of fast af, með því að slá uppá prjóninn jafnframt því að fella af (uppslátturinn er felldur af eins og venjuleg lykkja) þá kemur þú í veg fyrir að affellingarkanturinn verði of stífur.

Sjá DROPS myndband: Hvernig á að fella af með uppslætti

Til að jafna út útaukningu (úrtöku) getur þú aukið út t.d: Í 3. hverri og 4. hverri umferð, eða þannig: þú prjónar 2 umferðir og eykur út í 3. umferð, prjónar 3 umferðir og eykur út í 4. umferð. Endurtekur þetta síðan þar til útaukningin hefur verið gerð til loka.

Sjá DROPS Kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að auka út/fella af til skiptis í 3. og 4. hverri umferð

Ef þú vilt frekar vinna peysu í hring í stað fram og til baka, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu. Þú þarf að bæta við lykkjum að framan til að klippa í (oftast 5 lykkjur) og fylgja leiðbeiningunum. Þegar þú snýrð vanalega við og vinnur frá röngu, þá hreinlega heldur þú áfram yfir auka lykkjurnar að framan og heldur áfram hringinn. Í lokin þá klippir þú stykkið upp, tekur upp lykkjur til að gera kant og felur brúnirnar.

Sjá DROPS kennslumyndband: Hvernig á að klippa upp fyrir handveg

Ef þú vilt frekar vinna peysu fram og til baka í stað þess í hring, þá getur þú auðvitað breytt mynstrinu þannig að stykkin séu prjónuð sér og sett saman í lokin. Deildu lykkjufjöldanum á fram- og bakstykki með 2, bættu við 1 kantlykkju í hvorri hlið (fyrir saum) og þá getur þú unnið fram- og bakstykki hvort fyrir sig.

Sjá DROPS kennsluleiðbeiningar: Hvernig á að prjóna uppskrift sem prjóna á í hring og prjóna hana fram og til baka?

Mynstrin endurtaka sig með örlitlum mun eftir stærðum, til að þau verði í réttum hlutföllum. Ef þú ert ekki að vinna með nákvæmlega sömu stærð og flíkin á myndinni, þá gætir þú velt þér yfir þessu. Þetta hefur verið valdlega hannað og aðlagað þannig að heildar útlitið á flíkinni sé sú saman í öllum stærðum.

Vertu bara viss um að fylgja vel leiðbeiningunum og skýringum á mynsturteikningu fyrir þína stærð!

Ef þú hefur fundið mynstur sem þér líkar við og er fáanlegt í kvenmanns stærð þá er ekki mjög erfitt að breyta því yfir í karlmanns stærð. Stærsti munurinn er lengd á ermum og búk. Byrjaðu að vinna í kvenmanns stærðinni sem þú heldur að passi yfirvídd á brjósti. Viðbætt lengd er unnin rétt áður en fellt er af fyrir handveg. Ef mynstrið er unnið ofan frá og niður þá er hægt að bæta við lengd rétt á eftir handveg eða á undan fyrstu úrtöku fyrir ermi.

Hvað varðar viðbótar garnið, þá fer það eftir því hversu mikið þú bætir við, en það er alltaf betra að hafa eina dokku meira en minna.

Allt garn er með umfram trefjar (frá framleiðslu) sem geta losnað. Loðið garn (brushed) er með meira af lausum, auka trefjum, sem geta losnað.

Þar af leiðandi þá er ekki hægt að ábyrgjast að loðið garn (brushed) sé 100 % non-shedding (að trefjarnar losni ekki frá), en það er hægt að lágmarka þetta með því að fylgja þessum leiðbeiningum:

1. Þegar flíkin er full unnin (áður en þú þværð hana) hristu flíkina kröftuglega þannig að lausar trefjar falli af. ATH: EKKI nota lím rúllu bursta, bursta eða önnur áhöld sem toga til sín garnið.

2. Settu flíkina í plastpoka og settu í frysti – hitastigið veldur því að trefjarnar festast síður saman og allar auka trefjar falla betur frá.

3. Hafðu flíkina í frysti í nokkra klukkutíma áður en hún er tekin út og hrist kröftuglega aftur.

4. Þvoðu flíkina samkvæmt leiðbeiningum á leiðbeiningar miða á garninu.

Hnökur er náttúrulegt ferli sem gerist jafnvel með bestu trefjunum. Það er náttúrulegt merki um slit sem erfitt er að forðast og það sést best á svæðum með miklum núningi í flíkinni eins og handvegi á ermum á peysu.

Þú getur látið flíkina þína líta út eins og nýja með því að fjarlægja hnökrið, nota kamb eða hnökravél.

Finnurðu samt ekki svarið sem þú þarft? Flettu þá neðar og skrifaðu spurninguna þína svo einn af sérfræðingum okkar geti reynt að hjálpa þér. Þetta verður venjulega gert innan 5 til 10 virkra daga.
Í millitíðinni geturðu lesið spurningar og svör sem aðrir hafa skilið eftir þessu mynstri eða eða tekið þátt í DROPS Workshop á Facebook til að fá hjálp frá öðrum prjónurum/ heklurum!

Þú gætir líka haft gaman af...

Green Grove Tee

Magdalena, France

Green Grove Tee

Stricksteffi, United Kingdom

Skrifaðu athugasemd um DROPS 239-26

Við myndum gjarna vilja fá að heyra hvað þér finnst um þetta mynstur!

Ef þig langar að skifa inn spurningu, vertu þá viss um að velja réttan dálk að neðan, til þess að við getum svarað sem fyrst. Það verður að merkja við svæði merktri með *.

Athugasemdir / Spurningar (24)

country flag Marion wrote:

Hi, I have a question about the directions for the body of this pattern. It says: when piece measures 25-26-26-27-27-from division, knit 1 round while increasing 20-22-22-26-28-30 stitches evenly = 230-244-266-294-316-338 stitches.' Should this really be increase? Usually the transition from the body to the ribbing is decrease. It doesn't appear from the photo that the ribbing band is bigger than the body. Thank you

24.03.2024 - 17:34

DROPS Design answered:

Dear Marion, yes, it IS an increase. We do this, because ribbing tends to pull in the fabric rather strongly, causing it to look bunched up. By increasin stitches, we can avoid that. Happy Knitting!

24.03.2024 - 19:13

country flag Jane Rasch Jensen wrote:

Ærme str. L: 70 masker + 12 = 82 så står der tag to m ind 3 gange = 6 masker det giver 76 masker, men opskriften siger 88, så skal der tages 6 m ud til 88 eller passer det med 76 m? Derefter skal der tages 8 m jævnt ind til 70 m? Det kan ikke lade sig gøre!!

09.03.2024 - 11:04

DROPS Design answered:

Hei Jane. Du skal felle 2 masker midt under ermet 2 ganger (husk at beskrivelsen til str. S og M ikke er med i denne tallrekken (det felles ikke i str. S og M), slik at da blir 1. tall str. L). Da blir det i str. L: 70 + 12 = 82, fell 2 masker 2 ganger = 82 - 4 = 78 masker. mvh DROPS Design

18.03.2024 - 10:17

country flag Cristina Val wrote:

Buongiorno, è possibile usare il Belle oppure cambia la consistenza del modello? Grazie

05.03.2024 - 17:00

DROPS Design answered:

Buonasera Cristina, può lavorare con DROPS Belle se il campione corrisponde a quello indicato. Buon lavoro!

05.03.2024 - 22:13

country flag Andrea Stein wrote:

Sorry, habe den Denkfehler meinerseits gefunden. Danke, dass ihr uns immer mit Rat zur Seite steht.

23.01.2024 - 11:55

country flag Andrea Stein wrote:

Habe Schwierigkeiten mit der Abnahme am Ärmel. Laut Beschreibung habe ich 82 Maschen auf der Nadel und soll nun 3x 2 Maschen abnehmen, was 88 Maschen ergeben soll. Das ergibt rechnerisch keinen Sinn! Ich stricke die Größe L

23.01.2024 - 11:04

DROPS Design answered:

Liebe Frau Stein, in L sind es nur noch 78 Maschen (bei diesem Absatz ist Größe L die erste). Es wird 2 Mal abgenommen: 82 Maschen - 4 M = 78 Maschen übrig. Viel Spaß beim stricken!

24.01.2024 - 07:48

country flag Jan Smith wrote:

I am currently working on the Green Grove Tee. Drops 239-26. I am stuck on the yoke chart A2 round 11 "Displace beginning of round 2 stitches to the right". Please could you help

11.08.2023 - 12:29

DROPS Design answered:

Dear Mrs Smith, start this round when 2 stitches of the end of previous round are left on left needle, then work diagram as shown, then work the last 2 sts in first A.2 together with the first stitch next A.2, and continue like this to the end of the round. Happy knitting!

11.08.2023 - 15:27

country flag Liliane Maegh wrote:

Bij de 2 omslagen brei je die de volgende naald de eerste rechts en de tweede gedraaid? Of ook gewoon rechts zodat het gaatje groter is. . HET IS BIJ A2

25.07.2023 - 13:31

DROPS Design answered:

Dag Liliane,

De omslagen brei je op de volgende naald recht, zodat er gaatjes ontstaan.

01.08.2023 - 20:23

country flag Susanne wrote:

Hallo, ein sehr schöner Pullover. Wie kann man allerdings den Versatz beim Rundenwechsel vermeiden, wenn abwechselnd eine Reihe rechts eine Reihe links gestrickt wird. Vielen Dank für Eure Tipps.

25.06.2023 - 10:46

DROPS Design answered:

Liebe Susanne, Sie können mal versuchen, den Faden etwas mehr ziehen damit die letze linke Masche etwas enger der 1. Masche der Runde liegt. Viel Spaß beim stricken!

26.06.2023 - 08:44

country flag Olena wrote:

When dividing body and sleeves, it would make more sense to have an amount of stitches to be divided by 5, since A4 has a pattern of 5 stitches. For example, in XXXL cast on 17 new stitches and it will make total amount of stitches 310.

20.06.2023 - 23:10

country flag NATHALIE Boucher wrote:

Bonjour j aimerais savoir si vous avez une video pour le diagramme À.2 tour 11 svp car je suis visuel

29.05.2023 - 02:59

DROPS Design answered:

Bonjour Mme Boucher, nous n'avons pas de vidéo pour ce diagramme, procédez comme indiqué précédemment; cette vidéo pourra peut-être vous aider, nous y montrons comment commencer 1 maille avant le début des tours précédents (dans A.2, on va commencer 2 mailles avant). Bon tricot!

30.05.2023 - 11:01